Tíminn - 02.03.1989, Síða 16
16 Tíminn
Fimmtudagur 2. mars 1989
DAGBÓK
Félagsvist Kvenfélags
Óháða safnaðarins
Kvenfélag Óháöa safnaðarins heldur
félagsvist í safnaöarheimilinu Kirkjubæ
fimmtudaginn 2. mars kl. 20:30. Góö
spilaverðlaun og kaffiveitingar.
Kvenfélag Kópavogs
á Víkingasýningu
Kvenfélag Kópavogs efnir til hópferðar
á Víkingasýninguna í Norræna húsinu
laugardaginn 11. mars kl. 14:00, cf næg
þátttaka fæst. Upplýsingar í síma 40388
og 41949.
Auglýsing
frá Menntamálaráði íslands
um styrkveitingar árið 1989
Samkvæmt fjárveitingu á fjáriögum 1989 verða á
árinu veittir eftirfarandi styrkir úr Menningarsjóði
íslands:
Útgáfa tónverka
Til útgáfu íslenskra tónverka verða veittir einn eða
fleiri styrkir en heildarupphæð er kr. 160.000.-.
Umsóknum skulu fylgja upplýsingar um tónverk
þau sem áformað er að gefa út.
Dvalarstyrkir listamanna
Veittir verða 8 styrkir að upphæð kr. 110.000-
hver. Styrkir þessir eru ætlaðir listamönnum sem
hyggjast dveljast erlendis um a.m.k. tveggja
mánaða skeið og vinna þar að listgrein sinni.
Umsóknum skulu fylgja sem nákvæmastar upplýs-
ingar um fyrirhugaða dvöl. Þeir sem ekki hafa
fengið sams konar styrk frá Menningarmálaráði
síðastliðin 5 ár, ganga að öðru jöfnu fyrir við
úthlutun.
Umsóknir um framangreinda styrki skulu hafa
borist Menntamálaráði íslands, Skálholtsstíg 7,
101 Reykjavík, fyrir 5. apríl 1989. Nauðsynlegt er
að kennitala umsækjanda fylgi umsókninni.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu
Menningarsjóðs á Skálholtsstíg 7, Reykjavík.
i uumvou i Mnr
Fjölmiðlanámskeið SUF
Fyrsta fjölmiðlanámskeið SUF og kjördæmissambandanna hefst
laugardaginn 11. mars kl. 10 í Nóatúni 21, Reykjavík.
Framkvæmdastjórn SUF
SUF í Viðey
Miðstjórnarfundur Sambands ungra framsóknarmanna verður hald-
inn laugardaginn 18. mars í Viðeyjarstofu.
Dagskrá og sérmál fundarins auglýst síðar.
Framkvæmdastjórn SUF
Reykjanes
Skrifstofa Kjördæmissambandsins að Hamraborg 5, Kópavogi er
opin á mánudögum og miðvikudögum kl. 17 til 19. Sími 43222.
K.F.R.
Fjölnotaglösin
fyrir 1. mars, eigum til lítið eitt af glösum með flokksmerkinu. Pantanir
í síma 24480.
LFK.
Landssamband framsóknarkvenna
Nóatúni 21, - s. 24490.
Félag eldri borgara
Opið hús í Goðheimum, Sigtúni 3, í
dag, fimmtudaginn 1. mars. Kl. 14:00 er
frjáls spilamennska. Kl. 19:30 félagsvist
og kl. 21:00 dansað.
Athugið: Gúugleðin verður haldin
laugardaginn 11. mars í Tónabæ. Miða-
sala verður á skrifstofu eldri borgara í
síma 28812.
Aðalfundur Ferðafélags Íslands
Aðalfundur Ferðafélags íslands verður
haldinn í kvöld, fimmtudaginn 2. mars í
Sóknarsalnum, Skipholti 50A. Fundurinn
hefst stundvíslega kl. 20:30. Venjuleg
aðalfundarstörf. Félagarsýni skírteini frá
árinu 1988 við innganginn.
Stjórn Ferðafélags íslands
Árshátíð
Átthagasamtaka Héraðsmanna
Átthagasamtök Héraðsmanna halda
árshátíð (góublót) í Domus Medica laug-
ardaginn 4. mars. Aðgöngumiðar verða
seldir í anddyri Domus Medica fimmtu-
dag og föstudag 2. og 3. mars kl. 17:00-
19:00.
Fundur um sjórétt
og endurskoðun lagaákvæða
um farmsamninga
Hið íslenska sjóréttarfélag efnir til
fræðafundar laugardaginn 4. mars kl.
14:00 í slofu 103 í Lögbergi.
Fundarefni: Dr. Kurt Grönfors, próf-
essor við háskólann í Gautaborg, Óytur
erindi cr hann nefnir: „The Scandinavian
Law Reform Concerning Carriage of
Goods by Sea“.
Að erindi loknu verða kaffiveitingar og
síðan verða fyrirspurnir og umræður.
Fundurinn er öllum opinn og eru
félagsmenn og aðrir áhugamenn um
sjórétt, siglingastarfsemi og sjóflutninga
hvattir til að mæta.
Lögfræðiaðstoð Orators
Orator, félag laganema veitir ókeypis
lögfræðiaðstoð á fimmtudögum frá kl.
19.30-22.00, í síma 1 10 12.
Tónleikar í FÍM salnum
Gunnar Björnsson heldur einleikstón-
leika í FÍM salnum, Garðastræti 6, kl.
