Tíminn - 22.07.1989, Side 4
14 Æ HELGIN Laugardagur 22. iúlí 1989
Víkingarnir kunnu
siglingafræðin sín
„Afi minn Carl V. Sölver skipstjóri kynnti sér af
sjáifsdáðum sögu siglingafræðinnar, hvernig menn fyrr
á tímum hófu úthafssiglingar, án þess að hafa landsýn
en studdust þess í stað eingöngu við sól og stjörnur.
Hann rannsakaði siglingar frá örófi alda, allt frá tímum
Fönikíumanna og Egypta og þróun siglingafræðinnar og
hvernig hún tengdist heimspeki og vísindum hvers tíma.
Fönikíumenn urðu fyrstir til að sigla eftir sól og
stjörnum án þess að hafa landsýn. Eftir að þeir höfðu
siglt fram og til baka um Miðjarðarhafið og gagnþekktu
það orðið mætavei hættu þeir sér gegnum Gíbraltarsund
og út á Atlantshafið.“
bresk stýrimannaréttindi einn ör-
fárra í veröldinni.
fræðimanna hvers tíma stæðust með
tilliti til siglingafræðinnar.
Stjörnufræði og siglingar Hagnýt víkingavísindi
Sá sem hér mælir er Niels Sölver
skipaverkfræðingur hjá danska sjó-
hernum en hann er sonarsonur Carl
V. Sölver. En hver var þessi Carl V.
Sölver? Látum nú sonarson hans
segja frá:
Strandaglópur í Japan
„Afi minn fór ungur til sjós sem
léttadrengur á seglskipi frá Helsing-
ör. Hann gekk síðar í stýrimanna-
skóla og varð stýrimaður og sigldi
meðal annars til Japans í byrjun
aldarinnar. í einni ferðinni varð
hann svo óheppinn að missa af skipi
sínu. Meðanhannvarþarnastranda-
glópur hóf hann, tilhvattur af danska
ræðismanninum í Tokyo, að læra
japönsku. Þegar hann var kominn
sæmilega inn í málið dreif hann sig í
japanskan stýrimannaskóla og tók
þaðan stýrimannspróf eftir tveggja
ára nám.
Eftir það sigldi hann sem stýri-
maður á japönskum skipum og með-
an á stríði Japana og Rússa stóð árin
1904-1905 sigldi hann með stríðs-
fanga og hermenn milli Kamtsjaka-
skaga og Japans. Að Japansdvölinni
lokinni fór hann til London þar sem
hann lærði skipstjórnarfræði og flutti
þarnæst til Kaupmannahafnar, þá
Hann var alla tíð mjög fróðleiks-
fús og aflaði sér vísindalegrar þekk-
ingar af sjálfsdáðum. Hann kynnti
sér allar kenningar vísindamanna og
heimspekinga fyrri alda um jörðina,
gerð hennar og lögun, en á þeim
hlutu vitanlega allar siglingar að
byggjast. Þá benti hann á, á hvern
hátt rannsóknir og kenningar vís-
indamanna og heimspekinga hafa
ætíð haldist í hendur við siglingar.
Þar sem hann var sjálfur sjómaður
Fyrir rúmum þúsund árum sigldu
víkingarnir eftir himintunglum og
kortum og studdust við siglingatæki,
syo sem leiðarstein sem var einskon-
ar áttaviti og sólskífu sem að sumu
leyti var frumstæður sextant, en brot
af sólskífum hafa fundist allvíða,
t.d. á Grænlandi.
Siglingafræði og staðarákvörðun-
artækni víkinganna virðist ekki hafa
náð út fyrir raðir þeirra og þeir
virðast hafa verið gersamlega ótrufl-