Tíminn - 18.01.1989, Síða 8
8 Tíminn
Miðvikudagur 18. janúar 1989
Titninn
MÁLSVARIFRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU
Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og
Framsóknarfélögin í Reykjavík
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar:
Aðstoöarritstjóri:
Fréttastjórar:
Auglýsingastjóri:
Kristinn Finnbogason
Indriði G. Þorsteinsson ábm.
IngvarGíslason
OddurÓlafsson
Birgir Guðmundsson
EggertSkúlason
SteingrímurGíslason
Skrifstofur: Lyngháls 9, Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasími:
680001. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn, fréttastjórar
686306, íþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot:
Tæknideild Tímans. Prentun: Blaðaprent h.f.
Póstfax: 68-76-91
Hræsni íhaldsins
Kaldhæðnir sjálfstæðismenn hafa stundum gantast
með það, að Sjálfstæðisflokkurinn sé hætturlegur, ef
hann er utan ríkisstjórnar. Það á að vera ein
röksemdin fyrir því að hafa flokkinn alltaf í stjórn!
Þótt auðvitað sé ekki mikið gerandi úr stórkarla-
legri fyndni af þessu tagi, þá rifjast ýmislegt upp af
stjórnarandstöðutiltektum íhaldsins að fornu og
nýju. Hjá Sjálfstæðisflokknum helgar tilgangurinn
meðalið, einkum þegar hann er í stjórnarandstöðu og
er aðhaldslaus.
Pótt vissulega sé farið að fyrnast yfir meira en 30
ára stjórnmálaviðburði, þá muna enn margir, hvernig
framferði forystumanna Sjálfstæðisflokksins var í tíð
ríkisstjórnar Hermanns Jónassonar Í956-58. Sjálf-
stæðismenn reyndu m.a. að spilla fyrir því að íslenska
ríkisstjórnin fengi lán hjá bandarískum viðskipta-
banka sínum vorið 1957 til virkjunar Efra-Sogs. Hér
var um að ræða fáheyrðan pólitískan ofstopaverknað,
hvernig sem á er litið. í fyrsta lagi var þessi lántaka
brýnt hagsmunamál þjóðarinnar, varðaði nauðsyn
nýrrar raforkuvirkjunar. í öðru lagi var hér um að
ræða svo óviðeigandi íhlutun í samskiptamál ís-
lenskra stjórnvalda við erlenda viðskiptavini, að
fáheyrt er. Hafi þetta ekki verið landráðastarfsemi,
þá var þarna gengið götuna meðfram henni.
Nú er von að margt fólk, sem ekki þekkir
stjórnmálasiðferði Sjálfstæðisflokksins eins og það
var fyrir 30 árum, spyrji, hvernig forystumenn þessa
flokks hafi talið sig geta hlutast til um að íslensku
ríkisstjórninni yrði neitað um, lán í bandarískum
viðskiptabanka árið 1957. Til þess að geta skilið
svarið er reyndar nauðsynlegt að þekkja pólitíska
andrúmsloftið í heiminum á þessum árum.
En svarið er það að forystumenn Sjálfstæðisflokks-
ins sögðu bandarískum ráðamönnum að með því að
veita íslendingum þetta nauðsynlega virkjunarlán
væri verið að „borga aðgöngumiða kommúnista að
valdastólum á íslandi.“ Til þess að rifja enn upp það,
sem ungt fólk man ekki af eigin reynd, þá stóð svo á,
að nýstofnað Alþýðubandalag undir stjórn Hannibals
Valdimarssonar átti aðild að ríkisstjórn Hermanns
Jónassonar á þessum árum. Þaðan var komin sú
ásökun á Hermann Jónasson, formann Framsóknar-
flokksins, að hann væri handbendi „kommúnista".
Fljótt á litið sýnist þetta framferði sjálfstæðisforyst-
unnar fyrir 30 árum bera vitni um blindar öfgar. Ekki
skal úr því dregið, en umfram allt var þetta pólitísk
hræsni, sem er sérgrein Sjálfstæðisflokksins.
