Tíminn - 23.03.1989, Page 3

Tíminn - 23.03.1989, Page 3
Tíminn 3 Fimmtudagur 23. mars 1989 \ F Landlæknir gagnrýnir umferöarvarnir: ERUM ENN Á FYRIRLESTRA OG AUGLÝSINGASTIGINU Landlæknir hefur gagn- rýnt framkvæmdir umferðar- varna í þjóðfélaginu. Hann segir íslendinga enn vera á fyrirlestra- og auglýsingastig- inu en það dugi ekki til. Einnig telur hann of litlu fjármagni veitt til embættis- ins en það hefur meðal ann- ars orðið til að hamla útgáfu bóka um slysavarnir. Tölur sýna þó ótvíræða fækkun ákveðinna slysa eftir útgáfu bókanna. slys af völdum efna, viðbrög við þeim og varnir. Nú eru tilbúnar nokkrar fleiri bækur um slys og varnir gegn þeim, meðal annars má nefna bók um slys í skólum. En fjármagn til útgáfunnar er ekki fyrir hendi. „Hver útgáfa gæti kostað tvö til þrjú hundruð þúsund. En við höfum ekki fengið neitt fé og verðum bara að reyna að lifa með því,“ sagði Ólafur. Árið 1979 var gerð úttekt á slysum af völdum efna á vegum landlæknis- embættisins. „Þessi úttekt kom mikilli umræðu af stað. Eftir þetta var málið meðal annars tekið upp í ýmsum tímaritum og víðar í þjóðfé- laginu," sagði Ólafur. Árin 1984-85 voru tvær bækur gefnar út á vegum embættisins. Önnur fjallaði um slys almennt í heimahúsum en hin sér- staklega um slys af völdum efna. Síðari bókin var einskonar saraan- tekt, þar sem gerð var grein fyrir þeim atriðum sem til umræðu höfðu verið á skipulegan og aðgengilegan hátt. Samkvæmt tölum frá slysadeild Borgarspítalans hefur slysum af völdunt efna fækkað umtalsvert á þessu tímabili. Árið 1979 leituðu hátt á fimmta hundrað einstaklinga á slysadeildina vegna eitrana. En árið 1985 hafði þeim fækkað niður í rúmlega tvö hundruð. jkb í riti heilbrigðis- og trygginga málaráðuneytisins „Manneldi og neysla" segir orðrétt í grein land- læknis: „Á meðan aðrar þjóðir leggja æ meira upp úr verklegri kennslu erum við á fyrirlestra- og auglýsingastiginu og eyðum mest öllu tiltæku fé til þess að auglýsa okkur frá vandanum. Hvernig má það vera að alltaf fæst nægilegt fé til þess að greiða auglýsingafyrirtækj- um hæstu taxta sem greiddir eru hér á landi? Spurningin er: Hvað og hverja er verið að auglýsa." „Það hefur verið eytt miklu fé í auglýsingar. Menn halda að þeir geti breytt hegðun annarra með auglýs- ingum eingöngu en það er hæpið að verði nema með öðrum aðgerðum sem fylgja í kjölfarið," sagði Ólafur Ólafsson landlæknir í samtali við Tímann. í fyrrgreindu riti bendir hann á að á meðan landlæknisembættið hafi verið í hálfgerðu fjársvelti af hálfu stjórnvalda, hafi ýmsir aðilar lagt fram hátt á annan tug milljóna til auglýsinga. En einnig að áhrif þeirra auglýsinga hafi verið umdeild. Umferðarmenning íslendinga hef- ur verið fyrirferðarmikil í auglýs- ingatímum undanfarið. Landlæknir hefur ýmsar frekari hugmyndir sem stuðlað gætu að bótum í' því efni. Meðal annars þá að kennsla öku- kennara verði tekin upp við Kenn- araháskóla íslands eða í fjölbrauta- skólum, þá sem valgrein. „Öku- kennarar þurfa að læra hvernig á að koma umferðarfræðslu inn hjá ungu fólki. Það er ekki nóg að læra bara á bílinn, ég tel eðlilegt að þeir kunni betur til verka. Aðrar þjóðir leggja mikið upp úr slíku,“ sagði hann. Mikið hefur einnig verið auglýst vegna alnæmisvarna. „Við höfum reynt að fylgja þeim auglýsingum eftir bæði með fyrirlestrum í skólum og á vinnustöðum auk viðtala við fólk og fleira. Við höfum ekki trú á að auglýsingar einar og sér nægi,“ sagði Ólafur. Landlæknisembættið fær rúmlega tuttugu milljónir á ári frá ríkissjóði. Á síðastliðnu ári var tíu milljónum að auki veitt til alnæmisvarna. Þetta ár hefur embætti fengið úthlutað átta milljónum til varnarstarfsins. „Það er erfitt að segja til um hvort starfið hefur skilað tilætluðum árangri. Vegna þess meðal annars hve skammt er síðan því var hrundið af stað. Það má þó a.m.k. telja nokkuð öruggt að almenningur veit nú orðið hvernig sjúkdómurinn smitast. Á þessu ári munum við halda áfram á svipuðu róli og verið hefur. Þó komum við til með að leggja aukna áherslu á vinnustaða- fræðslu og fræðslu til ákveðinna hópa eins og ferðamanna og sjó- manna,“ sagði Ólafur. Þær rúmlega tuttugu milljónir sem veitt er árlega til landlæknisem- bættisins skilja ekki eftir nóg fjár- magn til annarra framkvæmda. Sem dæmi má nefna að í samvinnu við Slysavarnafélag íslands var gefin út og send inn á hvert heimili bók um ...kjörin leið til sparnaðar er Kj örbók Landsbankans Betri, einfaldari og öruggari leiö til ávöxtunar sparifjár'er vand- fundin. Háir grunnvextir og verðtryggingarákvæði tryggja góða ávöxtun. Að auki koma afturvirkar vaxtahækkanir eftir 1 6 og 24 mánuði. Samt er innstæða Kjörbókar alltaf laus. Landsbanki íslands Banki allra landsmanna

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.