Tíminn - 05.11.1988, Síða 20
20 Tíminn
Laugardagur 5. nóvember 1988
ÚTVARP/SJÓNVARP
DAGBÓK
Sólrún Bragadóttir
sópransóngkona syngur í
íslensku óperunni
Sólrún Bragadóttir sópransöngkona og
Jónas Ingimundarson píanóleikari halda
tónleika í íslensku óperunni mánudaginn
7. nóvember kl. 20.30. Þessir tónleikar
eru á vegum Styrktarfélags Islensku óper-
unnar scm staðiö hefur fyrir röð nokkurra
slíkra.
Á efnisskránni eru m.a. verk eftir
Mozart, Schubert, Bizet, Verdi, A.
Lloyd-Webber, G. Gershwin og Þorkel
Sigurbjörnsson.
Sólrún stundaði söngnám við Tónlistar-
skóla Kópavogs og sfðar við Tónlistar-
skólann í Reykjavík. Þá hélt hún til
Bandaríkjanna til framhaldssöngnáms og
brautskráðist með „masters" gráðu frá
University of Indiana í Bloomington árið
1987. Sama haust var hún ráðin sem fyrsti
sópran við Óperuna í Kaiserslautern í
V.-Þýskalandi þar sem hún starfar nú.
Þetta eru hennar fyrstu sjálfstæðu ein-
söngstónleikar hér á landi.
Jónas stundaði tónlistarnám við Tón-
listarskólann í Reykjavík og síðar við
Tónlistarháskólann í Vínarborg. Frá ár-
inu 1970 hefur hann starfað sem píanó-
leikari, tónlistarkennari og kórstjóri og
haldið fjölda tónleika um land allt svo og
á Norðurlöndunum, í Rússlandi, Bret-
landi, Bandaríkjunum og víðar. Einnig
hefur hann leikið í útvarpi og sjónvarpi
og á listahátíðum í Reykjavík og Bergen.
Jónas kennir við Tónlistarskólann í
Reykjavík
ITC-deildin Ýr heldur gestaf und
Gestafundur verður haldinn í ITC-
dcildinni Ýr (áður málfreyjur) mánudag-
inn 7. nóvember kl. 20:30 í Síðumúla 17,
Félagsheimili frímcrkjasafnara.
Deildarfundir Ýrar eru haldnir fyrsta
°g þriðja mánudag hvers mánaðar kl.
20:30 og cr þeim að öllu jöfnu lokið fyrir
kl. 23:00.
Gestafundurinn er öllum opinn.
Stjórn ITC Vrar
Sýning frá Kirgizíu í MÍR
Á laugardag, 5. nóv. kl. 15:00, verður
opnuð sýning í húsakynnum MÍR,
Vatnsstíg 10, á grafík og listmunum frá
Sovétlýðveldinu Kirgizíu í Mið-Asíu. Á
sýningunni eru 39 svartlistarmyndir eftir
17 listamenn og mikill fjöldi listmuna.
Einnig eru sýndar bækur útgefnar í Kirg-
iztu og teikningar eftir börn þar í landi.
Sýningin verður opin fram eftir mánuðin-
um kl. 17:00-18:30 á virkum dögunt og
kl. 15:00-19:00 um helgar.
Opið liús í MÍR á laugardag
I tilefni Sovéskra daga MlR og komu
listafólks frá Kirgizíu verður opið hús að
Vatnsstíg 10 lauagard. 5. nóv. kl. 14:00-
18:00. Þar verður sitthvað til skemmtunar
ogfróðleiks, kvikmyndasýningar, kvæða-
lestur, tónleikar o.fl.
Tónlcikar og danssýning MÍR á sunnudag
MÍR, Menningartengsl íslands og
Ráðstjórnarríkjanna, efnir til tónleika og
danssýningar í Þjóðleikhúsinu sunnu-
dagskvöldið 6. nóv. kl. 20:00. Þar kemur
fram listafólk frá Sovétlýðveldinu Kirg-
izíu í Mið-Asíu, alls um 20 listamenn:
hljóðfæraleikarara, dansarar og söngvar-
ar. Efnisskrá þeirra er afar fjölbrcytt.
Hádegisverðarfundur
presta verður mánudaginn 7. nóventbcr í
safnaðarheimili Bústaðakirkju.
