Tíminn - 16.02.1989, Blaðsíða 20

Tíminn - 16.02.1989, Blaðsíða 20
AUOLVSINCASÍMAR: 680001 —686300 RÍKISSKIP NÚTÍMA FLUTNINGAR Hatnorhúsinu v/Tryggvagötu. S 28822 ^gérmé'«£***''*’' MtHBBBÉffltftBSKIPn SAMVINNUBANKflNS SUÐURtANDSBRAUT 18, SfMI: 688568 ÖNNUMST SMÍÐI OG '/IÐHALD LOFTRÆSTI- KERFA OG ALLA ALMENNA BLIKKSMÍÐI ( BDBEABBDHK SF Vagnhöfða 9, 112 Reykjavík S 68 50 99 NÝJA SENDIBÍLASTÖÐIN 68-5000 GÓÐIR BÍLAR ÁGÆTIR BÍLSTJÓRAR FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚÁR 1989 Byggðasafnið á Skógum eignast merkilega heimild um Heklugosið 1947: Eignast eina af fyrstu hljóðupptökum á íslandi „Þarna eru vitanlega mjög merkilegar heimildir - Heklugosiö 1947 var svo sögulegur atburöur í héraðinu. Spólurnar geyma frásagnir margra Rangæinga sem eru horfnir af heimi, hverra rödd er hvergi til nema á þessum spólum. Þarna kemur fram viðhorf fólksins þegar þessi ógn mætti því. Það er því fengur fyrir framtíðina að varðveita þetta“, sagði Þórður Tómasson, safnvörður að Skógum. Byggðasafninu á Skógum bauðst fyrir nokkru að kaupa stálþráðarupptökur frá Heklu- gosinu 1947 - samtals um 5 tíma efni - af Magnúsi Jóhannssyni útvarpsvirkjameistara. Magnús hafði fært allt efnið af stálþræði yfir á kassettur og afhenti safninu hvort tveggja. Engar aðrar upp- tökur munu nú til á lýsingum manna á Heklugosinu 1947, utan u.þ.b. hálf mínúta sem Hendrik Ottósson lýsti um talstöð. Fyrsta stálþráðar- tækið 1947 Tíminn spurði Magnús Jó- hannsson um ástæður þess að hann átti og geymdi þessar heim- ildir í meira en fjörutíu ár. - Það kemur til af því að við (Sveinbjörn Egilsson) vorum þá tiltölulega nýkomnir með stál- þráðartæki - það fyrsta sem kom til landsins. Eitt það fyrsta sem við tókum upp var afmæli Menntaskólans í Reykjavík. Vakti áhuga Helga Hjörvars I’etta þótti merkilegt verkfæri, sem m.a. vakti áhuga Helga Hjörvars og Lúðvíks Guðmunds- sonar, skólastjóra, sem fannst að þarna væri komið nýtt og merki- legt tæki, enda var það svo. Á þessum tíma hafði Útvarpið að- eins eitt lélegt plötuskurðartæki og annað ekki. I’eir Helgi og Lúðvík komu svo með okkur í þennan leiðangur austur þegar Hekla gaus. Þeir tóku þar viðtöl við fjölda manna sem höfðu mannaforráð og aðra sem urðu hvað mest fyrir barðinu á öskunni sem lagðist yfir í Fljóts- hlíðinni. Sumir þeirra voru ansi langt niðri, töldu að þarna værir allt að leggjast í auðn. Auk þess tókum við upp messugjörð, eins- konar „eldmessu" í Breiðaból- staðarkirkju hjá séra Sveinbirni Högnasyni. Útvarpið hafði lítinn áhuga Var þessum viðtölum þá ekki útvarpað? Nei, Magnús sagði svo ekki vera, utan hvað þessari „eld- tnessu" hafi síðar verið útvarpað á vegum Slysavarnafélagsins. Af hverju ekki? „Það var dálítið skrítin aftur- haldssemi ráðandi í Útvarpinu á þessum tíma. Þegar ég fór fyrst t.d. með þessa upptöku í Útvarp- ið var hægðarleikur að tengja þetta beint við magnarana. En Gunnlaugur Briem var andstæð- ur þessu, þannig að ég varð að hafa tækið niðri í útvarpssal og stilla svo mígrafóninum fyrir framan það. Svona var nú skrítin pólitíkin á þessum tíma“. En alþingismenn vildu varðveita ræður sínar Þessar upptökur sagði Magnús í raun upphafið að hljóðritun hér á landi. Eftir þetta hafi menn fljótlega farið að huga að upptök- um á ræðum á Alþingi „Stálvírinn lagðist niður árið 1948 eða 1949, þá fór þetta að flytjast yfir