Tíminn - 06.01.1989, Blaðsíða 10
10 Tíminn
Föstudagur 6. janúar 1989
Föstudagur 6. janúar 1989
ÍÞRÓTTIR
ÍÞRÓTTIR
Nýtt íþróttahús á Seltjarnarnesi:
„Gjörbreytir allri
aðstöðu hér í bænum“
• *
- segir Sigurgeir Sigurðsson bæjarstjóri um nýja íþróttahúsið
Á sunnudaginn kemur verður tek-
ið í notkun nýtt og glæsilegt íþrótta-
hús á Seltjarnarnesi. Húsið er tengt
eldra íþróttahúsi og samnýtir þannig
hluta af búningsaðstöðu og margs-
konar sameiginlegt rými.
Húsið er byggt fyrst og fremst
með flokkaíþróttir í huga, en í
húsinu eru handboltavöllur, körfu-
boltavöllur, tennisvöllur, 4 blakvell-
ir og 8 badmintonvellir.
Sæti eru fyrir 750 áhorfendur með-
fram báðum langhliðum salarins. t>á
ber það til nýjunga að í húsinu er
fimleikagryfja og hægt er að nota
hana án þess að trufla aðra starfsemi
í húsinu.
Það var verktakafyrirtækið Hag-
' virki hf sem sá alfarið um hönnum
og byggingu hússins.
Sigurgeir Sigurðsson
bæjarstjóri:
„Ég er óskaplega ánægður með
þetta glæsilega hús. Allar tímaáætl-
anir hjá verktaka hafa staðist og
byggingartíminn er mjög stuttur.
Samningur um smíði hússins var
undirritaður 17. desember 1987 og
framkvæmdir hófust í febrúar.
Heildarbyggingartími hússins er því
ekki nema um 10 mánuðir, sagði
Sigurgeir Sigurðsson bæjarstjóri er
Tímamenn hittu hann að máli í nýja
húsinu. Iðnaðarmenn voru þá á fullu
við lokafrágang.
„Þetta er flókið hús, þó það sjáist
ekki utan frá. Húsið stendur á þann-
ig stað að ljóst var í upphafi að það
yrði að grafa það nokkuð niður.
©ðrum megin eru íbúðir aldraðra og
hinum megin er gamla íþróttahúsið.
Við vildum ekki skemma umhverfið
hér með háu húsi og því er húsið að
hálfu leyti neðanjarðar. Það þurfti
að sprengja mikla klöpp hér niður,
en Hagvirkja gekk vel með það enda
hafa þeir góð tæki“.
„Þá er fimleikagryfjan mjög
sérstök, en í hana verða látnar
uppblásnir hjólbarðar og svampur,
samtals 150 rúmmetrar af efni. Þá
eru áhorfendastæðin beggja vegna í
húsinu og ég man ekki eftir slíku
síðan í gamla Hálogalandi".
„Þetta nýja hús gjörbreytir allri
íþróttaaðstöðu hér í bænum. Með
þessu er lokið framkvæmdum innan-
húss, en ennþá er ólokið við grasvöll-
inn, sem er á Valhúsahæð og malar-
völlurinn er ekki alveg frágenginn.
Þar er frjálsíþróttaaðstaðan eftir.
Síðan er það meiningin í framtíðinni
að „mála völlinn grænan" en það
verður síðar“.
„Við lítum á æskulýðs- og íþrótta-
málin sem mjög mikilvægan mála-
flokk. Það er mikið af börnum og
ungmennum hér sem stunda íþróttir
og þau gera þá ekki annað á meðan.
Ég tel að því fé sem í þessi mál fer
sé vel varið,“ sagði Sigurgeir Sig-
urðsson bæjarstjóri að lokum.
Magnús Georgsson
forstöðumaður:
„Ég er búinn að fylgjast með
þróuninni hér í 20 ár og það er mjög
ánægjulegt að fá svona mannvíiHT f
hendurnar. Með tilkomu hússins
batnar aðstaða Gróttu til muna sem
meðal annars á lið í 1. deildinni í
handknattleik. Grótta verður hér
með tíma á kvöldin, en aðrir tímar
verða leigðir út til einstaklinga og
hópa. íþróttakennslan verður í
gamla húsinu í vetur, en næsta vetur
einnig kennt hér í húsinu,“ sagði
Magnús Georgsson forstöðumaður
íþróttamannvirkja á Seltjarnarnesi.
„Hér verður allt tilbúið á sunnu-
daginn, það er verið að ganga frá
áhorfendapöllunum og ég reikna
með að hreingerningu verði ekki
lokið fyrr en á sunnudagsmorgun.
Það verður því unnið hér á fullu um
helgina,“ sagði Magnús.
