Tíminn - 05.04.1989, Side 20
RÍKiSSKIP
NÚTÍMA FLUTNINGAR
Hatnarhúsinu v/Tryggvogötu,
® 28822
^pánníleruomrÞa!
TOMBRÉfftWBSKIPn
SAMVINNWANKANS
SUÐURLANDSBRAUT 18. SlMI: 688568
„LfFSBJÖRG í
NORDURHÖFUM"
Útvegsbankinn Seltj.
Gíró—1990
Gegn náttúruvernd
á villigötum
PÓSTFAX
TÍMAISIS
687691
MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 1989
Verkfall hjúkrunarfræðinga í BHMR yfirvofandi:
100 sjúkra-
rúmum lokað
)
Ef verkfall BHMR kemur til framkvæmda á miðnætti
hætta háskólamenntaðir hjúkrunarfræðingar á Ríkisspítölun-
um störfum. Vegna þess ástands sem þá skapast er ljóst að
um hundrað sjúkrarúmum verður lokað og sjúklingar sendir
heim. Að sögn Davíðs Á. Gunnarssonar forstjóra Ríkisspítal-
anna koma þessar lokanir mest niður á hand- og lyflækninga-
deildum og barnadeildum, en gert er ráð fyrir að nýting á
þessum deildum verði aðeins um 40-50% í verkfallinu. Á
hverri deild eru á bilinu 20-23 sjúkrarúm. í gær leit út fyrir
að tveimur almennum handlækningadeildum, einni bæklun-
ardeild, einni barnadeild og 1 Vi lyfjadeild yrði lokað.
Þegar ljóst varð að til verkfalls
gæti komið var hætt að taka sjúk-
linga inn á biðlista vegna hjartaað-
gerða, einnig hafa ekki verið innkall-
aðir sjúklingar sem séð var fyrir að
þyrftu að liggja á spítalanum þegar
verkfallið hæfist. Eins og gefur að
skilja er ekki unnt að senda alla
sjúklingana heim sem eru á þessum
deildum en á undanförnum dögum
hefur verið unnið að því að finna
leiðir til að „þétta“ á spítalanum. Ef
til þess kemur að senda þarf sjúk-
linga heim verða það fyrst og fremst
svokallaðir hjúkrunarsjúklingar sem
verða að fara. Þar er fyrst og fremst
um að ræða aldrað fólk sem þarfnast
mikillar umönnunar.
Ljóst er að ef ekki verður búið að
leysa kjaradeilu BHMR seinnipart-
inn í dag verður mikið annríki á
Ríkisspítölunum við að útskrifa og
færa til sjúklinga. Jafnvel getur sú
staða komið upp að ekki náist að
útskrifa alla þá sem ákveðið hefur
verið að senda heim fyrr en ella
vegna verkfallsins.
138 hjúkrunarfræðingar á Ríkis-
spítölunum eru meðlimir í félagi
háskólamenntaðra hjúkrunarfræð-
inga, þar af fer 81 hjúkrunarfræðing-
ur í verkfall sem samtals skipa 58
stöðugildi. Það verða því57 háskóla-
menntaðir hjúkrunarfræðingar við
störf þrátt fyrir verkfallið. Þeirstarfa
á þeim deildum sem ekki er leyfilegt
að loka, svo sem bráðamóttöku,
gjörgæsludeild, krabbameinsdeild,
og fæðingardeild. Þess má geta að
hvað spítalana varðar er til í reglu-
gerðarákvæði neyðaráætlun þar sem
kveðið er á um hvaða deildir er skylt
að hafa opnar ef til verkfalla kemur.
Einnig getur spítalinn farið fram á
undaþágur ef ljóst er að ekki er unnt
að útskrifa alla þá sjúklinga sem
þarf.
í Blóðbankanum verður neyðar-
vakt í verkfallinu sem þýðir að
einungis verður unnt að gefa blóð á
spítölunum í neyðartilfellum og eng-
ar stærri aðgerðir verða gerðar. Til
dæmis má nefna að ef sú staða
kemur upp að sjúklingur þarf að
komast í hjartaaðgerð meðan á verk-
fallinu stendur verður að senda hann
utan.
Davíð Á. Gunnarsson varspurður
að því hvort að hugsanlegt væri að
sum þessara sjúkrarúma yrðu ekki
opnuð aftur vegna þess að bráðlega
kemur til sumarlokana á sjúkrahús-
unum. „Þetta verkfall kemur vissu-
lega upp á skringilegum tíma þar
sem nýbúið er að ganga frá mjög
umfangsmiklum sumarlokunum til
að draga úr ráðningum afleysinga-
starfsfólks eins og unnt er vegna
fyrirskipaðs sparnaðar. Það er ekki
alveg Ijóst hvernig samhengið í þessu
verður, við verðum bara að bíða og
sjá hvernig þessi mál þróast. Það er
skelfilegt að heilbrigðisþjónustan
þurfi að lifa við það að annað eða
þriðja hvert ár fari heiftúðugar
kjaradeilur í gang. Það bitnar auð-
vitað fyrst og fremst á sjúklingunum.