Nýtt skátafélagsheimili
1 dag, laugard. 5. nóvember fer fram
vígsla á nýju félagsheimili að Tindaseli 3
í Seljahverfi í Reykjavík. Skátafélagið
Segull mun þar hafa félagslíf sitt í framtíð-
inni.
Athöfnin hefst kl. 14:00. Opið hús
verður cftir vígsluna. Kvöldvaka verður í
Ölduselsskóla og hefst hún kl. 20:00.
Allir skátar og velunnarar velkomnir.
Basar Kvenfélagsins Hringsins
Kvenfélagið Hringurinn heldur sinn
árlega handavinnu- og kökubasar sunnu-
daginn 6. nóv. kl. 14:00 í Fóstbræðra-
heimilinu Langholtsvegi 109-111.
Á basarnum verður mikið úrval af
fallegum jólagjöfum. Þá verða cinnig til
sölu jólakort félagsins.
Allur ágóði rennur til Barnaspítala
Hringsins og annarra líknarmála.
Námskeið hjá
Slysavarnaskóla sjómanna
Almenn námskeið hjá Slysavarnaskóla
sjómanna, sem enn eru laus til umsókna,
verða haldin sem hér segir:
Nóvember: 1.-4., 15.-18. og 22.-25.
Desember: 6.-9. og 13.-16.
Námskeiðin verða haldin um borð í
skólaskipinu SÆBJÖRGU, sem liggur
við Norðurgarð í Reykjavíkurhöfn.
Nánari upplýsingar verða veittar á
daginn 1 síma 985-20028, en á kvöldin og
um helgar í síma 91-19591.
Myndverk úr ull sýnd
í Listasafni ASI
Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá
opnar sýningu á verkum sínum í Lista-
safni ASÍ, Grensásvegi 16, laugardaginn
5. nóvember kl. 14:00. Á sýningunni eru
myndverk úr ull, gerðás.l. tveimur árum.
Kristín stundaði nám við Myndlistar-
og handíðaskóla íslands 1949-1952 og
íramhaldsnám í Kunsthándværkerskolen
í Kaupmannahöfn 1954-1957. Hún var
einnig um skeið við nám í Frakklandi og
á ftalíu.
Þetta cr fyrsta einkasýning Kristínar í
Reykjavík, en hún hélt sýningu í Rauða
húsinu á Akureyri árið 1981. Hún hefur
tekið þátt í fjölmörgum samsýningum á
íslandi og erlendis. Verk eftir hana eru í
Listasafni íslands, hjá Reykjavíkurborg,
Lista- og menningarsjóði Kópavogs,
Bergens Kunstforening og Savaria Muze-
um, Szombathely í Ungverjalandi.
Sýning Kristínar er opin virka daga kl.
16:00-20:00 ogumhelgarkl. 14:00-20:00.
Sýningunni lýkur 20. nóvember.
Basar Húsmæðra-
félags Reykjavíkur
Húsmæðrafélag Reykjavíkur heldur
sinn árlega basar sunnud. 6. nóv. að
Hallveigarstöðum við Túngötu og hefst
hann kl. 14:00. Mikið verður til sölu af
alls konar handavinnu, s.s. sokkum, vett-
lingum, peysum, húfum, jóladúkum,
jólasvuntum fyrir börn og fullorðna. Enn-
fremur jólapóstpokar. jólatrésdúkar,
prjónuð dýr, ísaumaðir og prjónaðir
dúkar o.fl. að ógleymdum lukkupokun-
um fyrir börnin.
Allur ágóði af sölu basarmuna fer til
líknarmála.
Alþýðuleikhúsið:
Koss köngulóarkonunnar
Alþýðuleikhúsið sýnir Koss köngulóar-
konunnar eftir Manuel Puig. Sýningar
verða í kjallara Hlaðvarpans laugardag-
inn 5. nóv. kl. 20:30, sunnud. 6. nóv. kl.
16:00, mánud. 7. nóv. kl. 20:30.
Leikstjóri er Sigrún Valbergsdóttir.
Leikendur: Árni Pétur Guðjónsson og
Guðmundur Ólafsson.
Sellótónleikar
í Norræna húsinu
Sellótónleikar verða í Norræna húsinu
sunnudaginn 6. nóv. kl. 17:00. Erling
Blöndal Ilengtsson leikur einleiksverk á
selló eftir Benjamin Britten, J.S. Bach og
Zoltan Kodaly.
