Tíminn - 06.01.1989, Blaðsíða 16
16 tírriínn
llllllllllllllllllllllll DAGBÓK
Á myndinni eru f.v.: Bragi Eggertsson, formaður fjáröflunarnefndar, Jón Pálsson,
Jóladagatala happdrsctti Sveinbjörn Hjálmsson, Vilberg Sigurjónsson, annar eigandi Vilberg & Þorsteinn,
Hitachiumboðsins, Svanhildur Sveinbjömsdóttir, Þórarinn Guðmundsson varaforseti
Kiwanisklúbbsins Hcklu og Bjöm Pálsson, forseti Kiwanisklúbbsins Heklu.
Kiwanisklúbburinn Hekla í Reykjavík
afhenti nýlega vinning í jóladagatala-
happdrætti klúbbsins: nýjasta módel af
vídeotæki frá Hitachi sem rnæðginin
Svanhildur Sveinbjörnsdóttir og Svein-
björn Hjálmsson hlutu.
Þann 14. jan. nk. verður Kiwanisklúbb-
urinn Hekla 25 ára, - og um leið Kiwanis-
hreyfingin á íslandi, og verður þess þá
minnst með ýmsum hætti.
Að venju mun klúbburinn standa fyrir
flugeldasýningu við Hrafnistu á þrettánd-
anum og hefst hún kl. 21:00.
Neskirkja:
Félagsstarf aldraðra
Samverustund verður á morgun, laug-
ardag kl. 15 í safnaðarheimili kirkjunnar.
Helgi Sæmundsson ritstjóri sér um efni.
Húnvetningafélagið
Félagsvist á laugardaginn kl. 14 í Húna-
búð, Skeifunni 17.
Átthagafélag Strandamanna
í Reykjavík
heldur barnaball í Domus Medica sunnu-
daginn 8. janúar kl. 3-6.
Kaffisala Safnaðar-
félags Ásprestakalls
Safnaöarfélag Ásprestakalls veröur
með kaffisölu sunnudaginn 8. janúar í
félagsheimilinu eftir messu, sem hefst kl.
14:00. Allir velkomnir. Stjórnin
Jólatrésskemmtun
Óháða safnaðarins
Kvenfélag Óháða safnaðarins heldur
jólatrésskemmtun fyrir börn í safnaðar-
heimilinu Kirkjubæ sunnudaginn 8.
janúar kl. 15:00. Jólasveinar koma í
heimsókn.
Félag eldri borgara
Árshátíð Félags eldri borgara verður
haldin að Hótel Sögu föstudaginn 6.
janúar.
BILALEIGA
með utibú allt i kringum
landiö, gera þér mögulegt
að leigja bíl á einum stað
og skila honum á öðrum.
Reykjavík
91-31615/31815
Akureyri
96-21715/23515
Pöntum bíla erlendi?
interRent
Bilaleiga Akureyrar
Nýr opnunartími að
KJARVALSSTÖÐUM
1 lok nýliðins árs samþykkti Menning-
armálanefnd Reykjavíkurborgar að
breyta opnunartíma Kjarvalsstaða.
Framvegis verða Kjarvalsstaðir opnir
kl. 11:00-18:00 alla daga vikunnar, en
auk þess verður hægt að fá opnað fyrir
hópa utan þess tíma eftir nánara sam-
komulagi.
Veitingastofan að Kjarvalsstöðum
verður jafnframt opin á sama tíma. Þar er
boðið upp á léttar veitingar.
Kvikmyndahátíð 1989
í Búlgaríu:
Með mannúð til friðar og vináttu
Dagana 27. maí til 4. júní 1989 gengst
Rauði kross Búlgaríu fyrir alþjóðlcgri
kvikmyndahátíð í Varna í Búlgaríu.
Hátíðin er haidin undir kjörorðunum:
„Með mannúð til friðar og vináttu". Hún
er vinsæl um allan hcim, og síðast þegar
slík hátíð var haldin sendu 55 þjóðir og 5
alþjóðleg fclög samtals 300 myndir.
Myndirnar mega ekki vera eldri en frá
1. janúar 1987. Þær eiga að fjalla um
Rauðakrossstarf, heilbrigði, vistfræði eða
mannúðarmál. Lengd skiptir ekki máli.
