Tíminn - 22.07.1989, Page 11
Laugardagur 22. júlí 1989
HELGIN
21
L SAKAMÁL SAKAMÁU SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL
Vinkona gift ofbeldismanni
Hann kvaðst hafa hringt til Diane
um sexleytið en hún hefði ekki þurft
að láta gera neitt fyrir sig. Pilurinn
kvaðst ekki hafa komið nálægt hús-
inu þennan dag og nafngreindi
roskna konu sem hann hefði þá
verið að mála eldhúsið fyrir. Konan
staðfesti það.
Næst tók lögreglan minnisbók
Diane og athugaði öll nöfn þar og
ræddi einnig við ættingja hennar og
samstarfsfólk. Það bar engan árang-
ur. Hins vegar var það daginn eftir
að fram kom atriði sem vert þótti að
athuga nánar. Lögreglumenn sáu í
hendi sér að Diane McComber hafði
tekið vináttubönd mjög alvarlega.
í kommóðuskúffu hennar fannst
albúm sem hún hafði vandlega límt
í tilkynningar um trúlofanir, brúð-
kaup og bamsfæðingar sem hún
hafði fengið sendar undanfarið ár.
Flestar voru þær frá vinkonum henn-
ar og Iögreglumenn sem létu sér ekki
yfirsjást minnsta atriði, gerðu ráð
fyrir að Diane hefði við einhver
tækifæri hitt unnusta eða eiginmenn
flestra vinkvennanna. Nú var tekið
að athuga feril þeirra.
Við þá athugun kom í ljós að ein
vinkona Diane hafði árið áður gifst
manni að nafni Raymond Fitz-
williams. Er skrár Scotland Yard
voru athugaðar sást að sá hafði
tvisvar verið dæmdur fyrir árásir á
konur.
Enn jókst áhugi lögreglunnar þeg-
ar samstarfskona Diane sagði að
hún hefði farið í brúðkaupið. Þá
hefði hún hitt þennan Fitzwilliams
að minnsta kosti einu sinni.
Nú hringdi lögreglan í bankann
þar sem Fitzwilliams starfaði og bað
hann að hitta sig á kaffihúsi í grennd-
inni. Hann reyndist geðþekkur, ung-
ur maður og snyrtilega klæddur, alls
ófeiminn í fasi.
- Konan mín sagði mér á fimmtu-
daginn að vinkona hennar, Diane
McComber hefði verið myrt, sagði
hann af fyrra bragði. - Hún heyrði
það í fréttunum og varð miður sín.
Nákvæm fjarvistarsönnun
- Hittir þú einhverntíma frú
McComber? var spurt.
- Ég hitti hana í brúðkaupinu
okkar, svaraði hinn af bragði og ekki
hið minnsta óstyrkur. - Eg sá hana
víst bara einu sinni síðan. Þegar hún
gifti sig bauð hún konu minni að sjá
nýju íbúðina í Shortlands. Konan
mín hringdi síðan og bað mig að
sækja sig.
Hann kvaðst ekki hafa staðið
lengi við þá, aðeins litið yfir snotra
íbúðina en síðan hefðu þau hjón
farið.
Lögreglan íhugaði hins vegar að
hann gæti þá hafa sett á sig her-
bergjaskipan og auk þess vissi hann
hver vinnutími Diane og manns
hennar var. Komið var beint að
efninu og Fitzwilliams spurður hvað
hann hefði verið að gera umræddan
miðvikudag síðdegis.
- Ég var á kafi þá, svarapði hann
strax. - Ég fór úr bankanum um
hádegi og í viðtal vegna annars starfs
en kom aftur um hálffjögur eða svo.
Þá fór ég að heimsækja kunningja-
hjón í Sutton en þau voru ekki
heima og ég ákvað að fara til
mömmu og var hjá henni til hálfátta
eða svo. Á heimleiðinni lenti ég í
vandræðum með blöndunginn í bíln-
um og þurfti oft að stansa. Ég komst
ekki heim fyrr en undir klukkan tíu
um kvöldið.
Móðir Fitzwilliams bjó í um 40 km
fjarlægð frá morðstaðnum og talið
var að Diane hefði verið myrt um
sjöleytið. Ef frásögn hans var sönn,
gat hann ekki verið morðinginn.
Hins vegar þótti grunsamlegt hve vel
hann mundi alla tíma. Auk þess var
hann með nýlegan skurð þvert yfir
hnúa vinstri handar.
Eins og fyrir hugboð ákváðu lög-
reglumennimir þegar í stað að at-
huga þessar fjarvistarsannanir. Hjá
bifreiðaeftirlitinu fengu þeir að vita
hvernig bíl hann átti, svartan Morris.
Síðan var móðir hans heimsótt og
hún staðfesti strax að sonur hennar
hefði komið í heimsókn og dvalið
áðumefndan tíma. Hann hafði fært
henni konfektkassa. Hún var viss
um tímann.
