Tíminn - 22.07.1989, Side 12
22
HELGIN
Laugardagur 22. júlí 1989
Áhöfnin í Appolo 11. Frá vinstri: Neil Armstrong, Michael Collins og
Edwin E. Aldrin jr.
Æft fyrir tunglferð. Alþýðuskýring
á því hvers vegna geimfararnir
fóru upp á hálendið var sú að
landslagið þar væri svo Ifkt lands-
laginu á tunglinu. Hér sést hópur
geimfara á göngu upp á hæðar-
brún hjá Öskju.
Geimfarahópurinn sem kom hér hlustar á útskýringar jarðfræðinganna
Sigurðar Þórarinssonar (fremst á myndinni með húfu) og Guðmundar
Sigvaldasonar (sem snýr baki í myndavélina með hönd á lofti). Niel
Armstrong er Guðmundi á vinstri hönd með derhúfu og sólgleraugu.
Síðast liðinn fímmtudag
héldu Bandaríkjamenn upp
á það að tuttugu ár voru liðin
frá því að Neil Armstrong
steig fyrstur manna fæti sín-
um á tunglið. Þessi fyrsta
tunglganga vakti óskipta at-
hygli manna alls staðar í
heiminum á sínum tíma og
fyllti menn eldmóði og bjart-
sýni á getu mannsins á sviði
vísinda og þekkingar og fáar
hindranir virtust geta staðið í
vegi fyrir framþróun vísind-
anna.
Þetta merkisafmæli fyrstu tungl-
göngunnar hefur vakið ráðamenn í
BNA til umhugsunar um framtíð
geimferða og virkað hvetjandi á öll
slík áform. Þannig eru menn að
ræða um að koma á fót geimstöð á
tunglinu og jafnvel að senda mannað
geimfar til Mars. Raunar hefur Neil
Armstrong lýst því yfir opinberlega
að slík ferð til Mars ætti að vera eitt
af næstu verkum Bandaríkjamanna
á sviði geimferða. En geimferðir eru
dýrar og fé af skornum skammti í
ríkiskassa Bandaríkjamanna þannig
að allar áætlanir um stórvirki í
geimnum byggja á nokkurri bjart-
sýni.
Þjálfun geimfara er gífurlega um-
fangsmikið mál og það muna vafa-
laust margir íslendingar eftir því
þegar hópur bandarískra geimfara
kom tii íslands til þjálfunar á hálend-
inu, en sú þjálfum fólst ekki hvað
síst í því að geimfararnir voru að
kynna sér jarðfræði og jarðmyndanir
inn við Öskju. Síðan eru liðin um 22
ár og einn þeirra sem var í þessum
hópi var einmitt Neil Armstrong, sá
er fór fyrstur manna í tunglgöngu.
Hópurinn dvaldist hér í byrjun júlí
1967 og naut leiðsagnar jarðfræðing-
anna Sigurðar Þórarinssonar og
Guðmundar Sigvaldasonar. Talsvert
var fjallað um komu geimfaranna í
íslenskum fjölmiðlum á sínum tíma
og hittu þeir marga helstu forustu-
menn þjóðarinnar og báru geimfar-
arnir íslandi og íslendingum sérstak-
lega vel söguna. Það var mörgum
íslendingum því sérstakt ánægjuefni
að einmitt einn úr hópi þessara
geimfara varð fyrstur á tunglið. í
tilefni af 20 ára afmæli tunglgöngu
drögum við fram nokkrar myndir úr
safni okkar frá komu geimfaranna
hingað.
Hér má sjá fyrsta tunglfarann, Neil Armstrong, á tali við þá Bjarna Benediktsson, þáverandi forsætisráðherra (í miðið), og þáverandi sendi herra
BNA á fslandi, Karl Rolvaag.