Þátttöku þarf að tilkynna til The Festiv-
al Directorate í Sofia fyrir 1. febr. 1989,
og myndirnar þurfa að vera komnar til
Varna fyrir 25. mars 1989.
Nánari upplýsingar eru gefnar á skrif-
stofu Rauða kross Islands, Rauðarárstíg
18 ( síma 91-26722.
80 ára afmæli Hafnarfjaröarhafnar:
Afmælissýning í Hafnarborg
Liöin eru 80 ár frá því að reglugerð
fyrir Hafnarfjarðarhöfn tók gildi og af því
tilefni hefur verið sctt upp afmælissýning
á vegum hafnarstjórnar í Lista- og menn-
ingarmiðstöðinni Hafnarborg í Hafnar-
firði.
Fjöldi Ijósmynda, teikninga, yfirlits-
korta, skýringarmynda og málverka lýsa
þróun hafnarsvæöisins undanfarna ára-
tugi. Þá eru á sýningunni ýmsir munir og
minjar sem tengjast á einn eða annan hátt
sögu Hafnarfjarðarhafnar og útgerðar-
sögu bæjarins.
Hluta sýningarsalarins í Hafnarborg
hefur verið breytt í kvikmyndasal og þar
er sýnd nýendurunnin heimildarmynd frá
1950, sem Ásgeir Long kvikmyndagerð-
armaöur tók um borð í nýsköpunartogar-
anum Júlí, einu aflasælasta togskipi
Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar.
Áfmælissýningin í Hafnarborg verður
opin daglega - nema þriðjudaga - kl.
14:00 - 19:00.
Sýningin stendur til 15. janúar.
Jólasýning í Gallerí Grjót
í Gallerí Grjót, Skólavörðustíg 4A,
stendur nú yfir jólasýning, - sem jafn-
framt er sölusýning. Á sýningunni eru
verk þeirra 9 listamanna sem að galleríinu
standa, þ.e.: Gestur Þorgrímsson, Jónína
Guðnadóttir, Magnús Tómasson. Ófeig-
ur Björnsson, Páll Guðmundsson frá
Húsafclli, Ragnheiður Jónsdóttir, Sigrún
Guðjónsdóttir (Rúna), Þorbjörg Hösk-
uldsdóttir og Örn Þorsteinsson. Oll verk-
in á sýningunni em til sölu.
Opið alla virka daga frá kl. 12-18.
Norræni veflistar
þríæringurinn „Den Nordiska
Textiltriennalen“
Laugardaginn 7. jan. kl. 16:00 opnar
að Kjarvalsstöðum „Fimmti Norræni vef-
listar þríæringurinn" (Den femte nord-
iska textiltriennalen), en sá fyrsti var
haldinn árið 1974.
Á sýningunni eru 81 verk eftir 64
listamenn frá öllum Norðurlöndunum.
Fulltrúi íslenska veflistarfélagsins í dóm-
nefnd var Ragna Róbertsdóttir.
íslensku þátttakendurnir í sýningunni
eru: Guðrún Gunnarsdóttir, Anna Þóra
Karlsdóttir, Guðrún Marinósdóttir og
ína Salóme. Öll verk þeirra eru frá árinu
1988.
Sýningin verðuropin daglega kl. 11:00-
18:00 fram til 22. janúar.
Skákþing Reykjavíkur
Skákþing Reykjavíkur 1989 hefst
sunnud. 8. janúar kl. 14:00. í aðalkeppn-
inni tefla keppendur í einum flokki ellefu
umferðir eftir Monrad-kerfi. Umferðir
verða að jafnaði þrisvar í viku, á sunnu-
dögum kl. 14:00 og á miðvikudögum og
föstudögum kl. 19:30. Biðskákadagar
verða inn á milli, nánar verður ákveðið
um þá síðar. Lokaskráning í aðalkeppn-
ina verður laugard. 7. jan. kl. 14:00-
18:00.
Keppni í fiokki 14 ára og yngri hefst
laugard. 14. jan. kl. 14:00. Tefldar níu
umferðir eftir Monrad-kerfi, umhugsun-
artími 40 mín. á skák. Keppnin tekur þrjá
laugardaga, þrjár umferðir í senn. Bóka-
verðlaun verða fyrir a.m.k. fimm efstu
sæti.
