Tíminn - 17.12.1988, Side 11
Laugardagur 17. desember 1988
Tíminn 11
!l!llll|||lllllll
llll[llllllllll:l BÆKUR
Minna
„Engin venjuleg mamma"
Elsku mamma.
Þú ert farin og hér sit ég með
minningabrotin sem þú skildir
eftir. Þú varst að skrifa ævisögu
þína, sögu konu sem komst út í
lífið aftur eftir að hafa verið lokuð
inni á stofnun í mörg ár.
„ Oft velti ég því fyrir mér hvað
hefði komið fyrir mig. Hvað
gerðist eiginlega sem olli
þessari löngu dvöl minni inni á
stofnunum? Af hverju gátu
engin lyf hjálpað mér? Af hverju
reyndi enginn að hjálpa mér út
í lífið aftur? Skapaði ég sjálf
þessa vanlíðan með hugsunum
mínum sem ég réði ekkert við?
Allt þetta böl, öll þessi löngu ár.
Af hverju skipti enginn sér af
mór? Af hverju?“
Þú varst að skrifa um það
hvernig var að brjótast til baka, ná
tökum á þunglyndinu,
sinnuleysinu og uppgjöfinni. Og
ná loks hinu langþráða frelsi, að
komast út og lifa lifinu aftur á
meðal okkar hinna þessara
„heilbrigðu “.
En nú er komið að mér að fylla
í eyðurnar. Ég vel þá leið að tala
til þín í gegnum bókina. Kannski
þarf ég að spyrja þig einhvers.
Þannig hef ég þig líka hjá mér
meðan ég skrif a. Það er bæði ljúft
og sárt, eins og lífið sjálft.
Þannig hljóðar brot úr
inngangskafla Helgu Thorberg að
lifssögu móður sinnar, Guðfinnu
Breiðfjörð eða Minnu eins og hún
var ævinlega kölluð. Líf Minnu var
ekkert venjulegt, hún var „engin
venjuleg mamma".
ísafold gefur bókina út.
Hörkuspennandi saga
flóttamanns á íslandi
Úr eldinum til
íslands
Hjá Almenna bókafélaginu er
komin út bókin Úr eldinum til
íslands. Eru þetta
endurminningar Eðvalds
Hinrikssonar skráðar af Einari
Sanden.
Eðvald Hinriksson, fyrrum
knattspyrnuhetja og faðir þeirra
Jóhannesar og Atla Eðvaldssona
er einn þeirra flóttamanna sem
komu hingað tU íslands upp úr
síðari heimsstyrjöld. Saga hans er
sennUega fjölskrúðugasta og
magnaðasta saga flóttamanns á
íslandi. Hann var foringi í PolPol,
verndarlögreglu lands sins, en
varð að flýja er Rússar hernámu
landið. Hann tók aftur upp
þráðinn hjá PolPol er Þjóðverjar
hernámu Eistland. Þjóðverjar
ákváðu síðar að skjóta hann en
hann slapp við það og sat þess í
stað í einangrun í fangelsi á annað
ár. Frá Eistlandi flúði hann tU
Svíþjóðar í bát ásamt öðrum
flóttamönnum. Sænsk yfirvöld
framseldu eins og kunnugt er
margra eistneska flóttamenn til
Sovétríkjanna árið 1945. Eðvald
Hinriksson átti að verða einn
þeirra, Rússar sóttu svo fast að fá
hann. En hann slapp fyrir liðsinni
vinsamlegra Svía sem komu
honum á skip í siglingum. Þaðan
lá leiðin í skjólið á íslandi. Hér
gátu Rússar ekkert aðhafst annað
en haldið uppi árásum sem engin
áhrif höfðu. En hvers vegna sóttu
Rússar svo fast að ná Eðvald
Hinrikssyni? Það var af því að
hann vissi of mikið sem foringi í
verndarlögreglu lands síns.
Eðvald Hinriksson er löngu
orðinn íslendingur og rekur hér
nuddstofu. Hér hefur hann lifað
rólegu lífi eftir svo storma- og
viðburðaríka ævi að slíks munu
ekki mörg dæmi.
Úr eldinum til Islands er 252 bls.
að stærð. Setning, umbrot og
filmuvinna: Metri hf. Prentun:
Prentstofa G. Benediktssonar.
Bókband: Félagsbókbandið-
Bókfell. Hönnun kápu:
Steingrímur Eyfjörð.