Raymond Fitzwilliams vildi enn
reyna að sanna
karlmennsku sína og heimsótti
Diane.
Kynóður en getulaus
Þá var talað við konuna í næsta
húsi við móðurina. - Já, Raymond
heimsótti móður sína á miðvikudag-
inn, sagði hún. -Ég sá hann koma á
bílnum sínum um áttaleytið en þegar
ég leit út um klukkan tíu, var bíllinn
farinn.
- Ertu viss um að hann hafi ekki
komið fyrir átta? spurðu lögreglu-
mennirnir og nú glæddist heldur
betur áhugi þeirra.
- Ég er viss um það, því ég leit út
um gluggann um Ieið og kveikti á
sjónvaipinu til að horfa á þátt sem
byrjaði klukkan átta. Konan kvaðst
að vísu ekki hafa séð númer bílsins
en hún þekkti hann. Fitzwilliams
hefði síðan farið inn með skrautlega
innpakkaða gjöf.
Mörg eru dæmi þess að mæður
sem trúa engu illu upp á syni sína
staðfesta upplogna fjarvistarsönnun
þeirra. Verið gat líka að móðirin
væri ekki viss og tryði því sem henni
var sagt.
Þegar hér var komið veltu lög-
reglumenn fyrir sér hvernig af-
gangurinn af fjarvistarsönnuninni
stæðist. Verið gat að hann hefði búið
til þetta um blöndunginn í bílnum.
Hefði hann verið hjá Diane klukkan
sjö, gat hann hæglega verið kominn
til móður sinnar klukkutíma síðar.
Málið var allt hið undarlegasta.
í skýrslum Scotland Yard kom
fram að Fitzwilliams hafði verið
sendur til sálfræðings eftir að hann
réðst á konu í seinna skiptið. Það var
nokkrum mánuðum eftir að hann
kvæntist. Hvers vegna réðst ný-
kvæntur maður á bláókunnuga
konu? Leitað var til sálfræðingsins.
- Því miður þjáist Raymond Fitz-
williams af leiðindakvilla, sagði sá. -
Hann hefur sterka kynhvöt en er
getulaus. Það er að líkindum fremur
sálrænt en líkamlegt. Hann hefur
ráðist á tvær konur til að reyna að
sanna karlmennsku sína og ná kyn-
ferðislegri fuilnægingu.
Sálfræðingurinn sagði ennfremur
að báðar konumar hefðu verið hon-
um alveg ókunnar. Þegar þær vísuðu
honum á bug, réðst hann á þær og
reif og tætti undirföt þeirra. í báðum
tilfellum meiddi hann konumar. Þó
hann teldist lagalega heilbrigður,
hafði hann tvisvar beitt konur of-
beldi.
Föt og bíll rannsakað
Á gmndvelli upplýsinga læknisins
var fengin heimild til að leita heima
hjá Fitzwilliams og var farið þangað
meðan hann var í vinnu. Aðlaðandi
kona hans varð furðu lostin við að
heyra að hann væri grunaður um að
hafa myrt vinkonu hennar og lagði
áherslu á að þau hefðu sáralítið
þekkst.
- Við viljum sjá fötin sem maður
þinn var í þetta kvöld, sögðu lög-
reglumennirnir. Áhyggjufull konan
fór inn f svefnherbergið með svartan
púðulhund á hælunum og kom aftur
með nýhreinsuð jakkaföt. Lögreglan
tók fötin með sér og bað auk þess
um vasaklúta og fékk heila tylft af
þeim.
Að því búnu fóru lögreglumenn á
stöðina og fengu send fötin sem
Diane hafði verið myrt í. Með þau
og föt Fitzwilliams var síðan farið á
rannsóknarstofuna í Holborne.
Tæknimaður þar leit brúnaþungur
á jakkafötin. - Þau hafa ekki verið
hreinsuð, bara pressuð. Svo er að sjá
sem agnir úr öðm efni loði enn við
þau. Égskal reyna að finna eitthvað.
Nú var Fitzwilliam sóttur og sýni
tekið af munnvatni hans og honum
tilkynnt að bíll hans yrði tekinn til
rannsóknar. Þegar hér var komið
veittu yfirvöld ekki frekari upplýs-
ingar um gang málsins.
Viku síðar var svo tilkynnt að
Raymond Fitzwilliams hefði verið
formlega ákærður fyrir morðið á
Diane McComber en hann lýsti sig
saklausan. Hann yrði hafður í fang-
elsi fram að réttarhöldum.
Réttarhöldin hófust 12. apríl 1988
í Old Bailey í London. Allt fram til
þessa hélt Fitzwilliams því statt og
stöðugt fram að hann væri saklaus.
Hann svaraði spumingum verjanda
síns í réttarsalnum.
- Ég sá Diane McComber aðeins
tvisvar, í seinna skiptið í janúar
þegar ég sótti honu mína í heimsókn
til hennar. Ég fór ekki inn í íbúð
hennar þann 10. febrúar, ég réðst
ekki á hana og á engan þátt í dauða
hennar. Ég var hjá móður minni í
Surrey á þeim tíma.
