Tíminn - 05.04.1989, Side 10
10 Tíminn
Miðvikudagur 5. apríl 1989
Miðvikudagur 5. apríl 1989
Tíminn 11
Umboðsmenn Tímans:
Kaupstaður: Nafn umboðsmanns Heimili Sími
Hafnarfjörður Ragnar Borgþórsson Hamraborg 26 641195
Kópavogur Linda Jónsdóttir Holtagerði 28 45228
Garðabær Ragnar Borgþórsson Hamraborg 26 641195
Keflavík GuðríðurWaage Austurbraut 1 92-12883
Sandgerði Margrét Magnúsdóttir Hjallagötu 4 92-37771
Njarðvík Kristinn Ingimundarson Faxabraut4 92-13826
Akranes Aðalheiöur Malmqvist Dalbraut55 93-11261
Borgarnes Inga Björk Halldórsdóttir Kveldúlfsgata 26 93-71740
Stykkishólmur ErlaLárusdóttir Silfurgötu 25 93-81410
Ólafsvík LindaStefánsdóttir Mýrarholti 6A 93-61269
Grundarfjörður Anna Aðalsteinsdóttir Grundargötu 15 93-86604
Hellissandur Ester Friöþjófsdóttir Háarifi 49 93-66629
Búðardalur Kristiana Guðmundsdóttir Búöarbraut 3 93-41447
Isafjöröur Jens Markússon Hnífsdalsvegi 10 94-3541
Bolungarvík Kristrún Benediktsdóttir Hafnargötu 115 94-7366
Flateyri Guðrún Kristjánsdóttir Brimnesvegi 2 94-7673
Patreksfjörður Ása Þorkelsdóttir Urðargötu 20 94-1503
Bíldudalur HelgaGísladóttir Tjarnarbraut 10 94-2122
Þingeyri Karitas Jónsdóttir Brekkugötu 54 94-8131
Hólmavík ElísabetPálsdóttir Borgarbraut 5 95-3132
Hvammstangi FriðbjörnNíelsson Fífusundi 12 95-1485
Blönduós Snorri Bjarnason Urðarbraut 20 95-4581
Skagaströnd Ólafur Bernódusson Bogabraut 27 95-4772
Sauðárkrókur Guðrún Kristófersdóttir Barmahlíð13 95-5311
Siglufjörður Guðfinna Ingimarsdóttir Hvanneyrarbraut54 96-71555
Akureyri Jóhannes Þengilsson Kambagerði 4 96-22940
Svalbarðseyri Þröstur Kolbeinsson Svalbarðseyri 96-25016
Húsavík Ólafur Geir Magnússon Hjarðarhóli 2 96-41729
Ólafsfjörður Helga Jónsdóttir Hrannarbyggð 8 96-62308
Raufarhöfn Ófeigurl.Gylfason Sólvöllum 96-51258
Þórshöfn Kristinn Jóhannsson Austurvegi 1 96-81157
Vopnafjörður Svanborg Viglundsdóttir Kolbeinsgötu44 97-31289
Egilsstaðir Páll Pétursson Árskógar 13 97-1350
Seyðisfjörður Anna Dóra Árnadóttir Fjarðarbakka 10 97-21467
Neskaupstaður KristínÁrnadóttir Nesbakka16 97-71626
Reyðarfjörður Marinó Sigurbjörnsson Heiðarvegi 12 97-41167
Eskifjörður Þórey Dögg Pálmadóttir Svínaskálahlíð 19 97-61367
Fáskrúðsfjörður Guðbjörg H. Eyþórsdóttir Hlíðargötu4 97-51299
Stöðvarfjörður SvavaG. Magnúsdóttir Undralandi 97-58839
Djúpivogur ÓskarGuðjón Karlsson Stapa, Djúpavogi 97-88857
Höfn Ingibjörg Ragnarsdóttir Smárabraut 13 97-81255
Selfoss Margrét Þorvaldsdóttir Skólavöllum 14 98-22317
Hveragerði Lilja Haraldsdóttir Heiðarbrún51 98-34389
Þorlákshöfn ÞórdísHannesdóttir Lyngberg 13 98-33813
Eyrarbakki ÞórirErlingsson Túngötu 28 98-31198
Stokkseyri Hjörleifur Bjarki Kristjánsson Sólvöllum 1 98-31005
Laugarvatn Halldór Benjamínsson Flókalundi 98-61179
Hvolsvöllur Jón í na og Árný Jóna Króktún 17 98-78335
Vík VíðirGylfason Austurveg 27 98-71216
Vestmannaeyjar Marta Jónsdóttir Helgafellsbraut29 98-12192
,30$$=
Sala getraunaseðla lokar á laugardögum kl. 13:45.
