Tíminn - 05.04.1989, Side 6
6 Tíminn
Miðvikudagur 5. apríl 1989
JHÍ
Þátttakendur léttklæddir við undirbúning.
Tímamynd: Árni Bjama
Undirbúningur vegna keppninnar um Herra ísland í fullum gangi:
Kílóin fjúka af
herrum Islands
Úrslitakeppni um titilinn Herra ísland fer fram á Hótel
íslandi á fimmtudaginn kemur. Ellefu strákar æfa nú af
fullum krafti fyrir hana, bæði framkomu og líkamsrækt. Þeir
taka keppnina mjög alvarlega og hafa margir hverjir losað sig
við fjölda kílóa til að líta sem best út við úrslitin.
Dagskrá keppnirinar verður með stúfana og leituðum að þátttakend-
svipuðu sniði og keppnin um Ungfrú
fsland. Keppendur munu koma fram
á sundskýlum, í íþróttafatnaði og
herraklæðnaði. Á milli innkomanna
verða sýnd margvísleg skemmtiat-
riði önnur. Herra ísland verður
síðan krýndur á miðnætti. Æfingar
standa nú yfir og umsjón með þeim
hefur Sóley Jóhannsdóttir, dansstú-
díói Sóleyjar. t>ar er lögð megin-
áhersla á að kenna herrunum rétta
framkomu, göngulag og fleira.
„Auk þess eru þeir í aerobik og
annarri líkamsrækt og hafa verið
það hátt á annan mánuð. Keppend-
urnir taka þessu mjög alvarlega, eru
allir farnir að borða mikinn fisk og
drekka mikið vatn til að vera sem
lögulegastir þegar að úrslitunum
kemur. Einn þeirra hefur til dæmis
losað sig við sjö kíló á sex vikum,"
sagði Gunnlaugur Rögnvaldsson
einn aðstandenda keppninnar í sam-
tali við Tímann.
Þátttakendur eru á aldrinunt átján
til tuttugu og fjögurra ára.
Sigurvegarinn hlýtur silfurslcginn
pípuhatt að launum. Að auki eru í
verðlaun utanlandsferð, snyrtivörur,
föt og fleira. Þá verður einnig keppt
um titlana ljósmyndafyrirsæta
keppninnar og þann vinsælasta.
„Fyrir keppnina fengum við á
milli þrjátíu og fjörutíu ábendingar
frá fólki víðsvegar að varðandi val á
þátttakendum. Við fórum einnig á
um, bæði á skemmtistöðum og í
líkamsræktarstöðvum. Síðan var um
helmingur hópsins valinn úr þessuni
aðiluni. Hinn helmingurinn saman-
stendur af strákum sem gáfu sig
sjálfir fram við okkur. Margir þeirra
hafa áhuga á fyrirsætustörfum og
finnst þetta kjörið tækifæri til að
koma sér á framfæri. Þetta er góður
vettvangur til að ná augum ljós-
myndara. Við stefnum einnig að því
að koma þeim sem vinnur á samning
hjá fyrirtæki í London.
í fyrra héldu margir að keppnin
væri eitthvert grín en ég held að fólk
sé farið að gera sér grein fyrir að svo
er ekki. Við stefnunt að því að þetta
verði árlegur viðburður,“ sagði
Gunnlaugur.
Gunnar Austmann er einn kepp-
endanna. Hann hefur starfað nteð
Módelsamtökunum og vonast til að
keppnin opni nýjar leiðir á þeint
vettvangi. „Ég lét skrá mig í keppn-
ina fyrir um þremur mánuðum. í>á
strax byrjaði ég æfingar og breytti
um mataræði og hef nú misst ein níu
kíló. Ég vonast til að geta komið
mér á framfæri í fyrirsætustörfum og
því um líku. Þetta gæti veitt mér'
aukna atvinnumöguleika.“
Hann sagðist ekki vera orðinn
taugaóstyrkur þó lokakeppnin nálg-
aðist óðfluga. „Taugaóstyrkni eyði-
leggur fyrir manni, bæði varðandi
ánægju af keppninni og möguleika.
Ég nýt auðvitað góðs af reynslu
minni vegna sýninga með Módel-
samtökunum. Én aðalmálið og það
sem ég held að helst vefjist fyrir
mönnum er að gleyma ekki brosinu.
Það er erfitt en kemur með æfing-
unni,“ sagði Gunna'r.
Andinn innan hópsins er að sögn
mjög góður þó um keppni sé að
ræða. En keppendur hafa að sögn
brallað ýmislegt saman utan æfinga-
tímans. „Keppnin á vitaskuld fullan
rétt á sér. Það er til dæmis að mínum
dómi ekki völ á betri undirstöðu til
að byggja sjálfstaustið á en þessari.
Viðbrögð fólks hafa yfirleitt verið
mjög góð og jákvæð. íslendingar eru
seinteknir en ég hef trú á því að
þetta eigi eftir að verða mjög vinsælt.
