Tíminn - 16.02.1989, Síða 12
Fimmtudagur 16. febrúar 1989
12 Tíminn,
FRÉTTAYFIRLIT
Islamabad - Afgansklrl
skæruliðaleiðtogar sem hittust'
í Rawalpindi í Pakistan rifust
um samsetningu ráðgjafa-.
þings til að ræða myndun nýrr-
ar bráðabirgðastjórnar sem
hefði átt að vera búið að setja
á laggirnar áður en síðustu
sovésku hersveitirnar fóru frái
landinu.
NÍCOSÍa - Verðir islömsku|
byltingarinnar í iran sögðu i'
gær að að þeir væru nú tilbúnir
til að drepa breska rithöfundinn i
Salman Rushdie, en andleguri
leiðtogi byltingarvarðanna, |
Ayatollah Khomeni, hefur;
dæmt hann til dauða, eða lýst
hann réttdræpan vegna skáld-
sögunnar sem hann skrifaði
og heitir „Satanic Verses“, en
múslimar telja margir hverjir
að skáldsagan sé guðlast. Að
sögn breskra sendiráðs-
starfsmanna í íran mótmæltu
um 3000 manns bókinni fyrir
utan sendiráðið í gær.
San Salvador - Leiðtogar
Mið-Ameríkuríkja opnuðu í
gær fyrir hugsanlega leið til að
ná friði í Nikaragva, þegar þeir
lýstu yfiráformun sínum um að
leggja niður uppreisnarherinn
sem studdur er af Bandaríkjun-
um og leggja grundvöll að
víðtækum lýðræöislegum um-
bótum í landinu.
HÖfðaborg - Lögregla hef-
ur nú borið kennsl á illa farið lík
sem fannst í Soweto fyrir
skömmu. Segir lögregla að
þetta sé lík barns sem lífverðir
Winnie Mandela eiga að hafa
veist að í síðasta mánuði.
Jóhannesarborg - Sjö
suður-afrískir fangar sem tekið
hafa þátt í útbreiddu hungur-
verkfalli til að mótmæla því að
þeim er haldið í fangelsi án
dóms, tóku til matarsíns í gær.
Á sama tíma hafa um 300 aðrir
fangar lýst því yfir að þeir muni
haída áfram í hungurverkfalli
þrátt fyrir að stjórnvöld hafi
látið um 17 fanga lausa.
Beirut - Hermenn Líbanon-
hers og harðlínu uppreisnar-
menn börðust í gær i einhverj-
um harðasta bardaga sem
háður hefur verið í Líbanon sl.
tvö ár í kristna hluta borgarinn-
ar. Að minnsta kosti 28 manns
féllu og 60 særðust.
Colombo - Þrátt fyrir hótan-
ir uppreisnarmanna um að
drepa þá sem taka þátt í kosn-
ingum í Sri Lankafóru þúsund-
ir á kjörstað til að neyta kosn-
ingaréttarsíns í fyrstu kosning-
unum í landinu í 12 ár. 15
manns voru drepnir í ofbeld-
isverkum sem tengdust kjör-
stöðum.
Marrakesh - Leiðtogafundi
leiðtoga f rá f imm löndum Norð-
ur-Afríku var frestað um sól-
arhring vegna þriggja daga
óvissu um það hvao leiðtogi
Líbýu, Mummar Gaddafi hygð-
ist fyrir varðandi fundinn.
Tremez - Það var með yfir-j
lýsingum um að hersetan hafi;
verið til einhvers og trega-j
blandirini kveðju til þeirra sem j
fallið hafa, að sovéski herinni
yfirgaf endanlega Afganistan*
eftir níu ára veru þar. Kveðju-
stundin rann upp þegar stjórn-
andi sovéska heraflans í Af-
ganistan, Boris Gromov hers- t
höfðingi fór yfir brúna yfir ána
Amudarya, á eftir sveit 501
skriðdreka og 400 hermanna. I
lllllllliniill UTLÓND ........................ ........... ........... ............. .................... ......... ......... -......... ......- ^ :iiíl.................. ........ ...... .........................
