Tíminn - 06.01.1989, Side 19
Föstudagur 6. janúar 1989
irvnuo
Tíminn 19
UlkL
ÞJÖÐLEIKHUSIÐ
Stóra sviðið
Fjalla-Eyvindur
og kona hans
leikrit eftir Jóhann Sigurjónsson
Laugardag kl. 20.00 6. sýning
Fimmtudag 12. jan. 7. sýning
Laugardag 14. jan. 8. sýning
Fimmtudag 19. jan. 9. sýning
Þjóðleikhúsió og íslenska óperan sýna
3^knníí;rt
ihoffmamií?
Ópera eftir Offenbach
I kvöld kl. 20.00. Fáein sæti laus.
Sunnudag kl. 20.00
Föstudag 13.1. kl. 20.00
Takmarkaður sýningafjöldi
Stór og smár
Leikrit eftir Botho Strauss
Tvær aukasýningar:
Miðvikudag kl. 20.00 Næstsiðasta sýning
Su. 15. jan. kl. 20.00 Síðasta sýning
Miðasala Þjóðleikhússins er opin alla
daga nema mánudaga kl. 13-20.
Simapantanireinnig virka dagakl. 10-12.
Sími 11200.
Leikhúskjallarinn er opinn öll
sýningarkvöld trá kl. 18.00.
Leikhúsveisla Þjóðleikhússins: Máltíðog
miði á gjafverði.
_______________________________
i J
m
Vertu í takt við
Tímann
ÁUGLÝSINGAR 686300
i.i;ikit:ia(; 3*2 22
RKYKIAVlklJR M
SVEITASINFÓNÍA
eftir Ragnar Arnalds
r JÍ?\
%
Tónlist: Atli Heimir Sveinsson
Leikmynd og búningar: Sigurjón
Jóhannsson
Leikstjóri: Þórhallur Sigurðsson
! kvöld kl. 20.30. Örfá sæti laus
Laugardag 7. jan. kl. 20.30. Örfá sæti laus
Sunnudag 8. jan. kl. 20.30. Örfá sæti laus
Miðvikudag 11. jan. kl. 20.30
Fimmtudag 12. jan. kl. 20.30
Laugardag 14. jan. kl. 20.30
Miðasala í Iðnó sími 16620
Miðasalan i Iðnó er opin daglega kl. 14-19
og fram að sýningu þá daga sem leikið er.
Símapantanir virka daga frá kl. 10. Einnig
símsala með VISA og EUROCARD á sama
tima. Nú er verið að taka á móti pöntunum
til 22. janúar 1989.
HAlÁi OKfDAMSÍ
Söngleikur eftir Ray Herman
Sýnt á Broadway
7. og 8. sýning I kvöld kl. 20.30. Uppselt
9. og 10. sýning 7. janúar kl. 20.30.
Föstudag 13. jan. kl. 20.30
Laugardag 14. jan. kl. 20.30
Miðasala i Broadway simi 680680
Miðasalan i Broadway er opin daglega kl.
16-19 og fram að sýningu þá daga sem
leikið er. Einnig simsala með VISA og
EUROCARD á sama tima. Nú er verið að
taka á móti pöntunum til 22. janúar 1989.
|
I ~
- Ég er hætt aö leita að fullkomnum manni. Núna
er ég bara aö leita aö eiginmanni.
- En ef þú gefur mér járnbrautarlest, viltu þá gefa
pabba eitthvaö sem ég get haft gaman af...
Síamstvíburarnir í íran;
„Ekki aðskilja okkur!“
Fósturfaöir þessara 14 ára
samvöxnu tvíburasystra í íran
vill endilega fá lækna til að
reyna að aðskilja systurnar
með skurðaðgerð - svo hann
geti gift stúlkurnar!
Læknar sem hafa rannsak-
að systurnar segja að
skurðaðgerð á þeim geti orð-
ið lífshættuleg fyrir aðra
hvora þeirra, en þær eru sam-
vaxnar á höfðinu og er mikið
samband milli heila og tauga-
kerfis þeirra. Þær mótmæla
aðgerðinni og segjast ekki
vilja taka neina áhættu. Þær
séu hamingjusamar eins og er
og vilji ekki breytingu, síst af
öllu ef það verði mikil áhætta
fyrir aðra hvora þeirra.
Faðir þeirra er Ali Reza
Safaian, auðugur íranskur
teppakaupmaður. Hann tók
systurnar í fóstur þar sem þær
höfðu verið bornar út til að
deyja. Hann hefur alið þær
vel upp, og séð til að þær
kæmust ekki í fjölmiðla, en
hefur lítið gert í því að láta
aðskilja þær. En nú eru þær
Laleh og Ladan komnar á
giftingaraldur múhameð-
strúarmanna og faðirinn vill
nú láta reyna á það hvort
hægt sé að aðskilja þær, því
að þá geti hann gift þær og
þær loks lifað eðlilegu lífi.
