Tíminn - 03.02.1989, Side 15

Tíminn - 03.02.1989, Side 15
Föstudagur 3. febrúar 1989 Tíminn 15 BÆKUR Saga ullariðnaðar Magnús Guðmundsson: Ull verður gull, Safn til Iðnsögu íslendinga II. bindi, ritstjóri Jón Böðvarsson, Hið ísl. bókmenntafélag Rv. 1988. Það var Sverrir Hermannsson, þáverandi iðnaðarráðherra, sem fyr- ir fjórum árum réði Jón Böðvarsson skólameistara til þess verkefnis að ritstýra fyrirhuguðu safni til iðnsögu íslendinga. Hefur Jón unnið ötullega að þessu verki síðan og eru nú komin út þrjú bindi. Árið 1987 kom Eldur í afli, saga málmiðnaðar á fslandi eftir Sumarliða R. ísleifsson, og nú fyrir jólin bættust tvær bækur við. Önnur er Brotin drif og bíla- menn, fyrri hluti af sögu bílavið- gerða eftir Ásgeir Sigurgestsson, og hin er sú sem hér verður að vikið, UIl verður gull, saga ullariðnaðar á íslandi eftir Magnús Guðmundsson. Ekki verður annað sagt en að myndarlega hafi verið lagt úr vör með öllum þessum þremur bókum. Að því er bókina UIl verður gull varðar þá er hún mikið ritverk, vel á fimmta hundrað blaðsíður að með- töldum skrám og töflum. Það dylst engum að geysimikil vinna liggur að baki henni í heimildasöfnun. Hö- fundur hefur greinilega leitað fanga mjög víða, og nokkuð jöfnum hönd- um virðist hann hafa leitað sér heimilda í bókum, tímaritum, skjöl- um og hjá einstökum heimildarm- önnum, sem vitaskuld eru margir enn á lífi. í fljótu bragði verður ekki annað ráðið af bókinni en hann hafi vandað þar vel til allra vinnubragða og staðið traustlega að verki sínu. Það dylst ekki að bók hans er ákaflega efnismikil og geymir geysi- mikinn fróðleik um sögu ullarvinnslu hér á landi. Eins og allir vita var ullin unnin á sveitaheimilum hér á landi allt frá örófi alda. Par var kembt, spunnið, prjónað, ofið og þæft eins og fjölvíða er getið í heimildum og menn þekkja. Undir lok síðustu aldar hófst svo sú þróun að ullarvinnslan færðist smám saman út af heimilun- um og inn í verksmiðjur. Byrjunina á því má telja tóvélarnar sem fluttar voru til landsins og teknar í notkun seint á síðustu öld. Síðan risu hér ullarverksmiðjur, og þar ber tvær hæst. Annars vegar Gefjun, ullar- verksmiðju samvinnumanna á Akur- eyri, og hins vegar ÁIafoss,.verk- smiðju Sigurjóns Péturssonar í Mos- fellssveit. Þessar verksmiðjur störf- uðu hvor í sínu lagi þar til fyrir rúmu ári er þær voru sameinaðar og öllum er enn í fersku minni. Alla þessa sögu rekur Magnús skilmerkilega í bók sinni. Að lokn- um inngangi byrjar hann þar á því Magnús Guðmundsson sagnfræðingur. að segja sögu tóvélaverkstæðanna í sérstökum kafla og heldur síðan áfram að fjalla um heimilisiðnað, ásamt kembivélum sem honum þjónuðu, og víkur í framhaldi af því að klæðaverksmiðjum og dúkavefn- aði. Þá gerir hann grein fyrir hráefn- um til ullariðnaðar í sérstökum kafla, og síðan segir hann frá því hvernig ullarþvottur hefur þróast. Þar á eftir kemur svo kafli um spunaverksmiðjur og bandfram- leiðslu, annar þar sem rakin er saga gólfteppaiðnaðar hér á landi og sá þriðji um sögu prjónaiðnaðar. Lýkur honum með frásögn af sameiningu Gefjunar og Álafoss í eitt fyrirtæki undir nafni hins síðarnefnda. Loks er svo sérstakur kafli um verkafólk í ullariðnaði þar sem stuttlega er greint frá ýmsu er varðar kjör þess og aðbúnað. Erefnið í öilum þessum köflum bæði skilmerkilega skráð og því skilvíslega til haga haldið, svo að frásögnin verður hér öll að teljast hin greinarbesta. En eins og sjá má af upptalning- unni hér að ofan hefur höfundur valið þá leið að rekja þessa sögu eftir einstökum starfsgreinum innan ullariðnaðarins, en ekki eftir fyrir- tækjum. Þetta vinnulag er vissulega auðvelt að rökstyðja, enda verður