Við hittumst mikið stákamir í
hópnum, bæði til að æfa saman og
fleira. Um daginn vorum við til að
mynda með tískusýningu þar sem
allir komu fram í stuttbuxum og bol.
Að henni lokinni fórum við allir
saman á ball í þessum fötum. Það er
óhætt að segja að aðrir prúðbúnir
gestir þeirrar samkomu hafi rekið
upp stór augu. en flestir tóku okkur
þó mjög vel,“ sagði Gunnar. jkb
Slæmt
ástand
malar-
vega
Malarvegir landsins eru víðast
hvar í mjög slæmu ásigkomulagi.
Einna verst er ástandið í Borgar-
nesi. Einn viðmælandi Tímans
vildi helst líkja keyrslu um þær
slóðir við keyrslu í mikið þýfðum
móa.
„Ástandið hér er heldur bág-
borið. Vegirnir eru blautir og
mikið holóttir. Það hefur lítið
verið hægt að hefla þá í vetur
sökum rigninga og snjóa,“ sagði
einn starfsmanna vegaeftirlitsins
í Borgarnesi í samtali við
Tímann.
Vegna þess hve mikill klaki er
enn í jörð verður ekkert hægt að
gera alveg á næstunni til að bæta
ástandið. En um leið oghlýnar og
vegimir ná að þorna verður hafist
handa við að bera í þá og hefla.
„Það þýðir ekkert að hefla þá
svona blauta, þá verður þetta
bara ein sósa. Við erum alltaf í
viðbragðsstöðu og tökum til við
lagfæringar um leið og það er
mögulegt. í vetur höfum við svo
til eingöngu verið í þvf að moka
snjó og lítið getað gert annað.
Allir malarvegir fara illa í
svona veðráttu en það er alltaf
verið að bæta við bundnu lögin,"
sagði starfsmaðurinn. í sumar er
ætlunin að ljúka við að leggja
bundið slitlag á þann sex kíló-
metra kafla sem eftir er á leiðinni
milli Borgarness og Reykjavíkur
um Hvalfjörð.
„Það hefur mikið verið kvartað
yfir ástandinu. Vegirnir eru sér-
staklega slæmir núna. En veður-
farið í fyrra var til dæmis mikið
hagstæðara upp á þetta að gera.“
jkb
Alþingismenn votta látnum
þingmanni virðingu sína:
SIGURVINS MINNST
Þingmenn á Alþingi minntust
Sigurvins Einarssonar fyrrver-
andi alþingismanns sl. mánudag,
með því að rísa úr sætum sínum.
Sigurvin sat á Alþingi í fimm-
tán ár, fyrst sem þingmaður Barð-
strendinga 1956-1959 og síðan
Vestfjarðakjördæmis frá 1959-
1971. Guðrún Helgadóttir forseti
sameinaðs þins sagði í minningar-
orðum sínum um Sigurvin að
hann hefði komið á Alþingi lífs-
reyndur maður og kunnugur
mörgum sviðum þjóðlífsins.
Hann hefði reynst atkvæðamikill
þingmaður, fylginn sér í hverju
máli er hann tók að sér, skeleggur
í ræðum, reikningsglöggur og
rökvís.
Líkur á auknum viöskiptum við Saudi-Araba:
FREÐFISKUR TIL
SAUDI-ARABÍU?
Dr. Nasser O. Alsaleh, forstjöri
Saudi Fishcries Company, sem er
stærsta fyrirtæki í útgcrð, fisk-
vinnslu og fisksölu í Mið-Austur-
löndum, dvaldist hér á landi í boði
sjávarútvegsráðuneytisins dagana
20. til 23. mars sl.
Samskipti ísiands og Saudi-Ar-
abíu hafa hingað til verið óveruleg
á sviði viðskipta. Heimsókn dr:
Nassers hingað til lands var fyrst og
frcmst til að kanna möguleika á
viðskiptum við íslendinga, með
þekkingu. tækjakost og verkefna-
stjórnun í útgerð og fiskvinnslu og
einnig beinum kaupum á freðfiski.
Auk viðræðna við sjávarútvegs-
ráðherra og forstöðumenn opin-
berra stofnana sjávarútvegsins átti
dr. Nasser viðræður við forsvars-
menn helstu samtaka útgerðar og
fiskvinnslu og stoðfyrirtækja í
þjónustu sjávarútvegsins. Viðræð-
ur dr. Nassers og framangreindra
aðila voru mjög jákvæðar og mun
þeim m.a. verða fylgt eftir með
ferð nokkurra aðila úr viðskiptalíf-
inu til Saudi-Arabíu í maí nk. í
tilkynningu frá sjávarútvegsráðu-
neytinu segir að allgóðar líkur séu
á að þessi kynni leiði til nokkurra
viðskipta milli þjóðanna. -ABÓ