Tíminn - 05.11.1988, Blaðsíða 11
Laugardagur 5. nóvember 1988
Tíminn 11
MINNING
Ólafía Eyjólfsdóttir
Fædd 1. september 1898
Dáin 27. október 1988
Foreldrar Ólafíu voru Halldóra
Guðrún Jónsdóttir og Eyjólfur Er-
lendsson. Þau fluttu sunnan úrBorg-
arfirði að Hundastapa í Hraun-
hreppi árið 1906 og sama ár komu
þau að Álftastekk í Álftaárlandi og
byggðu sér þar lítinn bæ. sá bær var
hlýlegur og vinalegur, þótt ekki væri
hann stór og þætti sjálfsagt knappur
á nútíma mælikvarða, fyrir barn-
marga fjölskyldu. Að auki var svo
talsverður gestagangur, því býlið lá
- um þjóðbraut þvera - og flestir
ferðuðust þá á hestum eða gangandi
og þarna var því tilvalinn áningar-
staður. Ekki bar á að í baðstofunni
væru nein teljandi þrengsli, enda er
sagt að þar sem hjartarými er nóg sé
alltaf nægilegt húsrúm. Enginn fór
heldur úr hlaði án þess að hafa þegið
góðgerðir, að íslenskum sveitasið.
Þó gæti maður hugsað að ekki hafi
alltaf verið til miklar matarbirgðir í
bænum.
Ekki var búið stórt og segir það sig
sjálft að börnin urðu að fara að
heiman jafn ótt og þau gátu orðið að
einhverju liði.
Frá heimili mínu, Álftá, var ör-
stutt út í Álftárstekk, eða Stekk,
eins og við sögðum venjulega, varla
meira en tíu mínútna gangur og
BÆKUR
1U
menn
SIGURÐUR
PÁLSSON
Ljóð
námu
menn
- Ný Ijóðabók eftir
Sigurð Pálsson
Bókaútgáfan FORLAGIÐ hefur
sent fra sér nýtt ljóðasafn eftir
Sigurð Pálsson - Ljóð námu menn.
Þetta er annað bindið í Ljóðnámu-
safni Sigurðar en fyrir þremur árum
gaf FORLAGIÐ út ljóðabók hans
Ljóð námu land. AÍls hafa áður
komið út fjórar ljóðabækur frá hendi
Sigurðar sem eru meðal þess lífvæn-
legasta og frumlegasta í íslenskum
skáldskap síðustu ára.
Eins og í fyrri ljóðabókum sínum
velur skáldið sér hversdagsmyndir
að yrkisefni og bregður á leik með
þær. En það er skapheitur og alvöru-
þrunginn leikur. Hér er fjallað um
mannlegt hlutskipti og mannleg sam-
skipti og höfðað jöfnum höndum til
tilfinninga og vitsmuna lesandans.
Sem fyrr er það höfuðviðleitni
skáldsins að gefa orðunum skarpa
merkingu - vinda hvers konar vana-
viðjar utan af tungumálinu. Ljóð
Sigurðar eru árás á sljóleika hvers-
dagsins, áskorun um að vakna til
lífsins - vakna til fegurðarinnar, -
segir að lokum í frétt frá FORLAG-
INU.
Ljóð námu menn er 64 bls. Prent-
smiðjan Oddi hf. prentaði. Ragn-
heiður Kristjánsdóttir hannaði
kápu.
fengum við systkinin stundum að
hlaupa þangað, til leikja við börnin
þar.
Þótt ég væri ekki nema fimm ára
þegar Eyjólfur dó og heimilið leystist
upp, man ég vel eftir svona leikferð-
um. Þetta var ekki lítil tilbreyting frá
því venjulega. Eitt man ég þó öðru
fremur, sem mér fannst ævintýri
líkast, en það var lítill hellisskúti í
annarri klettaborginni, sem afmark-
aði túnið. Inn í hann reyndum við að
troðast sem flest og þá var þetta
okkar litli bær þar sem við vorum
allsráðandi.
Þessar stundir, við ærsl og leiki,
liðu alltof fljótt að okkar mati, en
lífið var ekki eintómur leikur, sagði
eldri kynslóðin og við gátum ekki
verið eins lengi að heiman og okkur
þóknaðist hverju sinni. Aldrei leyfði
þó Halldóra að við færum til baka
fyrr en hún hafði gert okkur eitthvað
gott.
Ólafía var elst af systkinum sínum
og fór innan við fermingu að vinna
fyrir sér. Á unglingsárum réðst hún
til foreldra minna að Álftá og var þar
um árabil. Urðu æ síðan hlý tengsl
milli hennar og þeirra, meðan þeim
entist aldur.
Ég var að vísu ung þegar hún fór,
en ég ólst upp með þeirri tilfinningu,
að við ættum góðan vin þar sem Olla
var, en svo kölluðum við hana.
Á því tímabili, sem hún var hjá
okkur, kom þangað ungur vinnu-
maður, að nafni Pétur og var Péturs-
son. Þau voru bæði á þeim aldri,
þegar tilfinningar og vonir ráða ríkj-
um og framtíðin er björt. Og þessi
tvö ungmenni felldu hugi saman.