14, LEIKVIKA- 8. APRÍL1989 111 X 2
Leikur 1 Arsenal - Everton
Leikur 2 Coventry - Norwich
Leikur 3 Middlesbro - Southampton
Leikur 4 Millwall - Man. Utd.
Leikur 5 Newcastle - Aston Villa
Leikur 6 Q.P.R. - Wimbledon
Leikur 7 West Ham - Derby
Leikur 8 Bournemouth - Watford
Leikur 9 Blackburn - Leicester
Leikur 10 Man. City - Swindon
Leikur 11 Oxford - Stoke
Leikur 12 W.B.A. - Chelsea
Símsvari hjá getraunum á laugardöi kl. 16:15 er 91-84590 og -8446 SPRENGIVIKA »um eftir
ÍÞRÓTTIR
ÍÞRÓTTIR
Enska knattspyrnan:
Engir deildarleikir beint!
„Mikil knattspyrna í beinni útsendingu þó framundan,“ segir Ingólfur Hannesson hjá Sjónvarpinu
knaltspyrnuleikir úr cnsku knatt-
spyrnunni sem sýndir hafa verið í beinni
útsendingu í Ríkissjónvarpinu í vetur
hafa notid mikilla vinsælda almennings.
Nú er svo komið að þessum útsendingum
hefur verið hætt. En hvers vegna, Ingólf-
ur Hannesson deildarstjórí íþróttadeildar
RÚV?
„Við höfum í vetur scnt út mcira
sjónvarpscfni frá ensku knattspyrnunni
en nokkru sinni fyrr i sögu sjónvarpsins
þannig að skammturinn er orðinn nokk-
uð fylltur. í öðru lagi þá hætta öll
Norðurlöndin þessum beinu útsending-
um á sama tíma, þannig að kostnaður
okkar vegna gervihnatta mundi marg-
faldast ef við ætluðum að halda áfram.
Hins vegar er framundan klukkutíma
þáttur vikulega frá ensku knattspyrn-
unni, þar sem við munum sýna viku
gamla leiki. Framundan er lika mikil
knattspyma í beinni útsendingu, þar á
mcðal úrslitalcikurinn í ensku deildarbik-
arkeppninni 9. apríl og siðan erum við að
skoða möguleika á að sýna leik Notting-
ham Forest og Liverpool í undanúrslitum
bikarkeppninnar 15. april.
Þá er farið að styttast verulega í
knattspyrnuhátíðina í maí, því þá munum
við sýna í beinni útsendingu úrslitaleikinn
í Evrópukeppni bikarhafa, Evrópu-
keppni meistaraliða, úrslitaleik enska
bikarsins í Wembley og leik Sovétríkj-
anna og íslands í hcimsmeistarakeppn-
inni 31. maí.
Af þessu sést að við veröum að hætta
beinu útsendingunum frá ensku knatt-
spymunni á einhverjum punkti, bæði
peningalega og út af öðru efni. Það eru
skemmtilegir ieikir eftir, en við verður að
iáta okkur nægja að sjá þá vikugamla,
þótt það sé dálítið súrt.
Annars er stefnan hjá okkur hér að
auka til muna beinar útsendingar, frá
erlendum scm innlendum íþróttavið-
burðum og jafnvel að draga þá samtímis
úr föstum þáttum eða stytta þá. Við
liöfum trú á því að þetta sé það sem
íþróttaáhugamcnn vilja og greiða fyrir
það með sínum afnotagjöldum,“ sagði
Ingólfur Hannesson að lokum.
Það ætti því engum íþróttaáhuga-
manni, eða réttara sagt knattspyrnuá-
hugamanni að leiðast fyrir framan sjón-
varpstækið sitt á næstunni, það er næsta
víst. BL
Körfuknattleikur-Háskólakeppnin:
Michigan meistarar
í fyrsta skipti
Það voru lið Michigan háskóla og
Seton Hall sem Iéku til úrslita í
bandaríska háskólakörfuknattleikn-
um (NCAA) í fyrrakvöld. Hvorugt
liðið hafði áður sigrað í keppninni.
Úrslit urðu þau að Michigan sigraði
80-79.
