Tíminn - 23.03.1989, Síða 28

Tíminn - 23.03.1989, Síða 28
Fimmtudagur 23. mars 1989 28 Tíminn llllllllllllll DAGBÓK llllllllllllM^ ......5................................ Diana prinsessa af Wales er verndari ballettflokksins, en hún hefur mikmn áhuga á ballet og sækir sjálf danstíma vikulega. Diana sést hér ásamt Harold King, listdansstjóra London City Ballet. LONDON CITY BALLET Nú fer hver að verða síðastur að fá miða á hátíðarsýningar London City Ballet í Þjóðleikhúsinu. Uppselt er á kvöldsýningarnar, en örfáir miðar eru enn eftir á sýninguna laugardaginn 1. apríl kl. 14:30. London City Ballet sýnir dansa úr þremur klassískum ballettum: Hnotu- brjótnum eftir tónlist Tchaikovskys, Transfigured Night eftir tónlist Arnolds Schönberg og Celebrations, sem eru dansar eftir tónlist Giuseppis Verdi. Sýningar flokksins hér á landi eru styrktar af Landsbanka íslands og Scandi- navian Bank, en verndari flokksins er Diana prinsessa af Wales. Sýning Ragnars Stefánssonar í FÍM í FÍM-salnum, Garðastræti 6 í Reykja- vík, opnaði Ragnar Stefánsson nýlega myndlistarsýningu. Sýningin í FÍM-saln- um verður opin til 4. apríl. Ragnar stundaði myndlistarnám við Myndlista- og handíðaskóla íslands árin 1980-’84 og framhaldsnám í New York veturinn 1987-’88 í School of Visual Arts. Þetta er fyrsta einkasýning Ragnars, en hann hefur tekið þátt í nokkrum samsýn- ingum. Ragnar sýnir þarna myndverk unnin með blandaðri tækni. Opið er virka daga kl. 13:00-18:00 en um helgar kl. 14:00- 18:00. Lokað verður á föstudaginn langa og á páskadag. Sölugalleri FÍM er opið í kjallaranum á venjulegum opnunartíma sýningarsalar- ins Glerlist í EPAL Inga Elín, glerlista- og keramik- hönnuður, er komin heim eftir framhalds- nám við danskan nytjaháskóla. Hún vann í Kaupmannahöfn til margra verðlauna og viðurkenninga, m.a. „Kunshaand- værkprisen”. Hún hefur hlotið verðlaun m.a. fyrir bolla sem hitna ekki, vátnslös og bjórglös. Nú heldur Inga Elín einkasýningu f EPAL, Faxafeni 7 í Reykjavík, dagana 17. mars til 1. apríl. Á sýningunni verða margir fallegir munir, m.a, vasar, sem Hadelandverksmiðjan í Noregi hefurtek- ið til framleiðslu, en þeim er hægt að raða upp á ýmsa vegu. Vasarnir verða til sölu framvegis í EPAL. Sýningin er jafnframt sölusýning. Inga Elín mun opna keramikverkstæði í bakhúsi við Laugaveg 55 1. apríl nk. Föstudagurinn langi: KAMMERKÓR ÞÓRSHAFNAR syngur í Langholtskirkju Á föstudaginn langa kl. 16:00 mun Kammerkór Þórshafnar í Færeyjum halda tónleika í Langholtskirkju. Kórinn er staddur hér á landi í tengslum við opinbera heimsókn bæjarfulltrúa Þórs- hafnar til Reykjavíkur. Kórinn hóf starfsemi sína fyrir fjórum árum og er skipaður á fjórða tug söngv- ara. Söngskrá kórsins er fjölbreytt, jafnt lög frá Norðurlöndum sem sígild kórverk og nútimaverk. Stjórnandi kórsins er Olafur Jökladal. Öllum er heimill aðgangur á hvora tveggja tónleika Færeyinganna meðan húsrúm leyfir. Vikuleg ganga Hana nú Vikuleg laugardagsganga Hana nú í Kópavogi verður laugardaginn 25. mars. Lagt af stað frá Digranesvegi 12 kl. 10:00. „Allir Kópavogsbúar, ungir og gamlir, eru velkomnir í þessa páskagöngu Hana nú. Samvera, súrefni og hreyfing er markmið göngunnar. Nýlagað molakaffi og skemmtilegur félagsskapur,” segir í fréttatilkynningu frá Frístundahópnum Hana nú í Kópavogi. Skírdagur: 70 færeyskir tónlistarmenn halda tónleika í Langholtskirkju Á skírdag kl. 20:30 munu 70 færeyskir tónlistarmenn flytja söngverkið „Jesus og maðurinn frá Makedóniu" (Jesus og Ma- kedonarin) eftir Pauli í Sandagerði og Sigmund Paulsen. Tónverk þetta var frumflutt í Þórshöfn á páskum 1984 í tilefni af afmæli Norræna hússins þar. Hugmyndina að verkinu átti borgarstjórinn í Þórshöfn, Paul Michel- sen. Stílbrigði verksins eru margbreyti- leg, allt frá köflum í ætt við rokktónlist til hefðbundnari tónsmíða. Hljómsveitin er skipuð strengjum, blásurum og „rokk- hljómsveit", ásamt einsöngvurum og á fjórða tug kórsöngvara. Hafnarfjarðarkirkja Á skírdagskvöld vcrður helgistund með altarisgöngu kl. 20:30. Kór Öldutúns- skóla syngur undir stjóm Egils Friðleifs- sonar. Prestur er sr. Gunnþór Ingason. Föstudagurinn langi: Guðsþjónusta kl. 14:00. Esther Helga Guðmundsdóttir söngkona og Oliver Kentish sellóleikari flytja föstutónlist. Prestur sr. Þórhildur Ólafs Páskadagur: Hátíðarguðsþjónustur bæði kl. 08:00 og kl. 14:00. Eiríkur Örn Pálsson leikur á trompet. Prestur sr. Gunnþór Ingason. 