Sannanir hlaðast upp
Á þeim tveimur mánuðum sem
liðnir voru frá handtökunni höfðu
lögreglumenn aflað fleiri sannana
gegn honum. Þó morðvopnið fyndist
ekki, fundust blóðblettir í hurðar-
vasa í bílnum og rannsókn leiddi í
ljós að það var samskonar blóð og
Diane.
Sækjandi sagði kviðdómi að ein-
ungis 6% af allri bresku þjóðinni
væru í þessum blóðflokki. Hann gat
sér þess til að Fitzwilliams hefði
tekið með sér blóðugan hnífinn úr
íbúðinni og stungið honum í hurðar-
vasann en síðan fleygt honum í
einhverja af ótal sorptunnum sem
voru á leið hans heim.
Fleiri sannanir voru lagðar fram.
Munnvatn í kaffileifunum í bollan-
um var sams konar og ákærða.
Aðalvitni sækjanda var tæknimaður
hjá Scotland Yard.
Hann hafði rannsakað kápu hinn-
ar myrtu og jakkaföt ákærða vand-
lega og fundið trefjar úr fötum
ákærða á grófu yfirborði kápunnar.
Slíkar trefjar fundust einnig á bleikri
slæðu sem Diane hafði átt og fannst
heima hjá ákærða.
Mikilvægasta sönnunargagnið var
þó blóðugi vasaklúturinn. Rannsókn
sýndi að megnið af blóðinu í honum
var úr Diane en nokkrir litlir blettir
voru af sama flokki og blóð ákærða.
Áður var komið fram að þegar
lögreglan hitti hann fyrst var hann
með nýlegan skurð á hendi.
Loks sagðist tæknimaðurinn hafa
fundið í vasaklútnum tvö svört
hundshár. Síðast en ekki síst var það
gerð klútsins. Hann var nákvæmlega
sömu tegundar og hinir klútarnir
sem fundust á heimili ákærða.
Þó þessar sannanir hefðu svo sem
nægt til að sakfella Fitzwilliams, var
ekki allt búið. Hann kvaðst hafa
ætlað að heimsækja hjón í Sutton á
morðdaginn sem ekki hefðu verið
heima. í ljós kom að hann hafði
raunar heimsótt unga konu í Sutton
sem hann átti vingott við. Hún gaf
sig fram og sagðist ekki hafa getað
hitt Fitzwilliam einmitt þá því hún
hefði haft annan gest.
Þyngsti dómur
Ákærandinn lagði þá tilgátu fyrir
kviðdóm að fyrst ákærði hefði ekki
hitt vinkonu sína, hefði hann farið
að hugsa um Diane McComber sem
hann hefði heillast mjög af þegar
hann hitti hana í svip skömmu áður.
Hann vissi að maður hennar var ekki
kominn frá vinnu og ók heim til
hennar um sexleytið. Diane var
kurteis, bauð morðingja sínum inn
og bar fyrir hann góðgerðir.
Kenningin var sú að Fitzwilliams
hefði farið á fjörurnar við Diane og
hún orðið hrædd, flúið inn í svefn-
herbergið, farið í kápu og ætlað að
forða sér út.
f reiði sinni elti hann hana, greip
um háls henni og reyndi að nauðga
henni. Þó hvötin væri fyrir hendi,
gat hann ekkert. Hann vissi að hún
myndi kæra hann svo hann sótti hníf
og myrti hana. Síðan ók hann til
móður sinnar í von um að fá þar
fjarvistarsönnun.
Það tók kviðdóm ekki nema
nokkrar klukkustundir að úrskurða
Raymomd Fitzwilliams sekan um
morðið. Hinn 26 ára bankagjaldkeri
var dæmdur í lífstíðarfangelsi.
NEW HOLLAND
RÚLLUBINDIVÉLAR
I\EWHOLLAi\D
Afkastamikiar og sterkbyggðar rúllubindivélar með breytilegri
stærð rúilubagga - henta flestum bústærðum.
- Fastkjarna rúllubaggar meö jöfnum þrýstingi - betri fóöurverkun.
- Breytileg baggastærö: 1,0 til 1,4 m.
- Betur lagaöir baggar sem halda betur lögun viö geymslu.
- Fastkjarna rúllubaggar rúma allt aö 36% meir en heföbundir rúllubaggar, 1,2 x 1,2m.
- Allt aö 37% færri rúllubaggar á hvern hektara.
- Lægri pökkunarkostnaöur og minni notkun bindigarns.
- NEW HOLLAND rúllupökkunarvélar hafa áralanga reynslu hér á landi.
- NEW HOLLAND rúllupökkunarvélin var prófuö af Bútæknideildinni á Hvanneyri s.l. sumar
f %*•«.:.
ARMULA 11 SIMI 681500