Tíminn - 06.01.1989, Side 13
Föstudagur 6. janúar 1989
Tíminn 13
i Mnr
Vestur-Húnvetningar
Alþingismennirnir Páll Pétursson og Stefán Guðmundsson verða til
viðtals í Vertshúsinu, Hvammstanga, mánudaginn 9. jan. kl. 15-18.
Hofsós - nágrenni
Alþingismennirnir Páll Pétursson og Stefán Guðmundsson verða til
viðtals í félagsheimilinu Höfðaborg miðvikudaginn 11. jan. kl. 15-18.
Skagfirðingar, Sauðárkróksbúar
Alþingismennirnir Páll Pétursson og Stefán Guðmundsson og Elín
Líndal varaþingmaður halda almennan stjórnmálafund í Framsóknar-
húsinu, Sauðárkróki, miðvikudaginn 11. jan. kl. 20.30.
Skagstrendingar
Alþingismennirnir Páll Pétursson og Stefán Pálsson verða til viðtals
í Hótel Dagsbrún fimmtudaginn 12. jan. kl. 15-18.
Austur-Húnvetningar
Alþingismennirnir Páll Pétursson og Stefán Guðmundsson og Elín
Líndal varaþingmaður halda almennan stjórnmálafund að Hótel
Blönduósi fimmtudaginn 12. jan. kl. 20.30.
Báðir þessir forsetar beittu sér
mikið í baráttu fyrir mannréttind-
um. Arftakar beggja í embætti
báru nafnið Johnson og komu
báðir frá Suðurríkjunum.
Andrew Johnson var fæddur
1808. Lyndon Johnson fæddist
1908.
Morðingjar bæði Kennedys og
Lincolns voru Suðurríkjamenn og
báðir fulltrúar óvinsælla skoðana.
Morðingjarnir féllu báðir fyrir
byssukúlu áður en réttarhöld gátu
farið fram í máli þeirra.
John Wilkes Booth, morðingi
Abrahams Lincolns fæddist 1839.
Lee Harvey Oswald fæddist 1939.
Báðir forsetarnir höfðu fengið
aðvaranir frá riturum sínum um að
þeir væru í lífshættu.
Ritari Lincolns hafði varað hann
við að fara í leikhúsið. Ritari
Kennedys hafði varað hann við að
fara til Dallas.
Ritari Lincolns hét Kennedy.
Ritari Kennedys hét Lincoln.
Að ódæðinu drýgðu hljóp Booth
frá leikhúsinu f stórverslunarhús.
Oswald hljóp úr stórverslunarhúsi
til leikhúss.
Já, það er margt sem þeir hafa
átt sameiginlegt John F. Kennedy
og Abraham Lincoln. Eru þetta
eintómar skrýtnar tilviljanir eða
finnst einhver önnur skýring? Huf-
vudstadsbladet finnska, sem hefur
lagt okkur til þessar upplýsingar,
hefur engar athugasemdir þar um.
Margt líkt með
Kennedy og Lincoln!
22. nóvember sl. voru 25 ár liðin síðan John Fitzgerald
Kennedy, 35. forseti Bandaríkjanna, féll fyrir byssukúlu
morðingja í Dallas í Texas og var þess minnst víða um
heim. Þessi atburður fékk mikið á fólk og markaði að sumu
leyti þáttaskil, því að í hönd fóru aðrir voðaatburðir aflíku
tagi og m.a. urðu bróðir hans, Robert Kennedy dómsmála-
ráðherra og Martin Luther King forystumaður í réttinda-
baráttu svartra í Bandaríkjunum fórnarlömb morðingja
aðeins nokkrum árum síðar.
Því fer þó fjarri að Kennedy hafi
verið fyrsti Bandaríkjaforsetinn
sem drepinn var meðan hann
gegndi embætti. Fólk var fljótt að
rifja upp þegar Abraham Lincoln,
16. forseti Bandaríkjanna, var
skotinn til bana í leikhúsi í Wash-
ington 14. apríl 1865 en sá atburður
hefur löngum verið almenningi
hugstæður. Og þegar farið var að
kanna nánar endalok þessara
tveggja ástsælu forseta kom f Ijós
að margt hefur verið líkt með þeim
tveim.
Lincoln var kosinn forseti 1860.
Kennedy hlaut kosningu 1960.
Siglfirðingar - Siglfirðingar
Ráðherra heilbrigðis- og tryggingamála Guðmundur Bjarnason og
alþingismennirnir Páll Pétursson og Stefán Guðmundsson halda
almennan fund um heilbrigðismál að Hótel Höfn, þriðjudaginn 10.
janúar kl. 20.30.
Allir velkomnir.
Rangæingar
Jón Guðni Unnur
Árlegir stjórnmálafundir og viðtalstímar þingmanna Framsóknar-
flokksins verða haldnir á eftirtöldum stöðum:
Laugalandi, Holtahreppi, mánudaginn 9. jan. n.k. kl. 21.00.
Samkomuhúsinu, Þykkvabæ, miðvikudaginn 11. jan. kl. 21.00.
Allir eru boðnir velkomnir
BREYTT
SÍMANÚMER
Mánudaginn 9. janúar n.k. flytur tekju- og
lagasvið fjármálaráðuneytisins í Arnarhvol við
Lindargötu (inngangur um austurdyr, áður
húsnæði ríkisféhirðis). Beint símanúmer
tekju- og lagasviðs verður frá og með sama
tíma 91-609230.
Viðtals- og símatími SKATTADEILDAR erfrá
kl. 9.00 til 10.30 alla virka daga.
Viðtalstími TOLLADEILDAR er frá kl. 9.00 til
10.30, símatími frá kl. 10.30 til 12.00, alla
virka daga.
Fjármálaráðuneytið, 5. janúar 1989
t
Faðir okkar, tengdafaðir og afi
Steingrímur Guðjónsson
Kroppi, Eyjafirðí
verður jarðsunginn að Möðruvöllum í Hörgárdal laugardaginn 7.
janúarkl. 14.00.
Börn, tengdabörn og barnabörn.