Tíminn - 03.02.1989, Qupperneq 14
14 Tíminn
Föstudagur 3. febrúar 1989
Framsóknarhús
vígt í Olafsvík
Þann 4. des. sl. vígðu framsókn-
armenn í Ólafsvík og nágrenni
félagsheimili, sem þeir hafa komið
sér upp á Kirkjutúni 2, Ólafsvík.
Ritari Framsóknarflokksins, Guð-
mundur Bjarnason, heilbrigðis- og
tryggingaráðherra, Sigurður
Geirdal, framkvæmdastjóri
flokksins, og Alexander Stefáns-
son, alþingismaður, voru viðstadd-
ir vígsluhátíðina, auk félaga og
fleiri ágætra gesta. Framsóknar-
konur sáu um glæsilegar veitingar.
Formaður Framsóknarfélagsins,
Atli Alcxandersson, kennari, bauð
gesti velkomna og lýsti húsið form-
lega tekið í notkun.
Ávörp fluttu: Guðmundur
Bjarnason, ráðherra, sem færði
heillaóskir frá Framsóknarflokkn-
um og afhenti félaginu flokksmerk-
ið til að setja upp íhúsinu, Sigurður
Geirdal sem flutti hvátningarorð
og Alexander Stefánsson, sem rifj-
aði upp baráttu framsóknarmanna
Byggingarnefnd afhendir formanni lyklavöldin. Frá vinstrí eru mennimir
Pétur Jóhannesson, Vigfús Vigfússon, Stefán Jóhann Sigurðsson og Atli
Alexandersson, sem tekur við lyklum.
Guðmundur Bjarnason, heilbrigðisráðherra, rítarí Framsóknarflokksins afhendir Framsóknarhúsinu merki
flokksins.
Atli Alexandersson, formaður Framsóknarfélagsins, tekur við flokks-
merkinu af Guðmundi Bjarnasyni.
á liðinni tíð og áhrif þeirra á
uppbyggingu í Ólafsvík fyrr og
síðar. Björn Arnaldsson, fornt.
Sjálfstæðisfélags Ólafsvíkur flutti
árnaðaróskir og kveðjur frá félag-
inu og afhenti blóm og blómavasa.
Bjarni Ólafsson, Geirakoti, flutti
frumort kvæði í tilefni vígslunnar.
Margar góðar gjafir bárust og
heillaóskir, m.a. frá Ríkharði
Jónssyni og Ingveldi Magnúsdóttur
og fjölskyldu, sem gáfu gestabók,
loftljós í salinn og kertastjaka á
borðin.
Stefán Jóh. Sigurðsson skýrði
byggingasögu hússins:
Framsóknarfélagið ákvað að
koma sér upp húsnæði 1986 og
keypti hluta af efri hæð hússins
Kirkjutún 2, um 80 ferm. Hús
þetta var áður Vélsmiðjan „Sindri"
Ví, Ólafsvík, sem starfaði í áratugi.
Eigendur þess fyrirtækis voru
bræðurnir Bjarni og Guðjón Sig-
urðssynir, landskunnir braut-
ryðjendur á sinni tíð. Ráku þeir í
þessu húsi umfangsmikla starfsemi
og sáu um alla þjónustu við fiski-
skipaflotann í Ólafsvík og við
Breiðafjörð og víðar, svo og bif-
reiðaviðgerðir.
Eftir þeirra dag var fyrirtækið
selt. Nú hefur þetta hús, sem
stendur við aðalathafnasvæði
bæjarins, fengið nýtt hlutverk.
Byggingaverslun er á neðri hæð,
tölvu- og endurskoðunarfyrirtæki
á efri hæð, svo og félagsheimili
framsóknarmanna, en þaðhúsnæði
er í nýrri hluta hússins, með sér-
staklega hagstæðri lofthæð fyrir
samkomusal.
Á sl. ári unnu framsóknarmenn
að því að innrétta húsnæðið. Sam-
komusalurinn er um 70 ferm., að
hluta þiljaður með panel, parket á
gólfi, eldhúsaðstaða með skenki-
borði, rúmgóður inngangur er fyrir
hendi og snyrtiaðstaða. Borð og
stólar eru frá Húsgagnagerð Stein-
ars.
Þetta húsnæði gefur ýmsa mögu-
leika auk fundarhalda. Hægt er að
hafa smærri veislur fyrir 50-70
manns, svo og námskeið o.fl.
Verður húsnæðið leigt út, jafnhliða
aukinni starfsemi Framsóknarfé-
lagsins, svo sem félagsvist og fund-
arhöldum. Húsnæðið er sérlega
vistlegt og hefur framkvæmdin
heppnast mjög vel. Mikið sjálf-
boðastarf hefur verið unnið.
Framsóknarmenn í Ólafsvík og
nágrenni eru fullir bjartsýni vegna
þessarar glæsilegu húseignar og
vissir um að hún muni verða til
þess að styrkja stöðu flokksins og
almennt félagslíf í Ólafsvík.
í byggingarnefnd voru Pétur Jó-
hannsson, Vigfús K. Vigfússon,
Ólafur Jóh. Sigurðsson, Atli Alex-
andersson og Ríkharður Jónsson.
Voru þeim þökkuð frábær störf við
að fullgera þetta húsnæði, svo og
iðnaðarmönnum í Ólafsvík.
Opið hús var frameftir vígslu-
degi. Komu fjölmargir til að sam-
fagna þessum áfanga. Var þetta
ánægjulegur viðburður, langþráð-
ur draumur framsóknarfólks í Ól-
afsvík og nágrenni orðinn að veru-
leika.
f stjórn Framsóknarfélagsins eru
nú: Atli Alexandersson, form.,
Pétur Jóhannsson, Kristín Vigfús-
dóttir, Bjarni Ólafsson, Emil Már
Kristinsson, Katrín Ríkharðsdóttir
og Kristján Guðmundsson.
Veitingar voru ekki skornar við nögl þegar Framsóknarhúsið var opnað.