Tíminn - 17.12.1988, Side 4
4 Tíminn .
Laugardagur 17. desember 1988
Einn af fylgifiskum jólaverslunarinnar er aukið búðarhnupl:
Sveitir öryggisvarða
fylgjast með í búðum
Búðarhnupl hefur færst mjög í vöxt undanfarna daga og
vikur. í Kringlunni einni má ætla að allt að 20 til 25 manns
séu staðnir að hnupli á degi hverjum núna fyrir jólin og er
það aðeins toppurinn af ísjakanum, að sögn innanbúðar-
manna. í verslunum Hagkaups hafa 15 manns að meðaltali
verið staðnir að verki á degi hverjum, frá því „jólavertíðin“
hófst.
Svo virðist að því sé hnuplað sem
hendi er næst og sjaldan er um
nauðsynjavöru að ræða. Geisladisk-
ar, snældur og bækur eru einkar
vinsæl „hnuplvara", en annars er
reynt að stela nær öllu stcini léttara
og því sem auðveldlega má fela.
Ágústa Pálsdóttir vaktstjóri hjá
Securitas í Kringlunni sagði í samtali
við Tímann að allt of mikið væri um
að fólk væri að hnupla vörum úr
búðum. „Þetta eru cinkum ungling-
ar, einna mest undir lögaldri þetta
12 upp í 15 ára, þó svo að finna megi
fólk á.öllum aldri. Þessir yngstu eru
kannski einna harðastir, l'ara verslun
úr verslun og hafa oft sankað að sér
úr tveim til þrcm verslunum, áður en
þeir eru gripnir," sagði Ágústa.
„Yfirleitt eru þetta einhverjir smá-
hlutir, s.s. leikföng, lyklakippur og
oft á tíðum hlutir sem þeir hafa
engin not af.“ Hún sagði að nær
undantekningarlaust væri lögregla
kölluð til, nema um afar lítið brot
væri að ræða og jafnvel fyrsta brot
hjá viðkomandi. Hins vegar væri
alltaf nafn og símanúmcr tekið niður
og haft samband við foreldra.
Ástæðan fyrir þjófnaðinum virðist
2 fangar
struku af
Hrauninu
Tveir ungir menn sem afplána
dóma á Litla-Hrauni struku það-
an um níuleytið í gærmorgun.
Strax var hafin leit að félögunum
og sá vegalögreglan til þeirra, þar
sem þeir voru á vappi á Eyrar-
bakka skömmu eftir hádegi. Þeir
voru handteknir og færðir til síns
„heima“. -ABÓ
oft ekki vera nein önnur en spennan
í kring um athöfnina.
Ragnar Haraldsson verslunar-
stjóri á efri hæð Hagkaups í Kringl-
unni sagði að allt of mikið væri um
búðarhnupl og unglingarnir væru
mikið fyrir snældur og geisladiska.
„Svo eru það oft alveg fáránlegir
hlutir sem fólk er að leggja sig niður
við að stela. Dæmi um það má nefna
t.d. skó. Það fcr jafnvel íþáogskilur
gömlu skóna eftir. Við höfum gert
ýmsar ráðstafanir, fjölgað örygg-
isvörðum og einnig óeinkennis-
klæddu fólki sem fylgist með. Við
höfum verið að taka allt aö 15 manns
á dag, síðasta hálfa mánuðinn,"
sagði Ragnar.
Karl West verslunarstjóri mat-
vörudeildarinnar hjá Hagkaup sagði
að mest væri Imuplað af sælgæti,
minni konfektkössum og snyrtivör-
um. Hvað hnupl á matvöru varðaði,
sagði Karl að það væri viðvarandi
allt árið. Fyrir skömmu var kona
staðin að hnupli. Hún var á förum til
útlanda og hafði hugsað sér að gefa
vinum sínum reyktan lax og fleira
íslenskt góðgæti. Þegar hún var
stoppuð hafði hún sett inn á sig og í
tösku, mat fyrir um 8000 krónur.
„Við erum með mjög róttækar
aðgerðir þessa dagana og fjöldi
manns er hér daglega við gæslustörf,
sagði Karl. „En við náum samt ekki
nema toppnum af ísjakanum.“
Ragnar og Karl voru sammála um
að eftir að jólafrí hófst í skólunum
hafi hnuplið aukist til mikilla ntuna,
enda hefðu þau lítið fyrir stafni og
þægilegt að vera inni í göngugötun-
um. Hins vegar væru þetta ekki
eingöngu unglingar heldur einnig
fullorðið fólk sem staðið væri að
verki. Þeir sögðust hringja til for-
eldra krakkanna ef þeir væru staðnir
a'ð vcrki og undantekningarlaust á
lögregluna og færu málin, eftir því
hvernig þeim væri háttað, í fram-
haldi af því til rannsóknarlögreglu.
