Tíminn - 03.02.1989, Qupperneq 5
.\WI /
Föstudagur 3. febrúar 1989
Tíminn 5
Fjárlagahallinn í fyrra 8 milljörðum meiri en upphafleg fjárlög gerðu ráð fyrir:
1,5 milljarðar I vexti af
yfirdrætti í Seðlabanka
í stað áætlunar um örlítinn afgang stóð ríkissjóður í
árslok uppi með 7,2 milljarða króna halla þrátt fyrir að
honum hafi tekist að „plokka“ 1.500 milljónum kr. meira
í staðgreiðsluskatta af þegnum sínum árið 1988 en áætlað
var (nær tíu þús. á mann). „Eyðslan“ nam samtals 71.580
milljónum, sem er rúmum 8 milljörðum meira en (fyrstu)
fjárlög gerðu ráð fyrir og 15% raunhækkun, þ.e. umfram
verðbólgu, frá árinu áður, samkvæmt greinargerð fjár-
málaráðuney tisins.
Og skýringin? Jú, auk þess að
reykja og drekka minna en ráða-
menn höfðu áætlað (275 millj. kr.
undir áætlun) tók „hlýðin alþýðan“
upp á þeim óskunda að fara að
orðum höfuð fjárlagasmiðsins
(fjármálaráðherra); þ.e. að draga
stórlega úr „eyðslufylliríi“ sínu síð-
ari hluta ársins - bæði af eigin
hvötum og tilneydd vegna bráða-
birgðalaga á allar kauphækkanir,
sem skertu atvinnutekjur um 3-
4%, og ráðstöfunartekjumar um
1% í viðbót vegna skattahækkan-
anna.
Og afleiðingin: Ríkissjóður fékk
um þúsund milljónum minni tekjur
af innflutningsgjöldum og um
3.000 milljónum minni tekjur af
söluskatti en hann ætlaði sér (sem
þýðir um 60.000 kr. minni eyðslu á
hvern landsmann en áætlanir og
spár reiknimeistara þjóðarinnar
höfðu ætlað).
Allt þetta leiddi til þess að
ríkissjóður komst í „húrrandi"
peningavandræði og vanskil - sem
hann varð að bjarga sér úr með
margra milljarða yfirdrætti í Seðla-
bankanum - sem svo aftur kostaði
a.m.k. 1.500 milljóna króna við-
bótar vaxtagreiðslur.
Auk þess hækkuðu vaxtagreiðsl-
ur vegna þeirra þriggja gengisfell-
inga sem stjórnvöld gripu til á
árinu. Alls fóru því 6.864 milljónir
í vaxtagreiðslur, sem svaraði til
nær 11% af öllum tekjum ríkis-
sjóðs og var nær 60% hækkun frá
árinu áður.
Auk þeirra tveggja milljarða
króna sem fóru í auknar vaxta-
greiðslur nefnir fjármálaráðuneyt-
ið til sögunnar 1.650 milljóna
króna aukafjárveitingar, 600 millj-
óna auknar niðurgreiðslur (v.
,,matarskattsins“) og rúmlega 300
milljónir í auknar útflutningsupp-
bætur.
Til þess að bjarga sér út úr hluta
vanskilaskuldanna gripu ráðamenn
ríkissjóðs síðan til þess rétt fyrir
áramótin að taka 3.290 milljóna
króna erlent lán (13 þús. kr. á
hvern landsmann) til að borga
hluta af hallanum á „tékkaheftinu“
í Seðlabankanum - þannig að er-
lendar lántökur urðu óvart 4.230
milljónir í stað „aðeins“ 900 millj-
óna sem „bjartsýnir“ fjárlagasmið-
ir höfðu áætlað. Og þrátt fyrir
þetta stóð ennþá eftir nær 5.000
milljóna króna halli (skammtíma-
Ólafur Ragnar Grímsson.
fyrirgreiðsla) á reikningnum við
Seðlabankann, eða nær sexfalt
hærri upphæð en næstu áramót á
undan.
Gjöld (eyðsla) ríkissjóðs á árinu
1988 voru mun stærri hluti þjóðar-
framleiðslunnar heldur en nokkru
Jón Baldvin Hannibalsson.
sinni á þessum áratug, eða 28,2%
samanborið við 24,9% árið áður.
Þegar hvert 1% þýðir um 2.500
milljónir svarar þessi 3,3% munur
til um 8.300 milljóna meiri eyðslu
en árið áður.
AB klúbburinn
er sá elsti
og sá stærsti
Vegna fréttar sem birtist nýlega
þar sem íslenski bókaklúbburinn
var sagður stærsti bókaklúbbur
landsins með 20 þúsund félaga vill
Almenna bókafélagið koma á fram-
færi eftirfarandi leiðréttingu. „Jafn-
framt því að vera hið elsta er klúbba-
kerfi Almenna bókafélagsins hið
stærsta á landinu með um 22 þúsund
félaga."