„Þær elska hvor aðra og
vilja ekki láta aðskilja sig,“
segir Ali, „en ég vil að þær
giftist."
Breskur taugaskurðlæknir,
Norman Grant hefur gert
rannsóknir á tvíburasystrun-
um og segist hafa von um að
Leikur
enn
unglinga
Hin rauðhærða og frekn-
ótta Sissy Spacek varð 38 ára
á jóladag en þrátt fyrir þann
aldur getur hún enn sem best
leikið unglinga.
Þegar blómaskeið hipp-
anna stóð sem hæst, laust
eftir 1960 fór Sissy að heiman
frá sér í Texas og tók stefnuna
á New York. Hún ætlaði að
verða söngkona. Velgengnin
lét þó mjög á sér standa og
afraksturinn varð ein, lítil
plata. Þá vaknaði áhugi henn-
ar á leiklistinni og 1970 fékk
hún fyrsta hlutverkið.
Það var hryllingsmyndin
„Carrie“ sem gerði Sissy
fræga og fyrir vikið var hún
tilnefnd til Óskarsverðlauna,
en þau fékk hún samt ekki
Sissy Spacck: 38 ára gamall
unglingur.
fyrr en 1979, fyrir leik sinn í
myndinni „Dóttir ;kqlanámu-
mannsins" sem fjallár um líf
og starf sveitasöngkonunnar
Lorettu Lynn. f myndinni
leikur Sissy Lorettu frá 13 til
35 ára aldurs og syngur sjálf
öll lögin.
Einkalíf Sissy er lítt borið
á borð í fjölmiðlum, líklega
af því þar eru engar snurður
á og allt í besta lagi. Hún er
hamingjusamlega gift leik-
stjóranum Jack Fisk og þau
eiga 5 ára gamla dóttur, Schu-
yler Elizabeth.
Systurnar Laleh og Ladan
vilja ckki láta gera á scr
skurðaðgerð til aðskilnaðar
þetta geti gengið, el samteng-
ingin sé ekki mjög flókin, en
þetta sé alltaf mikil áhætta.
Stúlkurnar eru vel gefnar,
þær eru sérstaklega duglegar
í stærðfræði og hafa verið
mjög sjálfbjarga. Þær hafa
t.d. lært að hjóla, - en þá
verður önnur að hlaupa með
... en Ali pabbi
þeirra vill endilega
gifta þær
og þær skiptast því á um að
sitja á hjólinu og mega ekki
hjóla of hratt.
KVIKMYNDIR
Stjörnugjöf: ★★★!
Takið eftir skrautskotunum á skottlokinu. Dæmi um gott auga fyrir glettni.
Afar mannlegir
mannaveiðarar
TÍMAHRAK
(Midnight Run)
Leikstjóri: Martin Brest.
Handrit: George Gallo.
Framleiðandi: William S.
Gilmore
Aðalleikarar: Robert De Niro,
Charles Grodin, Yaphet Kotto,
John Ashton, Dennis Farina.
Sýnd í Laugarásbíó.
Hún er nokkuð sérkennileg
þessi útgáfa og uppbökun á
svipaðri sögu og „48 stundir“
byggðu á. Ítímahraki virðast
allir hafa lagt sig ríkulega
fram og fengið út afbragðs
létta spennumynd. Persón-
urnar sem fengið hafa sína
endanlegu sköpun í meðferð
De Niros og Grodins, eru
stórskemmtilegar í einu orði
sagt. Ekki er lagt í of mikinn
íburð við framleiðsluna og
útkoman verður frekar ein-
föld umgjörð miðað við fyrri
bandarískar myndir af þessu
tagi.
Þekkilegri glæpamann og
brjóstumkennanlegri veiði-
mann hef ég varla séð í mynd
af þessu sauðahúsi fyrr og
segir það nokkuð um að hún
er ekki alveg venjuleg. Atrið-
in féllu nokkurn veginn hvert
að öðru þó að stundum örlaði
á endurteknum tengingum og
knöppum skiptum milli
klassískra atriða.
Þegar mannaveiðimanni er
att út í leik með bandarísku
alríkislögregluna á öxlunum,
annan mannaveiðara og út-
sendara svikinnar mafíu að
auki, er ekki von á öðru en
gífurlegum fléttuatriðum.
Nokkrar uppákomur verða
til að létta áhorfendum lífið
og gerði ekkert til þótt ekki
væri hlé á þeirri sýningu sem
Tíminn leit inn á. Einkunn:
Óvenju skemmtileg og mann-
leg mannaveiðaramynd, sem
fær hiklaust fullar þrjár
stjörnur af fjórum möguleg-
um. KB