Tíminn - 03.08.1989, Blaðsíða 4

Tíminn - 03.08.1989, Blaðsíða 4
4 Tíminn , Fimmtudagur 3. ágúst 1989 stjornumugavelar DEUTZ-FAHR stjörnumúgavélar KS 1.50D, lyftutengdar stjörnumúgavélar meö einni 8 arma stjörnu. Vinnslubreidd 3,3 m. Landhjól fylgja eftir [ Laus staða Jl|| heilsugæslu- læknis Laus er til umsóknar ein staða heilsugæslulæknis á ísafirði frá og með 1. nóvember 1989. Umsóknir ásamt ítarlegum upplýsingum um læknismenntun og læknisstörf sendist ráðuneytinu fyrir 1. september n.k. á sérstökum eyðublöðum sem þarfást og hjá landlækni. í umsókn skal koma fram hvenær umsækjandi getur hafið störf. Æski- legt er að umsækjendur hafi sérfræðileyfi í heimilislækningum. Nánari upplýsingar um stöðuna veita ráðuneytið og landlæknir. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið 31. júlí 1989. Eigum fyrirliggjandi takmarkaöar birgöir af DEUTZ-FAHR stjörnumúgavélum KS 150 D á ótrúlega hagstæöu verði, eöa aðeins kr. 102.450,- Hafið samband viö sölumenn okkar sem fyrst. DEUTZ FAHR MAZDA 626 GLX 2.0 ÁRG. ’88 □ Ekinn 29.000 km □ Sjálfskiptur □ □ Vökva/veltistýri □ Rafmagn í rúðum □ □ Samlæsingar á hurðum □ □ Útvarp/segulband □ □ Sumar- og vetrardekk □ Upplýsingar í síma 685582 og farsími 985-28116 LEKUR ER HEDDID BLOKKIN? SPRUNGIÐ? Viðgerðir á öllum heddum og blokkum. Plönum hedd og blokkir - rennum ventla. Eigum oft skiptihedd í ýmsar gerðir bifreiða. Viðhald og viðgerðir á iðnaðarvélum -járnsmíði. Vélsmiðja Hauks B. Guðjónssonar Súðarvogi 34, Kænuvogsmegin - Sími 84110 Verðkönnun á kjöti sýnir mikinn verðmun á „grillkjöti": 384% verðmunur á lambarifjum! Lægsta verð Júllabúð Álfheimum4 4teg. Kjötval Iðufelli 4teg. Árbæjarkjör Rofabæ9 2teg. Brekkuval Hjallabrekku 2 2teg. Hraunver Álfaskeiði 115 2teg. Kjörbúðin Laugarás Norðurbrún2 2teg. Matvöruverslun Efstalandi26 2teg. Verslunin Austurstræti 17 2teg. Hæsta verð Kjötmiðstöðin Garðatorgi 1 5teg. Hagkaup Laugavegi 59 3teg. KjötbúrPéturs Laugavegi 2 3teg. Kjötbúð Suðurvers Stigahlíð 45 3teg. Grensáskjör Grensásvegi 46 2teg. Gæðakjör Seljabraut 54 2teg. Hagabúðin Hjarðarhaga 47 2teg. Hagkaup Kringlunni 2teg. Nýigarður Leirubakka36 2teg. SS Háaleitisbraut 68 2teg. Á þessum árstíma bjóða matvöru- verslanir á höfuðborgarsvæðinu upp á fjölmargar kjöttegundir sem sér- staklega eru ætlaðar á útigrillið. Verðlagsstofnun fannst því við hæfi að gera verðkönnun á s.k. grillkjöti og öðru kjöti sem hentugt er að grilla. Var verðið kannað í um 60 versl- unum um 20. júlí s.l. og birtast niðurstöður könnunarinnar á 23 teg- undum kjöts í 13. tbl. þessa árs af Verðkönnun Verðlagsstofnunar. Kemur m.a. í ljós að mikill verð- munur er á einstökum kjöttegundum á milli verslana. ★ Mestur hlutfallslegur verðmunur var á lambarifjum. Marineruð lambarif kostuðu 70 kr./kg þar sem þau voru ódýrust en 384% meira eða 339 kr./kg þar sem þau voru dýrust. Svínarif kostuðu 215-550 kr. hvert kg (156% verð- munur). ★ Mesturverðmunuríkrónumtalið var á lægsta og hæsta verði á T-beinssteik af nauti sem var ódýrust 699 kr. hvert kg. Steikin kostaði 936 kr. meira hvert kg eða 134% meira þar sem hún var dýrust þ.e. 1635 kr/kg. ★ Sem önnur dæmi má nefna, að marineraðar lambalærissneiðar úr miðlæri kostuðu 782-1223 kr. hvert kg (56% verðmunur). Mar- ineraðar svínalærissneiðar kost- uðu 425-807 kr. hvert kg (90% verðmunur). Innanlærisvöðvi af nauti kostaði 980-1766 kr. hvert kg (80% verðmunur). Stefnt að eflingu sveitarstjórnarstigsins: NEFND KANNISTÖÐU SVEITARFÉLAG ANN A Félagsmálaráðherra hefur skipað nefnd til að kanna fjárhagsstöðu verst stöddu sveitarfélaganna í landinu og gera tillögur til úrbóta. Nefndinni er jafnframt falið að kanna orsakir versnandi fjárhagsstöðu sveitarfélaganna almennt og gera tillögur um ráðstafanir til lengri tíma. Undanfarin ár hefur fjárhagur sveitarfélaga farið mjög versnandi. Til þess liggja ýmsar orsakir m.a. miklir rekstrarerfiðleikar atvinnu- fyrirtækja og stóraukin þjónusta sveitarfélaganna án þess að tilsvar- andi tekjuauki komi á móti. Félagsmálaráðherra hefur einnig falið starfsmönnum ráðuneytisins að gera úttekt á ýmsum þáttum sveitar- stjórnarmála á hinum Norður- löndunum og taka saman greinar- gerð þar um þar sem m.a. á að koma fram hver reynslan er þar af fylkja- fyrirkomulaginu, en þessari athugun er ætlað að leiða í ljós hvort ætla megi að það henti aðstæðum hér á landi. f nefndinni eru Páll Guðjónsson bæjarstjóri og Pórður Skúlason en þeir eru tilnefndir af Sambandi ís- lenskra sveitarfélaga. Sveinbjörn Óskarsson, deildarstjóri, tilnefndur af fjármálaráðherra. Kristófer Ol- iversson, skipulagsfræðingur, til-- nefndur af Byggðastofnun og Hún- bogi Þorsteinsson, skrifstofustjóri í félagsmálaráðuneytinu, sem jafn- framt hefur verið skipaður formaður nefndarinnar. I framhaldi af starfi nefndarinnar og starfsmanna ráðuneytisins mun félagsmálaráðherra beita sér fyrir mótun tillagna um eflingu sveitar- stjómarstigsins í samráði við Sam- band íslenskra sveitarfélaga og Byggðastofnun. SSH j Cond\ |lr á skyggöum ivasðum «1111 umferö þar tll annaö vert >n ofmot ítain tracks 1 Tracks in tho shadod areas are 2 /br aff traffíc untii turther notice. Kort nr. 10 GeflB út 3. ágúst 198S- ►UMU kort verCur g*(l& ú( 16. égúst Map no. 1ÚÍ''' published 3rd olAugust 1989 Nexi map will be published lOth o/Am Vegagerö rlkisins Public Roads Administraiion NáttúruverndarráÖ Nature Conservation Cgundl <*L) tl4MM

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.