Tíminn - 08.02.1989, Page 11
10 Tíminn
Miðvikudagur 8. febrúar 1989
Miðvikudagur 8. febrúar 1989
ÍÞRÓTTIR
Tíminn 11
Körfuknattleikur:
Öruggur sigur KR
gegn Tindastól
KR-ingar unnu Tindastól nokkuð
örugglega er liðin áttust við í íþrótta-
húsi Hagaskólans í gærkvöldi. Það
var fyrst og fremst hin öfluga pressu-
vörn KR-inga sem gerði útslagið
gegn annars frískum Tindstólsmönn-
um.
Tindastóll hóf leikinn af miklum
krafti og náði forystu strax í upphafi
I
Körfuknattleikur
í gærkvöldi áttust við UBK
og ÍR í fyrri leik liðanna í átta
liða úrslitum í bikarkeppni
KKÍ. Það er skemmst frá því
að segja að yfirburðir ÍR voru
algerir. í hálfleik höfðu ÍR-ing-
ar yfir 24-62 og léku á als oddi.
ÍR-ingar tóku seinni hálfleik-
inn einnig föstum tökum og er
ieiknum lauk var staðan 65-119
ÍR-ingum í vil. BL/FH.
Hvalrengi 515 kr.kg
Bringukollar 295 -
Hrútspungar 590 -
Lundabaggar 570 -
Sviðasulta súr 695 -
Sviðasulta ný 821 -
Pressuð svið 720 -
Svínasulta 379 -
Eistnavefjur 490 -
Hákarl 1.590 -
Hangilæri soðið 1.555 -
Hangifip.soð. 1.155 -
Úrb. hangilæri 965 -
Úrb. hangifrp. 721
Harðfiskur 2.194 -
Flatkökur 43 kr.
Rófustappa 130 kr.kg
Sviðakjammar 420 -
Marineruð síld 45 flakið
Reyktsíld 45 kr.stk.
Hverabrauð 78 kr.
Seytt rúgbrauð 41
Lifrarpylsa 507 kr.kg
Blóðmör 427 -
Blandaður súrmatur
í fötu
Smjör 15 gr. 6.70 kr.stk.
»• ••
Iæsi
ö 68 5168.
I
og leiddu framan af í fyrri hálfleik.
Þegar fyrri hálfleikur var hálfnaður
var staðan 17-22, Tindastólsmönn-
um í vil, og virtust leikmenn Tinda-
stóls til alls líklegir. Leikmenn
Tindastóls voru sprækir jafnt í sókn
og vörn en KR-ingar virtust daufir
og voru greinilega ekki komnir í
gang.
En KR-ingar fóru að vakna til
lífsins og þegar um fjórar mín voru
eftir hafði þeim tekist að jafna
26-26. KR komst svo yfir í fyrsta
skipti í leiknum 32-31 og leiddu í
hálfleik 32-34.
KR-ingar komu ákveðnir til leiks
í seinni háífleik og var allt annað að
sjá til þeirra en í fyrri hálfleik.
KR-ingar pressuðu Tindastólsmenn
og náðu af þeim boltanum hvað eftir
annað. KR-ingar náðu 11 stiga for-
skoti 50-39 og virtust ætla að gera út
um leikinn. En þá kom gamia kemp-
an Kári Marísson inn á í lið Tinda-
stóls og hleypti í liðið nýju blóði.
Leikmenn Tindastóls skoruðu næstu
9 stig og minnkuðu muninn í 2 stig.
En þá tóku KR-ingar aftur við sér og
náðu öruggu forskoti 69-56, voru þá
sex mín eftir.
KR-ingar héldu forskotinu til
leiksloka og leiknum lauk með sigri
Badminton
þeirra 81-68.
Bestir KR-inga voru þeir Guðni
og Ólafur G, einnig átti Birgir góða
spretti.
Valur var sem fyrr kvað bestur hjá
Tindastól, þeir Eyjólfur og Kári
voru sprækir undir lokinn.
William Johns og Kristján Möller
dæmdu vel.
Stig KR. Ólafur 17, Guðni 14,
Jóhannes 12, Birgir 12, Matthías 11,
fvar 8, Lárus Á. 3, Lárus V 2 og
Gauti 2.
Stig Tindastóls: Valur 21, Eyjólfur
18, Björn 11, Kári 10 og Haraldur 8.
FH.
Guðrún tvöfaldur
! íslandsmeistari
Eins og sagt var frá í blaðinu í gær
þá varð Broddi Kristjánsson TBR
Islandsmeistari í einliðaleik karla í
badminton. Þórdís Edwald TBR,
sem sigraði í einliðaleik kvenna,
varði titil sinn frá því í fyrra. Þórdís
hefur nú sigrað í einliðaleik þrjú ár
í röð, en Broddi Kristjánsson vann
íslandstitilinn í áttunda sinn nú.