Dagskráin á sunnudaginn hefst kl.
13.30 með því að lúðrasveit Tónlist-
arskóla Seltjarnarness leikur. Síðan
mun Jóhann G. Bergþórsson for-
stjóri Hagvirkja afhenda húsið.
Forseti bæjarstjórnar og bæjarstjóri
munu síðan flytja ávörp, en að þeim
loknum mun Grótta verða með dag-
skrá, innanhússknattspyrnu, fim-
leika og handknattleik yngri flokk-
anna. Lúðrasveitin mun síðan ljúka
dagskránni með leik. Um kvöldið
kl. 20.00 verður síðan vígsluleikur
hússins þegar Grótta og ÍBV leika í
1. deildinni í handknattleik.
Það væri ekki úr vegi fyrir Seltirn-
inga að bregða sér í nýja íþróttahús-
ið á sunnudaginn og skoða eitt
glæsilegasta íþróttahús landsins.
BL
Það fer ekki mikið fyrir nýja íþróttahúsinu að utan, en að innan er það stórt og glæsilegt. Hægra megin á myndinni
er gamla íþróttahúsið.
Hapoel Galil sýndi
stórkostlegan leik
í gærkvöldi lék hið stórkostlega lið Ha-
poel Galil gegn íslenska landsliðinu sinn
síðasta leik í heimsókn sinni hingað til lands.
ísraelsmennirnir fóru hreint á kostum með
Wayne Frceman fremstan í flokki, hann
skemmti áhorfendum með stórkostlegum
troðslum og mikilli leikni.
íslenska liðið stóð uppi í hárinu á Hapocl
fyrstu mínútur leiksins og höfðu yfir 18-17
þegar 9 mín. voru liðnar af leiknum. Valur
Ingimundar var í essinu sínu og skoraði
hverja körfuna á fætur annarri.
Þegar leið á hálfleikinn tóku leikmenn
Hapocl öll völd á yellinum og skoruðu 14
stig á móti engu íslendinga. í hálfleik hafði
Hapoel yfir 44-32.
íslendingar hófu seinni hálfleikinn af
krafti. Magnús Guðfinnsson átti góðan leik
og hreif hina leikmenn íslenska liðsins með
sér. ísland náði að minnka muninn í 6 stig
46-52.
En þá kom stórkostlegur kafli Wayne
Freemans, hann stal boltanum margsinnis af
íslenska liðinu og þaut upp allan völl og
tróð. Þegar um 4 mín. voru til ieiksloka
höfðu leikmenn Hgpoel náð 23 stiga for-
skoti, 65-86.
íslendingar náðu aðeins að saxa á forskot-
ið í lok leiksins, en Hapoel vann samt
öruggan sigur 98-80.
Þeir Valur og'Jón Kr. áttu góða spretti í
gærkvöldi en duttu svo niður á milli. Einnig
voru þeir sprækir Magnús G. og Matthías M.
Wayne Freeman átti stórgóðan leik í gær,
hapn stal boltanum oft og stjórnaði liði
Hapoel eins og herforingi. Terry Martin og
Brad Leaf voru einnig góðir. Það má í raun
segja að þessir þrír ofantaldir hafi borið
höfuð og herðar yfir aðra leikmenn á
vellinum.
Dómarar voru Lubomic Kateba og Kol-
beinn Kristinsson, sem voru óaðfinnanlegir.
Stig íslands: Valur 20, Jón Kr. 15, Magnús
15, Matthías 14, Jóhannes 8. fvar 2, Tómas
2 og Guðjón 2.
Stig Hapoel: Brad Leaf 27, Wayne Free-
man 24, Terry Martin 20, Steve Malovic 13,
Or Goren 5, Sham Choen 4, Ofir Kughley
3 og Nir Matalon 2. FH.
breytti í sjálfu sér engu. Það sem læknar hefðu
séð í þvagsýni Johnsons, benti til langvarandi
neyslu hormónalyfja.
París. Eins og skýrt var frá í vikunni þá
hefur Marokkómaðurinn Said Aouita ákveðið
að snúa á ný á hlaupabrautina eftir veikindi og
meiðsl á ÓL í Seoul. Kappinn ætlaði að hefja
keppni á móti í Lievin í N-Frakklandi og vildi
fá 25 þúsund dali fyrir vikið. Mótshaldarar eru
hins vegar ekki í stakk búnir til að snara út
slíkri upphæð. Það verður því að öllum
líkindum ekkert úr því að Marokkómaðurinn
keppi í Lievin, en mótið hefst þann 28. janúar.
London. í fyrrakvöld var einn leikur í
skosku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Hiberni-
an sigraði Hearts 1-0.