sögu iðngreinarinnar í heild trúlega einna best til skila komið með þessu móti. Aðferðin hefur þó vissa ókosti, og þann helstan að nánast óhugsandi er að komast hjá því að endurtekn- ingar verði töluverðar. Þær stinga líka vissulega dálítið í augu þegar bókin er lesin í samfellu, en aftur má vænta þess að þær séu til hagræðis fyrir þá sem lesa í henni einstaka kafla til að leita sér upplýsinga um afmarkaða þætti þessarar sögu. Hitt er svo annað mál að verk- smiðjurekstur Sambandsins á Akur- eyri var áratugum saman eitt helsta stolt samvinnumanna um land allt. Þetta átti meðal annars við um Gefjun, sem vann ullina frá kaupfé- lögunum og framleiddi úr henni fjölbreyttar úrvalsvörur til sölu heima og erlendis. f þessu var unnið mikilvægt brautryðjendastarf á veg- um samvinnufélaganna sem félags- menn þeirra voru almennt upp með sér af. Og þess má vænta að svipað hafi á sínum tíma mátt segja um verksmiðju Sigurjóns Péturssonar á Álafossi. Að því er varðar sögu ullariðnaðar í landinu gefur því auga leið að þróun og efling þessara tveggja fyrir- tækja hlýtur að verða að teljast þar töluvert gildur þáttur. Ég saknaði þess í bókinni að sú saga skyldi þar ekki vera rakin sér á parti, til dæmis með yfirliti um veltu og afkomu þessara tveggja fyrirtækja, að svo miklu leyti sem slíkt er vitað, svo og um helstu áfanga í starfi þeirra hvað varðar vélvæðingu og aðrar tækni- nýjungar. Og lokaþátturinn þar hefði svo orðið að skýra ástæður erfiðleikanna í rekstrinum hjá Álaf- ossi, sem ollu því að ríkið yfirtók hann á sínum tíma, og sömuleiðis rekstrarvandann hjá Gefjun sem leiddi loks til þess að verksmiðjurnar voru sameinaðar. Þó að allmikið megi fræðast um sögu þessara tveggja fyrirtækja í bókinni fer því í rauninni fjarri að rekstrarsaga þeirra hvors um sig sé rakin þar í samhengi til nægilegrar hlítar. Þá sögu verður eiginlega að vona að einhver taki sér fyrir hendur að skrá fyrr eða síðar, enda um að ræða tvær af stærstu og þýðingarmestu verksmiðjum sem starfað hafa í landinu. Ein meinleg smávilla hefur slæðst inn í annars vandaða heimildaskrá í bókinni. Gísli Guðmundsson alþm. og fyrrverandi ritstjóri gaf árið 1943 út allmikið og vel þekkt rit um fjörutíu ára sögu Sambands ísi. sam- vinnufélaga. Fyrir mistök er þessi bók eignuð Gils Guðmundssyni rit- höfundi í heimildaskránni, og auk- heldur sagt að hún hafi áður birst í Tímariti Hins íslenska bókmennta- félags, sem ég man þó ekki betur en hafi hætt útkomu fyrir aldamót eða vel áður en Sambandið var stofnað. Þá er í bókarlok fróðlegur kafli um orðtök runnin frá tóvinnu eftir Halldór Halldórsson prófessor. Er að því efni hinn áhugaverðasti bóka- rauki. -esig Illllllllll LESENDUR SKRIFA VEXTIR Ofi OKUR Allmiklar umræður hafa verið að undanförnu um peningamál, vexti og okur. Þannig hefur það sennilega verið um aldir og árþúsund. Á fyrri hluta þessarar aldar var það talið okur á íslandi ef vextir voru hærri en 4%. í eftirfarandi grein er bent á nokkra staði í Biblíunni þar sem fjallað er um þessi mál. Allar skammstafanir eru tilvitnanir í Biblí- una. Lán Menn fengu lánaða peninga 2. M 22:25; Neh 5:4, verkfæri 2. Kon. 6:5; brauð LK 11:5. Eingöngu fátækt fólk tók lán og af því mátti ekki taka vexti 2. M. 22:25. Frá Babýlóníu þekkja menn aftur á móti dæmi um allt að 40% vexti. ísrael var fyrir I herleiðinguna í Babel alls engin verslunarþjóð. Þess vegna höfðu þeir ekkert lánakerfi til þess að reka verslunarhreyfingu. Sjöunda hvert ár skyldi fella niður allar skuldir 5. M. 15:1. Ef menn tóku veð fyrir láni urðu þeir að sýna lántakandanum tilhlýðilega nærgætni sbr. 5. M. 24:17. Jesús kennir lærisveinum sínum að hjálpa