Aðgöngumiðar seldir við innganginn.
Sunnudagsferð F.í. 6. nóv.
Kl. 13:00 - Vífílfell (655 m)
Vífilfell er suðaustur af Sandskeiði, á
mörkum Árnes- og Gullbringusýslna.
Gengið verður á fjallið frá mynni Jóseps-
dals. Brottför frá Umferðarmiðstöðinni,
austanmegin. Farmiðar við bíl (500 kr.).
Frítt er fyrir börn og unglinga í fylgd
fullorðinna.
Myndakvöld F.f.
Næsta myndakvöld F.í. verður mið-
vikudaginn 9. nóvember og hefst kl.
20:30. Gérard R. Delavault sýnir og segir
frá litadýrð og jarðfræði þjóðgarðanna í
Yellowstone, Bryce Canyon, Zion, Can-
yonland, Crater Lake og Steinbogaþjóð-
garðsins í Bandaríkjunum. Einnigmyndir
frá Indíánalandi í Arizona, Yosemite-
dalnum í Kaliforníu og fjallgöngum í
Washington- og Oregon-fylkjum. Mynd-
irnar tók Gérard á fcrðum sínum um
Bandaríkin núna í haust.
Myndakvöldið verður í Sóknarsalnum,
Skipholti 50A.
Aðventufcrð vcrður farin til Þórsmerk-
ur helgina 25.-27. nóvember.
Ferðafélag íslands
Rás I
FM 92,4/93,5 ,
Laugardagur
5. nóvember
6.45 Veöurfregnir. Bæn, séra Magnús Björn
Björnsson flytur.
7.00 Fróttir.
7.03„Góðan dag, góðir hlustendur“. Pétur
Pétursson sér um þáttinn. Fréttir sagöar kl.
8.00, þá lesin dagskrá og veðurfregnir sagöar
kl. 8.15. Aö þeim loknum heldur Pétur Pétursson
áfram aö kynna morgunlögin fram að tilkynning-
um laust fyrir kl. 9.00.
9.00 Fréttir.
9.03 Litli barnatíminn „Fúfú og fjallakríiin“ eftir
Iðunni Steinsdóttur. Höfundur les (5). (Einnig
útvarpað um kvöldið kl. 20.00).
9.20 Hlustendaþjónustan. Sigrún Bjömsdóttir
leitar svara við fyrirspurnum hlustenda um
dagskrá Ríkisútvarpsins.
9.30 Fréttir og þingmál. Innlent fréttayfirlit vik-
unnar og þingmálaþáttur endurtekinn frá kvöld-
inu áður.
10.00 Fréttir. Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir
10.25 Sígildir morguntónar. a. Fjórir þýskirdans-
ar eftir Wolfgang Amadeus Mozart. St. Martin-
in-the-Fields hljómsveitin leikur; Neville Marrin-
er stjórnar. b. Dansar úr ballettinum öskubuska
eftir Sergei Prokofiev. Sinfóníuhljómsveit Lund-
úna leikur; André Previn stjórnar.
11.00 Tilkynningar.
11.05 I liðinni viku. Atburðir vikunnar á innlendum
og erlendum vettvangi vegnir og metnir.
Umsjón: Páll Heiðar Jónsson.
12.00 Tilkynningar. Dagskrá.
12.20 Hádegisfréttir
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar.
13.00 Hér og nú. Fréttaþáttur í vikulokin.
14.00 Tilkynningar.
14.05 Sinna. Þáttur um listir og menningarmál.
Umsjón: Halldóra Friðjónsdóttir og Þorgeir
Ólafsson.
15.00 Tónspegill. Þáttur um tónlist og tónmenntir
á líðandi stund. Umsjón: Bergþóra Jónsdóttir.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 íslenskt mál. Gunnlaugur Ingólfsson flytur
þáttinn. (Einnig útvarpað á mánudag kl. 15.45).
16.30 Leikrit: „Það var hundurinn sem varð
undir“ eftir Tom Stoppard. Þýðandi: Steinunn
Sigurðardóttir. Leikstjóri: Þórhallur Sigurðsson.
Leikendur: Rúrik Haraldsson, Róberl Arnfinns-
son, Jóhann Sigurðarson, Karl Guðmundsson,
Bryndís Pétursdóttir, Margrét Ákadóttir, Árni
Tryggvason, Helga E. Jónsdóttir, Gunnar Eyj-
ólfsson, Erlingur Gíslason, Pétur Einarsson og
Baldvin Halldórsson. (Einnig útvarpað nk.