En síðla vetrar 1921 veiktist Pétur af
taugaveiki og lést eftir skamma legu.
Unnusta hans var þá orðin barnshaf-
andi og hafði hann gert þær ráðstaf-
anir að hún fengi framtíðar samastað
hjá þeim hjónum, Ingibjörgu og
Þórði Gíslasyni, hreppstjóra í
Mýrdal. En um þessar mundir voru
mikil veikindi og hcimilisástæður
ilíEmar áÁlftá.
Ég man óljóst frá þessu tímabili
að einhver lá fárveikur í gestaher-
berginu og enginn mátti koma þar
nálægt nema eldri maður úr sveit-
inni, sem hjúkraði hinum sjúka. Sá
maður kom oft til hjálpar á bæjunum
í sveitinni, þegar erfið veikindi bar
að höndum. Eitthvað um svipað
leyti minnist ég þess að Ijósmóðirin
kom með stóra tösku og sagði að ég
mundi ef til vill eignast lítinn
bróður, sem reyndist rétt vera.
En Olla eignaðist son í Mýrdal
síðla sumars þetta sama ár og hlaut
hann nafnið Pétur.
Eins og ég gat um, man ég ekki
margt frá þessu vori, er OUa flutti að
Mýrdal. En sambandið hélst á milli
hennar og okkar, þótt enginn sfmi
væri kominn og vegalengdir miklar.
Stöku sinnum kom hún í heim-
sókn og einhvern veginn fannst mér
þá að ég væri uppáhaldið hennar, en
kannske fannst öllum börnum, sem
hún umgekkst, það sama og mér.
Annan son eignaðist Olla löngu
síðar. Hann heitir Magnús og er
Þorsteinsson. Ólst hann upp hjá
fósturforeldrum.
Olla flutti til Reykjavíkur um þær
mundir, sem Pétur sonur hennar
hleypti heimdraganum og fór til
mennta. Hún var hraust, dugmikil
og hafði létta lund og komu þessir
eiginleikar sér vel í harðri lífsbaráttu
og við þrotlausa vinnu.
Llm árabil sá hún um kaffi fyrir
starfsfólk Landssmiðjunnar. Síðar
rak hún matsölu inn á Laugavegi og
prjónaði jafnframt fatnað á prjóna-
vél eftir pöntunum. Við þetta starf-
aði hún allmörg ár í fremur lélegu
húsnæði og að mörgu leyti við frunt-
stæð skilyrði. En hún var ekkert að
kvarta. - Og gott var að konta til
hennar og fá heitan kaffisopa, ef
ntaður átti leið um og það sama hygg
ég að fleirum hafi fundist.
Olla var afar trygglynd og vinaföst
og engum hefði hún liðið að segja
misjafnt orð um þá sem henni voru
kærir.
Síðustu tíu árin átti hún athvarf á
dvalarheimili aldraðra við Löngu-
hlíð 3. Þar hélt hún áfram að starfa
við vélprjón og margskonar handa-
vinnu til síðustu stundar. Hún tók á
móti gestum, með góðri aðstoð af-
komenda sinna og venslafólks, á
níræðisafmælinu 1. september. Þá
var hún glöð og hress og naut
stijndarinnar vel.
Ég á margar góðar minningar um
Ollu, ekki síst frá bernskudögum.
Nú hefur hún kvatt þennan heim. Ég
sendi henni þakkir og veifarnaðar-
óskir yfir landamærin. Fjölskyldu
hennar flyt ég samúðarkveðjur.
Lóa Þorkelsdóttir.
LEKUR : ER HEDDIÐ
BLOKKIN? : SPRUNCIÐ?
Viögeröir á öllum heddum og blokkum.
Plönum hedd og blokkir — rennum ventla.
Eigum oft skiptihedd í ýmsar geröir bifreiöa.
Viöhald og viögerðir á iðnaðarvélum — járnsmíöi.
Vélsmiðja Hauks B. Guðjónssonar
Súðarvogi 34, Kænuvogsmegin — Sími 84110
TÖLVUNOTENDUR
Við í Prentsmiðjunni Eddu
hönnum, setjum og prentum
allar gerðir eyðublaða fyrir tölvuvinnslu.
i PRENTSMIÐJAN ■
1'KtNISMIOJAN
\C^ddct\
Smiðjuvegi 3, 200 Kópavogur. Sími 45000
IMT DRÁTTARVÉLAR
Örfáar vélar
á einstöku
verði.
Góðir
greiðslu-
skilmálar.
Væntanlegt verft Tilboðsverð Mismunur
IMT549 DL kr. 484.000.- kr. 415.000- kr. 69.000-
IMT569DL kr. 577.000.- kr. 499.000.- kr. 78.000.-
IMT 569 DL DV 4x4 kr. 654.000- kr. 559.000.- kr. 95.000-
VÉLAR & ÞJÓNUSTA HF. - Vélaborg
JÁRNHÁLSI 2 - SÍMI 83266 - 686655