Minningarkort
SJÁLFSBJARGAR
í Reykjavík og nágrenni
- fást á eftirtöldum stöðum:
Reykjavík: Reykjavíkur apótek,
Garðsapótek, Vesturbæjarapótek,
Kirkjuhúsið við Klapparstíg, Bókabúð
Fossvogs, Grímsbæ við Bústaðaveg,
Bókabúðin Embla, Drafnarfelli 10,
Bókabúðin Úlfarsfell, Hagamel 67,
Verslunin Kjötborg, Búðargerði 10,
HafnarQörður: Bókabúð Olivers
Steins, Strandgötu 31.
Kópavogur: Pósthúsið.
Minningarkort fást einnig á skrifstofu
Sjálfsbjargar, Hátúni 12. Gíróþjónusta.
Minningarkort Áskirkju
Eftirtaldir aðilar hafa minningarkort
Safnaðarfélags Áskirkju til sölu:
Þuríður Ágústsdóttir, Austurbrún 37,
sími 681742
Ragna Jónsdóttir, Kambsvegi 17, sími
82775
Þjónustuíbúðir aldraðra, Dalbraut 27
Helena Halldórsdóttir, Norðurbrún 1,
Guðrún Jónsdóttir, Kleifarvegi 5, sími
681984,
Holtsapótek, Langholtsvegi 84,
Verslunin Kirkjuhúsið, Klapparstíg 27,
Verslunin Rangá, Skipasundi 56.
Þá gefst þeim, sem ekki eiga heiman-
gengt, kostur á að hringja í Áskirkju.
sími 84035 milli kl. 17:00 og 19:00 ogmun
kirkjuvörður annast sendingu minningar-
korta fyrir þá sem þcss óska.
68t? f iGúri.S!
lUDSbutCÖ'
Föstudagur 6. janúar 1989
UTVARP/SJÓNVARP
6>
Rás I
FM 92,4/93,5
&
FM 91,1
01.10 Vökulögin. Tónlist af ýmsu tagi í næturút-
varpi. Fréttir kl. 2.00 og 4.Q0 og sagðar fréttir af
veðri, færð og flugsamgöngum kl. 5.00 og 6.00.
Veðurfregnir frá Veðurstofu kl. 4.30.
7.03 Morgunútvarpið.
9.03 Viðbit. - Þröstur Emilsson. (Frá Akureyri)
10.05 Morgunsyrpa Evu Ásrúnar Albertsdóttur og
Óskars Páls Sveinssonar.
12.00 Fréttayfirlit. Auglýsingar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 í Undralandi með Lísu Páls. Sigurður Þór
Salvarsson tekur við athugasemdum og ábend-
ingum hlustenda laustfyrirkl. 13.00 í hlustenda-
þjónustu Dægurmálaútvarpsins og í framhaldi
af því gefur Hilmar B. Jónsson hlustendum holl
ráð um helgarmatinn.
14.00 Á milli mála. - Eva Ásrún Albertsdóttir og
Óskar Páll Sveinsson.
16.03 Dagskrá. Stefán Jón Hafstein, Sigríður Ein-
arsdóttir og Ævar Kjartansson bregða upp
mynd af mannlifi til sjávar og sveita og því sem
hæst ber heima og erlendis. Kaffispjall upp úr
kl. 16.00, „orð í eyra“ kl. 16.45 og dagsyfirlit kl.
18.30. Frásögn Arthúrs Björgvins Bollasonarfrá
Þýskalandi og fjölmiðlagagnrýni Einars Kára-
sonar á sjötta timanum. Ódáinsvallasaga
endurtekin frá morgni kl. 18.45.
19.00 Kvöldfréttir.
l9.33Áfram ísland. Dægurlög með íslenskum
flytjendum.
20.30 Vinsældalisti Rásar 2. Stefán Hilmarsson
kynnir tíu vinsælustu lögin. (Einnig útvarpað á
sunnudag kl. 15.00).
21.30 FRÆÐSLUVARP: Lærum þýsku. Þýsku-
kennsla fyrir byrjendur á vegum Fjarkennslu-
nefndar og Bréfaskóla íslands. (Endurtekinn
þáttur frá mánudagskvöldi).
