Tíminn - 03.02.1989, Blaðsíða 7

Tíminn - 03.02.1989, Blaðsíða 7
Föstudagur 3. febrúar 1989 Tíminn 7 Tekjur hækkuðu um 10%, vísitalan um 23%, þar af matvæli 33%, á einu ári: Allt að 75% dýrara að kaupa í matinn Hagtíðindi Hagstofunnar staðfesta að algengar kvartanir um gífurlega hækkun matarkostnaðar á síðasta ári eru síst ofmæltar. Verð margra algengustu matvæla hækkaði um 50% og þar yfir á sama tíma og almennar tekjur hækkuðu aðeins í kringum 10%. Mun vart ofmælt að hjá mörgu fólki með meðalfjölskyldu og miðlungstekjur eða lægri, hafi öll hækkun tekna á s.l. ári farið eingöngu upp í hækkun matarkostnaðar - ef það hefur þá dugað til. M.a.s. hækkaði verð á slátri og hrísgrjónum um 52% og 82% á árinu. Hækkanir á sælgæti, tóbaki og vodka voru hins vegar mjög hóflegar, eða 8-14% á sama tímabili. Enginn matarskattur? Þótt fólk hafi orð ráðherra fyrir því að enginn „matarskattur1" hafi verið lagður á, þá leiða verðlagstölur frá Hagstofunni engu að síður í ljós að verð á mörgum algengum máltfð- um „vísitölufjölskyldunnar'" hækk- aði á bilinu 45-75% á einu ári, frá nóvember 1987 til sama tíma 1988. Meðalhækkun matvæla á þessu tímabili var um 33% eða um 10% umfram hækkun framfærsluvísitöl- unnar í heild, sem var 23%. Heildar- tekjur ASÍ-félaga hækkuðu hins veg- ar aðeins um tæplega 10% frá 4. ársfjórðungi 1987 til 3. ársfjórðungs 1988 og síðan hefur verðstöðvun (og launastöðvun) sem kunnugt er ríkt í landinu. Úr 23 í 31 þús. á mánuði Matarkostnaður „vísitölufjöi- skyldunnar" (samkv. framfærsluvísi- töíu) hækkaði í heild úr rúmlega 23 þús. kr. í nóv. 1987 upp í tæplega 31 þús. kr. sléttu ári seinna, eða hátt í 8 þús. kr. á mánuði. Meðaltekjur verkamanna hækk- uðu hins vegar um 6.700 kr. (úr rúml. 72 í tæpl. 79 þús.) á áður- nefndu tímabili og verkakvenna um 5.000 kr.(úr 58 í 63 þús.) á mánuði (m.a. vegna styttingar vinnutíma). Dýrtað baka... í Hagtíðindum birtist árlega smá- söluverð á fjölda tegunda af algeng- um vörum og þjónustu, þó sérstak- lega á matvælum. Sem dæmi um verðhækkanir á algengum matvörum á því ári sem hér um ræðir má nefna: Egg um 302%. Rófur og kartöflur 141-191%. Smjörlíki 61-82% Hveiti og grjón og sykur 61-82% Kjúklingar/slátur/ saltfískur 52-58% Mjólk og mjólkurvörur 25-52% Algengustu ávextir/ tómatar 46-62% Brauð 33—37% Barnamatur 4% Dilkakjöt 4-39% Kjötfars 45% Þjóðleikhúsið frumsýnir: HÁSKALEG KYNNI Glæsilegt, úrkynjað, siðfágað, siðspillandi, fyndið og átakanlegt. Þannig mætti að ósekju lýsa nýju leikriti frá meginlandinu, sem frumsýnt verður á stóra sviði Þjóð- leikhússins laugardaginn 11. febrú- ar. Enska leikskáldið Christopher Hampton samdi leikritið Les liai- sons dangereuses eða Háskaleg kynni eftir sérstæðri sögu. Skáld- sagan Les liaisons dangereuses eft- ir Frakkann Choderlos de Laclos vakti hneykslun, þegar hún kom út árið 1782, en náði fljótt feikna vinsældum báðum megin Ermar- sunds og telst nú sígild. Þessi eina bók höfundar var öll skrifuð í sendibréfaformi og þykir besta dæmið um þá bókmenntagrein. Verkið er alræmd stúdía á leyni- makki í kynferðismálum og mein- fýsin lýsing á „siðfágaðri" úrkynjun franskrar yfirstéttar á síðustu árum konungsveldisins, Einhleyp mark- greifynja og vísigreifi gera með sér háskalegt bandalag um að spilla blásaklausri stúlku sem nýkomin er úr klaustri. Þau draga fleiri fórnarlömb á tálar og svífast einsk- is í aðferðum sínum. Leikstjóri sýningar Þjóðleik- hússins er Benedikt Árnason. Þýð- endur eru Karl Guðmundsson og Kvennabósinn De Valmont, leikinn af Pálma Gestssyni, athafnar sig í rekkju gleðikonunnar Emilie, sem Sólveig Pálsdóttir leikur. Þórdís Bachmann. Leiksvið og búninga hannar Karl Aspelund og lýsingu annast Sveinn Benedikts- son. Pálmi Gestsson leikur hinn forherta kvennabósa, De