Sjálfstæðisflokkurinn ber gjarnan af sér samstarf
við „kommúnista“. íslensk stjórnmálasaga segir þó
allt annað. Það var fyrir atbeina Sjálfstæðisflokksins
og undir forsæti Ólafs Thors, að Brynjólfur Bjarna-
son, hinn gamalreyndi forystumaður kommúnista,
var ráðherra í ríkisstjórn íslands á árunum 1944-47.
Sjálfstæðismenn útilokuðu ekki samstarf við gömlu
kommúnistaforingjana Brynjólf Bjarnason og Einar
Olgeirsson. Sjálfstæðismenn útiloka ekki samstarf
við Alþýðubandalag dagsins í dag, þótt þeir í öðru
orðinu kalli ráðamenn þess arftaka kommúnista. Ef
tækifæri byðist, myndi Porsteinn Pálsson hvenær sem
er eiga náið samstarf við Alþýðubandalagið. Hræsnis-
pólitík íhaldsforystunnar er alkunn.
GARRI
Gjaldþrotaleikfimi
Það er víst orðin rúm vika síðan
Tíminn birti um það frétt að á
nýliðnu ári hefðu framleiðendur
búvöru í landinu tapað litlum 330
miljónum króna á gjaldþrotum
verslana á neytcndamarkaði. Þetta
hefur þó ekki vakið sérstaka at-
hygli annarra fjölmiðla, og til dæm-
is hefur þeim þótt fundur þeirra
Jóns Baldvins og Ólafs Ragnars á
ísaHrði ólíkt forvitnilegra frétta-
efni. Kom þó ekkert nýtt fram á
þeim fundi, heldur var hann ein-
ungis fréttainatur fyrir það hve
hávaðasamur hann var.
Þó fer ekki á milli mála að hér
er stóralvarlegur hlutur á ferðinni
fyrir bændur landsins. Þessi baggi
lendir beint á þeim og sölufélögum
þeirra. Þetta þýðir að í ár eru
bændur þessari upphæð fátækari
en ella væri, og eru þeir þó víst
ekki ofsælir fyrir. Og afurðasölu-
félögin standa víst ekki heldur
þannig fjárhagslega eftir vaxta-
pólitík áranna 1987 og 1988 að þau
eigi í rassvasanum þá gildu sjóði
seni ekkert muni um að snara
slíkum upphæðum út úr.
Frumskógalögmál
Hingað til hefur það tíðkast að
kjötheildsölur seldu vörur sínar
gegn hæfilegum gjaldfresti til versl-
ana. Það hefur þótt sjálfsagt mál
að verslanir í smásölu væru það
traustar að óhætt væri að lána
þeim. Með eðlilcgum fyrirvara um
einstaka svarta sauði, sem alltaf
má búast við að leynist þar inn á
milli, hafa menn viljað trúa því að
smásalan í landinu væri rekin af
mönnum sem ekki gerðu sér leik
að því að baka öðrum stórtjón.
Nú er hins vegar ekki annað aö
sjá en að þarna sé að verða breyting
á. Áreiðanleiki í viðskiptum heyri
nú sögunni til. Menn reki nú versl-
anir í stórum stíl sem hlutafélög án
persónulegrar ábyrgðar með öðr-
um eigum sínum. Ef þessar versl-
anir gangi illa iáti menn þær ein-
faldlega fara á hausinn og verða
gjaldþrota. Með öðru og kunnug-
legra orðalagi er ekki annað að sjá
en að nú orðið séu það frumskóga-
lögmálin gömlu sem séu farin að
ráða ferðinni hér í matvöruverslun-
inni. Sá sé talinn klárastur sem
ötulastur sé að ná fjármagni af
náunga sínum án tillits til hags-
niuna hans.
Þá skipti engu hvort um sé að
ræða bændur sem hafi fangið fullt
af vandamálum við jafn sjálfsagða
hluti og þá að láta endana ná
sainan fyrir daglegum nauðþurft-
uin fjölskyldna sinna. Þessir hluta-
félagakaupmenn á neytendamark-
aðnum svífíst cinskis þegar taki að
halla undan fæti í rekstri þeirra. Þá
sé hlutafélagið bara látið rúlla og
ekki skotið að því einni lítilli hugs-
un hvaða afíeiðingar það hafi fyrir
mennina scm standa i því að fram-
leiða kjötið úti uni land allt.
