Tíminn - 23.03.1989, Síða 25
Fimmtudagur 23. mars 1989
Tíminn 25
SAMVINNUMÁL
SAMDRÁTTUR
INNANLANDS
Hjá Samvinnuferðum-Landsýn
hf. varð á síðasta ári í fyrsta skipti í
sögu skrifstofunnar samdráttur í
þjónustu við erlenda ferðamenn hér
innanlands. Er þetta rakið fyrst og
fremst til þeirra verðhækkana á mat
og þjónustu sem urðu hér á landi á
árinu 1988. Kom þetta fram í skýrsl-
um þeirra Vilhjálms Jónssonar
stjórnarformanns og Helga Jóhanns-
sonar framkvæmdastjóra á aðalfundi
ferðaskrifstofunnar í síðustu viku.
Þá varð einnig nokkur samdráttur í
sölu skrifstofunnar á farseðlum til
einstaklinga í venjulegu áætlunar-
flugi. Fjöldi farþega í skipulögðum
hópferðum til útlanda var á hinn
bóginn nánast hinn sami og árið á
undan.
Af þessum sökum varð afkoma
skrifstofunnar heldur lakari á síðasta
ári en 1987, en þó varð hagnaður af
rekstrinum, um 1,9 miljónir króna.
Er þá búið að draga frá tap af rekstri
hótelsins í Bifröst, 256 þúsund
krónur. Hagnaður af reglulegri starf-
semi skrifstofunnar var 2,1 miljón,
samanborið við 10,2 miljónir árið
1987. Á síðasta ári var hagnaður
þannig aðeins 0,2% af heildarveltu
skrifstofunnar, en hún varð 750,3
miljónir, samanborið við 645,8 milj-
ónir árið 1987. Hækkun eigin fjár á
efnahagsreikningi fyrirtækisins varð
svipuð og nam almennum verðlags-
hækkunum á milli ára.
Fjöldi farþega í hópferðum Sam-
vinnuferða-Landsýnar á síðasta ári
varð 14.971, samanborið við 15.090
árið á undan og 11.833 árið 1986. Er
það í fyrsta skipti í langan tíma sem
hópferðafarþegum fjölgar ekki milli
ára, en þeim hefur farið nokkuð
jafnt fjölgandi ár frá ári úr um 2.700
árið 1979. Þá urðu farþegar í áætlun-
arflugi 13.429 á síðasta ári, saman-
borið við 14.880 árið á undan, sem
m.a. er rakið til fleiri söluaðila fyrir
flugfarmiða en áður og harðnandi
samkeppni af þeim sökum.
Vinsælasti áfangastaðurinn í hóp-
ferðum á liðnu ári var Mallorca,
þangað sem fóru rúmlega 3.300
manns á vegum Samvinnuferða-
Landsýnar eða 22% af heildarfjöld-
Súlurit yfir markaðshlutdeild stærstu
ferðaskrifstofanna í skipulögðum
hópferðum til útlanda árið 1988. Úr
könnun sem Félagsvísindastofnun
Háskólans gerði fyrir Samvinnuferð-
ir-Landsýn.
anum. Til Hollands fóru 1.728 eða
12%, til Benidorm 1.701 eða 11%
og til Rimini 1.070 eða 7%, en færri
til annarra áfangastaða.
Erlendum farþegunr hjá innan-
landsdeild skrifstofunnar, þ.e. út-
lendum ferðamönnum sem taka þátt
í ferðum hennar innanlands, fækk-
aði hins vegar talsvert, úr 9.000 árið
1987 í 6.600 á síðasta ári. Þar er fyrst
og fremst kennt um verðhækkunum
hér innanlands á mat og þjónustu
árið sem leið, sem talið er að hafi
bitnað illa á innlendri ferðaþjónustu,
þannig að afkoma í henni sé yfirleitt
slænt á liðnu ári.
Helgi Jóhannsson frkvstj. gat þess
á aðalfundinum að í ár færu bókanir
í hópferðir greinilega mjög hægt af
stað miðað við árið í fyrra. Þó væri
Ijóst að meira væri núna búið að
bóka í sólarlandaferðir heldur en í
sumarhús. Meðal nýjunga hjá skrif-
stofunni í ár eru sumarhús í Frakk-
landi, og einnig ferðir til Hawaii á
óvanalega góðum kjörum.
Starfsmenn á launaskrá hjá Sam-
vinnuferðum-Landsýn á síðasta ári
voru 225 og heildarlaunagreiðslur 72
miljónir. Meðalfjöldi starfsmanna,
miðað við tryggingarskyldar vinnu-
vikur, var 67. Fjárfestingar hjá skrif-
stofunni voru 8,8 miljónir. Var þar
um að ræða kaup á vélum og
tækjum, aðallega tölvubúnaði.