Á boðstólum hjá Almenna bóka-
félaginu eru bækur og plötur auk
mynd- og hljóðsnælda sem gefnar
eru út af forlaginu. Þá bjóðast einnig
í klúbbum forlagsins verk frá ýmsum
íslenskum útgefendum bæði bækur,
plötur og fleira.
Almenna bókafélagið gefur út
fréttabréf en nýlega var gerð á því
útlitsbreyting og framboð á mynd-
efni og plötum aukið.
Hefur fjöldi félaga sjaldan verið
meiri né heldur framboð efnis fjöl-
breyttara. jkb
Harður árekstur varð á milli jeppablfreiðar og vöruflutningabifreiðar í
Ártúnsbrekkunni á fimmta tímanum í gær. Ekki urðu nein slys á mönnum
og er það talin mesta mildi, þvi bílamir voro báðir óökufærir eftir
áreksturinn og er talið að jeppinn sé ónýtur. rímamynd: pjetur
Sólarhringshrakningar á Steingrímsfjarðarheiði:
Nýlega voru vinningshöfum í happdrætti Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra afhentir vinningarnir.
Vinningshafarnir eru f.v. Guðrún Thorarensen, Bjamheiður Ástgeirsdóttir, Sigurður Jónsson og
Lilja Viktorsdóttir. Með þeim á myndinni era Páll Svavarsson framkvæmdastjóri SLF og Júlíus
Vífill Ingvarsson framkvæmdastjóri hjá Ingvari Helgasyni hf.
Tveir menn og átta hundruð mink-
ar voru veðurtepptir á Steingríms-
fjarðarheiði frá því í fyrrakvöld
fram á miðjan dag í gær, en á þá skall
iðulaus norðan stórhríð. Mennirnir
tveir voru að flytja minkana á tveim-
ur bílum, yfirbyggðum Datsun Pick-
up og frambyggðum Rússajeppa,
vestur á firði og lögðu þeir leið sína
um Strandir og ætluðu yfir Stein-
grímsfjarðarheiði. Þar lentu þeir í
erfiðleikum og festu bílana austan til
í heiðinni. Þegar farið var að undrast
um þá í fyrrinótt voru tveir menn úr
björgunarsveitinni Dagrenningu á
Hólmavík ræstir. Þeir fór á snjóbíl
til mannanna og ætluðu að halda
með þá til byggða. Hrakförunum
var þó enn ekki lokið og bilaði
snjóbíllinn þegar komið var niður af
heiðinni. Ekki tókst að halda honum
í gangi því kveikjulok var ónýtt.
Um sexleytið í gærmorgun fóru
bændur frá Bassastöðum og Stakka-
nesi á dráttarvél og vel útbúnum
jeppa til mannanna með þurr föt og
mat. Snjóblásari frá Vegagerðinni
fór frá Hólmavík til móts við menn-
ina síðar um morguninn. Þegar
snjóblásarinn var kominn að bænum
Hrófbergi hitti hann fyrir hrakninga-
mennina og þá sem farið höfðu þeim
til aðstoðar. Þáðu menn kaffi á
bænum en síðan var afráðið að halda
að flutningabílunum og losa þá. í
þessa för bættust tveir vel útbúnir
hjálparjeppar. Gekk greiðlega að
losa bílana og voru þeir komnir til
Hólmavíkur um kl. 18:00 í gær.
Svava Pétursdóttir, húsfreyja að
Hrófbergi, bauð mönnunum í kaffi
fyrr um daginn og sagði hún þá hafa
verið nokkuð kalda en jafnað sig
fljótlega. Sagði hún þá hafa tekið
hraustlega til matar síns, en það
mun ekki vera nýlunda fyrir Svövu
því hún er móðir strandamannsins
sterka, Hreins Halldórssonar.
Svava sagði mennina hafa komið
heim að Hrófbergi um klukkan 14
og síðan hefði hún séð alla lestina
keyra framhjá í átt að Hólmavík
laust eftir klukkan 16.
Mennirnir gistu á Hólmavík í nótt
og einnig hafði tekist að útvega
minkunum gistingu í yfirgefnum
refaskálum hjá Brynjólfi Sæmunds-
syni oddvita Hólmavíkurhrepps, en
hann drap allan ref hjá sér í fyrra.
Munu minkar og menn bíða betra
veðurs og að Steingrímsfjarðarheið-
in verði rudd.
Stefán Gíslason, Hólmavík
Minkar og menn
tepptir í óveðri