Auknar tryggingar?
Hingað til mun sömuleiðis ekki
liafa þótt ástæða til þess fyrir
heildsölur mcð kjöt og aðrar bú-
vörur að heimta almennt fullar og
óskertar tryggingar fyrir hverju því
sem þeir selja verslunum gegn
gjaldfresti. En nú má vera að á
þessu sé oröið nauðsynlegt að gera
breytingu.
Sé það rétt að sá mórall sé farinn
að ríkja í hópi eigcnda verslana, að
litlu skipti hvort liúðimar rúlli í
gjaldþrotum eða ekki, þá virðast
tímarnir greinilega vera orðnir
breyttir. Þá gildi ekki lengur sú
gamla regla að eigandi verslunar
skuli standa og faila með búð sinni.
Þá sé við að eiga menn sem deili
sjóðum sínum á milli nokkurra
hlutafélaga. Gangi illa í einu félag-
inu sé þaö látið rúlla, í trausti þcss
að önnur gangi betur og mali gull í
lófa eigenda sinna. Þá sé engu hirt
hverjir tapi á gjaldþrotunum. Þá
gildi gömlu frumskógalögmálin; sá
komist lengst sem frekastur sé til
fjárins og taki minnst tillit til hags-
inuna náunga síns.
Þess vegna má meir en vera að
sá tími sé runninn upp að heildsölur
verði nú almennt að fara að heimta
fullar og óskcrtar tryggingar fyrir
liverju snitti sem þær selja búðum
öðru vísi en gegn staðgreiöslu.
Þcgar tap á gjaldþrotum cr farið að
nema upphæðum á borð við þetta
þá fer ekki hjá því að menn neyðist
til þess að fara að endurskoöa
stööuna. Þá verði að krefjast þess
að eigendur vcrslana þori að taka
þá ábyrgð á eigin rekstri að þeir
séu tilbúnir að leggja aðrar eignir
sínar að veði fyrir því að hann
standi.
Vissulega er mögulegt að ýmsum
heiðarlegum verslanaeigendum
gcti þótt hart undir því að búa að
persónulegur orðstír þeirra dugi
ekki lcngur til tryggingar slíkum
lánum. En þá verða þeir að bíta í
það súra epli að kollegar þeirra
ýmsir, sem farnir séu að stunda
gjaldþrotaleikfimina hér á mat-
vörumarkaðnum, hafi komið óorði
á stéttina. Þeir þurfi þá að líða fyrír
skúrkana. Garrí.
llllllllllll VITTOGBREITT llllllllllilillllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll^^
Snilldartaktar mark-
aðssetningarinnar
Eftir stóra krakkið um miðjan
þriðja áratuginn úldnaði ársfram-
leiðsla af síld á Amagereyju vegna
þess að íslendingar höfðu aðrar
hugmyndir um síldarverð en hugs-
anlegir kaupendur. Áratugum sfð-
ar morknuðu fullar skemmur af
íslenskum grásleppuhrognum í sól-
arparadís Suður- Frakklands. Þeir
sem voru að leika seljendur í
sandkassanum, sem íslenskir bis-
nissmenn halda að alþjóðaviðskipti
séu, höfðu ekki hugmynd um hver
mögulegur markaður var, heldur
kjöftuðu þeir hver upp í annan og
við fjölmiðlana um hvílík afbragðs-
fæða hrognin þeirra væru og ein-
hverra ára framleiðsla varð ónýt.
Úti í hinum stóra heimi er nú
sagður mikill markaður fyrir þorsk-
hrogn og sérstaklega lifur og Iýsi.
En útgerðarmenn og sjómenn eru
sammála um að það sé ekkert
nema óþarfa hirðusemi að taka
þessi verðmæti í land. Þeim þókn-
ast ekki verðið en kvarta og kveina
yfir að fá ekki að veiða eins mikið
af þorski og þeim sýnist og svo er
varið hundruðum milljóna á
hundruð milljóna ofan til að lengja
skip og smíða í þau yfirvélvædd
frystihús. Svo cr fryst og flakað urn
borð og hrognum og lifur hent í
sjóinn til að halda hringorminum
við, en mikil tíska er að kenna
selnum einhliða unt þau vandræði.
