Tíminn - 03.02.1989, Side 10

Tíminn - 03.02.1989, Side 10
10 Tíminn Föstudagur 3. febrúar 1989 Föstudagur 3. februar 1989 tíminn '11 Handknattleikur: NAUMUR SIGUR OG GJAFAMARK íslcndingar sigruðu Norðmenn með eins marks mun, 25-24, er liðin mættust í landsleik í handknattleik í Laugardalshöll í gærkvöld. Leikur- inn var allköflóttur og dönsku dóm- ararnir voru mjög slakir. Þeir gáfu Norðmönnum til dæmis mark undir lokin, er þeir dæmdu mark þegar boltinn fór í stöng íslenska marksins. íslenska liðið var mjög slakt fyrstu 25 mtn. en leikmenn voru greinilega með hugann við annað, (kannski Trópí). Norðmenn gerðu fyrstu þrjú mörkin, en Kristján Arason gerði tvö fyrstu mörk Islands í leiknum. Eftir 10 mín. leik voru Norðmenn komnir með fjögurra marka forystu, 6-2. Áfram héldu Norðmenn og verulega var tekið að fara um áhorf- endur, sem komu til þess að verði vitni að stórum íslenskum sigri. En áfram héldu Norðmenn og staðan breyttist í 10-4. Þá kom Sigurður Sveinsson inná og ferskir vindar tóku að blása í sóknarleiknum. Þeg- ar 6 mín. voru til leikhlés var staðan 12-6 fyrir Norðmenn, en þá vöknuðu okkar menn til lífsins og gerðu fjögur mörk í röð. Þegar gengið var til leikhlés var staðan 13-11 fyrir Norðmenn. Það var sem nýtt íslenskt lið mætti til síðari hálfleiks. Liðið gerði sex mörk gegn einu marki Norðmanna og staðan breyttist í 17-14 fyrir ísland. Þá gripu dönsku dómararnir til sinna ráða og ráku þá Geir Sveinsson og Júlíus Jónasson báða af leikvelli í einu. Á næstu tveimur mín. juku íslendingar hins vegar muninn þrátt fyrir að vera tveimur leikmönnum færri og þegar þeir Geir og Júlíus komu aftur inná var staðan 19-15 fyrir ísland. Landinn hélt áfram að leika vel og þegar Körfuknattleikur: Létt hjá KR KR-ingar unnu ÍS 79-48 í Kennaraskólanum í gærkvöld. í hálfleik var staðan 48-28. ívar Webster kom ekkert inná hjá KR og Jóhannes Kristbjörnsson var slakur og gerði aðeins 2 stig. Stigahæstir ÍS: Guðmundur 14, Kristján 10, Helgi 8, Valdimar 6. KR: Ólafur 16, Guðni 15, Birgir 14 og Böðvar 13. BL Róm. Á Ítalíu voru leiknir fyrri undanúrslitaleikir bikarkeppninnar í knattspyrnu. Atalanta tapaði á heimavelli fyrir Sampdoria 2-3 og Napólí vann Písa 2-0 á útivelli. New York. Á miðvikudags- kvöld urðu úrslit í NBA-deildinni í körfuknattleik þessi: Boston Celtics-Charlotte Horn . 107- 94 Philadelphia-Washington frl . . . 114-110 Atlanta Hawks-Utah Jazz .... 94-93 Phoenix Suns-L.A.Lakers .... 114- 97 Portland Trail BI.-L.A.CIipp . . 108-107 London. í fyrrakvöld léku Par- tizab Belgrade og Estudiantes frá Spáni í Korac Evrópukeppninni í körfuknattleik. Júgóslavneska liðið sigraði í leiknum með 102 stigum gegn 93. rúmar fjórar mín. voru til leiksloka var staðan 25-20 og íslendingar komnir með unninn leik. Þá var sem allt hrykki í baklás aftur og Norð- menn gerðu fjögur síðustu mörkin, eða öllu heldur þrjú, því dönsku dómararnir dæmdu mark gilt sem fór í stöng. Eftir leikinn þegarblaða- menn skoðuðu myndbönd sjón- varpsmanna kom greinilega í ljós að boltinn fór aldrei inní markið. Þótt myndavélarnar næðu ekki fullkom- lega