í úrslitaleiknum í einliðaleik
kvenna lék Þórdís Edwald gegn
Kristínu MagnúsdótturTBR. Þórdís
hafði yfirburði í báðum lotunum og
sigraði örugglega 11-2 og 11-3.
í tvíliðaleik kvenna sigruðu þær
Kristín Magnúsdóttir og Guðrún
Júlíusdóttir báðar úr TBR stöllur
sínar úr sama félagi, Þórdísi Edwald
og Elísabetu Þórðardóttur. Fyrsta
lotan var mjög jöfn og þær Þórdís og
Elísabet höfðu betur 18-16. í tveim-
ur næstu lotum höfðu Kristín og
Guðrún yfirburði og sigruðu 15-3 og
15-5.
Guðrún Júlíusdóttir vann sinn
annan íslandsmeistaratitil er hún og
Klippið hér
Guðmundur Adolfsson sigruðu
Brodda Kristjánsson og Þórdísi
Edwald í úrslitaleiknum í tvenndar-
leik, 15-8 og 15-12.
Á íslandsmótinu í badminton var
keppt í fjórum flokkum. Áðurnefnd
úrslit voru í meistaraflokki, en einn-
ig var keppt í A-flokki karla og
kvenna og tveimur flokkum eldri
karla, öðlingaflokki og æðstaflokki.
í A-flokki urðu úrslit þau að í
einliðaleik karla sigraði Reynir
Guðmundsson HSK, Valgeir Magn-
ússon Víkingi 15-10 og 17-15. í
tvíliðaleik karla sigruðu þeir Hrólfur
Jónsson Val og Friðrik Arngrímsson
TBR þá Steinar Petersen TBR og
Gunnar Petersen TBR, 15-12 og
15-13.
Sigrún Erlendsdóttir TBR sigraði
Önnu Steinsen TBR 11-1 og 11-9 í
úrslitaleiknum í einliðaleik kvenna.
í tvíliðaleiknum sigruðu þær Lovísa
Sigurðardóttir og Hanna Lára Köh-
ler TBR þær Önnu Steinsen og
Áslaugu Jónsdóttur TBR, 14-17, 15-
5 og 15-9. í tvenndarleik sigruðu
Gunnar Petersen og Hanna Lára
Köhler TBR, Steinar Petersen TBR
og Lovísu Sigurðardóttur TBR 9-15,
15-7 og 18-15.
í öðlingaflokki sigraði hinn síungi
Eysteinn Björnsson TBR í einiiða-
leik karla. Eysteinn sigraði Kjartan
Guðjónsson BH í úrslitaleiknum 15-
6 og 15-1. Eysteinn sigraði einnig í
tvíliðaleiknum ásamt Þorsteini
Þórðarsyni TBR. Þeir léku til úrslita
gegn Jóni Sigurjónssyni og Óskari
Óskarssyni TBR og unnu þá 15-8 og
15-2.
í æðsta flokki varð Reynir Þor-
steinsson KR fslandsmeistari er
hann sigraði félaga sinn úr KR
Friðleif Stefánsson 1-15, 15-9 og
17-16 í spennandi leik. Friðleifur
sigraði síðan í tvíliðaleiknum ásamt
Reyni Þorsteinssyni KR. Þeir höfðu
betur gegn Braga Jakobssyni KR og
Walter Lentz TBR, 15-6 og 15-4.
BL
Birgir Mikaelsen átti góðan leik gegn Tindastól í gærkvöldi. Tímamynd: Pjetur.
Frjálsar íþróttir:
Þrjú Skarphéðinsmet voru sett á mótinu, Jón Arnar
bætti metið í 50 m hlaupi, hljóp á 5,8 sek. og í 50 m
grindahlaupi hljóp hann á 7,0 sek. Auðun setti Skarphéð-
insmet í stangarstökki er hann sveif yfir 4,30 m.
Skarphéðinsmenn unnu þrefaldan
sigur á Meistaramóti fslands í fimm-
tarþraut innanhúss sem fram fór í
Baldurshaga og á Laugarvatni um
síðustu helgi.
Auðun Guðjónsson varð Islands-
meistari, hlaut 3.425 stig. Annar
varð Jón Arnar Magnússon með
3.375 stig og þriðji varð Ólafur
Guðmundsson með 3.179 stig. Berg-
lind Bjarnadóttir UMSS sigraði í
kvennaflokki með 3.395 stig, Guð-
björg Svansdóttir ÍR varð önnur
Tírniim
□ ER ASKRIFANDI
□ NÝR ÁSKRIFANDI
Dags.:
Samkort
□
Kortnr.:
□□□□□□□□□□□□□□□□
Gildir út:
Nafnnr.:
BEIÐNI UM
MILLIFÆRSLU
ÁSKRIFTARGJALDS
Ég undirrituð/aöur óska þess að áskriftar-
gjald Tímans verði mánaðarlega skuld-
fært á greiðslukort mitt.