Að tillögu stjórnar var ákveðið að
greiða engan arð af hlutafé í ár.
Sömuleiðis verða engin jöfnunarh-
lutabréf gefin út til hluthafa á yfir-
standandi ári.
í stjórn Samvinnuferða-Landsýn-
ar hf. sitja þeir Vilhjálmur Jónsson,
formaður, Axel Gíslason, Ásmund-
ur Stefánsson, Guðjón B. Ólafsson,
Haukur Halldórsson, Sigrún Aspel-
und og Páll Leósson. -esig
% Markaðshlutdeild stærstu ferðaskrifstofa 1988 Í%1. Þeir sem fórn í «lnmil»oð9r hónferðir
Flugleiðir Arnarllug Samvinnuferðir Útsýn Úrval
Samviskufangar
Mannrettmdasamtökin Amnesty
International vilja vekja athygli al-
mennings á máli eftirfarandi sam-
viskufanga. Jafnframt vonast sam-
tökin til, að fólk sjái sér fært að
skrifa bréf til hjálpar þessum
föngum, og sýna þannig í verki
andstöðu sína gegn því, að slík
mannréttindabrot séu framin.
Islandsdeild Amnesty gefur einnig
út póstkort til stuðnings föngum
mánaðarins. Hægt er að gerast áskrif-
andi að þessum kortum með því að
hringja til skrifstofunnar, Hafnar-
stræti 15, virka daga kl. 14-16 í síma
16940.
Eþíópía: Bræðurnir Wossen-
Seged, IVVchael og Bede-Mariam
Mekonnen hafa verið í haldi í 14 ár
án dóms og laga vegna frændsemi
við fyrri stjórnvöld ríkisins. Wossen-
Seged (einnig þekktur undir nafninu
Paul), 39 ára gamall, Michael, 34 ára
gamall og Bede-Mariam, 29 ára, eru
ættmenn fyrrum Eþíópíukeisara.
Þeir hafa verið í haldi án ákæru og
án þess að mái þeirra hafi verið
dómtekið allt frá því að ríkisstjórn
Haile Selassie keisara var steypt árið
1974. Allir, sem tengjast fyrri stjórn-
völdum og voru handteknir í bylting-
unni 1974, hafa verið látnir lausir, að
bræðrunum untanteknum, þar með
talin móðir þeirra, Sara Gizaw og
sex aðrar konur. Þær voru látnar
lausar í maí 1988. Engin skýring
hefur verið gefin á varðhaldi bræðr-
anna og yfirvöld láta ekkert uppi um
hvenær þeir verði látnir lausir.
Wossen-Seged, Michael og Bede-
Mariam Mekonnen eru í haldi í
Alem Bekagne (þýð.: Heimsendir)
öryggisdeild Aðalfangelsisins í Add-
is Ábaba. Þeir hafa allir þjáðst af
heilsuleysi, sem að hluta til má rekja
til lélegrar læknisþjónustu og
ómannúðlegs aðbúnaðar í fangels-
inu. Það var ekki fyrr en á þessu ári,
sem þeim leyfðist að fara í reglulega
læknisskoðun og fá viðeigandi
meðferð. Núna er þeim heimilt að fá
vikulega heimsóknir og láta færa sér
mat og aðrar nauðsynjar.
Vinsamlegast skrifið kurteisleg
bréf og krefjist þess að bræðurnir
verði látnir lausir tafarlaust til:
H.E. President Mengistu Haile-
Mariam
President of the People’s Demo-
cratic
Repubiic of Ethiopia
Office of the President
Addis Ababa
Ethiopia
Kólumbía: Tacisio Medina
Charry, 21 árs gamall stúdent, var
handtekinn fyrir ári og síðan hefur
ekkert til hans spurst. Félagar í
Kommúnistaflokki Kólumbíu og
nokkrir stúdentar úr Sur Kólumbíu
háskóla voru stöðvaðir á götu þann
19. febrúar í borginni Neica í Mið-
Kólumbíu. Lögreglan var að kanna
persónuskilríki vegfarenda. Skilríki
Tarcisio Medina voru í lagi, en
lögreglan kom auga á að hann hélt á
eintaki af blaði kommúnista La Vos.
Fyrirliða lögreglusveitarinnar var
gert viðvart, og hann heyrðist skipa
svo fyrir, að Tarcisio skyldi fluttur á
lögreglustöðina í Neiva til „F-2“
deildar leynilögreglunnar þar. Vitni
sagði síðar, að Tarcisio Medina
hefði strax orðið viðskila við hina
handteknu eftir að komið var á
stöðina. Þeir, sem handteknir voru
um leið og hann, voru látnir lausir
síðar um kvöldið, en til hans hefur
ekkert spurst frá því farið var með
hann á deild „F-2“. Lögregluyfirvöld
bera því við, að þeim sé ókunnugt
um afdrif hans. Kommúnistaflokk-
urinn er löglegur í Kólumbíu, en
engu að síður hafa margir flokks-
menn verið drepnir og ýmsir
„horfið“ á síðustu árum.
