Tíminn - 17.12.1988, Síða 23
Laugardagur 17. desember 1988
Tíminn 23
MINNING
Þorleifur Skagfjörð
Jóhannesson
Fæddur 23. maí 1913
Dáinn 6. nóvember 1988
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(V. tíríem)
Með nokkrum fátæklegum orðum
vil ég minnast tengdaföður míns,
Leifa frá Hvammi í Svartárdal.
Hann fór að líta eftir kindunum
sínum og lést við það svo snöggt,
öllum að óvörum.
Hvað getum við sagt? Leifi er
farinn til æðri staða, hann sem okkur
þótti svo vænt um.
Þorleifur fæddist 23. maí árið
1913 og varð því 75 ára síðastliðið
vor.
Foreldrar hans voru Helga Þor-
bergsdóttir og Jóhannes Pálsson frá
Garði á Skagaströnd. Þau eignuðust
16 böm, 12 þeirra komust til fullorð-
insára og var Leifi 5. í röðinni.
Eftirlifandi systkini em Elín, Sigríð-
ur, Páll, Hrefna, Guðjón, Guð-
mundur, Birna og Guðrún.
Átta ára var Leifi sendur í sveit að
Barkarstöðum í Svartárdal og dvaldi
hann lítið í foreldrahúsum eftir það.
Að Barkarstöðum elst hann upp
og þar með var hann kominn í dalinn
sinn kæra, sem átti eftir að fóstra
hann alla tíð.
Um tvítugt dvelur Leifi á Kristnesi
í Eyjafirði í eitt og hálft ár vegna
veikinda og náði hann sér aldrei að
fullu eftir það.
Upp úr 1940 kaupir Leifi jörðina
Hvamm í Svartárdal, þar sem hann
bjó alla tíð.
Þann 18. ágúst 1951 kvæntist Leifi
mikilli mannkostakonu, Þóru Sig-
urðardóttur frá Leifsstöðum í Svart-
árdal. Þau eignuðust 5 börn, en þau
eru:
Guðbjörg, býr með Sigurvalda
Sigurjónssyni. Sigurður Gísli,
kvæntur Ingibjörgu Á. Hjálmars-
dóttur. Ingibjörg, býr með Finni
Baldurssyni. Helgi Jóhannes, býr
með Ölmu R. Guðmundsdóttur.
Sigríður Soffía, býr með Sigurði
Baldurssyni.
Barnabörnin eru orðin 14.
Leifa þótti mjög vænt um Þóru og
börnin og gerði allt sem hann gat til
að þeim liði sem best, og eins fengu
tengdabörn og barnabörn að njóta
þess.
Að Hvammi var sérstakt að koma;
á móti manni var tekið með hlýju og
gestrisni.
Oft dvaldi ég vikum og mánuðum
saman þar og þá fann ég hversu
góður heimilisfriður þar var.
Og eftir að barnabörnin komu, þá
var alveg sama þó allt væri undirlagt.
Þau hlífðu sér hvorugt og hjálpuðust
vel að.
Rafmagnið kom ekki þangað fyrr
en um jólin 1980, svo þægindin voru
ekki alltaf við hendina.
En ekkert var gefið eftir þar til yfir
lauk.
Ég minnist þess ætíð, þegar ég
kom í Hvamm haustið 1976, þegar
Leifi tók upp vasahnífinn sinn og
skóf klakann af buxnaskálmum
mínum. Þannig var Leifi tilbúinn að
hjálpa ef hann gat.
Leifi hafði sérstakt yndi af hestum
og fengum við sannarlega að njóta
þess.
Síðastliðið sumar skrapp hann
með mér á hestbak, en ekki óraði
mig fyrir því, að þetta væri síðasta
skiptið.
Margar góðar minningar eiga
börnin úr sveitinni; sérstaklega þeg-
ar þau voru ein.
Gaman fannst þeim er afi lofaði
þeim að vera hjá sér, er hann var að
girða og þau fengu að sulla í
Hvammsá.
Sérstaklega var Leifi næmur ef
eitthvað mikið var að og á ég honum
mikið að þakka í því sambandi.