þriðjudagskvöld kl. 22.30).
18.00 Gagn og gaman. Hildur Hermóðsdóttir fjallar
um brautryðjendur í íslenskri barnabókaritun.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir
19.30 Tilkynningar.
19.35 „...Bestu kveðjur". Bréf frávinitil vinareftir
Þórunni Magneu Magnúsdóttur sem flytur
ásamt Róbert Arnfinnssyni. (Einnig útvarpað á
mánudagsmorgun kl. 10.30).
20.00 Litli barnatíminn. (Endurtekinn frámorgni).
20.15 Harmoníkuþáttur. Umsjón: Högni Jónsson.
(Einnig útvarpað á miðvikudag kl. 15.03).
20.45 Gestastofan. Stefán Bragason ræðir við
tónlistarfólk á Héraði. (Frá Egilsstöðum). (Einnig
útvarpað nk. þriðjudag kl. 15.03).
21.30 íslenskir einsöngvarar. Kristinn Sigmunds-
son syngur; Jónas Ingimundarson leikur með á
píanó.
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð
kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Danslög
23.00 Nær dregur miðnætti. Kvöldskemmtun Út-
varpsins á laugardagskvöldi undir stjórn Hönnu
G. Sigurðardóttur.
24.00 Fréttir.
00.10 Svolítið af og um tónlist undir svefninn.
Nokkur geðbótaratriði úr „Parísarlífi,‘ eftir Jacq-
ues Offenbach. Jón Örn Marinósson kynnir.
01.00 Veðurfregnir.
Næturútvarp á samtengdum rásum til
morguns.
FM 91,1
Daði sýnir á Hótel Borg
f nóvember mánuði heldur Daði Guð-
björnsson myndlistarsýningu á Hótel
Borg, Pósthússtræti 11.
Daði Guðbjörnsson er fæddur 1954.
Hann stundaði nám við Myndlista- og
handíðarskólann í Reykjavík og síðan
framhaldsnám við Ríkisakademíuna í
Amsterdam.
Hann er formaður Félags íslenskra
myndlistarmanna og hefur átt sæti í
safnráði Listasafns fslands.
Daði hefur tekið þátt 1 fjölda samsýn-
inga bæði hérlendis og erlendis. Á sýning-
unni eru aðallcga olíumyndir en einnig
nokkuð af vatnslitamyndum.
Félag eldri borgara:
Leiðrétting
Félagar í Félagi eldri borgara athugið!
Kökubasarinn, sem auglýsstur var að
yrði í Tónabæ á laugardag, verður haldinn
í Goðheimum, Sigtúni 3lauagardaginn 5.
nóv. kl. 15:00 -en ekki í Tónabæ eins og
áður var auglýst.
Kaffisala Safnaðar-
félags Ásprestakalls
Kaffisala Safnaðarfélags Ásprestakalls
verður sunnudaginn 6. nóvember eftir
messu, sem hefst kl. 14:00. Allir velkomn-
ir.
Ásgrímssafn
Safn Ásgríms Jónssonar, Bergstaða-
stræti 74, er opið á sunnudögum, þriðju-
dögum, fimmtudögum og laugardögum
kl. 13:30- 16:00.
Fundur Þjóðfræðafélagsins
Þjóðfræðafélagið heldur fund mánu-
daginn 7. nóv. kl. 20:00 í stofu 308 í
Árnagarði við Suðurgötu.
Halla Kjartansdóttir ræðir um drauma
í fornum sögum og þjóðsögum.
Styrktarfélag vangefínna:
Foreldrar/forráðamenn
- starfsmenn
Stjórn Styrktarfélags vangefinna boðar
til sameiginlegs fundar með foreldrum/
forráðamönnum og starfsmönnum félags-
ins í Bjarkarási mánudaginn 7. nóv. kl.
20:30.
Dagskrá:
1. Magnús Kristinsson, formaður fé-
lagsins, greinir frá helstu verkefnum þess.
2. Stefán Hreiðarsson læknir, for-
stöðumaður Greiningarstöðvar ríkisins,
segir frá starfsemi stofnunarinnar.
3. Kaffiveitingar.
Stjórnin hvetur foreldra/forráðamenn
og starfsmenn til að fjölmenna á fundinn.
