Tíminn - 02.03.1989, Side 20

Tíminn - 02.03.1989, Side 20
AUGLÝSINGASÍMAR: 680001 — 686300 _0énnéle^^rra9! RÍKISSKIP VERÐBRÉBUflÐSKIPn NÚTÍMA FLUTNINGAR Hatnarhúsinu v/Tryggvagötu, SAMVINNUBANKANS ® 28822 SUÐURLANDSBHAUT 18, SlMI: 688568 „LÍFSBJÖRG í oíb|L aS7. O/ ^ NORÐURHÖFllM“ Útvegsbankinn Seltj. Gíró-1990 ÞRðSTUR 685060 Gegn náttúruvernd á villigötum VANIR IVIENN FIMMTUDAGUR 2. MARS 1989 Léleg loðnuveiði hefur verið undanfarna daga og vilja sumir sjómenn meina að vertíöinni sé nú Iokið, eða a.m.k. takist ekki að veiða þann kvóta sem heimilaður var. Þá virðist það samdóma álit þeirra sem að loðnufryst- ingu standa að ekki verði meira fryst á þessari vertíð. Búið er að frysta um 3500 tonn hjá SH og SÍS, en vonir stóðu til að hægt væri að frysta um 2000 tonnum meira, enda höfðu samningar miðast við það. Reikna má með að fyrir tonnið af frystri loðnu fáist um 900 dollarar eða um 45 þúsund krónur. Þetta þýðir að hægt hefði verið að selja fyrir rúmar 90 milljónir til viðbótar. Það sem af er vertíðar er búið að veiða um 677.560 tonn og eru því um 245 þús. tonn ennþá óveidd að sögn Ástráðs Ingvars- sonar hjá Loðnunefnd. Bátarnir hafa verið að leita á miðunum fyrir sunnan land en lítið fundið. Á föstudag veiddust um 16 þúsund tonn, á laugardag um 7000 tonn og á sunnudag 9700 tonn. Aðspurður hvort loðnan væri horfin, sagði Ástráður að svo væri af og frá. „Það er að koma önnur ganga, bara þá og þegar. Það þýðir ekkert að leggj- ast í volæðí. Menn eru að kvarta yfir því að hún sé búin, en þetta er ekkert búið, það er mikið eftir ennþá,“ sagði Ástráður. Loðnufrystingin hefur ekki gengið eins og best var á kosið og er veðrinu að nokkrum hluta kennt um. „Staðan er þannig í dag að frysting er búin og við sjáum ekki í augnablikinu að um frekari frystingu á loðnu verði að ræða,“ sagði Indriði ívarsson hjá Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna. Hann sagði að ekki væri búið að gera vertíðina upp, en þeir væru að vonast eftir að hafa náð að frysta um 3000 tonn. Þetta er ntun minna en áætlað var og var það aðallega veðrið sem hamlaði því að tækist að ná loðnunni sem skyldi, að sögn Indriða. „Við hefðum þurft á meiru að halda til að uppfylla samningana. Við hefðum sjálfsagt þurft um 1000 til 1500 tonn til viðbótar, en allir okkar samningar eru með þeim fyrirvara að loðnan veiðist," sagði Indriði. Verðið sem menn gera sér vonir um að fá fyrir tonnið af frystri loðnu er ekki fjærri því að vera um 900 dollarar, eða um 45 þúsund krónur. Það þýðir þau 1500 tonn sem SH gæti selt til viðbótar hefðu gefið um 68 millj- ónir króna. Indriði sagði að búast mætti við að hrognataka gæti hafist næstu daga og ekki fyrirséð nein vandamál að ná þeim hrognum sembúiðeraðsemjaum. „Japan- arnir eru ósköp rólegir yfir því og bíða eftir að hrognin verði á því þroskastigi sem þeir óska eftir," sagði Indriði. Hjá frystihúsum Sambandsins er loðnufrystingu að mestu lokið, að sögn Teits Gylfasonar og ekki mikil von um að meira berist til frystingar. Búið er að frysta um 420 tonn, en hugmyndin var að selja þeim mun meira eða um 850 tonn. „Bæði var það að loðnan var smá og frekar léleg og svo lentum við í slæmu veðri þegar vertíðin var að fara af stað og líklega þegar best hefði verið að veiða hana. Við misstum úr um viku í upphafi og þegar loðnan fór að veiðast aftur var hrogna- fyllingin orðin mjög mikil og viðkvæm. Hún þoldi illa flutninga og vinnslu og seinni göngur voru mjög litlar, þannig að við náðum engan veginn að fylla upp í þá samninga sem gerðir voru,“ sagði Teitur. Hann sagði að enginn gerði sér vonir um stóra hluti í frystingunni úr þessu og menn væru farnir að undirbúa hrogna- töku. Jón Reynir Magnússon fram- kvæmdastjóri Síldarverksmiðja ríkisins sagði í samtali við Tím- ann að bræðslan gengi ágætlega þar sem enn væri verið að bræða. „Það gengur eitthvað hægar með að finna loðnuna, það er áhyggju- efni okkar í bili. Hún hefur bara ekkert fundist í góða veðrinu," sagði Jón Reynir. Hann sagði að enn ætti eftir að veiða um 250 þúsund tonn „og þau verða varla veidd héðan af“. Jón Reynir sagði að Síldarverksmiðjurnar væru komnar með þá loðnu sem þær hefðu þurft til að fylla upp í gerða samninga. Loðnubræðsla hjá Síldarverk- smiðjunum er enn í fulium gangi fyrir austan, á Seyðisfirði og Reyðarfirði, en einnig barst ný- lega lítilræði