Tíminn - 03.02.1989, Síða 20
AUGLÝSINGASÍMAR: 680001 —686300
RÍKIS^IP NÚTÍMA FLUTNINGAR Halnarhúsinu v/Tryggvagötu, S 28822 ð VERBBRÉHHMSKIPn SAMVHUNUBANKANS SUÐURLANOSBRAUT 18, SlMI: 688568 PÓSTFAX TÍMANS 687691 NÝJA SENDIBÍLASTÖÐIN 68-5000 GÓÐIR BÍLAR ÁGÆTIR BÍLSTJÓRAR
Tímiiin
FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1989
Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra, segir línur farnar að skýrast:
Hert verðlagseftirlit
og bremsa á raunvexti
Ríkisstjórnin sat í gær langan fund þar sem tillögur að
efnahagsaðgerðum skýrðust mjög og er hægt að búast við
því að fljótlega verði ýmsum hugmyndum hrint í
framkvæmd. Efst á baugi er einhvers konar gengisbreyt-
ing, endurskoðun á húsnæðiskerfinu, heimildarákvæði til
raunvaxtalækkunar með handafli, sértækar aðgerðir í
sjávarútvegi, endurskoðun á matarskatti og að verðlags-
eftirlit verði stórlega hert með tilkynningaskyldu um allar
hækkanir. Þetta gerist á sama tíma og formenn ríkisstjórn-
arflokkanna eru að ganga frá endanlegu tilboði til
Borgaraflokksins sem leggja megi fram sem grundvöll að
málefnasamningi ríkisstjórnar með aðild Framsóknar-
flokks, Alþýðuflokks, Alþýðubandalags, Samtaka um
jafnrétti og félagshyggju og Borgaraflokksins.
Mikið hefur verið talað um að
undanförnu til hvaða lausna
verði gripið til að leiðrétta gengið
sem nú er ranglega skráð. Sam-
kvæmt heimildum Tímans er ekki
talað um gengisfellingu berum
orðum og forsætisráðherra treyst-
ir sér ekki til að boða gengisbreyt-
ingu. „Gengið er í mínum huga
afgangsstærð, sem kemur út úr
heildartillögunum. Égtreysti mér
ekki til að boða gengisbreytingu,
þó ljóst sé að raungengi þarf að
breytast," sagði Steingrímur Her-
mannsson, forsætisráðherra í við-
tali við Tímann í gær.
Tilkynningaskylda
til Verðlagsstofnunar
í þessum efnahagstillögum er
m.a. talaðumstrangtverðlagseft-
irlit, en ekki verðstöðvun af því
tagi sem gilt hefur síðan þessi
ríkisstjórn tók við völdum. „Það
er talað um strangt verðlagseftir-
lit. I því felst tilkynningaskylda
til Verðlagsstofnunar, sem meta
mun hvað getur talist til eðlilegra
hækkana,“ sagði Steingrímur.
Endurskoðun
húsnæðislána
Eitt af því sem er til athugunar
samkvæmt heimildum Tímans,
er endurskoðun á húsnæðislána-
kerfinu. „Það liggur fyrir tillaga
um svokallað húsabréfakerfi og
hún er til athugunar. Það er mjög
róttæk breyting frá því kerfi sem
nú er í gangi, en nú er vaxandi
vilji hjá öllum að komast út úr
þessu gífurlega víðtæka, sjálf-
virka kerfi sem nú er búið við.
Við höfum því miður bara ekki
efni á þess háttar kerfi og ég held
að mönnum sé að skiljast það
smátt og smátt,“ sagði forsætis-
ráðherra.
Svipa á háa vexti
Að sögn Steingríms Her-
mannssonar eru ráðherrar al-
mennt á þeirri skoðun að raun-
vextir séu of háir og þó einkum á
hinum svokallaða gráa markaði
verðbréfasjóða. „Það nær ekki
nokkurri átt að verið sé að bjóða
allt að 18% raunvexti á gráa
markaðinum, þegar verið er að
pína niður vexti hjá öllum helstu
innlánsstofnunum landsins. Ég
hef áhyggjur af því hvernig hægt
verður að ná tökum á þessu okri
sem hér tíðkast bæði á gráa
markaðinum og hjá viðskipta-
bönkum og öðrum fyrirtækjum.
Ég vona að það náist samstaða
um mjög ákveðnar heimildir í
lögum, sem fái menn til að hugsa
sig tvisvar um. Það er stundum að
menn átta sig þegar þeir sjá
svipuna á lofti. Það er nauðsyn-
legt að eiga til svipu með nokkr-
um hnútum á, eins og ég talaði
um á fundi á Akureyri fyrir
stuttu," sagði Steingrímur.
Einn borgaralegur
ráðherra?