Basar Kvenfélags
Háteigssóknar
Kvenfélag Háteigssóknar heldur’ basar
í Tónabæ sunnudaginn 6. nóv. kl. 14:(X).
Á boðstólum verða kökur, handavinna,
ullarvörur o.fl. Heitt kaffi og rjómavöffl-
ur.
Tekið verður á móti gjöfum á basarinn
í kirkjunni á föstudag kl. 17:00-19:00 og
í Tónabæ kl. 10:00 á sunnudagsmorgun.
Kókubasar Kvenfélags
Óháða safnaðarins
Kvenfélag Óháða safnaðarins verður
tneö kökubasar laugardaginn 5. nóvem-
ber kl. 14:00 í safnaðarheimilinu Kirkju-
bæ. Þá verður einnig flóamarkaður og
skyndihappdrætti.
Þær sem vilja gefa kökur og basarmuni
komi þeim í Kirkjubæ á föstudag kl.
17:00-19:00 og laugardagsmorgun kl.
10:00-12:00.
Sunnudagsferð
Útivistar 6. nóv.
Ný ferð: Seljadalur - Krókatjörn -
Álfaborg. Skoðað verður stuðlaberg sem
nýlega er komið í Ijós í grjótnámu við
Seljadal. Gönguferðvið allrahæfi. Brott-
för frá BSÍ, bensínsölu. Farmiðar við bíl
(600 kr.). Frítt er fyrir börn með fullorðn-
um.
Háskólafyrirlestur:
Orkumál og umhverf i
Mánudaginn 7. nóv. kl. 17:15 flytur
Jakob Björnsson, verkfræðingur og orku-
málastjóri, erindi í stofu 158 í húsi
verkfræðideildar, Hjarðarhaga 6, um
„Orkumál og umhverfi".
Verkfræðideild Háskóla íslands gengst
fyrir þessum mánudagserindum um um-
hverfismál. Til þeirra er stofnað fyrir
nemendur í deildinni, en aðgangur er
öllum frjáls, - eins þeim sem ekki eru
nemendur í háskólanum. Umsjón hefur
Einar B. Pálsson prófessor og veitir hann
upplýsingar.
Félag eldri borgara
Kökubasar í Goðheimum
Opið hús verður í dag, laugardag, í
Goðheimum, Sigtúni 3.
Kl. 15 verður kökubasar. Óskað er eftir
kökum.
Opið hús í Tónabæ - Danskennsla
í dag, laugardag, frá kl. 13:30. Kl. 14:00
- frjálst spii og tafl. Kl. 17:30-20:30 er
danskennsla og síðan dansleikur til kl.
24:00.
Goðheimar, Sigt. 3 á sunnudag:
Opið hús verður á morgun, sunnudag,
í Goðheimum, Sigtúni 3, frá kl. 14:00.
Frjálst spil og tafl Kl. 20:00 verður dansað
til kl. 23:30.
Tónabær á mánudag
Opið hús verður í Tónabæ mánudaginn
7. nóv. frá kl. 13:30. Kl. 14:00 verður
spiluð félagsvist.
03.00 Vökulógin. Tónlist af ýmsu tagi í næturút-
varpi. Fréttir kl. 4.00 og sagðar fréttir af veðri,
færð og flugsamgöngum kl. 5.00 og 6.00.
Veðurfregnir frá Veðurstofu kl. 4.30.
8.10 Á nýjum degi. Þorbjörg Þórisdóttir gluggar í
helgarblöðin og leikur bandaríska sveitatónlist.
10.05 Nú er lag. Gunnar Salvarsson leikur tónlist
og kynnirdagskrá Útvarpsins og Sjónvarpsins.
12.20 Hádegisfréttir
12.45 Dagbók Þorsteins Joð - Þorsteinn J. Vil-
hjálmsson.
15.00 Laugardagspósturinn. Skúli Helgason sér
um þáttinn.
17.00 Fyrirmyndarfólkþ Lísa Pálsdóttir tekur á
móti gestum og bregður léttum lögum á fóninn.
Gestur hennar að þessu sinni er örn Karlsson.
19.00 Kvöldfréttir
19.30 Kvöldtónar. Tónlist af ýmsu tagi.
22.07 Út á lífið. Anna Björk Birgisdóttir ber kveðjur
milli hlustenda og leikur óskalög. .