til bræðslu á Siglu- fjörð og Raufarhöfn. Hjálmar Vilhjálmsson fiski- fræðingur hjá Hafrannsókna- stofnun sagði í samtali við Tím- ann að hann gæti ekki fullyrt um það hvort loðnan væri búin á þessari vertíð. „Miðað við þá reynslu sem við höfum af loðn- unni síðan farið var að veiða hana að einhverju marki þá er ýmislegt sem mælir gegn því að vertíðin sé búin núna. Það hefur oft fengist ágætur afli í marsmán- uði, alla vega fyrrihluta mánaðar- ins,“ sagði Hjálmar. Hann sagði að miðað við það sem sást í síðasta leiðangri í lok janúar, þá væri ótrúlegt annað en að von væri á einhverju meiru. Hann sagði það ekki útilokað að ef loðna kæmi upp að ströndinni á næstunni þá væri hún hæf til frystingar. - ABÓ Páll Pétursson gagnrýnir Jón Sigurðsson viðskipta- ráðherra á þingi Norðurlandaráðs í Stokkhólmi: Gengur of langt til móts við EB Frá Þór Jónssyni, fréttarítara Tímans á þingi Norðurlandaráðs: Almennur ágreiningur hefur komið upp á Norðurlanda- ráðsþingi um afstöðu til Efnahagsbandalagsins. Danskir þingfulltrúar reyna af megni að smala fleiri þjóðum með sér inn í bandalagið, en koma að lokuðum dyrunum hjá íslendingunum. „Islenska sendinefndin er sammála um að við eigum ekki erindi í Efnahagsbandalagið,“ sagði Páll Pétursson þingfulltrúi á þingi Norðurlandaráðs í Stokk- hólmi, „það kemur ekki til greina að við göngum í Efnahagsbandalagið “. „Allir íslensku fulltrúarnir hafa komið inn á þann málaflokk í ræðum sínum. Við höfum ekki möguleika á að bjóða þau fisk- veiðiréttindi sem bandalagslöndin vilja. Það er enginn ágreiningur okkar á milli um það. Það er aftur á móti áherslumun- ur um hvað megi ganga langt í því að aðlagast þeim aðstæðum sem ríkja innan bandalagsins. Mér hefur virst Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra vilja ganga lengra en aðrir íslendingar sem minntust á málið í því að laga sig að Efnahagsbandalaginu með því að gefa frjálsar fjármagnshreyfing- ar og annað...“ - Vill viðskiptaráðherra gefa meira eftir? „Miklu meira," svaraði Páll, „það var einnig áberandi munur á túlkun Steingríms Hermannssonar og Jóns Sigurðssonar á stefnu ís- lensku ríkisstjórnarinnar." Það er athyglisvert hve umræður á þinginu eru hvassari en þær hafa verið stundum áður. Snarpar at- hugasemdir hafa verið gerðar við ummæli Poul Schlúters forsætis- ráðherra Dana um að ísland og Noregur hljóti að tengjast Efna- hagsbandalaginu. „Þessi ummæli orka mjög tví- mælis að mínum dómi,“ sagði Páll, „Schlúter segist sjá fyrir sér að í framtíðinni gangi Isiendingar í bandalagið. Hann vill fá okkur með.“ Dönsku þingmennirnir reka mjög ákveðinn áróður fyrir Efna- hagsbandalaginu á Norðurlanda- ráðsþinginu í Stokkhólmi, þá gildir einu í hvaða flokki þeir standa. „Þeir vilja fá fleiri Norðurlanda- þjóðir með sér til þess að fá hljómgrunn fyrir norrænum við- horfum í hinum bandalagsþjóðun- um. Ég hef á tilfinningunni að Danir séu mjög einmana í Efnahags- bandalaginu. Þar eru þjóðir sem standa þeim að baki í efnahagslegu og atvinnulegu tilliti. Hið norræna velferðarríki, s.s. það í Danmörku er ekki sunnar í Évrópu. Þar býr fólk ekki við sama félagslegt öryggi og hér á Norðurlöndum. Danskir þingmenn gylla Efna- hagsbandalagið mjög fyrir okkur og hamra fast á því að það sé sjálfsagður hlutur fyrir önnur Norðurlönd að ganga í bandalagið, og reyndar að við komumst ekki hjá því.“ í gær var frí í grunnskólunum í Reykjavík. Kennarar notuðu daginn vel og sóttu meðal annars um níutíu þeirra fræðslufund í Gerðubergi. Á myndinni er einn fyrirlesaranna, Colin Biott háskólakennari frá New Castle, en hann flutti erindi um námskrárgerð. Tímamynd:Pjetur LEKIKOM AD Alftafellinu Mikill leki kom að Álftafelli SU- 100, um tíuleytið í gærkvöldi, þegar skipið átti um tvær mílur eftir ófarn- ar að Norðfjarðarhorni. Álftafellið var á leið til Neskaupstaðar frá Fáskrúðsfirði þegar lekinn kom að skipinu. Hætta stafaði ekki að áhöfn- inni. Loðnubátur kom fljótlega á vett- vang og þegar síðast fréttist, eða um ellefu, var unnið hörðum höndum við að dæla sjó úr skipinu. Ekki var ljóst hversu vel gengi að halda skipinu þurru og koma því inn til hafnar, en það var farið að halla mjög mikið. Sem kunnugt er strandaði Álfta- fellið við Gvendarnes, sem er við mynni Fáskrúðsfjarðar, á mánu- dagskvöld. -ABÓ

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.