Tíminn - 17.12.1988, Side 28
Ajólunum veljum við gjaman það sem
okkur þykir best á jólaborðið og
auðvitað helst sem þjóðlegast. íslenska
lambakjötið er hráefai sem á fáa sína líka,
svo meyrt og safaríkt ef það er meðhöndlað
rétt. Spennandi lambastórsteik er tromp á
jólaborðið. Hér er uppskrift af einni
ómótstæðilegri.
Hilmar B. Jónsson valdi þessa gimilegu
jólasteik handa okkur með óskum um
gleðilega hátíð.
Látið lambalærið þiðna í kæliskáp í 3-5
daga, helst í loftþéttum umbúðum.
Skerið mjaðmabeinið frá og hreinsið
leggbeinið. Skerið einnig mest af fitunni frá
ef lærið erof feitt. Stingið um 2 sm djúp göt í
lærið með 3-4 sm millibili. Geymið beinin og
kjötið utan af leggbeininu.
Skerið sellerístilkana og blaðlaukinn í
bita. Hitið olíuna á pönnu, setjið grænmetið
á pönnuna og kraumið þar til það fer aðeins
að taka lit. Bætið þá pipamum,
rósmarínkryddinu, sojasósunni,
sítrónusafanum og líkjömum útí og látið
-.þegarþu
úvilt
^tídarm^*
Lambalærí
með Kahlua-sósu
Ftyrir6-7.
1 meðalstórt lambalærí
2 msk matarolía
3sellerístilkar
Vi blaðlaukur (púrrulaukur)
1 tsk græn eða hrít piparkom
1 tskrósmarín (sléttfull)
2 dl Kahlua-kaffílíkjör
2 msk Kikkoman sojasósa
safí úr 1 sítrónu
salt
2 dl Ijóst kjötsoð
dökkursósujafnarí
sjóða í 3-5 mín. Kælið blönduna og hellið
henni síðan í sterkan plastpoka. Setjið
lambalærið í pokann og bindið vandlega
fyrir. Látið sem minnst loft vera í pokanum.
Takið utan um legginn á lærinu og sláið
pokanum með lærinu í nokkmm sinnum
þétt niður á borð. Snúið lærinu í hvert sinn.
Þetta er gert til þess að fá safann í pokanum
vel inn í holumar á kjötinu.
Geymið pokann með lærinu á köldum
stað í um einn sólarhring og snúið honum
öðm hvom og nuddið safanum vel inn í
lærið um leið.
Hitiðofainní220°C.
Takið lærið úr pokanum og skafið
kryddblönduna utan af með bakkanum á
borðhníf. Geymið blönduna. Kryddið lærið
með salti (og meiri pipar ef þurfa þykir).
Höggvið mjaðmabeinið í 4 eða 5 bita og
skerið hækilkjötið í bita. Leggið þetta í
hæfílega stóra steikarskál eða skúffu og
leggið lambalærið ofan á. Steikið kjötið í
ofninum þar til það er búið að fá á sig
fallegan lit. Minnkið þá hitann á ofainum
niður í 180°C. Eftir um einnar klst. steikingu
er kryddleginum sem eftir var ásamt
kjötsoðinu hellt yfir kjötið og það síðan
steikt í um 15-30 mín. í viðbót.
Færið lærið yfir á fatið sem þið ætlið að
bera það fram á og geymið í heitum og
hálfopnum ofninum á meðan sósan er löguð.
Sigtið soðið úr steikarskálinni yfir í pott
og bragðbætið með salti og pipar eftir
smekk. Látið suðuna koma upp á soðinu og
þykkið það hæfilega með sósujafaara.
Berið kjötið fram með nýju, soðnu
grænmeti og einhverju ljúffengu til þess að
skola því niður.
MARKAÐSNEFND
SPENNANDI
17. desember 1988
Evrópukeppni félagsliða:
FH-ingar
burstuðu
máttlaust
lið Rúmena
FH-ingar komust áfram í Evrópu-
keppni félagsliða, þegar þeir rúlluðu
yfir hið máttlausa rúmenska lið,
Baia Mara með32mörkumgegn 19.
FH-ingar voru ekki álitnir eiga
mikla möguleika í þessum leik fyrir-
fram. í fyrri leik liðanna, í Rúmeníu
sigraði Baia Mara með átta mörkum
39-31.
Um rúmenska liðið er ekkert að
segja. Þeir voru lélegir.
FH-ingar voru aftur á móti í
essinu sínu og sundurspiluðu FH-
ingar Rúmenana. Engu líkara var en
annarrar deildar lið væri á ferðinni
og Viggó Sigurðsson þjálfari FH
komst vel að orði þegar hann sagði
eftir leikinn: „Þetta er stærsti sigur
FH í Evrópukeppninni. Evrópu-
meistarar félagsliða frá í fyrra voru
eins og börn í höndunum á okkur.“
Sérstaklega er ástæða til að minn-
ast á markvörð FH-liðsins, Berg-
svein Bergsveinsson, sem minnti
einna helst á millivegg, svo gersam-
lega lokaði hann markinu.
Leikur FH var eins og hann gerist
bestur og var ekki að finna veikan
hlekk í liðinu. Allir áttu góðan dag.
-ES
Eimskip
meðtvö
risaskip
Eimskip hefur fest kaup á tveimur
systurskipum, sem eru s.k. ekjuskip
og eru hin stærstu í siglingasögu
þjóðarinnar.
Annað skipið, Laxfoss, er komið
til landsins og fer í sína fyrstu ferð
frá íslandi í dag. Brúarfoss kemur til
landsins á næsta ári.
Orðið ekjuskip er notað yfir skip
sem eru þannig gerð, að aka má með
vöruna um borð og frá borði. Þetta
flýtir lestun og losun og leiðir til
aukinnar hagræðingar.
/
/