náunganum þegar hann þarfnast þess, Mt. 5:42, jafnvel þó að menn gætu átt von á því að fá ekkert aftur, Lk. 6:34. Þessi orð þýða auðvitað ekki að kristinn mað- ur eigi án undantekningar að lána sérhverjum þeim sem vill fá lán hjá honum. Hann á að veita lán þegar kærleikur Krists krefst þess, sbr. Mt. 7:12. Bann Gamla testamentisins við vöxtum er tengt því að á þessum tíma var ísrael alls engin verslunar- þjóð. Ranglega hefur því stundum verið haldið fram, að þessi fyrirmæli eigi að vera bindandi, jafnvel fyrir þá sem kristnir eru. „Að vilja yfir- leitt ekki taka vexti jafngildir því að taka engin laun fyrir vinnu sína þvi að peningamir samsvara vinnuafli sem ég fel öðram að ráða yfir“ (Frank). í Lk. 19:23 er gert ráð fyrir því sem sjálfsögðu að menn leggi peninga í banka og fái vexti. En jafn augljóst er að kristnir menn mega ekki gera sig seka um okur. „Okrar- inn er morðingi. Sá sem stelur dag- legu brauði frá einhverjum öðrum hann fremur morð á sama hátt og sá sem lætur einhvern deyja úr hungri og farast. Einmitt þannig ber okrar- inn sig að og samt situr hann öruggur og fastur á sínum stól þó að hann ætti réttilega að hanga í gálganum og verða uppétinn af hröfnum jafn- mörgum þeim sem hann hefur rænt gullinu" (Luther). Okrarinn notfærir sér nefnilega neyð annarra, léttúð eða fákunnáttu til að draga sér ósanngjarnan hagnað með því að þvinga þá til að borga hærri vexti en þá sem aðrir þyrftu að borga við eðlilegar aðstæður. Úlfljótur G. Jónsson þýddi lauslega úr „Biblisk uppslagsbok. Handbok för bib- ellasare". Steingrímur Fundir um atvinnu- og efnahagsmál Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra, heldur fundi um at- vinnu- og efnahagsmál á eftirtöldum stöðum: Norðurland-V, laugardag 4. febr. Varmahlíð kl. 14.00. Allir velkomnir Borgnesingar - nærsveitir Spilum félagsvist í Samkomuhúsinu Borgarnesi föstudaginn 3. febr. kl. 20.30. Mætum vel. Framsóknarfélag Borgarness. Akranes bæjarmál Fundur um bæjarmálefnin verður haldinn laugardaginn 4. febrúar kl. 10.30 í Framsóknarhúsinu við Sunnubraut. Meðal annars verður rætt um fjárhagsáætlun bæjarins fyrir árið 1989. Bæjarfulltrúarnir. Austurland Af óviðráðanlegum orsökum verður fundum helgarinnar frestað. Halldór Ásgrímsson og Jón Kristjánsson. Kópavogur Skrifstofan í Hamraborg 5 er opin þriðjudaga og miðvikudaga kl. 9-13. Sími 41590. Heitt á könnunni. Opið hús alla miðvikudaga kl.17-19. Félagsmenn eru hvattir til að líta inn og taka með sér gesti. Eflum flokksstarfið. Framsóknarfétögin í Kópavogi. Reykjanes Skrifstofa Kjördæmissambandsins að Hamraborg 5, Kópavogi er opin á mánudögum og miðvikudögum kl. 17 til 19. Sími 43222. K.F.R. Námskeið Landssamband framsóknarkvenna hyggst standa fyrir eítirfarandi námskeiðahaldi á næstunni. Námskeiðin munu hefjast í byrjun febrúar og standa fram að páskum. Eru þau öllum opin og verði stillt í hóf að venju. Staðsetning námskeiðanna fer eftir þátttöku á hverjum stað. 1. Félagsmálanámskeiö. Grunnnámskeið fyrir byrjendur í fundarsköpum, ræðumennsku og eflingu sjálfstrausts. Kennarar verða: Unnur Stefánsdóttir, Ragnheiður Sveinbjömsdóttir, Inga Þyrí Kjartansdóttir, Ásdís Óskarsdóttir. 2. Framhaldsnámskeið. Raddbeiting og framsögn. Kennari: Baldvin Halldórsson, leikari. Undirstaða í ræðutækni fyrir sjónvarp, hljóðvarp og ræðustól. Kennari: Kristján Hall 3. Námskeið fyrir framkomu í Qölmiðlum. Framkoma í hljóðvarpi og sjónvarpi. Undirstöðuatriði í greinarskrifum og blaðaútgáfu. Kennari: Amþrúður Karlsdóttir, ijölmiðlafræðingur. Þátttaka tilkynnist til Ingu Þyrí Kjartansdóttur í síma: 91-24480 sem fyrst L.F.K

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.