Fiskur og flug
Þeir sem vilja selja niðursoðna
lifur og lýsi til útlanda fá ekki
hráefni. Útgerðarmenn hafa fengið
þinglýst afsal fyrir fiskinum í sjón-
um og gera það við hann sem þeim
sýnist. Þar sem þeir eiga bæði
fiskinn og miðin er sjálfsagt að
kasta verðmætum og lifandi hring-
ormi fyrir borð, þeim kemur eftir-
spurn eftir lifur og lýsi ekkert við.
Þeir sem stunda útgerð og sjó-
himinhátt yfir gagnrýni hafnir að
allt annað en oflof hljómar sj álfsagt
sem argasta níð, og verður bara að
hafa það.
Flugfélög og flugmennska hafa
sömuleiðis notið sífellds lofs og
verið sveipuð dýrðarljóma sem
ekki þykir við hæfi að deyfa í
opinberri umræðu.
En þrátt fyrir allt talið um frum-
kvæðið, hefur það satt besta að
segja verið heldur lítið nema ódýru
fargjöldin yfir Atlantshafið hér
áður fyrr. Að öðru leyti hafa
íslensk flugmál einkennst af inn-
byrðis samkeppni jafnvel á svo
ólíklegum stöðum og á flugleiðinni
milli Algeirsborgar og Mekka, og
þarf meira en meðalhugkvæmni tii
slíkra heimskupara.
Að flytja fólk í skemmtiferðir og
ódýrar verslunarferðir hefur
lengstum verið keppikefli í íslensk-
um flugmálum og Cargolux er fyrir
löngu komin úr eigu skemmtiferða-
stjóranna.
Stórtíðindi
Nú er öflugt fraktflutningafélag
farið að koma við á íslandi og á að
nota þá rútu til að flytja fisk
flugleiðis á erlendan markað. Það
hefur svosem verið r'eynt áður en
aldrei nenia með hangandi hendi
og hefur sú starfsemi ekki einu
sinni komist á tilraunastig svo heit-
ið geti. Að minnsta kosti ekki í
neinu samræmi við montið um að
við séum göfug fiskveiðiþjóð og
ævintýraleg flugþjóð og allt innan-
tóma blaðrið um markaðsmál og
öll snilliyrðin um markaðssetn-
ingu.
Fulltrúi fyrirtækis, sem starfað
hefur að því einu í á fimmta áratug
að selja íslenskan fisk erlendis, fór
með tilraunasendingu til Japans og
er nú kominn til baka með þau
stórmerku tíðindi að verðmætamat
Japana á sjávarafurðum sé allt
annað en í Evrópu og hefur maður-
inn meira að segja látið sér detta í
hug að vert væri að kynna sér hvort
ekki mætti nota erlendu flugrútuna
til að selja sitthvað það úr sjávar-
ríkinu dýrum dómum, sem ekki
þykir taka því að hirða hér.
Kannski er tími til kominn að
einhverjir fari að kynna sér mark-
aði fyrir vörur úr því hráefni sem
fellur til hér á landi. Ekki aðeins
blokkina, sem stundum er verið að
segja okkur að ráði allri efnahags-
framvindu á íslandi. Eða svo er að
heyra þegar dollaraverðið á blokk-
inni fellur eða stígur.
Að henda lifur og framleiða
skreið fyrir markað sem ekki getur
borgar eru okkar ær og kýr og
kvarta svo yfir þorskverðinu og
kvótanum.
En hálaunaðir sérfræðingar í
markaðssetningu bera hróður ís-
lands um heiminn með ýmsu móti.
Eða er undirritaður sá eini sem
er hissa á skrípafréttinni á baksíðu
Mogga í gær um þegar Jón Páll stal
senunni.
Kraftajötuninn og Linda voru í
einhverju sundlaugasamkvæmi fyr-
ir svissneska pakkaferðaskrifstofu
og fylgdi fréttinni að þau vektu
athygli á fslandi með því að koma
þar fram.
Ætlar Garðar Hólm aldrei að
hætta að kyrja Kindur jarma í
kofunum í höllu Múhameðs Ben
Alí? OÓ