16:30 á laugardag 4. mars. Hann kynnir
þarna einleiksplötu sína þar sem hann
flytur svítur eftir J.S. Bach. Aðgangurer
ókeypis.
í FÍM salnum stendur yfir sýning
Sigurðar Örlygssonar.
Sinfúníuhljómsveit íslands:
„Sveitasinfónía“ Beethovens -
og tvö nútímaverk
Tíundu reglulegu áskriftartónleikar
Sinfóníuhljómsveitar íslands verða í
Háskólabíói fimmtud. 2. mars kl. 20:30.
Á efnisskrá verða þrjú verk: 6. sinfónía
Beethovens, „Sveitasinfónían", Canzona
eftir Arne Nordheim og La Valse eftir
Maurice Ravel.
Hljómsveitarstjóri verður ítalinn Aldo
Ceccato.
BILALEIGA
meö utibu allt i kringum
landiö, gera þér mögulegt
aö leigja bíl á einum stað
og skila honum á öörum.
Reykjavík
91-31615/31815
Akureyri
96-21715/23515
Pöntum bíla erlendis
interRent
Bílaleiga Akureyrar
Síðasti dagur Ijósmynda-
sýningar á M0KKA
Sigurþúr Hallbjörnsson hefur að
undanförnu haldið sýningu á Ijósmyndum
sínum á Mokka við Skólavörðustíg. Þar
hefur hann sýnt myndir sem hann tók sl.
sumar á ferðalagi um Evrópu ásamt 13
ára dóttur sinni.
Sýningunni lýkur í dag.
Gunnar Eyjólfsson í hlufverki Alexanders sýslumanns og fleiri leikarar í einu atriði
Sveitasinfóníu.
L.R. hefur sýnt
SVEITASINFÓNÍU eftir Ragnar
Arnalds um 70 sinnum
Leikrit Ragnars Arnalds, Sveitasin-
fónía, var frumsýnd í septcmber 1988.
Leikritið hefur verið sýnt í IÐNÓ við
miklar vinsældir. Sýningar eru orðnar um
70 og verða á fjölunum í Iðnó á næstunni
þrjá daga í viku hverri, en síðan fer
sýningum fækkandi. Sýningar hefjast kl.
20:30.
Leikstjóri er Þórhallur Sigurðsson,
leikmynd og búninga gerði Sigurjón Jó-
hannsson, tónlistin er eftir Atla Heimi
Sveinsson og lýsingu hannar Lárus
Björnsson.
Leikendur eru: Gunnar Eyjólfsson,
Örn Árnason, Valgerður Dan, Sigríður
Hagalín, Valdimar Orn Flygenring, Mar-
grét Ákadóttir, Edda Heiðrún Backman,
Þorsteinn Gunnarsson, Sigurður
Karlsson, Jón Hjartarson, Steindór Hjör-
leifsson, Jakob Þór Einarsson o.fl.
Fjölbraufaskóli Vesturlands á Akranesi
Sýning í Fjölbrautaskóla
Vesturlands á Akranesi
Föstud. 24. febr. var opnuð sýning á
grafíkmyndum íslenskra listamanna í
Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi.
Alls eru á sýningunni 56 myndir eftir 11
listamenn. Myndirnar eru keyptar á sl. ári
fyrir fjárveitingu sem skólinn fékk úr
Listskreytingasjóði ríkisins til að skreyta
heimavist skólans. Verður myndunum
komið fyrir á heimavistinni að sýningu
lokinni.
Þeir listamenn sem eiga myndir á
sýningunni eru: Baltasar Samper, Hall-
dóra Gísladóttir, Ingiberg Magnússon,
Ingunn Eydal, Jóhanna Bogadóttir, Jón
Reykdal, Ragnheiður Jónsdóttur, Rík-
harður Valtingojer, Sigrid Valtingojer,
Vignir Jóhannsson og Þórður Hall.
Sýningin var opin föstud. 24. febr.,
laugard. 25. febr. og sunnud. 26. febr. og
hún verður opin nú á föstudaginn 3. mars
kl. 16:00-20:30.
Sigurður Örlygsson á vinnustofu sinni.
Sýning Sigurðar
Órlygssonar í FÍM
Um þessar mundir heldur Sigurður
Örlygsson myndlistarsýningu í FÍM
salnum, Garðastræti 6. Sýningin verður
opin alla virka daga kl. 13:00-18:00 og
um helgar kl. 14:00-18:00. Sýningunni
lýkur 14. mars.
Sýning FÍM að Kjarvalsstöðum
Félagssýning FÍM, Félags íslenskra
mvndlistarmanna, að Kjarvalsstöðum
lýkur sunnudaginn 5. mars. Opið er kl.
11:00-18:00.
Nýlistasafnið:
Sýning Kristjáns Steingríms
Kristján Steingrímur opnaði sýningu á
málverkum sínum laugardaginn 25. febr-
úar. Sýningin er í Nýlistasafninu Vatns-
stíg 3B í Reykjavík. Opið er virka daga
kl. 16:00-20:00 og um helgar kl. 14:00-
20:00. Sýningin stendur til 12. mars.
Listasafn Einars Jónssonar:
Opnað á ný
Listasafn Einars Jónssonar er opið alla
laugardagaogsunnudagakl. 13:30-16:00.
Höggmyndagarðurinn er opinn daglega
frákl. 11:00-17:00.