2. páskadagur: Skírnarguðsþjónusta kl. 14:00. Prestur sr. Gunnþór Ingason. Frá Strætisvögnum Kópavogs: Akstur um bænadaga, páska og sumardaginn fyrsta 23/3 skírdagur: Ekið eins og venjulega sunnudaga. 24/3 föstudagurinn langi: Akstur hefst um kl. 14:00, eftir það er ekið eins og á sunnudögum. 25/3 laugard. fyrir páska: Ekið eins og venjulegan laugardag. 26/3 páskadagur: Ekið eins og föstu- daginn langa. 27/3 annar í páskum: Ekið eins og á sunnudögum. 20/4 sumardagurinn fyrsti: Ekið eins og á sunnudögum. Strætisvagnar Kópavogs LEKUR ER HEDDIÐ BLOKKIN? SPRUNGIÐ? Viögeröir á öllum heddum og blokkum. Plönum hedd og blokkir - rennum ventla. Eigum oft skiptihedd í ýmsar gerðir bifreiöa. Viöhald og viðgerðir á iönaðarvélum - járnsmíöi. Vélsmiðja Hauks B. Guðjónssonar Súðarvogi 34, Kænuvogsmegin — Sími 84110 BLIKKFORM ______Smiðiuveqi 52 - Sími 71234 Öll almenn blikksmíðavinna, vatnskassavið- gerðir, bensíntankaviðgerðir, sílsalistar á alla bíla, (ryðfrítt stál); og einnig nælQnhúðaðir í öllum litum. Póstsendum um allt land (Ekið niður méð Landvélum). TÖLVUNOTENDUR Við í Prentsmiðjunni Eddu hönnum, setjum og prentum allar gerðir eyðublaða fyrir tölvuvinnslu. Við höfum einnig úrval af tölvupappír á lager. Reynið viðskiptin. i PRENTSMIÐJAN ■ ddddu Smiðjuvegí 3, 200 Kópavogur. Sími 45000 PÁSKATÓNLISTARKROSSGÁTAN NO: 1989 Lausnir sendist til: Ríkisútvarpsins RÁS 2 Efstaleiti 1 103 Reykjavík Merkt Tónlistarkrossgátan Aðalfundur Styrktar- félags vangefinna Aðalfundur Styrktarfélags vangefinna verður haldinn í Bjarkarási við Stjömu- gróf, fimmtudaginn 30. mars n.k. kl. 20:30. Venjuleg aðalfundarstörf. Kaffi- veitingar. Stjómin ESS0 bensínstöðvar um páskana I dymbilviku og um páskana verða bensínstöðvar ESSO opnar sem hér segir: Miðvikudag 23. mars - til kl. 20:00 Fimmtudag - skírdag - 24. mars kl. 12:00-16:30 Föstudagurinn langi - lokað Laugard. 25. mars kl. 07:30-20:00 Páskadag - lokað Mánudag27. mars-annan í páskum-kl. 12.00-16:30. Venjulega em bensínstöðvar opnar frá kl. 07:30 til kl. 20:00 nema á sunnudög- um, þá eru þær opnar frá kl. 10:00 til kl. 20:00. Bensínstöð ESSO Ártúnshöfða er opin alla daga til kl. 23:30, - þó ekki þá daga sem allar bensínstöðvar eru lokaðar. Sjálfsalar eru á bensínstöðvum Olíufé- lagsins hf. ESSO: á höfuðborgarsvæðinu og einnig á eftirtöldum stöðum úti á landi: Bensínstöðvar ESSO á Akranesi, Borgarnesi, Blönduósi, Akureyri, Húsa- vík, Egilsstöðum, Hvolsvelli og Isafirði. Fríkirkjan í Reykjavík Á skírdag: Guðsþjónusta kl. 20:30. Reynir Guðsteinsson syngur einsöng, alt- arisganga Föstud. langi: Guðsþjónusta kl. 14:00. Lesin píslarsagan og sungið úr Passíu- sálmunum Páskadag: Kl. 08:00 morgunguðsþjón- usta, kl. 14:00 guðsþjónusta. Þurtður Sigurðardóttir syngur einsöng. Annar páskad. kl. 11:00: Bamaguðs- þjónusta. Orgelleikari er Pavel Smid. Cecil Haraldsson Aðaifundur Fugla- vemdarfélagsins Fuglaverndarfélag Islands heldur aðal- fund í hliðarsal Norræna hússins föstu- daginn 31. mars kl. 17:00. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjómin FerðirSVR Skírdagur og annar páskadag- ur: Akstur eins og á sunnudög- um. Föstudagurinn langi. Akstur hefst um kl. 13. Ekið samkvæmt sunnudagstímatöflu. Laugardagur: Akstur hefst á venjulegum tíma. Ekið eftir laug- ardagstímatöflu. Páskadagur: Akstur hefst um kl. 13. Ekið samkvæmt sunnu-- dagstímatöflu. Fréttatilkynning. BILALEIGA meö utibu allt i kringurri landlð, gera þér mögulegt aö leigja bíl á elnum staö og skila honum á öörum. Reykjavík 91-31615/31815 Akureyri 96-21715/23515 PÖJitum bíla erlendis interRent Bilaleiga Akureyrár w Okf hönr auglý ‘ypis lun 'singar pegar þu ai mk/cir í Tímc >ni im AUGLÝSINGASÍMI 680001 / Hefur það V bjargað *)

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.