Leikurinn var mjög spennandi og
úrslit réðust ekki fyrr en á síðustu
sekúndum í framlengingu. Michigan
liðið var yfir í hálfleik 37-32 og
fljótlega í síðari hálfleiknum náði
liðið 11 stiga forystu 49-38. Þá tók
John Morton, sem var stigahæsti
leikmaðurinn í leiknum með 35 stig,
sig til og raðaði niður körfunum fyrir
Seton Hall skólann. Hann gerði 22
af síðustu 28 stigum liðsins, þar á
meðal þriggja stiga körfu þegar 25
sekúndur voru eftir. Þar með jafnaði
hann leikinn 71-71 og framlengingar
var þörf.
Þegar þrjár sekúndnr voru eftir af
framlengingunni var staðan 79-78
fyrir Seton Hall, en Rumeal Robin-
son átti tvö vítaskot. Honum brást
ekki bogalistin og skot Daryll Walk-
er á síðustu sek. skoppaði af
hringnum. Það var því Michigan
háskólinn sem fagnaði NCAA titlin-
um í fyrsta sinn í sögunni, með 80-79
sigri í leiknum.
Stigahæstur í liði Michigan var
Glen Rice með 31 stig. Hann sló
heildarstigamet keppninnar með því
skora 184 stig í 6 leikjum. Gamla
metið átti enginn annar en Bill
Bradley sem lék fyrir Princeton
háskólann, en hann fór síðar í at-
vinnumennsku og lék með New
York Knicks. Met hans var 177 stig.
Bill Bradley er nú öldungardeildar-
þingmaður. Rumeal Robinson gerði
21 stig og átti 11 stoðsendingar.
1 liði Seton Hall var John Morton
stigahæstur eins og áður segir með
35 stig, en Ólympíukapparnir And-
rew Gaze bakvörður frá Ástralíu og
miðherjinn Ramon Ramos frá Pu-
erto Rico, brugðust alveg í leiknum.
Gaze skoraði 5 stig og Ramos gerði
aðeins 8 stig.
Þjálfaramál Michigan liðsins eru
nokkuð merkileg. Þremur dögum
fyrir NCAA keppnina tók Bill Fri-
eder tilboði Arisona State háskólans
að þjálfa þar næsta vetur. Bo Sce-
hembechler íþróttastjóri Michigan
háskólans, neitaði Frieder um að
klára keppnistímabilið með Michig-
an liðinu og skipaði Steve Fisher í
hans stað til bráðabirgða. Nú er
Fisher fyrsti bráðabirgðaþjálfarinn
til að vinna NCAA-keppnina. Þess
má að lokum geta að Fisher hefur
verið fastráðinn sem aðalþjálfari
Michigan fyrir næsta keppnistíma-
bil. BL
Glen Rice getur gert margt annað en að skora. Hér er
hann á fullu í vöminni.
Lokahóf körfuknattlciksmanna var haldið í veitingahúsinu Broadway s.l. föstudag. Þar voru veitt verðlaun fyrir einstaklingsárangur
liðins keppnistímabils. Á myndinni sjást í aftari röð frá vinstri: Pálmar Sigurðsson Haukum, sem skoraði flestar þriggjastiga körfur og
hitti best úr vítum, Jón Kr. Gíslason ÍBK, sem var með flestar stoðsendingar og var í Nike-liði ársins, Valur Ingimundarson Tindastól,
sem einnig var í Nike-liðinu og var stigahæsti leikmaður deildarinnar, Helgi Rafnsson UMFN, prúðasti leikmaður deildarinnar,
Guðmundur Bragason UMFG, frákastahæsti leikmaðurinn og í Nike-liði ársins, Laszlo Nemeth KR, þjálfari ársins í úrvalsdeild, Kristinn
Albertsson besti dómarinn. í neðri röðinni frá vinstri: Leifur Garðarsson sem var valinn sá dómari sem mestum framförum tók, Björg
Hafsteinsdóttir ÍBK, sem var í Nike- kvennaliði ársins og skoraði einnig flestar þriggja stiga körfur í 1. deild kvenna, Teitur Örlygsson
UMFN, besti leikmaður ársins og í Nike- liðinu, Anna María Sveinsdóttir ÍBK, besti leikmaður í 1. deild kvenna og í Nike-liðinu, Harpa
Magnúsdóttir UMFN í Nike-liði ársins, Cora Barker KR í Nike-liðinu og Linda Jónsdóttir KR sem var stigahæst í 1. deild kvenna og
var í Nike-liöinu. Á myndina vantar Tómas Holton Val, sem valinn var í Nike-liðið og Jón Arnar Ingvarsson Haukum, sem valinn var
efnilegasti leikmaðurinn. rimamynd Pjetur.