Jón Lárusson hjá Vörumarkaði
KEA á Akureyri sagði að þeir heföu
orðið lítið varir við búðarhnupl, en
þeir vissu til þess að alltaf væri
eitthvað um það. „Það er ekki svo
mikið sem við verðum vör við, nema
Hefð fyrir 0,5-
1%heildarhækkun
Öryggisvörður fylgist með grunsamlegum náunga. Öryggisverðir mega ekki hafa afskipti af hnuplurum fyrr en þeir
yfirgefa verslunina. Timamynd Gunnar
einstaka sinnum. Þetta hefur verið
svolítið vandamál frá því í haust,“
sagði Jón. „Við vitum.að alltaf er
hnuplað meir fyrir jólin, en búðirnar
eru svo fullar af fólki að erfitt er að
fylgjast með þessu,“ sagði Jón. Hann
sagðist telja að um væri að ræða fólk
á öllum aldri sem stundaði þetta,
fengi t.d. að máta fatnað, sem það
síðan gengi kannski út í, án þess að
nokkur tæki eftir. Jón sagði að mikið
hefði verið rætt um að fá þjófavarn-
arkerfi, en enn sem komið er væri
það ekki til staðar.
Hjá lögreglunni í Reykjavík feng-
ust þær upplýsingar að töluvert hefði
borið á auknu hnupli í verslunum og
voru sex kærur vegna búðarhnupls
sendar frá lögreglunni til rannsókn-
arlögreglu í gær. Allir hnuplararnir
voru staðnir að verki í Kringlunni.
Mikið er um að unglingar standi í
þessu og hafa börn allt niður í 12 ára
aldur verið staðin að búðarhnupli.
Vinsælustu vörurnar sem stolið er,
eru geisladiskar og kasettur, að sögn
lögreglu. Margar verslanir kalla til
lögreglu og er þá tekin lögreglu-
skýrsla af viðkomandi og foreldrar
eða barnaverndarnefnd kölluð til.
Þá eru sum málin einnig send rann-
sóknarlögreglu til frekari rannsókn-
ar. Lögreglumaðurinn sem Tíminn
ræddi við sagði að um væri að gera
að afgreiða þessi mál með festu, svo
fólk hætti þessu. -ABÓ
Tíminn greindi frá því í frétt í
gær að breytingartillögur fjárveit-
inganefndar við fjárlagafrumvarp-
ið yllu, ef samþykktar yrðu, út-
gjaldaaukningu svo hundruðum
milljóna skipti.
„Það virðist vera eðli fjárveit-
inganefndar Alþingis að fjalla um
fjárveitingar til hækkunar. Hækk-
anirnar sem verða í meðförum
hennar hafa oftast verið milli 0,5-
1%,“ sagði Jón Steingrímsson hjá
Fjárlaga-og hagsýslustofnun við
blaðið af þessu tilefni.
Jón sagði Fjárlaga- og hagsýslu-
stofnun aðstoða við samningu fjár-
laga og hún reiknaði út einstaka
liði þeirra. Sama gerir stofnunin
fyrir fjárveitinganefnd Alþingis
þegar stofnanir hafa farið fram á
hærri fj árveitingar en fj árlagafrum-
varp gerir ráð fyrir.
Jón sagði að fyrir hverri hækkun-
artillögu væri þannig beiðni frá
viðkomandi stofnun.
1 fjárlagafrumvarpinu er gert
ráð fyrir verulegum niðurskurði
ríkisútgjalda en fjárveitinganefnd
leggur til í 235 breytingatillögum
sínum að hann verði ekki eins
mikill og þar er gert ráð fyrir þótt
hann sé engu að síður verulegur frá
síðustu fjárlögum.
Jón sagði að fyrir stofnunina
kæmi fjöldi erinda frá ríkisstofnun-
um og ýmsum öðrum um hærri
framlög en gert er ráð fyrir í
fjárlagafrumvarpi. Stofnunin
reiknaði þá út áhrif hækkananna
og greindi fjárveitinganefndinni frá
röksemdum fyrir beiðnunum.
Hann sagði að eðli Fjárlaga- og
hagsýslustofnunar væri ekki að
mæla með hækkunarbeiðnum í
fjárlagagerðinni enda væri það
ekki gert. Fjárveitinganefndin tek-
ur sjálf afstöðu til mála, m.a. á
grundvelli upplýsinga frá stofnun-
inni,“ sagði Jón Steingrímsson.