Valmont vísigreifa, og Ragnheiður Stein- dórsdóttir fer með hlutverk hins kaldrifjaða glæsikvendis Merteuil markgreifafrúar. Aðrir leikarar í stórum hlutverkum eru Lilja Þóris- dóttir (Madame De Tourvel), María Ellingsen (klausturstúlkan Cecile Volanges), Helga E. Jóns- dóttir (Madame De Volanges, móðir hennar), Halldór Björnsson (Danceny riddari, vonbiðill Ce- cile), Herdís Þorvaldsdóttir (Ma- dame De Rosemonde, lífsreynd frænka vísigreifans), Randver Þor- láksson (Azolan, þjónn vísigreif- ans), og Sólveig Pálsdóttir (gleði- konan Emilie). Tekið skal fram að dilkakjöt í heilum skrokkum hækkaði mun minna, eða 16% á tímabilinu. Hofleg hækkun á „brjóstbirtunni“ Sumar matvörur hækkuðu að vísu mun minna. Einnig er athyglivert hvað ríkið hefur verið „tillitssamt" í hækkunum á tóbaki og sterkustu drykkjum í ÁTVR. Neðangreindar vörur hækkuðu sem hér segir: Nýr lax og ýsa 12-17% Svínalæri/hryggur 9-11% Ora grænmeti (í dósum) 10-11% Sælgæti og ís 7-19% Ö1 og gos (nema kók) 16-19% Whisky og vodka 8-10% Tóbak 12% Þótt ekki sé þetta nein tæmandi upptalning gefur hún vísbendingu um þróun matarkostnaðar á nýliðnu ári. Tekið skal fram að í þessa matseðla kann að vanta einhvers- konar meðlæti, t.d. hrásalat, en það er m.a. vegna þess að verð á nýju grænmeti er ekki að finna í Hagtíð- indum. Ekki er ólíklegt að það hafi hækkað svipað og ferskir ávextir eða í kringum 50% á umræddu ári. Niðurgreiðslur stórhækkað Þótt mörg matvæli hafi hækkað svo sem að framan greinir hafa niðurgreiðslur aukist gjög ntikið á umræddu ári, eða í krónunt talið eins og hér má sjá: ... og Cheerios ákvöldin... Og að lokum vörur sem lækkuðu í verði: Cornflakes og Cheerios 4-5% Rúsínur 14% Hamborgarhryggur 8% Niðursoðnir ávextir 12-22% Dilkakjöt 52 kr. 178 kr. Nautakjöt 0 - 54 - Svínakjöt 0 - 41 - Kjúklingar 0 - 41 - Egg 0 - 20 - Mjólk 6 - 20 - Undanrenna 3 - 12 - Rjómi 8 - 28 - Ostur(26%) 11 - 95 - Smjör 167 - 290 - Skyr 7 - 31 - Eins og þessi listi ber með sér þá hafa algengustu daglegar nauðsynja- vörur hækkað hvað mest, en það sem fremur flokka má með munað- arvörum, hvað minnst. En að meðal- tali er hækkun á matvörum 33% á árinu samkvæmt reikningum Hag- stofunnar. Að meðtalinni niðurgreiðslu hefur verð á kjúklingum því hækkað um nær 70% og á eggjunt um 328%. Athyglisvert er að kjöt af svínum, sem einnig eru alin á kjarnfóðri hefur hins vegar hækkað minna en flest önnur matvæli. Hvað kostar kvöldmaturinn? Til að reyna að átta sig betur á hlutunum setti Tíminn saman ann- arsvegar nokkra matseðla sem ætla má að séu fremur algengir á íslensk- um heimilum og hins vegar eina veislumáltíð og eina „draslmáltíð". Magn var áætlað út frá „vísitölufjöl- skyldunni", þ.e. 3^1 manns. Borið er saman hvað þessar máltíðir hafa hækkað á einu ári. Að vísitalan í heild - sem kaup- máttur er mældur eftir - skuli ekki hafa hækkað meira en raun ber vitni skýrist m.a. af því að verð á margs- konar öðrum vörum og þjónustu hækkaði miklu minna en maturinn. Þar er algengt að sjá hækkanir upp á 12-16-20%. Þar má nefna klipp- ingu, skófatnað, fatahreinsun, barnaheimilisgjöld og strætó. Að lokum má geta þess að aðgöngumiði á fótboltaleiki hækkaði ekkert á þessu tímabili, en miði í sundlaug- arnar hins vegar um 60%. -HEI Matseðlar: nóv.’87 nóv.’88 hækkun: Saltf./kartöf./rófur/nýr ávöxtur 310 kr. 535 kr. 72% Nýýsa/kartöfl./grjónagr./mjólk 290 - 430 - 47% Kjúkl./franskar/eplakaka m.rjóma 685 - 1.040 - 51% Lærissn./kartöfl./baunir/ávöxtur 680 - 920 - 35% Brauð/tóm./egg/súpa/appels.safi 320 - 530 - 67% Hamb.hrygg./fransk/rauðvín/ís/áv. 2.270 - 2.340 - 3% Cheerios/mjólk/appelsín/prinspóló 305 - 340 - 11% r m----—■— Samkort Armúla 3-108 fíeykjavík - Simi91-680988

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.