Tíminn - 17.12.1988, Qupperneq 5
c’íV' ‘i‘aCiffla«?.sb A’ i 'U^biOQUBJ
Laugardagur 10. desember 1988
r r yr*"j"rr'F w e- 3* * 9~r
Tíminn 5
Hið íslenska Biblíufélag hefur hafíð útgáfu Biblíunnar á snældum
Tímamynd: Gunnar
BIBLÍAN Á
SNÆLDUM
Hið íslenska Biblíufélag hefur fjórar snældur og er verðið á bilinu
hafið útgáfu á Biblíunni á hljóð- 2300-2500 krónur.
böndum, eða s.k. snældum.
Nú þegar hafa verið gefin út:
Lúkasarguðspjall sem er lesið af
Sigurbirni Einarssyni biskupi og
Postulasagan, sem er Jesin af Helgu
Stephensen leikkonu. Bráðlega er
Markúsarguðspjall væntanlegt sem
er lesið af Pétri Sigurgeirssyni bisk-
upi. Öllum upptökum stjómaði
Guðrún Ásmundsdóttir leikkona. í
hverju tilviki er um að ræða þrjár til
íslenski myndbandaklúbburinn með
athyglisverða nýjung fyrir veiðimenn:
lilgangur þessarar utgafu er að
gera fólki auðveldara að njóta orða
Biblíunnar og verði viðtökurnar
góðar er ráðgert að halda útgáfunni
áfram.
f fréttatilkynningu frá Biblíufélag-
inu kemur m.a. fram að hljóðböndin
séu hentug til hverskonar tækifæris-
gjafa ekki hvað síst handa þeim sem
eiga örðugt með lestur. SSH
Veiðileiðsögn
á myndböndum
íslenski myndbandaklúbburinn
hefur gefið út fjögur myndbönd í
flokknum fslenskar laxveiðiár. Hver
spóla er klukkutíma löng og er þar
tekin fyrir ein veiðiá. Á þeim fjórum
myndböndum sem út eru komin, er
fjallað um Laxá í Kjós, Laxá í
Dölum, Miðfjarðará og Vatnsdalsá.
Myndböndin eru skemmtilega
unnin. Flogið er eftir ánni og taldir
upp veiðistaðir. Sögumenn eru góð-
kunnir veiðimenn, s.s. Þórarinn Sig-
þórsson tannlæknir, Rafn Hafnfjörð
formaður Landssambands veiðifé-
laga og Árni Guðbjörnsson leið-
sögumaður. Undirritaður hefur ekki
séð nema þrjár af fjórum myndum
þegar þetta er skrifað og þær fá
hæstu einkunn.
Vissulega má gagnrýna eitt og
annað. Laxá í Kjós eru ekki gerð
tæmandi skil. Einungis er farið upp
að Laxfossi og síðan í Hornhyl í
Bugðu. Efri svæðunum í Kjósinni er
sleppt. Þaö er hinsvegar upplifun að
fylgjast með Þórarni við veiðar, fyrir
þá sem ekki hafa séð til hans.
Litirnir á myndbandinu eru daufir
á köflum og hljóðið ofurlítið
málmkennt.
Þetta eru byrjunarerfiðleikar og
ekki nema til að læra af. Eftir sem
áður stendur að lifandi vegvísir að
fjórum stórskemmtilegum laxveiði-
ám hafa verið framleiddir. Þættirnir
um Miðfjarðará og Vatnsdalsá eru
fróðlegir. Árni Guðbjörnsson, einn
okkar allra besti veiðimaður leiðir
áhorfendur um Vatnsdalsá og setur
í ófáa laxa á leiðinni.
Forsvarsmenn íslenska mynda-
bandaklúbbsins hafa síðustu daga
verið að dreifa myndböndunum í
bókaverslanir og veiðibúðir. Segja
þeir að allar betri bókaverslanir
muni bjóða myndböndin til sölu.
Allar fjórar spólurnar kosta tæpar
fimmtán þúsund krónur en einnig
mun hægt að kaupa stakar
spólur,sem kosta þá um 3.700
krónur.
Friðrik Þór Friðriksson kvik-
myndagerðarmaður var myndstjórn-
andi við gerð myndanna, Guðmund-
ur Kristjánsson var á tökuvélinni og
áttu allir það sameiginlegt sem unnu
að gerð myndanna að hafa áhuga á
laxveiði.
Myndirnar eru með því sniði að
flogið er yfir árnar, og sögumaður
telur upp helstu veiðistaðina. Þess á
milli er fylgst með sögumanni og
öðrum veiðimönnum að kasta fyrir
lax og fjölmargar landanir eru festar
á filmu.
Forráðamenn myndbandaklúbbs-
ins segja að framhaldsútgáfa velti á
viðtökum þeim sem fyrstu myndirn-
ar fá. - ES
CULLVÆGAR
B/t
fyrir sál og líkama
Himinn og hel
Undur lifsins eftir dauðann
Emanuel Swedenborg
Sveinn Ólafsson þýddi
Swedenborg lýsir lífi ( öðrum heimi.
Skýrt er andlegt eðli umhverfis og
grundvallarlögmál andlegs
lífsveruleika sem og alvaldsstjórn
Drottins. Nýtt inntak birtist í
trúarskýringum hans sem
segir gefið af Drottni.
KUR
hann
Erik Bostrup
Ölafur Halldórsson liffræðingur
þýddi
Efnisatriði bókarinnar eru í stafrófsröð. Bókin
fjallar skipulega um einstaka sjúkdóma eftir
eðli þeirra eða staðsetningu. Þetta auðveld-
ar leit að svörum við spurningum og gerir
þann fróðleik sem bókin hefur að geyma
vel aðgengilegan með uppflettingum.
Guðjón Magnússon dr. med., aðstoð-
arlandlæknir ritar formála.
Undirheimar islenskra
stjórnmála
Reyfarakenndur sannleikur um
pólitísk vigaferli
Þorleifur Friðriksson
Bókin lýsir einstæðum pólitískum átökum
eftir byltingu Hannibals í Alþýðu-
flokknum 1952.
launróð voru brugguð og þvingunum
beitt gegn hinum ógnvænlega
.hannibalisma".
$
v Æ
M
#7
m
ORN OG
ORLYGUR
SIÐUMULA 11, SIMI 8 48 66
Lækninga
handbókin