PÉTUR
ZOPMONÍASSGN
VIKINGS
LÆKJARÆH
FANGINN OG DOMARINN
Þáttur af Sigurði skurdi
og Skúla sýslumanni
Ásgeir Jakobsson
Svonefnd Skurðsmál hófust
með því, að 22. des. 1891
fannst lík manns á skafli á
Klofningsdal í Önundarfirði.
Mönnum þótti ekki einleikið
um dauða mannsins og féll
grunur á Sigurð Jóhannssón,
sern kallaður var skurdur, en
hann hafði verið á ferð með
þeim látna daginn áður á
Klofningsheiði. Skúla sýslu-
manni fórst rannsókn málsins
með þeim hætti, að af hlauzt
5 ára rimma, svo nefnd Skúla-
mál, og Sigurður skurður, sak-
laus, hefur verið talinn morð-
ingi í nær 100 ár. Skurðsmál
hafa aldrei verið rannsökuð
sérstaklega eftir frumgögnum
og aðstæðum á vettvangi fyrr
en hér.
VÍKINGSLÆKJARÆTTIV
Pétur Zophoníasson
Þetta er ljórða bindið af niðja-
tali Guðríðar Eyjólfsdóttur og
Bjarna Halldórssonar hrepp-
stjóra á Víkingslæk. Pétur
Zophoníasson tók niðjatalið
saman, en aðeins hluti þess
kom út á sínum tíma. í þessu
bindi eru i-, k: og 1-liðir ættar-
innar, niðjar Ólafs og Gizurar
Bjarnasona og Kristínar Bjarna-
dóttur. í þessari nýju útgáfu
Víkingslækjarættar hefur tals-
verðu verið bætt við þau drög
Péturs, sem til voru í vélriti, og
auk þess er mikill fengur að
hinum mörgu myndum, sem
fylgja niðjatalinu. í næsta bindi
kemur svo h-liður, niðjar Stefáns
Bjarnasonar.
SKVGGSJÁ -
BÓKABÚÐ OLIVERS STEINS SF
ÞÓRÐUR KAKALl
Ásgeir Jakobsson
Þórður kakali Sighvatsson var
stórbrotin persóna, vitur
maður, viljafastur og mikill
hermaður, en um leið
mannlegur og vinsæll. Ásgeir
Jakobsson hefur hér ritað
sögu Þórðar kakala, eins
mesta foringja Sturlunga á
Sturlungaöld. Ásgeir rekur
söguna eftir þeim
sögubrotum, sem til eru
bókfest af honum hér og þar í
Sturlungusafninu, í Þórðar
sögu, í íslendinga sögu, í
Arons sögu Hjörleifssonar og
Þorgils sögu skarða og einnig í
Hákonar sögu. Gísli
Sigurðsson myndskreytti
bókina.
SKUCCSJA
ANDSTÆÐUR
Sveinn frá Elivogum
Andstæður hefur að geyma
safn ljóða og vísna Sveins frá
Elivogum (1889-1945). Þessi
Ijóð og vísur gefa glögga
mynd af Sveini og viðhorfum
hans til lífs, listar og sam-
ferðamanna. Sveinn var bjarg-
álna bóndi í Húnavatns- og
Skagafjarðarsýslu á fyrri hluta
þessarar aldar. Hann var eitt
minnisstæðasta alþýðuskáld
þessa lands og þótti mjög
minna á Bólu-Hjálmar í kveð-
skap sínum. Báðir bjuggu þeir
við óblíð ævikjör og fóru síst
varhluta af misskilningi sam-
tíðarmanna sinna.
ii\\ m
VeVðt«'
I
0|-otio
áni m
<r .. g
íjÉÍlP^*
jrögö, ýerkí®r'
22S&
Utlegan úátt. '
SAFN TIL
IÐNSÖGU
ÍSLENDINGA
Tvö ný bindi bætast nú við þessa fróðlegu
ritröð sem fjallar um atvinnusögu þjóðar-
innar.
Hverju bindi fylgir fróðlegur og skemmti-
legur kafli um orð og orðtök úr viðkomandi
atvinnugrein eftir Halldór Halldórsson.
Ritstjóri verksins er Jón Böðvarsson fyrr-
verandi skólastjóri.
sss.Æiigrijssasssí
HIÐ ISLENZKA
BÓKMENNTAFÉLAG
ÞINGHOLTSSTRÆTl 3-121 REYKJAVlK