Enn er óljóst hvernig Afganar leysa vandamál sín við stjórnarmyndun eftir brottför Sovétmanna:
Konungur vill hlut
í mvndun ríkisvalds
Fyrrum konungur Afganistan, Zahir Shah sagði, að nú
þegar sovéskur herafli væri endanlega farinn frá Afganistan,
væri þörf á þjóðar átaki til þess að hefja uppbyggingarstarf í
stríðshrjáðu landi sínu.
Þessi fyrrum einvaldur, sem búið
hefur í Róm frá þvf að honum var
steypt af stóli í byltingunni 1973,
sagði að hetjuleg barátta afgönsku
þjóðarinnar gegn einhverri mestu
hernaðarvél heimsins væri komin á
nýtt stig. Talsmaður konungsins,
Abdul Wali hershöfðingi, sagði í
samtali við Reutersfréttastofuna að
konungurinn myndi ávarpa þjóð
sína í útvarpi á næstunni, í gegnum
útvarpskerfi BBC og „Raddar Am-
eríku“. j
„f dag stöndum við frammi fyrir:
nýju verkefni, og það er að tryggja
frið í landinu, öryggi borgara og^
einingu þjóðarinnar.“ Þessar setn-
ingar eru meðal þess sem konungur-
inn fyrrverandi hyggst segja í út-
varpsávarpi sínu. Ennfremur mun
konungurinn leggja áherslu á það
markmið að komið verði á fót stjórn-
valdi sem nýtur viðurkenningar
meðal meirihluta þjóðarinnar. Það
mun jafnframt vera skoðun hans að
sem flestir skoðanahópar Afgana
geti tekið þátt í því að mynda slíkt
stjórnvald til þess að yfirvinna fyrir-
sjáanlega árekstra hinna ýmsu hópa
vopnaðra skæruliða.
Áður hefur verið látið að því
liggja að Zahir Shah gæti orðið
þjóðhöfðingi og gegndi táknrænu
sameiningarhlutverki utan og ofan
við deilur hinna ýmsu stríðandi afla.
Hins vegar hafa fjölmargir skæru-
liðaforingjar afskrifað þennan
möguleika á síðustu dögum og þver-
tekið fyrir að hann hafi nokkru
hlutverki að gegna í viðræðum um
bráðabirgðastjórn í landinu.
Enn koma afleiðingar slyssins
við Tsérnóbýl í Ijós:
Mikið um
vanskðpuð
dýr
Vanskapaðar skepnur á býli í
Úkraínu í yfir 50 km fjarlægð frá
Tsérnóbýl orkuverinu hefur vakið
upp ótta um að umhverfið hafi
hlotið varanlegan skaða af kjarn-
orkuslysinu 1986 segir í Moscow
News í gær.
Á Petrovsky samyrkjubúinu í
Narodichinsky héraði, í grennd við
bæinn Zhitomir, hefur fjöldi van-
skapaðra svína og kúa, sem borin
hafa verið í heiminn eftir Tsérnóbýl-
slysið fyrir tæpum þrem árum aukist
upp úr öllu valdi.
Stundum eru bornir kálfar sem
höfuðið vantar á og höfuðkúpa svín-
anna er öðru vísi en hún á að vera,
eða þau vantar augun. Greinarhöf-
undur í Moscow News segir: „Mér
var sýnt svín sem var með froskshöf-
uð. 1 staðinn fyrir augun voru ein-
hverjar stórar vefjarflyksur."
Á síðustu 5 árum fyrir slysið var
ekki gotið nema þremur vansköpuð-
um svínum á búinu. En á fyrsta
árinu eftir slysið voru skráð 64 tilfelli
þar sem vanskapningar komu í heim-
inn, 37 grísir og 27 kálfar. Á fyrstu
9 mánuðum ársins 1988 voru það 41
grís og 35 kálfar.
Nú eru á búinu 350 kýr og 87 svín.
Sérfræðingar frá stofnun í Kíev
sem sérhæfir sig í rannsóknum á
geislun í landbúnaði könnuðu van-
skapningana en lýstu engum sérleg-
um áhuga, að sögn dýralæknis. Þeir
sögðu að slíkt gæti átt sér mörg
hundruð orsaka sem kunna að eiga
ekkert skylt með geislun. „En ég
sem dýralæknir veit að málið er ekki
þannig. Fóðrið fyrir nautpeninginn
er ræktað á menguðum engjum. Við
getum ekki selt nautin í kjötvinnslu,
geislunarmagnið er ekki innan settra
marka.“
Greinin í Moscow News er aðeins
sú nýjasta af mörgum fregnum í
sovéskum fjölmiðlum nýlega þar
sem dregin er athygli að langvarandi
áhrifum eldsvoðans í Tsérnóbýl og
dreifingu skýs með geislavirkum efn-
um yfir Evrópu.