Barcelona. Á miðvikudagskvöld léku
Barcelona og Yugoplastika Split frá Júgóslavíu
í undanúrslitum Evrópukeppninnar í körfu-
knattleik. Barcelona sigraði 79-70 eftir að
staðan í hálfleik var 36-31.
Moskva. Sovéska knattspyrnuliðið Dy-
namo Kiev er nú orðið að atvinnumannaliði.
Liðið fetar þar í fótspor Dneproetrovsk sem
var gert að atvinnumannaliði fyrir stuttu.
Þessar aðgerðir eru í anda umbótastefu Gor-
bachevs Sovétleiðtoga.
jnogíL
Innsbruck. Svínn Jan Boklöv sigraði í
skíðastökki í Innsbruck í fyrradag og nú aðeins
5 stigum á eftir V-Þjóðverjanum Dieter
Thoma, sem er efstur í heimsbikarkeppninni í
skíðastökki. A-Þjóðverjinn Jens Weissflog er
3. í heimsbikarkeppninni með 213 stig. Finninn
fljúgandi Matti Nykanen varð í 5. sæti í
Innsbruck, en hann misreiknaði sig í fyrra
stökkinu og stökk „aðeins“ 96 m. Lengsta
stökkið átti Boklöv 109 m. Ari-Pekka Nillola
frá Finnlandi varð annar í keppninni. Breski
stökkvarinn Eddie „The Eagle“ Edwards eða
Eðvarð Örn Eðvarðsson, sem viðbeinsbrotn-
aði á æfingu fyrir keppnina, var bjartsýnn á
miðvikudaginn og sagðist vona að verða kom-
inn aftur á stökkpallinn í næstu viku.
London Dr. Arnold Beckett sem sæti á í
lyfjanefnd alþjóða Ólympíunefndarinnarsagði
í gær að Ben Johnson hefði að öllum líkindum
tekið hormónalyf á meðan á Ólympíuleikun-
um stóð. Hann sagði að lyfið Stanozolol væri
þess eðlis að ummerki þess í blóði fyndust ekki
nema í um viku eftir neyslu. Beckett sagði
einnig að ekki væri hægt að sverja fyrir að
lyfjum hefði verið komið fyrir í drykk Johnsons
eða þvagprufu hans, en hann bætti við að það
1x2 1x2 1x2 1x2 1x2 1x2 1x2 1x2 1x2 1x2 1x2 1x2 1x2
Jón Kr. Gíslason var hvað bestur leikmanna íslenska liðsins í gærkvöldi, og hér brýst hann af harðfylgi í gegnum
vörn „ísraela“ og skorar tvö af 15 stigum í leiknum. Tímamynd: Pjetur
Get-raunir!!!
' Enginn var með 12 rétta í síðustu
viku getrauna. Upphæðin, 631.340.
kr., flyst því yfir á þessa leikviku,
sem sagt tvöfaldur pottur á morgun.
Sextán aðilar voru með 11 rétta og
fær hver þeirra í sinn hlut 16.907. kr.
Það má því búast við heitum potti á
morgun.
Á morgun eru á getraunaseðlinum
leikir í 3. umferð ensku bikarkeppn-
innar. Ef að líkum lætur verður
nokkuð um óvænt úrslit, 1. deildar-
lið liggja fyrir liðum úr neðri deild-
unum.
{ ríkissjónvarpinu verður leikur
Bradford og Tottenham, leikur 3 á
seðlinum, sýndur í beinni útsend-
ingu. Gefst nú sjónvarpsáhorfend-
um kærkomið tækifæri til að fylgjast
með Guðna Bergssyni í leik með
sínu nýja liði Tottenham, en hann
hefur staðið sig vel með liðinu að
undanförnu.
f síðustu viku lauk forleiknum í
hópleik getrauna. BIS hópurinn,
sem var efstur fyrir síðustu vikuna
sigraði, með 54 stig, GRM og
SLÉTTBAKUR voru með 10 rétta í
síðustu viku, en skorti 1 stig til að ná
BIS.
Þá lauk einnig fjölmiðlakeppninni
um leið og hópleiknum. Dagur var
me'ð flesta rétta í síðustu viku, eða
8, Tíminn og Þjóðviljinn höfðu 7
rétta og DV 6 rétta. Leiknum lauk
með öruggum sigri DV sem hafði 8
stigum meira en næsti miðill Ríkisút-
varpið. { 3.^4. sæti komu Tíminn og
Þjóðviljinn, þar næst Bylgjan, svo
Stöð 2, þá Morgunblaðið, Dagur var
næst síðastur og Stjarnan rak lestina.
Nýr hópleikur hefst þann 14.
janúar.