Búkarest. Fyrstu rúmensku
knattspyrnumönnunum hefur verið
gefið leyfi til að leika á Vesturlönd-
um. Þeir hafa verið leikmenn Steaua
Búkarest og heita Tudorel Stoica 32
ára og Victor Piturca 33 ára. Þeir
munu báðir leika með franska liðinu
Lens á næsta keppnistímabili, en
Lens liðið er svo gott sem fallið í 2.
deild.
Kaupmannahöfn. Morten
Olsen, hinn 39 ára gamli fyrirliði
danska landsliðsins í knattspyrnu og
leikmaður með Köln í V-Þýskalandi,
hefur skrifað undir tveggja ára samn-
ing við danska meistaraliðið
Bröndby. Olsen mun taka við nýja
starfinu í ársbyrjun 1990 og á blaða-
mannafundi í Kaupmannahöfn í gær
sagðist hann stefna að því að verða
í framtíðinni landsliðsþjálfari Dana,
jafnvel þegar 1992. Núverandi lands-
liðþjálfari er sem kunnugt er Sepp
Piontek. Enginn Dani hefur leikið
jafn marga landsleiki í knattspyrnu
og Olsen, sem mun leika sinn 100.
landsleik gegn Brasilíumönnum í
júní n.k.
Knattspyrna. Sighvatur
Bjarnason knattspyrnumaður, sem
lengst af hefur leikið með Fylki, en
einnig Eyjamönnum og Valsmönn-
um, hefur gengið til liðs við Gróttu
sem leikur í 3. deild.
Guðjón Guðmundsson íslandsmeistari í fimleikum stóð sig vel á Reykjavíkurleikunum. Hér er hann í keppni i
hringjum. Tímamynd Pjclur.
Fimleikar:
Guðjón Guðmunds-
son nældi í tvö gull
- á hinum geysisterku Reykjavíkurleikum
Reykjavíkurleikarnir, sterkt al-
þjóðlegt fimleikamót var haldið í
annað sinn í Laugardalshöllinni um
helgina. Keppendur voru víða að og
meðal þeirra gullverðlaunahafi frá
síðustu Ólympíuleikum. Mótið nú
var mun sterkara en það fyrra, sem
haldið var fyrir tveimur árum.
Á laugardag var keppt í fjölþraut
og búlgörsku gestirnir unnu örugga
sigra. í karlaflokki vann gullverð-
launahafinn á bogahesti frá því í
Seoul, Liobomir Geraskov öruggan
sigur. Hann fékk samtals t einkunn
56,1, en næsti maður, Svíinn Peter
Larsen fékk 51,8. í þriðja sæti varð
Belginn Jean Luc de Groote með
51,05. -
Guðjón Guðmundsson íslands-
meistari karla í fimleikum náði best-
um árangri íslensku keppendanna,
hlaut 47,6 samtals í einkunn og
hafnaði í 9. sæti. Guðjóni tókst best
upp í gólfæfingunum þar sem hann
fékk 8,9 í einkunn. Geraskov og
Larsen voru með hærri einkunn og
Henri Zondacq frá Luxemborg fékk
sömu einkunn. Þá fékk Guðjón
einnig mjög góða einkunn fyrir
stökkið, eða 8,85.
{ fjölþrautinni kepptu einnig Jó-
hannes V. Sigurðsson, sem varð í
11. sæti með 43,9. Jón Finnbogason
sem varð í 12. sæti með 36,4 og
Guðmundur Brynjólfsson sem fékk
35,1 í samanlagða einkunn og varð í
13. sæti af 14 keppendum.
I fjölþraut kvenna féllu gullverð-
launin einnig í skaut Búlgaríu. Mil-
ena Mavrodiova fékk hæsta saman-
lagða einkunn og sigraði með
37,650. Manoli Hervas frá Spáni
veitti henni harða keppni en varð að
láta í minni pokann og sætta sig við
annað sætið með einkunnina 36,913.
Þriðja varð norska stúlkan Siri Irg-
ens Larsen með 36,238.
Fjóla Ólafsdóttir Ármanni náði
bestum árangri íslensku stúlknanna,
varð í 7. sæti með einkunnina
35,000. Fjóla fékk 9,00 fyrir æfingar
sínar á tvíslá og stökkið, en jafn-
vægissláin og gólfæfingarnar drógu
hana niður.