22.07 Snúningur. Stefán Hilmarsson ber kveðjur
milli hlustenda og leikur óskalög.
02.05 Rokk og nýbylgja. Skúli Helgason kynnir.
(Endurtekinn þáttur frá mánudagskvöldi).
03.00 Vökulögin. Tónlist af ýmsu tagi í næturút-
varpi til morguns. Fréttir kl. 4.00 og sagðar fréttir
af veðri, færð og flugsamgöngum kl. 5.00 og
6.00. Veðurfregnir frá Veðurstofu kl. 4.30.
Fréttir kl. 2.00, 4.00, 7.00, 7.30, 8.00, 8.30, 9.00,
10.00, 11.00, 12.00, 12.20, 14.00, 15.00, 16.00,
17.00,18.00, 19.00, 22.00 og 24.00.
SVÆÐISÚTVARP Á RÁS 2
8.07- 8.30 Svæðisútvarp Norðurlands.
18.03-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands.
18.03-19.00 Svæðisútvarp Austurlands.
SJÓNVARPIÐ
Föstudagur
6. januar
Þrettándinn
6.45 Veöurfregnir. Bæn, séra Hulda Hrðnn M.
Helgadóttir flytur.
7.00 Fréttir.
7.03 í morgunsárið. Fréttayfirlit kl. 7.30 og 8.30,
fréttir kl. 8.00 og veðurfregnir kl. 8.15. Lesiö úr
forustugreinum dagblaöanna að loknu fréttayfir-
liti kl. 8.30. Tilkynningar laust fyrir kl. 7.30,8.00,
8.30 og 9.00.
9.00 Fréttir.
9.03 Litli barnatíminn. „Salómon svarti og
Bjartur" eftir Hjört Gíslason. Jakob S. Jónsson
les (5). (Einnig útvarpað um kvöldið kl. 20.00).
9.20 Morgunleikfimi. Umsjón: Halldóra Bjöms-
dóttir.
9.30Kvlksjá - Heimsendir sálarinnar. Hlín
Agnarsdóttir segir frá uppsetningu á leikritinu
„Lokaæfingu“ eftir Svövu Jakobsdóttur í Tabard
leikhúsinu í Lundúnum. (Endurtekinn þáttur frá
þriðjudagskvöldi).
10.00 Fréttir. Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Maðurinn á bak við bæjarfulltrúann.
Umsjón: Jóhann Hauksson.
11.00 Fréttir. Tilkynningar.
11.05 Samhljómur. Umsjón: Anna Ingólfsdóttir.
(Einnig útvarpað að loknum fréttum á miðnætti).
11.55 Dagskrá.
12.00 Fréttayfirlit. Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar.
13.35 Miðdegissagan: „Æfingatími14 eftir
Edvard Hoem. Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson
les þýðingu sína (2).
14.00 Fréttir. Tilkynningar.
14.05 Ljúflingslög. Svanhildur Jakobsdóttir
kynnir. (Einnig útvarpað aðfaranótt miðvikudags
að loknum fréttum kl. 2.00).
15.00 Fréttir.
15.03 Stefnumót Ingu Eydal við Ellen Einarsdóttur
og Rafn Hjaltalin. (Frá Akureyri) (Endurtekið frá
nýársdegi).
16.00 Fréttir.
16.03 Dagbókin. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpiö.
17.00 Fréttir.
17.03 „Eldfuglinn", balletttónlist eftir Igor Strav-
insky. Sinfóníuhljómsveitin í Montreal leikur;
Charles Dutoit stjórnar.
18.00 Fréttir.
18.03 Þingmál. Umsjón: Atli Rúnar Halldórsson.
(Einnig útvarpað næsta morgun kl. 9.45).
Tónlist. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Tilkynningar.
19.33 Gamanatriði úr „Nóttin er svo löng“.
Þátturinn var áður á dagskrá á nýjarsnótt.
Flytjendur: Jón Hjartarson og Öm Amason.
Píanóleikur: Gunnar Gunnarsson.