Hærra minn guð til þín, hærra
til þín, :,: þessi orð hljóma svo oft í
eyrum mér, þau voru sungin svo
sterkt við útför þína. Það sýndi að
þú áttir marga góða vini.
Elsku Þóra og fjölskylda, algóður
guð gefi ykkur kraft og styrk á
þessum erfiðu tímum.
En minningar um góðan mann
munu ylja okkur um ókomin ár.
Ég kveð tengdaföður minn með
söknuði og virðingu og bið góðan
guð að varðveita hann og blessa.
Þökk fyrir allt og allt,
Inga
BÆKUR
Kennaratal á
íslandi
Lokabindi
Lokabindi Kennaratals er komið
út.
Alls eru komin út 5 bindi af
Kennaratali í tveimur útgáfum,
u.þ.b. 2400 bls. Vinnslu 1. og 2.
bindis lauk 1964 og hafði vinnsla
þess þá staðið yfir í 12 ár. í fyrri
útgáfunni eru aeviágrip kennara
allt aftur að aldamótum 1800 til
1960.
Aftur var svo hafist handa við
söfnun efnis í nýtt Kennaratal
1977 og hefur ötullega verið unnið
að verkinu síðan. Nýja
Kennaratalið spannar allt
stafrófið frá A-Ö og eru í þvi
asviágrip kennara sem útskrifast
hafa eftir útgáfu fyrra talsins svo
og viðbót við æviágrip þeirra
kennara sem voru á lífi þegar fyrri
útgáfu lauk.
Alls eru í nýju útgáfunni nöfn
8643 kennara og æviágripin því
orðin um 12000 í báðum
útgáfunum til samans.
Ritstjóri fyrri útgáfunnar var
Ólafur Þ. Harðarson en þeirri
síðari ritstýrði Sigrún
Harðardóttir.
Útgefandi og söluaðili er
Prentsmiðjan ODDI hf.
Skugginn
Ný skáldsaga
Út er komin skáldsagan
Skugginn eftir Þröst J. Karlsson.
Þröstur er Reykvíkingur á besta
aldri. Þetta er fyrsta skáldsaga
hans, en áður hefur hann skrifað
17 barnabækur, samið smásögur
og ort ljóð. Þröstur J. Karlsson er
því gamalreyndur byrjandi.
Bókin Skugginn er fersk og
óvænt nýjung, sem boðar nýja
tíma og nýjar áherslur. Hún er
nýbrot í íslenskri skáldsagnagerð,
þar sem takmarkalaust
hugmyndaflug, skýr framsetning
og magnaður söguþráður halda
lesandanum föngnum þar til yfir
lýkur.
Þessi bók er sérstök, engri
annarri lík, íslenskri eða útlendri.
Hún kemur okkur öllum við, er full
af yfirvegaðri merkingu,
táknrænum verum og
þrauthugsuðum skilaboðum til
allra manna.
Aðalsöguhetjan er skuggi,
persónugervingur orðinn til í huga
vítisengils. Sagan fjallar um ferðir
hans milli ólíkra furðuheima og
spannar mestan hluta af ævi
mannkyns - og gott betur.
Reykholt hf. gefur út bókina,
sem er tæpar 140 bls. og kostar út
úr búð kr. 2.185. Þar af renna í
ríkissjóð kr. 437 sem söluskattur.
Leiðrétting
f afmælisgrein um kaupfélag
Vopnfirðinga í blaðinu í gær féll
niður hluti greinarinnar. Átti hann
að koma á eftir efri greinarskilum í
næstaftasta dálki. Er beðist velvirð-
ingar á þessu, en sá kafli er svohljóð-
andi:
„Marteinn Bjarnarson hætti sem
kaupfélagsstjóri 1922 en við tók
Ólafur Methúsalemsson og gegndi
starfinu til 1938. Þá tók við Guð-
mundur Kr. Stefánsson og var í tvö
ár. Árið 1940 varð Halldór Ásgríms-
son alþm. kaupfélagsstjóri, og
gegndi hann því starfi til 1959.