Innan 30 km hrings umhverfis
skaddaða kjarnorkuverið voru allar
lifandi verur fluttar burt en Petrov-
sky-búið er ekki innan þeirra marka.
Dagblað kommúnistaflokksins
Pravda sagði frá því síðustu viku að
í Hvíta-Rússlandi, norðan við Úkra-
ínu, hefði orðið meiri skaði af slysinu
en fyrst hefði verið haldið, þar sem
allt að því fimmtungur landsins hefði
mengast þegar úrkoma bar geislun-
ina til jarðar.
Þao mörgum á óvart að Martin Scorsese fékk útnefningu sem besti leikstjórinn fyrir hina umdeildu mynd sína Síðasta
freisting Krists
Tilnefningar til
Óskarsverðlauna
Tilnefningar til Óskarsverðlauna voru tilkynntar í Los
Angeles í gær. Flestar tilnefningar fékk kvikmyndin „Rain
Man“ eða 8, þ.ám. fyrir bestu kvikmyndina og besta
karlleikara í aðalhlutverki, Dustin Hoffman. Dustin Hoffman
fékk Óskarsverðlaunin 1979 fyrir aðalhlutverkið í „Kramer
vs. Kramer.
Næstflestar tilnefningar eða sjö
fengu tvær myndir, „Dangerous Li-
aisons“ og „Mississippi Burning"
sem báðar voru tilnefndar sem besta
kvikmyndin. Gene Hackman, sem
vann Óskarsverðlaunin 1971 fyrir
hlutverk sitt í „French Connection"
var tilnefndur til verðlaunanna sem
besti leikarinn fyrir hlutverk sitt í
„Mississippi Burning". Hins vegar
hlaut John Malkovich, aðalleikarinn
í „Dangerous Liaisons" ekki tilnefn-
ingu.
Ásamt Dustin Hoffman og Gene
Hackman var Tom Hanks tilnefndur
í hlutverki aðalleikara í gaman-,
myndinni „Big“. Sænski leikarinn
Max von Sydow hlaut sína tilnefn-
ingu í dönsku myndinni „Pelle Er-
obreren". Þá hlaut Edward James
Olmos tilnefningu fyrir leik sinn í
„Stand and Deliver".
Það kom mörgum á óvart að
Martin Scorsese var tilnefndur til
leikstjóraverðlaunanna fyrir mynd-
ina umdeildu Síðasta freisting
Krists.
Sigourney Weaver fékk tvær til-
nefningar sem besta leikkonan, ann-
ars vegar fyrir hlutverk sitt í í
þokumistrinu. sem nú er verið að
sýna í Bíóborginni og hins vegar
fyrir bestan leik í aukahlutverki í
„Working Girl“.
Melanie Griffith hlaut sína út-
nefningu fyrir bestan leik í aðalhlut-
verki fyrir „Working Girl“.
En j?að verða fleiri leikkonur sem
keppa að Óskarnum fyrir bestan leik
í aðalhlutverki. Glenn Close var
tilnefnd vegna „Dangerous Liai-
sons“, Jodie Foster fyrir hlutverk
sitt í „The Accused" og Meryl Streep
fyrir leik sinn í „Cry in the Dark“.
Meryl Streep hefur þegar hreppt
óskarinn fyrir bestan leik í aðalhlut-
verki í Val Sophie 1982 og fyrir
bestan leik í aukahlutverki í Kramer
vs. Kramer 1979. Hún hefur nú
verið tilnefnd 8 sinnum til þessara
glæsilegu verðlauna.
Óskarsverðlaunin verða afhent
með glæsibrag að venju í beinni
útsendingu- frá Los Ángeles 29.
mars. Það eru 4.600 meðlimir kvik-
myndaiðnaðarins sem hlut eiga að
akademíunni sem greiðir atkvæði
um hverjum heiðurinn fellur í skaut
hverju sinni.