20.00 Litli barnatíminn. (Endurtekinn frá morgni).
20.15 Frá aðventutónleikum í Langholtskirkju
27. nóvember sl. Lúðrasveitin Svanur leikur
lög eftir ýmsa höfunda. Stjórnandi: Robert
Darling.
21.00 Kvöldvaka.
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð
kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.30 Góðvinafundur. Jónas Jónasson tekur á
móti gestum í Hallgrímskirkju. Meðal gesta eru
leikararnir Rúrik Haraldsson og Ragnheiður
Steindórsdóttir, Agnes Löve píanóleikari, Þuríð-
ur Pálsdóttir söngkona, Mótettukór Hallgríms-
kirkju og Hörður Áskelsson söngstjóri. (Endur-
tekinn frá jóladegi).
24.00 Fréttir.
00.10 Samhljómur. Umsjón: Anna Ingólfsdóttir.
(Endurtekinn frá morgni).
Næturútvarp á samtengdum rásum til
morguns.
Föstudagur
6. janúar
18.00 Gosi (2). Teiknimyndaflokkur um ævintýri
Gosa. Leikraddir örn Árnason. Þýðandi Jó-
hanna Þráinsdóttir.
18.25 Líf í nýju Ijósi (21). (II était une fois.. la vie)
Franskur teiknimyndaflokkur um mannslíkam-
ann, eftir Albert Barrillé.
18.50 Táknmálsfréttir.
18.55 Austurbæingar (Eastenders) Elleftl þáttur.
Breskur myndaflokkur í léttum dúr. Þýðandi
Kristmann Eiðsson.
19.25 Búrabyggð (5) (Fraggle Rock) Breskur
teiknimyndaflokkur úr smiðju Jim Hensons.
Þýðandi Guðni Kolbeinsson.
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Annall íslenskra tónlistarmyndbanda.
Fyrri hluti. Sýnd verða nokkur myndbönd frá
árinu 1988 og mun dómnefnd velja besta
íslenska myndbandið. Dómnefndina skipa
Ragnar Bjarnason, Sjón, Valgarð Guðjónsson
og Sveinn Guðjónsson. Umsjón Gunnar Már
Sigurfinnsson. Stjórn upptöku Kristín Erna Am-
ardóttir.
21.00 Þingsjá. Umsjón Ingimar Ingimarsson.
21.20 Maðurinn sem gaf draumunum vængi. Dr.
Alexander Jóhannesson. Heimildarmynd um
dr. Alexander Jóhannesson, fyrrverandi rektor
Háskóla Islands, gerð af Frank Ponzi.
22.20 Viðtal við Horst Tappert. Arthúr Björgvin
Bollason ræðir við þýska leikarann Horst
Tappert, þann er leikur Derrick lögregluforingja.
23.30 Fjórir félagar. (Four Friends) Bandarísk
bíómynd 1981. Leikstjóri Arthur Penn. Aðalhlut-
verk Craig Wasson, Jodi Thelen, Jim Metzler og
Michael Huddleston. Myndin gerist í byrjun
sjöunda áratugarins og fjallar um júgóslavnesk-
an pilt sem flust hefur til Bandaríkjanna. Hann
eignast brátt vini sem hafa mikil áhrif á hann.
Þýðandi Reynir Harðarson.
01.20 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
'Smz
Föstudagur
6. janúar
15.35 Smiley. Fátækur, ástralskur drengur gengur
í lið með nokkrum piltum, sem snapa sér hvers
kyns vinnu, til að safna peningum fyrir reiðhjóli.
Þegar stráksi nær langþráðu takmarki tekur
faðir hans féð og notar það til að gera upp
gamlar sakir við spilafélagana. Aðalhlutverk:
Colin Petersen, Ralph Richardson, Chips Raf-
ferty og John McCallum. Leikstjóri og framleið-
andi: Anthony Kimmins. Þýðandi: Kolbrún
Sveinsdóttir. 20th Century Fox 1956. Sýningar-
tími 100 mín.
17.10 Dotta og jólasveinninn. Dot and Santa. I
þessum þætti ferðast Dotta um víða veröld í
fylgd með jólasveininum. Leikraddir: Sólveig
Pálsdóttir, Randver Þorláksson og fleiri. Cori
Films.______________________________
18.25 Pepsí popp. íslenskur tónlistarþáttur þar
sem sýnd verða nýjustu myndböndin, fluttar
ferskar fréttir úr tónlistarheiminum, viðtöl, get-
raunir, leikir og alls kyns uppákomur. Þátturinn
er unninn í samvinnu við Sanitas hf. sem kostar
gerð hans. Kynnar Hafsteinn Hafsteinsson og
Nadia K. Banine. Dagskrárgerð: Hilmar
Oddsson. Stöð 2.
19.19 19:19. Frétta- og fréttaskýringaþáttur ásamt
umfjöllun um þau málefni sem ofarlega eru á
baugi.
20.00 Gott kvöld. Þau Helgi Pétursson og Valgerð-
ur Matthíasdóttir fjalla um allt milli himins og
jarðar sem er á seyði um helgina, strax á eftir
fréttum. Stöð 2.
20.30 í helgan stein. Coming of Age. Léttur
gamanmyndaflokkur um fullorðin hjón sem
setjast i helgan stein. Aðalhlutverk: Paul Doo-
ley, Phyllis Newman og Alan Young. Þýðandi:
Ásthildur Sverrisdóttir._______________________
20.55 Maraþondansinn. Leikfélag Reykjavíkur
frumsýndi þennan söngleik í veitingahúsinu
Broadway þann 29. desember síðastliðinn.
Verkið er byggt á sögunni „They Shoot Horses,
Don't They?" en Jane Fonda vann Óskarsverð-
alun fyrir leik sinn í samnefndri kvikmynd.
Maraþondansinn fjallar um einstakt fyrirbæri í
bandarísku kreppunni. Fólki var safnað saman
í danskeppni og dansað þar til aðeins eitt par
stóð eftir. í þessum þætti er gerð grein fyrir
uppruna og bakgrunni leiksins. Einnig er sagt
frá æfingatímanum fyrir sýninguna, rætt við
leikstjóra og textahöfund, Karl Ágúst Úffsson,
en hann hefur tekið nokkur vinsælustu dægur-
lögin frá þessum tíma og samið við þau texta
fyrir söngleikinn. Leikmynd og búninga gerði
Karl Júlíusson. Hljómsveitarstjóri er Jóhann G.
Jóhannsson. Yfirumsjón hafði Kjartan Ragnars-
son. Plús Film/Stöð 2.
21.35Sjóræningjarnir í Penzance. Pirates of
Penzance. Söngleikur sem gerist í kringum
1885. Mikil fagnaðarlæti hafa brotist út um borð
í sjóræningjaskipi einu þegar áhöfninni bætist
liðsauki hins unga nýgræðings, Frederics. Sag-
an er byggð á samnefndri óperu þeirra Gilberts
og Sullivan. Aðalhlutverk: Angela Lansbury,
Linda Ronstadt og Kevin Kline. Leikstjóri: Wil-
ford Leach. Universal 1982. Sýningartími 105
mín.
23.20 Lög gera ráðfyrir... Penalty Phase. Stórvel
gerð mynd um virtan lögfræðing sem teflirframa
sínum í tvísýnu með því að láta hættulegan
morðingja lausan þar sem hugsanlegt er að
gengið hafi verið á rétt hans. Aðalhlutverk:
Peter Strauss, Karen Austin, Jane Badler, John
Harkins og Millie Perkins. Leikstjóri: Tony
Richardson. Framleiðandi: Tamara Asseyev.
Þýðandi: Ásthildur Sveinsdóttir. New World
1986. Sýningartími 90 mín.
00.50 Velkomin til Los Angeles. Welcome to L.A.
Ungur dægurlagasmiður kemur til Los Angeles
til að ganga frá plötusamningi. Konur hrífast
mjög af rómantískum söng hans og margarfalla
fyrir honum, grunlausar um hvílíkan Casanova
söngvarinn hefur að geyma. Aðalhlutverk: Keith
Carradine, Sally Kellerman, Harvey Keitel, Ger-
aldine Chaplin, Lauren Hutton og Sissy Spacek.
Leikstjóri: Alan Rudolph. Framleiðandi: Robert
Altman. Þýðandi: Ásgeir Ingólfsson. MGM1977.
Sýningartími 100 mín.
02.30 Dagskrárlok.