UNDIRSKRIFT.
ÁSKRIFANDI:.............................................
HEIMILI................................................
priQTMR qtafíI IR- SfMl' sendist afgreiðslu blaðsins
POSTNR. - STAÐUR.................. SIMI................ LYNGHÁLSI 9, 130 REYKJAVÍK
Skíði:
w
Lítt þekktur v-þýskur skíðamaður, Hansjörgen
Tauscher, sigraði óvænt í bruni karla á heimsmeistara-
mótinu « skiðaíþróttum í Vail í Colorado í Bandaríkj-
unum í fyrrakvöld. Peter Muller frá SvLss og landi hans
Karl Alpiger urðu að láta sér nægja annað og þriðja
sætið.
um. Keppni t alpatvíkeppni karla lauk á föstudag,
Marc Girardelli frá Luxemborg varð hlutskarpastur,
en í kvennaflokki sigraði Tamara McKinney frá
Bandaríkjunum. BL
Körfuknattleikur-NBA:
Lið Cleveland Cavaliers er enn á sigurbraut i
NBA-deildinni í körfuknattleik. Um helgina vann
liðið 110-91 sigur á nýliðum Charlotte Homets. Meðal
annarra úrslita má geta að Seattle vann Boston og
Lakers vann New Jcrsey létt. I fyrrakvöld voru síðan
tveir leikir. Dallas Maverícks vann L.A.C'lippers
129-lllog UtahJazz vann Phoenix Suns 104-87. BL
Körfuknattleikur:
IR vann
ÍR-stúlkur sigruðu Grindavikur-dömumar í síðari
leik iiðanna i 8-liða úrslitum bikarkeppni kvenna í
körfuknattleik, en liðin léku í Seljaskóla í fyrrakvöld.
Lokatölur urðu 62-48 eftir að ÍR hafði haft yfir allau
tímann. Linda Stefánsdóttir skoraði 21 stig fyrir ÍR og
Hrönn Harðardóttir 12, SvanhiidurKáradóttirskoradi
22 stig fyrir UMFG og Guðrún Sigurðardóttir 8. BL
Tennisstjarnan Björn Borg tók
Of stóran pilluskammt
Sænski tennisleikarinn Björn
Borg var í gær fluttur í skyndi á
sjúkrahús í Mflanó á ftalíu, eftir að
hafa tekið of stóran skammt af
svefnpillum. Dælt var upp úr Borg
og hann fékk síðan að fara heim, að
því er virtist alheill heilsu.
Það var snemma í gærmorgunn að
unnusta Björns Borg, ítalska söng-
konan Loredana Berte, lét flytja
hann á sjúkrahús. Samkvæmt um-
mælum lækna og lögreglu þá mun
Borg hafa tekið inn of stóran
skammt af svefnlyfinu Roipnol, sem
einnig er róandi og skylt Valium.
Bæði lögregla og læknar neituðu að
láta hafa nokkuð eftir sér um hvort
Borg hefði verið að reyna að fremja
sjálfsmorð, en það verður að teljast
mjög líklegt undir þessum kringum-
stæðum.
Nýlega neitaði kaþólska kirkjan í
Mílanó Birni Borg, sem er 32 ára og
Berte sem er 38 ára, um kirkjubrúð-
kaup, þar sem þau eru bæði fráskilin.
Þetta mun hafa fengið mjög á þau
skötuhjú, en fyrr má nú vera!
BL
5
:.; V :;'=- ' 4'.'
Þrefaldur sigur HSK
með 3.188 stig og Þuríður Ingvars-
dóttir HSK varð þriðja með 3.000
stig slétt. BL
SKILIÐ SKATTFRAMTALI
ÍTÆKATÍÐ
mmmmam
Skattframtali 1989 vegna tekna 1988 og eigna í árslok á að skila í síðasta
lagi 10. febrúar.
Fylgiblöð með skattframtali liggja frammi hjá
skattstjórum sem jafnframt veita frekari
upplýsingar ef óskað er.
Mikilvægt er að framteljendur varðveiti
launaseðla áfram eftir að skattframtali hefur
verið skilað. Launaseðlar eiga að sanna, ef á ^
þarf að halda að staðgreiðsla hafi verið dregin af launurm
SIÐASTISKILADAGUR SKATTFRAMTALS
ER 10.FEBRÚAR.
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI