Tíminn - 23.03.1989, Blaðsíða 18

Tíminn - 23.03.1989, Blaðsíða 18
18 Tíminn Fimmtudagur 23. mars 1989 Skólinn í Pattaya Frásögn Guðjóns Einarssonar af heimsókn í munaðarleysingjaskóla séra Ray Brennans í Pattaya í Thailandi, þar sem fötluð, öreiga börn læra m. a. til hæstu námsgráðu í tölvufræðum Víðs vegar um heiminn er að finna fólk sem hefur fórnað starfsævi sinni og nær öllu einkalífi í þeim tilgangi að létta nokkuð á þjáningum hrjáðra meðbræðra sinna og þótt slíkt starf sé sem dropi í hafið, þá er það aðdáunarvert eigi að síður og í hugann koma nöfn eins og Albert Schweitzer og Móðir Theresa. Er skrifstofustjóri Tímans, Guðjón Einarsson, var á ferð í Thailandi fyrir skömmu gafst honum kostur á að kynna sér merkilegt starf írsk-bandaríska prestsins Ray Brennan, sem dvalið hefur í 30 ár í Thailandi og komið upp alls konar menntunarstöðvum fyrir margvíslega fötluð börn. Hér segir Guðjón frá þessu einstæða framtaki og Pattaya munaðarleysingjaheimilinu, eins og stofnunin nefnist. Faðir Brennan Ray Brennan er af írskum ættum, fæddur í Chicago. Hann er kaþólsk- ur og lærði til prests í Bandaríkjun- um, en þar sem honum fannst ekki muna nóg um liðsinni sitt í starfi vanalegs prests, sótti hann um inn- göngu í kirkjudeild Endurlausnar- sinna, sem er grein út úr kaþólsku kirkjunni, stofnuð á átjándu öld, en þar beina menn kröftum sínum ekki síst að starfi meðal fátækra. Deildin sendi hann til Nongkai í Norðaustur- Thailandi árið 1959 og þar hefur hann síðan starfað. í Nongkai starfaði hann mcðal holdsveikra, en kynnti sér cinnig landbúnaðarmál og viðskiptamál í gistilandi sínu, sem átti eftir að koma að góðum notum er hann síðar var sendur til hérðanna Pattaya og Cholbury. Þessi héruð voru ákaflega snauð á sjöunda áratugnum. Brennan sinnti einkum kirkjulegu starfi þarna í byrjun, en neyðin allt umhverfis Faðir Ray Brennan. varð til þess að starfsvettvangurinn færðist inn á hið félagslega svið. Honum hafði verið fengið land til þess að nota undir kirkjubyggingu, en hann ákvað að koma á fót munaðarleysingjahæli þess í stað. Er ekki að orðíengja það að starf- semin hefur vaxið langtum meir én stofnandann nokkru sinni hefði grunað. Hér er ekki aðeins vistun og kennsla munaðarlausra barna, sem læra að lesa og skrifa. Hann hefur tekið að sér fötluð börn og unglinga, sem eru sum í skólum hans allt til 22ja ára aldurs, og kennir þeim störf sem gera þau fær um að sjá sér farborða í lífinu. Þar er meira að segja á meðal kennsla í tölvufræðum upp á háskólastig og rafcindafræði- nám. Þarna verða til nýtir þegnar, sem ella hefðu ekki átt í nein hús að venda önnur en betla, selja strámott- ur eða enn vesælla hlutskipti. 360 daga skóli Pað sem mesta undrun vekur meðal gesta sem í Pattaya koma er sennilega tölvuskólinn. Framtíðar- vonir fatlaðra barna, snauðra for- eldra í Thailandi eru ekki margar. Foreldrarnir nota sín takmörkuðu efni til þess að koma heilbrigðum börnum sínum til náms, en láta hin sitja á hakanum. Slík börn hefur Brennan tekið að sér og sum þeirra hafa orðið tölvufræðingar í fremstu röð. Það er þó aðens lítill úrvalshópur sem fer í þetta stranga nám. Sá hópur er valinn á 12 vikna námskeiði í tölvufræðum, sem sýnir hverjir bestum hæfileikum eru búnir. Nám- ið stendur í tvö ár og þar er ekki slegið slöku við, því kennslan er 360 daga ársins og aðeins frí hálfan daginn á sunnudögum. Að vísu eru nemendur látnir fást ögn við garð- yrkjustörf hluta úr deginum, svo þeir fái hvílt hugann. Þcim er líka gefinn kostur á enskunámi eina klukkustund á dag, ef þeir kæra sig Ótrúlegt en satt! Það var tólf ára drengur, sem hafði tvo fingur á annarri hendi en einn á hinni, sem skreytti (Tímamyndir G.E.) kirkjuna svo fagurlega um. Nemendurnir læra til hlítar öll tölvutungumál, kerfi og viðskipta- forrit, sem talin eru þeim gagnlegust. Ljúki þau náminu (alltaf verður að gera ráð fyrir að einhverjir falli úr) eiga þau að standa jafnfætis fólki, sem lært hefur tölvufræði í há- skóla... þótt prófgráðu hafi þau enga. En presturinn vinnur að því að fá stjórnvöld til þess að viðurkenna námið. Sex mánuðum áður en náminu Kennslustund í rafeindafræði í Pattaya, Heyrnarlaus börn læra að þekkja dýrin og tákna þau með látbragði,

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.