En lítum á leiki helgarinnar.
Barnsley-Chelsea: 1
Leikur tveggja toppliða úr 2. deild.
Heimavöllurinn mun væntanlega
ríða baggamuninn.
Birmingham-Wimbledon: 2
Þótt bæði liðin hafi unnið síðustu
leiki sína í deildakeppninni, þá eru
sigurlíkur 1. deildarliðs Wibledon
meiri en botnliðs 2. deildarinnar.
Bradford-Tottenham: 2
Leikurinn sem sjónvarpsáhorfendur
bíða spenntir eftir. Guðni og félagar
þurfa að taka á honum stóra sínum
til að leggja 2. deildarliðið sem er
erfitt heim að sækja. Það ætti þó að
takast.
Brighton-Leeds: x
Sé einhver farinn að velta þvf fyrir
sér hve mörg nöfn 2. deildarliða A
byrji á B, þá skal það tekið fram að
þau eru 6. í 1. deild er ekkert lið sem
hefur B sem upphafsstaf í nafni sínu.
Jafntefli í hörkuleik í Brighton.
Derby-Southampton: 1
Eins og sjá má á fjölmiðlaspánni á
lið Derby County allmarga stuðn-
ingsmenn innan íþróttafréttamanna
stéttarinnar. Það er ekki spurning
hvernig þessi leikur fer.
Manchester United-QPR: 1
Lið Manchester United hefur átt
mjög misjafna leiki uppá síðkastið.
Ætli þeir nái ekki að skella QPR á
Old Trafford.
Millwall-Luton: x
Leikur tveggja 1. deidarliða þar sem
annan leik þarf til að knýja fram
úrslit.
Newcastle-Watford: 2
2. deildarlið Watford gerir sér lítið
fyrir og skellir Newcastle, sem er við
botn 1. deildar.
Portsmouth-Swindon: 1
Tvö lið úr 2. deild sem eru á svipuðu
reki leiða saman hesta sína. Oft mun
hurð skella nærri hælum og leikmenn
verða fyrir hnjaski, en heimaliðið
mun hafa betur þegar leikurinn er
úti.
Stoke-Crystal Palace: x
Jafnteflið sækir þessi tvö lið úr 2.
deild heim á morgun og þau verða
því að leika á ný.
Sunderland-Oxford: 2
En 2. deildarliðin sem mætast á
morgun. Ætli Oxford fari ekki með
sigur af hólmi, það mætti segja mér
það.
WBA-Everton: x
1. deild gegn 2. deild. Bæði liðin
með góða stöðu hvort í sinni deild.
Everton nægir ekki að vera deild
ofar í þessum leik, heimavöllurinn
er 12. maður WBA sem nær jafn-
skúli lúðvíks.
FJÖLMIÐLASPÁ
LEIKiR 7. JAN. ’89 ' j m E D Z Z 5 P Z z 3 > 8 2 DAGUR RlKISÚTVARPIÐ BYLGJAN STÖÐ2 STJARNAN SAMTALS
1 X 2
Barnsley - Chelsea 1 2 1 1 2 1 2 1 2 5 0 4
Birmingham - Wimbledon X 2 2 2 2 2 2 2 2 0 1 8
Bradford - Tottenham X 2 2 2 2 2 2 2 2 0 1 8
Brighton - Leeds X 2 X 2 2 2 X X 2 0 4 5
Derby - Southampton 1 1 1 1 1 X 1 1 X 7 2 0
Man. Utd. - Q.P.R. 1 1 1 X X 1 1 1 1 7 2 0
Millwall - Luton X 1 X 1 1 1 1 1 X 6 3 0
Newcastle - Watford 1 1 2 2 2 1 1 1 2 5 0 4
Portsmouth - Swindon 1 1 1 1 X X 1 1 2 6 2 1
Stoke - Crystal Palace X 2 X 1 1 2 1 1 X 4 3 2
Sunderland - Oxford 1 1 2 X X 2 1 1 2 4 3 2
W.B.A. - Everton 2 2 X 2 1 1 X 2 2 2 2 5
Magnús Georgsson forstöðumaöur og Sigurgeir Sigurðsson bæjarstjóri í nýja húsinu, salurinn sést í baksýn.
Tímamyndir Pjetur.
1x2 1x2 1x2 1x2 1x2 1x2 1x2 1x2 1x2 1x2 1x2 1x2 1x2
Tíminn 11
Ja,hver
þrefaldur!
Þrefaldur fyrsti
vinningur á laugardag!
Láttu ekki
þrefalt happ úr hendi
sleppa!
Leikandi og létt! Upplýsingasími: 685111
Kynningarþjónustan/SÍA