Samkvæmt því sem Tíminn
hefur sannfrétt hafa línur mjög
skýrst í viðræðum formanna
stjórnarflokkanna við þingmenn
Borgaraflokksins um hugsanlega
aðild að stjórnarmynstri. Munu
formenn stjórnarflokkanna vera
að leggja síðustu hönd á tillögur
sem lagðar verða fyrir Borgara-
flokkinn. Samkvæmt heimildum
innan Borgaraflokksins eru menn
komnir á þá skoðun að nýtt
stjórnarmynstur sé að fæðast og
flest þau atriði, sem áður voru til
hindrunar, hafa skýrst. Bendir
þetta til þess að m.a. hafi verið
rætt um að fella niður, eða lækka
verulega, söluskatt á matvæli til
að slétta jarðveginn fyrir kom-
andi kjarasamninga á vinnumark-
aðinum.
Þegar talið hefur borist að
ráðuneytum hefur verið rætt um
að borgarar fái einn ráðherrastól
og að þeir létti einu til tveimur
fagráðuneytum af núverandi ráð-
herrum stjórnarflokkanna. Eðli
málsins samkvæmt er nafn for-
mannsins, Júlíusar Sólnes, nefnt
til leiks. KB
íslenskur lögfræöingur gerir þaö gott í Bandaríkjunum:
Málflutningsréttindi
fyrir Hæstarétti BNA
Nýlega fékk íslenskur lögfræðing-
ur, Magnús Gylfi Þorsteinsson, mál-
flutningsréttindi fyrir Hæstarétti
Bandaríkjanna. Að því er best er
vitað er Magnús Gylfi fyrsti íslend-
ingurinn sem slík réttindi hlýtur.
Magnús Gylfi hafði áður, fyrstur
íslendinga árið 1985, hlotið mál-
flutningsréttindi fyrir Fylkisdómstól-
um New York fylkis og þeim alríkis-
dómstólum sem í New York fylki
sitja. Magnús Gylfi starfar sem lög-
fræðingur í New York borg þar sem
hann rekur iögmannsstofu með eig-
inkonu sinni, Susan E. Thorstenn,
sem einnig er lögfræðingur.
Magnús Gylfi er fæddur og uppal-
inn í Reykjavík, sonur Þorsteins
Baldurssonar og Katrínar Magnús-
dóttur, hann varð stúdent frá
Menntaskólanum í Reykjavík árið
1977 og útskrifaðist úr lagadeild
Háskóla íslands árið 1983.
Málflutningsréttindin voru veitt
Magnúsi Gylfa, eiginkonu hans og
sex öðrum bandarískum lögfræðing-
um við athöfn í Dómhúsi Hæstarétt-
ar Bandaríkjanna í Washington
D.C. þann 11. janúar s.l., þar sem
allir níu dómarar Hæstaréttar voru
viðstaddir.
Hæstiréttur Bandaríkjanna er sem
kunnugt er æðsta dómstig þar í landi
og er einn af geirum ríkisvaldsins
ásamt forseta Bandaríkjanna og
Bandaríkjaþingi.
Þess má geta að eiginkona Magn-
úsar Gylfa, Susan, er aðili að máli
sem nú er fyrir Hæstarétti Banda-
ríkjanna, málið var munnlega flutt
sama dag og hjónin fengu málflutn-
ingsréttindi.
Magnús Gylfi Þorsteinsson ásamt konu sinni Susan É. Thorstenn og bami
þeirra.
A myndinni er Jon Égaas sem feijaði þessa flugvel frá Frakklandi á leið
tii Bandaríkjanna. Tímamynd: Árni Bjama
Hættuleg atvinna
Frekar lítið er um ferjuflug á
þessum árstfma sökum óhagstæðs
veðurs og vinda.
Örfáir menn láta það þó ekki á
sig fá en einn af þeim er Jon Egaas
norskur flugmaður sem búsettur er
í Bandaríkjunum. Ferjuflug er sem
kunnugt er ein hættulegasta at-
vinnugrein sem til er og dánartíðni
flugmannanna óhugnanlega há.
Jon kom hingað í gær með litla eins
hreyfils, fjögurra sæta rellu frá
Frakklandi með viðkomu í Am-
sterdam á leið til Bandaríkjanna.
En flugið frá Amsterdam tók hann
átta og hálfan tíma.
Hann hefur verið tíu ár í þessu
starfi en sagðist gera sem minnst af
því að fljúga á þessum árstíma
vegna hættunnar sem stafar af
ísingu og fleiru. Því má ef til vill
þakka langan aldur í hans starfi.
Á leiðinni til Bandaríkjanna
mun hann hafa viðkomu annað
hvort á Grænlandi eða Nýfundna-
landi en vélin hefur ekki nema tíu
klukkustunda eða 1800 sjómílna
flugþol. jkb