ferli boltans, þá sást greinilega að netið í markinu hreyfðist aldrei og því gat boltinn aldrei hafa farið inn. Ótrúleg mistök og heppni fyrir íslendinga að ekki var meira í húfi. Lokatölur leiksins voru því 25-24 sigur íslands, en það verður að segjast eins og er að sóknarleikurinn síðustu mín. var allt of flumbruleg- ur. íslenska liðið sýndi það í þessum leik að það er miklum mun betra en það norska, en einnig kom í ljós að leikmenn eiga enn við það vandamál Mechelen. Evrópumeistarar bikarhafa, Mechelen frá Belgíu, sigruðu PSV Eindhoven frá Hol- landi, Evrópumeistara meistaraliða, 3-0 í Super Cup leiknum um titilinn meistarar meistaranna, en fyrri leik- ur liðanna fór fram í fyrrakvöld. Johnny Bosman gerði tvö mörk Mechelen og Pascal De Wilde eitt. London. í 4. umferð ensku bikarkeppninnar urðu úrslit þau í fyrrakvöld að West Ham vann Swindon 1-0 og Grimsby vann Read- ing 2-1. Grimsby mætir sjálfum bik- armeisturum Wimbledon í 5. um- ferðinni, en West Ham mætir Charlton. RÓm. Á miðvikudag hófst sala á aðgöngumiðum á leiki heimsmeist-: arakeppninnar í knattspyrnu á Ítalíu 1990. Fyrsta daginn seldust alls yfir 21 þúsund miðar. Keppnin fer fram í 12 borgum Ítalíu og miðaverð er frá 550 kr. og upp í 5000 kr. Monte Carlo. Tyrkneski framherjinn Tanju Colak, fékk í gær afhentan gullskóinn fyrir að vera markahæsti leikmaður Evrópu á síð- asta ári. Colak gerði alls 39 mörk fyrir lið sitt, Galatasaray sem varð tyrkneskur meistari. Það var fyrrum markaskorari V-Þjóðverja, Gerd Múller, sem afhenti gullskóinn. Marco van Basten tók við tvennum verðlaunum við sama tækifæri. Hann var markakóngur Evrópu- keppni landsliða s.l. sumar og hann var einnig valinn besti leikmaður keppninnar. Þá var PSV Eindhoven liðið einnig heiðrað sem lið ársina. Madrid. Síðari leikirnir í fyrstu umferð spænsku bikarkeppninnar í knattspyrnu fóru fram í fyrrakvöld. Bikarmeistarar Barcelona unnu Car- tagena 4-0 og komust áfram á sam- tals 7-0 skori. Öllu verr gekk hjá helstu keppinautum þeirra, Real Madrid. Liðið gerði 1-1 jafntefli gegn Elche, en liðið komst samt áfram á 2-1 skori samanlagt. að stríða að einbeitinguna skortir þegar leikið er gegn lakara liði. Það að liðið vann upp sex marka mun og komst fimm mörk yfir sýnir getu- muninn, en hugurinn verður að vera á réttum stað frá upphafi til enda annars getur farið illa í B-keppninni í Frakklandi. Bestir íslendinga voru þeir Jakob Sigurðsson sem skoraði 6 mörk og fiskaði ein 6 vítaköst og Kristján Arason. Sigurður Sveinsson átti einnig góðan leik og Júlíus Jónasson náði sér vel á strik í síðari hálfleikn- um. Markvarslan var slök í leiknum, sérstaklega í fyrri hálfleik. Mörkin; ísland: Kristján 8/4, Jak- ob 6, Júlíus 3, Bjarki 3, Héðinn 1 og Þorgils Óttar 1. Noregur: Rune Erland gerði flest mörk Norðmanna, 8/2. Liðin leika að nýju í Höllinni í kvöld. Þrátt fyrir sigur í gær, eigum við harma að hefna. BL Körfuknattleikur: Hreinn stórleikur Hreins Hreinn Þorkelsson var hetja Valsmanna sem sigruðu Hauka á heimavelli þeirra í Hafnarfirði í gærkvöld er liðin mættust í Flug- leiðadeildinni í