Tíminn - 23.03.1989, Qupperneq 1
Js'1* . , ' í
TiTTÍÍTirÍ
Sigling inn Eyjafjörð
m*
'O
mrn
Loks eftir langan dag
lít ég þig, helga jörð.
Seiddur um sólarlag
sigli eg inn Eyjafjörð.
Ennþá á óskastund,
opnaðist faðmur hans.
Berast um sólgyllt sund
söngvar og geisladans.
Verja hinn vígða reit
varðtröllin klettablá,
máttug og mikilleit,
Múlinn og Gjögratá.
Hljóti um breiða byggð
blessun og þakkargjörð
allir, sem tröllatryggð
taka við Eyjafjörð.
Blika sem brennnheitt stál
björgin og djúpin köld.
Bjart var um Austurál
oftar en þetta kvöld.
Blástur frá bláum hval
blandast við fuglaklið.
Blœvakið bylgjuhjal
boðar mér drottins frið.
Ástum og eldi skírð
óskalönd birtast mér.
Hvílíka drottins dýrð
dauðlegur maður sér!
Allt ber hér sama svip;
söm er hin gamla jörð.
Hœgara skaltu skip,
skríða inn Eyjafjörð.
Alltþað, sem augað sér,
æskunnar hörpu knýr,
syngur og segir mér
sögur og œvintýr.
Mild ertu, móðir jörð.
Margt hefur guð þér veitt.
Aldrei ég Eyjafjörð
elskaði nógu heitt.
Þófinnst mér ást mín öll,
unaður minn og þrá
tengd við hinfögrufjöll,
fjörðinn og sundin blá.
Hvar sem ég flótta fer
friðlaus um ókunn lönd,
bið ég til bjargar þér,
blessaða Galmarsströnd.
Bœnin og barnsins trú
betra hinn týnda son.
Gleðin og guð og þú
gefa mér nýja von.
Stráin, sem blœrinn braut,
blessar þín líknarhönd.
Mjúk er sem móðurskaut
moldin á Galmarsströnd.
Faðmaðu, blíði blœr,
byggðir og sundin víð...
Sé ég, hvar bóndabœr
brosir í vesturhlíð.
Þó komi ég sár frá sœ,
sekari en áður fyr,
á þessum bóndabœ
bíða mín opnar dyr.
:
Áfram - og alltaf heim,
inn gegnum sundin blá.
Guðirnir gefa þeim
gleði, sem landið sjá.
Loks eftir langan dag
leit ég þig, helga jörð.
Seiddur um sólarlag
sigli eg inn Eyjafjörð.
DAVIÐ STEFANSSON
FRÁ FAGRASKÓGI