á bandið. Ég fylgdist með þróuninni og var m.a. árið 1949 fenginn til að fara á vegum Alþingis til Bandaríkjanna í því skyni. f apríl 1949 sá ég um fyrstu upptökuna niðri í Alþingi, til þess að forsetar og aðrir gætu gengið úr skugga um hvernig jsetta kæmi út. Gleymdist í fjóra áratugi Það tæki fór svo í geymslu upp á lofti í Alþingi. Það kom síðán aftur í leitirnar fyrir 1-2 árum og þá með spólunni í og öllum upptökum í lagi. Éftir þessa tilraun gerðum við skilagrein og lögðum fram tilboð. Það var samt ekki fyrr en vorið 1952, sem okkur var falið að koma upp upptökukerfi fyrir haustþingið - og það gekk allt saman. Raunar var það ekki seinna vænna, því að þingskriftir voru þá afskaplega tæpar. Það voru aðallega hinir og þessir námsmenn sem tóku þetta að sér, með misjöfnum árangri. Sumum ræðunum komu þeir alls ekki til skila. Það lá því við vandræðum í þessu efni. Ekki síst var það Jón frá Kaldaðarnesi sem var afskap- lega áhugasamur í þessu efni“. í réttar hendur Þótt Magnús hafi víðar komið við telur hann upptökurnar frá Hcklugosinu vera hvað merkileg- asta efnið. Það hafi verið mikil vinna að koma því skipulega yfir af stálþræðinum í nútímaform, á spólur. „En mér finnst mann- dómshlutur að koma þessu í rétt- ar hendur, og sjálfsagður hlutur að þetta yrði varðveitt í Byggða- safninu á Skógum, bæði spólurn- ar og gömlu stálþráðarspólurnar. Það hcf ég líka í flestum tilfellum reynt að gera með annað efni. Finnst það eiga heima þar sem fólk hefur hagsmuna að gæta og það getur orðið til að verja gaml- an sóma sem ella hefði kannski glatast". Þetta á m.a. við um áðurnefnt afmæli Menntaskólans, sem hann hefur afhent rektor skólans. Og það sama á við um enn eldra kvikmyndasafn Lofts Guð- mundssonar, sem hann bjargaði frá glötun á sínum tíma. M.a. myndir frá konungskomunni 1921. Magnús Jóhannsson við tækið sem hann notar til að flytja upptökur af stálþræði yflr á spólur. Upptökur af enn einum merk- isatburði - afhendingu Reykja- víkurflugvallar - sagði Magnús Tímamynd: Árni Bjarna hins vegar liggja hjá sér ennþá. - HEI í dag tekur Sjóvá- Almennar til starfa Sjóvá-Almennar tryggingar hf. um Sjóvátryggingafélags íslands fékk í gær leyfi heilbrigðis- og hf. og Almennra trygginga hf. tryggingamálaráðherra til vátrygg- öll almenn afgreiðsla auk tjóna- ingastarfsemi. deildar, innheimtudeildar og í dag hefst því starfsemi Sjóvá- markaðsdeildar atvinnurekstrar Almennra en það mun taka við verða í Síðumúla og við Suður- öllum viðskiptum og skuldbinding- landsbraut. jkb llla leikinn í vélsleðaslysi Hvergerðingur slasaðist alvarlega er hann féll af vélsleða skammt vestan við Hveragerði í gærkvöldi. Ekki var talið óhætt að flytja hann með sjúkrabíl til Reykjavíkur og var þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð á staðinn, og flutti hún manninn á Borgarspítalann. Maðurinn slasaðist á baki og höfði og grunur lék á að um innvortis blæðingu væri að ræða. Hann var ásamt syni sínum að reynsluaka sleðanum eftir viðgerð. Nokkrar gangtruflanir höfðu verið í sleðanum og samkv. upplýsingum lögreglu mun bensíngjöfin að öllum líkindum hafa frosið föst. Maðurinn missti stjórn á sleðanum þar sem hann þeyttist áfram á fleygiferð þar til hann skall á grjóthæð. Fjórtán stiga frost var á þessum slóðum í gærkvöldi. - es

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.