körfuknattleik. Úrslitin urðu 102-92 fyrir Valsara, sem voru yfir ■ hálfleik, 52-43. Valsmenn voru aðgangsharðari frá byrjun og hittni þeirra var góð eins og sést á tölunum. Mestur munur á liðunum var 9 stig. í síðari hálfleik juku Valsmenn enn forystu sína, sem mest varð 18 stig, 79-61. Pálmar Sigurðsson, sem átti mjög góðan leik, fór þá að hitta úr þriggja stiga skotunum og Haukar náðu að minnka muninn í 7 stig, 90-83. Síðustu mín. keyrðu Valsmenn aftur upp hraðann og sigruðu eins og áður segir 102-92. Stigin gerðu: Haukar: Pálmar 37, Henning 20, Jón Arnar 15, Tryggvi 8, ívar 8, Reynir 2 og Ingimar 2. Valur: Hreinn 31, Mattías 22, Tóm- as 17, Bárður 10, Ragnar 9, Ari 6, Arnar 5 og Björn 2. BL Þorgils óttar Mathiesen í kröppum línudans við Norðmenn í leiknum í gærkvöld. Túnamynd Pjetnr 1x2 1x2 1x2 1x2 1x2 1x2 1x2 1x2 Get-raunir!!! Getspeki landsmanna var ekki á hærri nótunum um síðustu helgi og engum tippara tókst að fá 12 leiki rétta. Hlns vegar voru 5 með 11 rétta og fær hver þeirra í sinn hlut 74.497. kr. Fyrsti vinningur, 869.147. kr., leggst því við 5. leikviku. Sem sagt tvöfaldur pottur um helgina og til mikils að vinna. Á síðasta seðli var óvenju mikið um jafntefli, eða 6, sem er mikið ekki hvað síst í bikarkeppni. Aðeins einum hóp tókst að ná 11 réttum, það var BIGGI, sem þar með tók forystuna í hópleiknum með 31 stig. Nokkrir hópar hafa 30 stig, en þeir eru: BIS, LABBAKÚTAR, BLOSSAR, BRD og BOND. Fjöl- miðlamenn riðu ekki feitum hesti frá sinni spá í liðinni viku. Þó var árangur DV og Morgunblasins sýnu skástur, en blöðin náðu bæði 6 réttum. Aðrir fjölmiðlar urðu að láta sér nægja 2, 3 og 4 rétta. Þar með hefur DV enn og aftur tekið forystuna í fjölmiðlaleiknum, eftir góða byrjun Bylgjunnar. Spennan er þó enn mikil og allt getur gerst. Aðeins 5 stigum munar á efsta og neðsta fjölmiðli. Staðan er nú þessi: DV 16, Bylgjan og Morgunblaðið 15, Þjóðviljinn og Stöð 2 13, Dagur og Stjarnan 12 og Tíminn og RUV hafa 11 stig. Sjónvarpsleikurinn að þessu sinni er leikur Newcastle og Liverpool á heimavelli þeirra fyrrnefndu, St. James Park. Newcastle liðið er nú í neðsta sæti 1. deildarinnar, en Liver- pool er á hraðri leið upp töfluna. Varla er von á nema sigri Liverpool í þessum leik, ekki hvað síst vegna þess að þeir kumpánar John Aldri- dge og Ian Rush eru báðir farnir að taka upp á því að skora í hverjum. leik. Baráttan verður samt áreiðan- lega hörð, enda eru heimamenn erfiðir heim að sækja og bak við þá stendur fjöldi áhorfenda. En snúum okkur að 5. leikviku með tvöfaldan pott kraumandi. Arsenal-West Ham: 1 Sérfræðingar eru á einu máli um að efsta lið deildarinnar nái að leggja botnliðið, annað væri hrein fjar- stæða. Aston Villa-Sheffield Wed.: 2 Lið Sheffieid Wednesday hefur stað- ið sig vel að undanförnu og því treystir undirritaður þeim til að leggja Aston ViIIa að velli. Útisigur. Charlton-Norwich: X Norwich liðinu ætlar að ganga illa að endurheimta toppsætið og liðið gerir allt of mörg jafntefli. Eitt slíkt mun líta dagsins ljós á heimavelli Charlton. Derby-Southampton: 1 Derby liðið snýr á ný við blaðinu og