Afkoma félagsins fór þá batnandi,
bæði vegna hagstæðs vöruverðs og
öruggrar framkvæmdastjórnar hjá
félaginu. Þó voru framkvæmdir á
vegum þess litlar fyrst í stað, utan
hvað verulegar endurbætur voru
gerðar á frystihúsi félagsins og fleiri
byggingum þess árið 1942. I fram-
haldi af því var svo tekin ákvörðun
um byggingu nýs frysti- og sláturhúss
sem tók til starfa um 1950. Áratug-
inn þar á eftir var svo stöðug sókn í
framkvæmdum, og bar þar hæst að
verslunarhús félagsins var byggt og
tekið í notkun árið 1958.
Þegar Halldór Ásgrímsson hætti
sem kaupfélagsstjóri tók við af hon-
um Guðjón Ólafsson sem lengi hafði
verið kaupfélagsstjóri í Búðardal. í
tíð hans tók til starfa Mjólkursamlag
KVV og varð að því mikið hagræði,
jafnt fyrir bændur sem neytendur.
Árið 1964 lét Guðjón svo af starfi á
Vopnafirði en við tók Halldór Hall-
dórsson. Á næstu árum þar á eftir
var tekin upp deildaskipting í versl-
un félagsins og opnuð byggingavöru-
verslun. Árið 1972 keypti félagið
húseign að Hafnarbyggð 7 og flutti
þangað rekstur söluskála.“
FLUGLEIDIR
Þjónustuútboð
Fyrir hönd Flugleiöa h.f. er hér meö óskað eftir
tilboöum í þjónustu fyrir félagið vegna starf-
semi þess á Keflavíkurflugvelli.
Þjónustuútboðið nær til eftirfarandi verkþátta:
1. Hlaðvinna fyrir flugvélar.
(U.þ.b. 5.000 flugvélar á ári.)
2. Ræsting flugvéla.
(U.þ.b. 4.000 afgreiðslur á ári.)
3. Ræsting þeirra svæða sem Flugleiðir h.f.
hafa á leigu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
(U.þ.b. 1.600 fermetrar.)
4. Ræsting þjónustubyggingar Flugleiða h.f.
á Keflavíkurflugvelli.
(U.þ.b. 2.150 fermetrar.)
5. Ýmis tímavinna samkvæmt beiðni Flug-
leiða h.f.
Óskað er eftir heildartilboðum frá bjóðendum
í framkvæmd allra framangreindra verkþátta
og eru tilboð þá og því aðeins gild ef boðið er
í allt verkið.
Verksamningur
Gerður verður skriflegur verksamningur við
einn verktaka um framkvæmd allra verkþátta,
ef hagstætt tilboð býðst. Verksamningurinn
mun gilda til ársins 1992, ásamt mögulegri
framlengingu hans til ársins 1997.
Sala útboðsgagna
Sala útboðsgagna hefst mánudaginn 19. des-
ember 1988 og lýkur sölunni miðvikudaginn
28. desember 1988, kl. 17:00.
Útboðsgögn verða ekki seld eftir þann tíma.
Söluverð útboðsgagna er krónur 5.000.
Útboðsgögn eru til sölu á Verkfræðistofu
Stanleys Pálssonar h.f., Skipholti 50B, 105
Reykjavík.
Kynningarfundur
Kynningarfundur vegna útboðsins verður
haldinn fyrir bjóðendur á Keflavíkurflugvelli,
fimmtudaginn 29. desember 1988, kl. 10:00.
Skilafrestur
Opnun tilboða
Tilboðum skal skilað til Verkfræðistofu Stan-
leys Pálssonar h.f., Skipholti 50B, 105 Reykja-
vík, fyrir kl. 12:00, föstudaginn 20. janúar
1989.
Tilboð verða opnuð í Leifsbúð á Hótel Loftleið-
um sama dag kl. 14:00, að viðstöddum þeim
bjóðendum sem þess kunna að óska.
Útboðið er opið öllum.
Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem
er eða hafna öllum.
VERKFRÆÐI/TOFA
____/TANLEY/
PÁ L S í O N A_RJH_F__
SKIPHOLT 50b, 105 REVKJAVU,
SlMI 9 1 -6 8 6 5 2 0