02.05 Góðvinafundur. Jónas Jónasson tefur á
móti gestum í Duus-húsi. Meðal gesta eru
hjónin Ólöf Kolbrún Harðardóttirog Jón Stefáns-
son ásamt Kór Langholtskirkju.Tríó Guðmundar
Ingólfssönar leikur. (Endurtekinn frá sunnu-
degi).
03.05 Vökulögin. Tónlist af ýmsu tagi í næturút-
varpi til morguns. Að loknum fréttum kl. 4.00 flutt
brot úr þjóðmálaþáttunum „Á vettvangi". Fréttir
kl. 4.00 og sagðar fréttir af veðri, færð og
flugsamgöngum kl. 5.00 og 6.00. Veðurfregnir
frá Veðurstofu kl. 4.30.
Fréttir kl. 2.00, 4.00, 7.00, 8.00, 9.00, 10.00,
12.20,16.00,19.00, 22.00 og 24.00.
SJÓNVARPIÐ
Laugaraagur
5. nóvember
12.30 Fræðsluvarp. Endursýnt Fræðsluvarp frá
30. okt. og 2. nóv. sl.
14.30 Hlé.
15.00 íþróttaþátturinn. Umsjónarmaður Bjarni
Felixson.
18.00 Mofli - síðasti pokabjörninn. (10).(Mofli -
El Ultimo Koala) Spænskur teiknimyndaflokkur
fyrir börn. Leikraddir Arnar Jónsson og Anna
Kristín Arngrímsdóttir. Þýðandi Steinar V. Árna-
son.
18.25 Barnabrek. Umsjón Ásdís Eva Hannesdótt-
ir.
18.55 Táknmálsfréttir.
19.00 Á framabraut. (Fame). Ný syrpa bandariska
myndaflokksins um nemendur og kennara við
listaskóla í New York. Þýðandi Gauti Krist-
mannsson.
19.50 Dagskrárkynning
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Lottó.
20.40 Já, forsætisráðherra. (Yes, Prime Minister).
Sjöundi þáttur. Breskur gamanmyndaflokkur í
átta þáttum. Aðalhlutverk Paul Eddington, Nigel
Hawthorne og Derek Fowlds. Þýðandi Guðni
Kolbeinsson.
21.10 Maður vikunnar. Vigdís Rafnsdóttir.
21.25 Bestu tónlistarmyndböndin. (MTV Music
Awards 1988). Bandarískur þáttur um veitingu
verðlauna fyrir bestu tónlistarmyndböndin 1988.
Meðal þeirra sem koma fram em Cher, INXS,
Rod Stewart, Amy Taylor o.fl. Þýðandi Ýrr
Bertelsdóttir.
23.00 Gleðileg jól, Lawrence. (Merry Christmas
Mr. Lawrence) Bresk/japönsk kvikmynd frá
1983. Leikstjóri Nagisa Oshima. Aðalhlutverk
David Bowie, Tom Conti og Ryuchi Sakamoto.
Myndin fjallar um veru breskra stríðsfanga í
japönskum fangabúðum árið 1942. Þýðandi
Jón O. Edwald.
01.00 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
Laugardagur
5. nóvember
08.00 Kum, Kum. Teiknimynd. Þýðandi: Sigrún
Þorvarðardóttir.
08.20 Hetjur himingeimsins.He-man. Teikni-
mynd. Þýðandi: Sigrún Þorvarðardóttir. Filma-
tion.
08.45 Kaspar. Casper the Friendly Ghost. Teikni-
mynd. Þýðandi: Guðjón Guðmundsson. World-
vision.
09.00 Með afa. Afi skemmtir og sýnir stuttar myndir
með íslensku tali. Meðal myndanna sem afi
sýnir í dag er mynd um skófólkið, lítið og skrýtið
fólk sem býr í fallegu skóþorpi. Fólkið í skóþorp-
inu er eins margvíslegt og skórnir sem það
líkist, sumir eru dánsskór, aðrir íþróttaskór,
trúðaskór eða lögreglustígvél. Hvert um sig
hefur sinn sérstaka persónuleika sem við fáum
fljótt að kynnast. Aðrar myndir sem afi sýnir í
þessum þætti eru Emma litla, Skeljavík, Selur-
inn Snorri, Óskaskógur, Toni og Tella, Feldur
o.fl. Leikraddir: Arnar Jónsson, Guðmundur
Ólafsson, Guðný Ragnarsdóttir, Guðrún Þórð-
ardóttir, Júlíus Brjánsson, Saga Jónsdóttir og
Sólveig Jónsdóttir.