hefur á nýjan leik klifur upp töfluna með heimasigri á Southampton. Everton-Wimbledon: 1 Bítlaplötu úgafa í Sovétríkjunum verður Everton til framdráttar í leiknum, en sem kunnugt er þá kemur Everton liðið frá bítlaborg- inni Liverpool. Bikarmeistarar Wimbledon eru og uppteknir við tennis. Luton-Nottingham Forest: X Clough feðgum til armæðu þá nær Nottingham liðið ekki nema jafntefli gegn Luton á gervigrasinu, en jafn- tefli er með öllu óþekkt fyrirbrigði í herbúðum Forest. Middlesbrogh-Coventry: 2 Leikmenn Middlesbrough eru ekki vanir að gefa eftir, en þeir mæta ofjörlum sínum á laugardag og Co- ventry styrkir stöðu sína í hópi efstu liða. Newcastle-Liverpool: 2 Útisigur á sjónvarpsleiknum, en nánar var fjallað um leikinn í inn- gangi hér að ofan. ' QPR-Millwall: 2 Enn einn útisigurinn á seðlinum og Millwall heldur sínu striki. QPR er enn í mikilli fallhættu. Bournemouth-WBA: 2 Hörkuleikur úr 2. deildinni, þar sem WBA sýnir styrk sinn og setur stefnuna enn frekar á 1. deildarsæti. Oldham-Watford: X Oldham tekur 1 stig af toppliði Watford í 2. deildinni. Ekki er loku skotið fyrir markaregn í leiknum. Portsmouth-Manchester City: 2 Sjötti útisigurinn á seðlinum og Manchester liðið fer með 3 stig með sér heim. Portsmouth liðið er á niðurleið í deildinni. skúli lúðvíks. I I FJÖLMIÐLASPÁ . LEIKIR 4. FEB. ’89 J m 5 > Q Z z 5 'F Z z > .§ 2 1 o < Q Q CL CC < 1 * 'cc BYLGJAN CNI c/> STJARNAN SAMTALS 1 X 2 Arsenal - West Ham 1 1 1 1 1 1 1 1 1 9 0 0 Aston Villa - Sheff. Wed. 1 1 2 1 1 1 2 1 1 7 0 2 Charlton - Norwich X 2 X 2 2 X 2 1 2 1 3 5 Derby - Southampton 1 1 1 X X 1 1 1 X 6 3 0 Everton - Wimbledon 1 1 1 1 1 1 1 1 1 9 0 0 Luton - Nott. For. 2 2 X 2 2 2 2 X 2 0 2 7 Middlesbro - Coventry X X 2 2 X 1 X 1 X 2 5 2 Newcastle - Liverpool X 2 2 2 2 1 2 1 2 2 1 6 Q.P.R. - Millwall 2 1 2 X X 1 2 1 2 3 2 4 Bournemouth - W.B.A. 2 X 2 2 2 2 X X X 0 4 5 Oldham - Watford 1 2 X X 2 2 2 X 2 1 3 5 Portsmouth - Man. City 2 1 2 2 2 X X X 1 2 3 4 'í II 515 kr.kg 295 - 590 - 570 - 695 - 821 - 720 - 379 - 490 - 1.590 - Hvalrengi Bringukollar Hrútspungar Lundabaggar Sviðasulta súr Sviðasulta ný Pressuð svið Svínasulta Eistnavefjur Hákarl Hangilæri soðið 1.555 Hangifrp.soð. 1.155 Úrb. hangilæri 965 Úrb. hangifrp. 721 Harðfiskur 2.194 Flatkökur Rófustappa Sviðakjammar Marineruð síld Reykt síld Hverabrauð Seytt rúgbrauð Lifrarpylsa Blóðmör Blandaður súrmatur í fötu 389 _ Smjör 15 gr. 6.70 kr.stk. 43 kr. 130 kr.kg 420 - 45 flakið 45 kr.stk. 78 kr. 41 - 507 kr.kg 427 - I I * 1x2 1x2 1x2 1x2 1x2 1x2 1x2 1x2 SKILIÐSKATTFRAMTAU ITÆKATfÐ Skattframtali 1989 vegna tekna 1988 og eigna í árslok á að skila í síðasta lagMO.febrúar. Fylgiblöð með skattframtali liggja frammi hjá skattstjómm sem jafnframt veita frekari upplýsingar ef óskað er. Mikilvægt er að framteljendur varðveiti launaseola áfram eftir að skattframtali hefur verið skilað. Launaseðlar eiga að sanna, ef á _______ þarf að halda að staðgreiðsla hafi verið dregin af launurn SIÐASTISKILADAGUR SKATTFRAMTALS ER 10.FEBRÚAR. RSK RÍKISSKATTSTJÓRI

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.