Bryndís Guðmundsdóttir varð í 9.
sæti með 34,038 í einkunn og ís-
landsmeistarinn í fjölþraut, Linda
Steinunn Pétursdóttir varð að láta
sér lynda 10. sætið með 33,788 í
samanlagða einkunn. Lindu gekk
mjög vel í stökki og fékk 9,25 í
einkunn. Aðeins þremur efstu stúlk-
unum í fjölþrautinni tókst að ná
betri einkunn. Lindu gekk einnig vel
á tvíslánni þar sem hún fékk 9,125 í
einkunn og á jafnvægisslánni fékk
hún 8,633. í gólfæfingunum gekk
henni hins vegar ekki sem best og
einkunnin 6,750 gerði vonir hennar
um gott sæti að engu.
Ingibjörg Sigfúsdóttir lenti í 12.
sætinu með 32,738 í einkunn.
Á sunnudaginn var kepptu 6 efstu
keppendur til úrslita á áhöldum.
Fjögur áhöld hjá stúlkum og sex hjá
körlum. í karlaflokki náði íslands-
meistarinn Guðjón Guðmundsson
að komast í 1. sætið bæði í stökki og
í gólfæfingum. Guðjón deildi þar
efsta sætinu í báðum greinum með
Peter Larsson frá Svíþjóð.
í stökkinu fengu þeir 8,88 í eink-
unn, en næsti maður var Henri
Zondacq frá Luxemborg með 8,80.
Þeir Guðjón og Peter Larsson fengu
síðan báðir 9,05 í einkunn fyrir
æfingar á gólfi, en Luxemborgarinn
kom næstur með 8,90.
Á öllum hinum áhöldunum sigraði
Búlgarinn Liobomir Geraskov með
miklum yfirburðum. í hringjunum
fékk hann 9,35, á tvíslánni 9,20, á
svifránni 9,30 og á bogahestinum
fékk hann 9,25.
Manoli Hervas frá Spáni sigraði á
tvíslánni í kvennakeppninni. Þar
fékk hún 9,60 í einkunn, en næst
kom norska stúlkan Larsen með
9,313. Sú búlgarska, Mavrodieva,
varð að láta sér lynda þriðja sætið
með einkunnina 9,138.
Hún sigraði síðan í stökki fékk
9,219 í einkunn. Hervas varð í öðru
sæti með 9.169. Mavrodieva sigraði
síðan í í gólfæfingum, fékk 9,625 í
einkunn, en Hervas varð í öðru sæti
með 9,225.
Á jafnvægisslánni sigraði Hervas
með 9,225, Mavrodieva varð önnur
með 9,150.
Bestum árangri íslensku stúlkn-
anna á áhöldunum náði Bryndís
Guðmundsdóttir er hún varð í þriðja
sæti á tvíslánni með einkunnina
8,750. Linda Steinunn Pétursdóttir
varð í fjórða sæti í stökki með 8,913
í einkunn.
Mótið gekk vel í alla staði og var
skemmtilegt á að horfa. Það er ekki
á hverjum degi sem íslenskum
íþróttaáhugamönnum gefst kostur á
að fylgjast með Ólympíumeistara
leika listir sínar hér á landi, cn
vonandi verður framhald þar á.
Fimleikasantbandið á heiður skilinn
fyrir gott mót. BL
Preston. Alex Higgins, fyrrum
heimsmeistari í snóker verður ekki
meðal keppenda á heimsmeistara-
mótinu sem hefst í Sheffield í Eng-
landi 15 apríl. Higgins sem er N-íri,
tapaði í gær fyrir Englendingnum
Darren Morgan, 10-8 í undan-
keppnni fyrir HM í gær. Morgan
varð heimsmeistari áhugamanna
1987. Higgins kennir þreytu um
úrslitin og óvæntri velgengni á írska
Masters mótinu sem lauk á sunnu-
daginn. „Ég var mjög þreyttur og
varð að drekka svart kaffi allan
leikinn gegn Morgan, ég hafði aðeins
sofið í nokkra tíma,“ sagði Higgins
eftir tapið.
Madrid . Stórleikspænskuknatt-
spyrnunnar milli Barcelona og Real
Madrid um síöustu helgi lauk með
markalausu jafntefli. Færin vantaði
þó ekki í leikinn sem fram fór í
Barcelona. Real Madrid hefurnú 44
stig í deildinni eftir 26 leiki, en
Barcelona hefur 41 stig eftir 27 leiki.