-sá
| RITSTJÓRAPISTILL
Ryk í augum sjónvarpsmanns
Fjölmiðlar láta sig mikið varða
fréttir af athöfnum ríkisstjórna og
einstakra ráðherra, og má stundum
greina afstöðu fréttamanns í tiltekn-
um málum á því hvernig fréttir eru
sagðar, eða hvaða tón hann beitir í
spurningum sínum. Má jafnvcl
greina að fréttamenn geti orðið held-
ur þóttafullir á stundum, þegar þeiin
er aðeins gert að grcina satt og rétt
frá atvikum og orðum.
Nýlegt dæmi um fréttarugling, þar
s:m óskhyggja hinna „stéttvísu"
fréttamanna virðist hafa ráðið ferð-
inni, varð í fréttatíma útvarps kl. 19
s.l. miðvikudagskvöld. Þá skýrði
fréttamaður frá því að fyrri hluta
málsgreinar í bráðabirgðalögum
ríkisstjórnárinnar um launafrystingu
og bann við verkföllum ætti að fella
úr gildi. Staðreyndin var að Stein-
grímur Hermannsson hafði lýst því
yfir að seinni hluta málsgreinarinn-
ar, sent fjallaði um bann við verkföll-
um ætti að fella niður. í framhaldi af
þessari röngu frétt ríkisútvarpsins
átti Ólafur Jóhannsson, fréttamaður
á sjónvarpinu viðtal við Ásmund
Stefánsson, forseta ASÍ, sem taldi
vafasamt að fyrri hluti málsgreinar-
innar um launafrystinguna hefði ver-
ið felldur niður.
Þá æstist fréttamaðurinn upp, og
varð allt í einu að einskonar Heim-
dellingi á rifrildisfundi, og réðst að
Steingrími Hermannssyni, forsætis-
ráðherra, með furðulegu orðbragði
spurði hvort ráðherrann væri að strá
ryki í augu fólks og hvort hann, þ.e.
ráðherrann, vissi ekki um hvað hann
væri að tala. Til skýringar birtist hér
útskrift af samtali Ölafs við Ásmund
Stefánsson:
Ásmundur: „í sjálfu sér er þarna
ekki um efnisbreytingu að ræða. Það
þarf að gera aðrar og meiri breyting-
ar á lögunum... “
Ólafur: „Hver er tilgangurinn með
því að fella þetta brott, þegar það
hefur eins og þú segir sjálfur engin
áhrif. Er verið að kasta ryki þarna í
augu á fólki með öðrum orðum að
láta það halda eitthvað annað en það
raunverulega þýðir?"
Ásmundur: „Ég held satt aðsegja,
án þess að ég geti auðvitað fyllyrt um
það hvað gerist hjá ráðherrum þegar
þeir hugsa og hegða sér, þá held ég
að þarna sé ósköp einfaldlega um
það ræða að þeir hafi ekki áttað sig
á því að það þurfti að gera meira en
þetta.“ 1
Þessi útskrift hér að framan sýnir
í hvaða ógöngur fréttamenn leyfa
sér að komast alveg óátalið, þegar sá
gállinn er á þeim að láta persónuleg
pólitísk sjónarmið bera sig ofurliði.
Þeirra pólitíski vettvangur er ekki á
fjölmiðlum. Eins og nafnið bendir til
eiga þeir eingöngu að miðla fréttum
Og upplýsingunt til almennings, en
þeir fá ekki laun sín á fjölmiðlum til
að hafa pólitískar skoðanir á mönn-
um og málefnum, eins og fyrrgreind
orðræða ber ótvírætt vitni um. Það
er þýðingarmikið að ríkisstofnun.
sem flytur fréttir, sé treyst til að
skýra hlutlaust frá málum. í þessu
tilfelli byrjaði fréttastofa útvarps að
fara rangt með staðreyndir, en
fréttastofa sjónvarps kom síðan í
kjölfarið, og þegar fréttamaður fékk
ekki þau svör við rangfærslunni, sem
hann vildi, beindi hann pólitískri
heift sinni að forsætisráðherra með
þeim afleiðingum. að stofnun hans
beið tjón af. Því miður er þetta ekki
í fyrsta sinn né það síðasta, sem
fréttamenn Ijósvakafjölmiðla gæta
ekki þess trúnaðar sem þeim er
sýndur með ráðningu í störf frétta-
manna. Þeir eru að vísu mikil glans-
númer, en sannleikurinn í hverju
máli á að standa ofar tilfinningalífinu
á vinnustað eins og fréttastofu.
Indriði G. Þorsteinsson
t