Fjölskylda Tarcisio Medina hóf
rannsókn á „hvarfi“ hans. Dómari í
borgaralegum dómstól vísaði máli
hans til herdómstóls, en general
prokúratör, sem fer með mannrétt-
indamál, vísaði málinu tilbaka til
borgaralegra dómstóla. Málinu var
enn á ný vísað til herdómstóls og þar
liggur það í salti. Háskólastúdentar
og kennarar hafa mótmælt hvarfi
Tarcisio Medina og hafa verið sakað-
ir um „niðurrifsstarfsemi“ og ýmsir
stúdentaleiðtogar hafa að undan-
förnu sætt varðhaldi um stundarsak-
ir.
Vinsamlegast skrifið kurteisleg
bréf og farið þess á leit að afdrif hans
verði könnuð:
Senor Presidente
Vigilio Barco
Palaci Narino
Bogotá
Colombia
Kína: Song Yede er 34 ára gamall
og predikar mótmælendatrú i Kína.
Hann afplánar nú átta ára fangels-
isdóm fyrir trúariðkun sína. Song
Yude var predikari í Tongbo í
héraðinu Henan í mið-Kina. Þar var
hann i tengslum við hóp kristinna
manna, sem neitaði að ganga í Hina
sjálfstæðu kínversku trúarhreyfingu,
sem er ein af nokkrum þjóðlegum
trúarhreyfingum, sem stjórnvöld
stofnuðu á sjötta áratugnuin, með
það fyrir augum að stjórna trúmálum
í landinu.
Samkvæmt stefnu stjórnvalda í
trúmálum, ber að skrá hópa mótmæ-
lenda, sem hittast til bænagjörða á
einkaheimitum („hús kirkjum").
Opinbert leyfi þarf til að boða fagn-
aðarerindi, predika eða dreifa bók-
um með trúarlegu efni.
Á árunum 1982 til 1984 voru
margir kristnir menn handteknir
fyrir að stunda trúariðkanir án leyfis
og sérstaklega kvað að þessu í Henan
héraði.
Song Yude var handtekinn 16. júlí
1984. Hann var í haldi til 29. janúar
1986, en þá kom hann fyrir dómstól
ákærður fyrir „andbyltingaráróður
og múgæsingu". Hann var meðal
annars sakaður um að dreifa aftur-
haldssömum trúarritum að utan og
standa fyrir ólöglegum trúarsam-
komum stofnuðum til höfuðs Hinni
sjálfstæðu kínversku trúarhreyfingu.
Hann var sekur fundinn um að
„koma af stað afturhaldsskoðun-
um“, „kynda undir andspyrnu við
lög ríkisins og tilskipanir“, og „and-
mæla Hinni sjálfstæðu trúarhreyf-
ingu“. Amnesty telur, að réttarhöld-
in yfir Song Yude hafi verið órétt-
mæt. Honum varekkiskipaðurverj-
andi og áfrýjun á máli hans til æðra
dómstóls var hafnað í apríl 1986.
Samtökin láta sig varða að hann er
fangelsaður fyrir trúariðkun sína
einvörðungu og enginn veit um afd-
rif hans.
Vinsamlegast skrifið kurtcisleg
bréf og fariö fram á að hann verði
látinn laus tafarlaust og án allra
skilyrða.
Prime Minister Li Peng
Guowuyuan
Beijinshi
People’s Republic of China.
t
Móðir okkar
Margrét Albertsdóttir
lést að heimili sínu Teigi í Fljótshlíð þriðjudaginn 21. mars.
Börn hinnar látnu.
Notaðar búvélar
til sölu
New Holland heybindivél..............ájg
Duks baggafæriband 15 m
rafmótor........................árg
KR baggatína.......................)|rcj
Baggavagn fyrir 150 bagga............árg
Fella heyþyrla v. br. 5,2 m..........árg
Pöttinger Erenter Profi III fjölhnífavagn
með matara..........................árg
Zetor5211 m/ámoksturstækjum . . . árg
Vild heydreifikerfi ca. 35 m ........árg
Fahr rúllubindivél 120x120 ........árg
IMT 567 65 hö. 4x4...................árg
Zetor 7745 m/aflúrtaki og þrítengibeisli
að framan ..........................árg
MF 135 m/ámoksturstækjum ..........árg
MF 128 heybindivél ..................árg
New Holland 945 heybindivél .......árg
Wild heyblásari .....................árg
Triolet heydreifikerfi 30 m .........árg
G/obus?
Lágmúla 5 Reykjavík Sími
1983
1980
1986
1987
1986
1987
1986
1984
1985
1985
1988
1982
1981
1988
1987
1987
681555