Staða Madridinga er því góð og allar
líkur á að liðið vinni meistaratitilinn.
Önnur lið eru langt að baki þessum
tveimur, Celta er í þriðja sæti deild-
innar með 32 stig eftir 26 leiki.
Körfuknattleikur
NBA-deildin:
Cleveland að
missa flugið
Velgengni liðs Cleveland Caval-
iers í NBA-deildinni í vetur hefur
verið með eindæmum og það hefur
komið liða mest á óvart. Mest allt
keppnistímabilið hefur liðið verið
með hæsta vinningshlutfallið. Nú er
svo komið að liðið er ekki lengur
efst, ekki einu sinni efst í sínum riðli.
Það sem sett hefur hvað mest strik
í reikninginn hjá Cleveland er
kannski lið Detroit Pistons, sem er í
sama riðli, miðriðli austurdeildar-
innar. Detroit liðið hefur unnið
hvern leikinn á eftir öðrum og hefur
nú hæsta vinningshlutfallið í deild-
inni.
Þá gerðist það hjá meisturunum
Lakers, að þeir töpuðu tveimur
leikjum í röð á heimavelli sínum
Forum. Það voru lið Atlanta Hawks
og Chicago Bulls sem lögðu Lakers
í Forum.
Á sunnudaginn urðu úrslit þessi í
NBA-deildinni:
Philadclphia-Houston Rockcts......108-99
Chicago BulIs-N.J.Ncts ...........106-95
Clevcland-Boston Ccltics .........117-100
Atlanta Hawks-lndiana Pacers......132-109
YVashington Bullets-Goldcn St.....120-103
Dallas Mavericks-Miami Hcat ...... 98-96
Detroit Pistons-L.A.Clippcrs......* 17-101
L.A.Lakers-Milwaukee Bucks........118-117
Staðan í deildinni er nú þessi:
Austurdeildin-Atlantshafsriðill:
New York Knicks.............. 47 25 94
Philadelphia ’76ers ......... 40 31 80
Boston Celtics .............. 37 34 74
Washington Bullets........... 34 37 68
New Jersey Nets.............. 24 49 48
Charlotte Hornets ........... 17 54 34
Austurdeildin-Miðridill
Detroit Pistons.......
Cleveland Cavaliers . .
Milwaukee Bucks.......
Chicago Bulls.........
Atlanta Hawks.........
Indiana Pacers........
Vesturdeildin-Midvesturridill: Utah Jazz . 44 27 88
Houston Rockets . 39 32 78
Denver Nuggets . 39 32 78
Dallas Mavericks . 33 39 66
San Antonio Spurs 19 52 38
Miami Heat . 13 58 26
Vesturdeildin-Kyrrahafsridill:
Los Angeles Lakers . . .. 49 22 98
Phoenix Suns .... 46 26 92
Golden State Warriors .. . . . . . 40 32 80
Seattle Supersonics .... 39 32 78
Portland Trail Blazers .... .... 33 38 66
Sacramento Kings .... 22 49 44
Los Angeles Clippers .... . . . . 17 54 34
BL
53 17 106
52 20 104
44 26 88
44 27 88
43 28 86
22 49 44
Handknattleikur
Bikarkeppnin:
KR-ingar
mótherjar FH
Um síðustu helgi var dregið um
hvaða lið mætast í 8-liða úrslitum
hikarkeppninnar í handknattleik.
Síðasti leikur 16-Iiða úrslitanna var í
fyrrakvöld er KR vann KA.
í 8-liða úrslitunum mætast því FH
gegn KR í Hafnarfirði. Ármann b
gegn Val í Laugardalshöll. Haukar
gegn ÍR í Hafnarfírði og Stjarnan
gegn Gróttu í Digranesi. BL
5 leikir
í kvöld
í kvöld verða 5 leikir, eða heil
umferð á dagskrá 1. deildar karla í
handknattleik. Kl. 18.15 leika Valur
og KR að Hlíðarenda. f Digranesi
mætast síðan Stjarnan og Víkingur
kl.20.00 og í Laugardalshöll mætast
Fram og FH kl. 20.15. í Vestmanna-
eyjum leik ÍBV og UBK kl. 20.15 og
í Höllinni á Akurcyri mæta KA-
menn strákunum í Gróttu af Sel-
tjarnarnesi. BL