10.30 Penelópa puntudrós. The Perils of Penelope
Pitstop. Teiknimynd. Þýðandi: Alfreð S. Böðv-
arsson. Worldvision.
10.50 Einfarinn. Lone Ranger. Teiknimynd. Þýð-
andi: Hersteinn Pálsson. Filmation.
11.20 Ég get, ég get I Can Jump Puddles.
Framhaldsmynd byggð á sjálfsævisögu rithöfu-
ndarins Allans Marshall sem veiktist af lömunar-
veiki í æsku. 4. hluti. Aðalhlutverk: Adam
Garnett og Lewis Fitz-Gerald. Þýðandi: Birna
Berndsen. ABC
Australia.
12.05 Laugardagsfár. Tónlistarþáttur. Vinsælustu
dansstaðir Bretlands heimsóttir og nýjustu
popplögin kynnt. Musicbox 1988.
12.30 Viðskiptaheimurinn. Wall Street Journal
Þættirnir um viðskiptaheiminn verða framvegis
frumsýndir á laugardagseftirmiðdögum.
12.55 Heiður að veði. Gentleman’s Agreement.
Gregory Peck fer með hlutverk blaðamanns
sem tálið er að skrifa grein um gyöingahatur. Til
þess að afla sér þekkingar á viðfangsefninu,
læst hann vera gyðingur og kemst þá að raun
um að kynþáttahatur er útbreiddara og rótgrón-
ara en hann hafði órað fyrir. Aðalhlutverk:
Gregory Peck, Dorothy McGuire, John Garfield,
Celeste Holm og Anne Revere. Leikstjóri: Elia
Kazan. Framleiðandi: Darryl F. Zanuck. Þýð-
andi: Bjöm Baldursson. 20th Century Fox 1947.
Sýningartími 115 mín. s/h.
14.50 Ættarveldið. Dynasty. Þegar við skildum
, síðast við söguhetjumar í Ættarveldinu hafði
Dax leitað huggunar í örmum Tracy eftir að
hann kom að Alexis með Rashid og Krystle
komst að raun um að hinar dularfullu símhrin-
gingar voru einungis upptaka af rödd Matthews.
Þýðandi: Guðni Kolbeinsson. 20th Century Fox.
15.40 Ruby Wax. Gestir Ruby Wax í þessum þætti
' eru Bob Payton bandarískur viðskiptamaður,
Wendy Wasserstein og Christopher Durang
sem bæði eru handritshöfundar, bandaríski
gamanleikarinn Pee Wee Herman og Meatloaf.
Channel 4/NBD.
16.20 Nærmyndir. Einkar vel þótti takast til við
gerð þessarar Nærmyndar af Hrafni Gunnlaugs-
syni og áhorfandinn kynnist nýrri hlið á kvik-
myndaleikstjóranum þegar hann segir frá bern-
skuminningum sinum og draumum. Það er vel
við hæfi að sýna þessa nærmynd af Hrafni
meðan sýningar á stórverki hans „í skugga
hrafnsins" standa yfir. Hrafn lætur nú af störfum
sem dagskrárstjóri Ríkissjónvarpsins um sinn til
þess að snúa sér að hugðarefni sínu, kvik-
myndagerðinni. Stöð 2 óskar honum góðs
gengis í von um enn frekari stórvirki á sviði
íslenskrar kvikmyndagerðar. Umsjónarmaður
er Jón Óttar Ragnarsson. Stöð 2.
17.15 ítalski fótboltinn.
17.50 íþróttir á laugardegi. Meðal annars verður
litið yfir íþróttir helgarinnar og úrslit dagsins
kynnt. Gillette-pakkinn, keila o.fl. skemmtilegt.
Umsjón: Heimir Karlsson._____________________
19.19 19.19 Lifandi fréttaflutningurásamtumfjöllun
um málefni líðandi stundar.
20.30 Laugardagur til lukku. Nýr getraunaleikur
sem unninn er í samvinnu við björgunarsveitimar.
I þættinum verður dregið í lukkutríói björgunar-
sveitanna en miðar, sérstaklega merktir Stöð 2,
eru gjaldgengir í þessum leik og mega þeir