En auðvitað höldum við í þá von
fram á síðustu stundu að ekki komi
til verkfalls.“ SSH
11G HANDLÆKNINGADEILD 3
Likast til veröur þessan deild lokað verði af verkfalli. TímamyndrÁmi Bjarna
Fundað í Alþýðubandalaginu í kvöld um launastefnu flokksins og frádrátt Ólafs Ragnars af
fyrirframgreiddum launum BHMR. Ólafur Ragnar segir:
„Miðstjórn flokksins
er merkileg samkoma“
Lífsbjörg
í Cannes
Mynd Eddu Sverrisdóttur og
Magnúsar Guðmundssonar,
„Lífsbjörg í Norðurhöfum",
verður sýnd á kvikmyndahátíð-
inni í Cannes í vor. í kynningar-
bæklingi hátíðarinnar segir að
myndin sé ein merkasta heimilda-
mynd sem gerð hafi verið á því
ári sem liðið er frá síðustu Cannes
hátíð.
Eins og sagt hefur verið frá í
Tímanum hafa átta sjónvarps-
stöðvar fest kaup á myndinni.
Fjöldi fyrirspurna hefur borist frá
Bandaríkjunum og nokkrar sjón-
varpsstöðvar þar í landi hafa
þegar fengið send skoðunarein-
tök af myndinni.
„Lífsbjörg í Norðurhöfum“
verður sýnd í norska sjónvarpinu
í næstu viku og hafa Grænfrið-
ungar sem fyrr hótað málsókn
vegna sýningar myndarinnar.
Þann 2. maí verður myndin sýnd
í Svíþjóð í þættinum „Fréttir að
utan“. Sænskir Grænfriðungar
segjast harma að sjónvarpið ætli
að sýna myndina og segjast þeir
áskilja sér allan rétt til máls-
höfðunar. SSH
„Miðstjórn Alþýðubandalagsins
er merkileg samkoma. Þar getur
auðvitað margt gerst, en fyrst og
fremst er hún vettvangur fyrir lýð-
ræðislega umræðu í flokknum um
þau vandamál sem við erum að
glíma við. Það er fagnaðarefni að
tækifæri skuli fást til að ræða þau
flóknu og erfiðu mál sem ríkisstjórn-
in er að glíma við,“ sagði Ólafur
Ragnar Grímsson fjármálaráðherra.
Miðstjórn Alþýðubandalagsins
fundar í dag um kjaramál og ástand-
ið á vinnumarkaðnum. Þetta er sér-
stakur fundur sem boðað er til að
kröfu rúmlega þrjátíu meðlima mið-
stjórnar sem eru ósáttir við fram-
göngu formanns síns; Ólafs Ragnars
Grímssonar þegar hann lét halda
eftir fyrirframgreiddum launum
ríkisstarfsmanna sem boðað hafa
verkfall frá miðnætti í nótt.
-Þeir sem fundarins hafa krafist
hafa gagnrýnt þig fyrir að ganga
gegn stefnu og samþykktum flokks-
ins gagnvart ríkisstarfsmönnum.
„Það er byggt á misskilningi. Sú
launastefna sem ég hef fylgt og
ríkisstjórnin hefur fylgt byggist á því
að lægst launaða fólkið eigi að hafa
ákveðinn forgang. Það hefur raunar
verið kjarninn í launastefnu Alþýðu-
bandalagsins og ég á ekki von á að
það verði gagnrýnt.
Ýmsir hafa gagnrýnt það að greiða
ekki laun ríkisstarfsmannanna til
loka mánaðarins og um þá ákvörðun
hafa verið skiptar skoðanir í
flokknum. f mínum huga réði það
miklu að ég fór og ræddi það mál á
formlegum samningafundi HÍK, og
BHMR og þar komu engar athuga-
semdir fram.
í sjálfu sér skal ég ekkert segja um
lögfræðileg mótrök gegn þessari
ákvörðun og endurtek að ég hvet til
að lög um þetta efni verði skýrð með
þeim hætti að málið verði dómtekið.
Þetta er hins vegar hliðarmál.
Stóra málið er auðvitað mótun
launastefnu í landinu og framkvæmd
hennar og hvernig hún tengist við-
leitni okkar til að tryggja atvinnu og
koma á stöðugleika í efnahagslíf-
inu.“
Ólafur Ragnar sagðist á þessu
stigi ekki vilja tjá sig um hvort
launakröfur BHMR félaganna væru
raunhæfar eða ekki en hann vænti
þess að formlegar samningaviðræður
kæmust á hið fyrsta eða strax í dag.
-HÍK hefur sagt að síðustu samn-
ingar hafi í raun verið hálfkaraðir og
menn þá látið sér nægja bókanir og
viljayfirlýsingar sem ríkið hafi síðan
ekki staðið við..
„Ég setti af stað eftir að ég kom
hér í ráðuneytið, ákveðna vinnu í
þessum efnum og ég held að hún hafi
skilað þó nokkrum árangri og alla
vega sýnt vilja okkar til þess að
tryggja það að frá þessum málum
yrði gengið og ég veit að ýmis mál
sem kennarar voru mjög óánægðir
með að ekki hefðu verið leyst áður
en ég kom í ráðuneytið, hafi verið
leyst síðan,“ sagði Ólafur Ragnar
Grímsson í gærkvöldi. -sá