Tíminn - 03.08.1989, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 3. ágúst 1989
Tíminn 9
FRÉTTAYFIRLIT
BEIRÚT - Sérstök sendi-
nefnd á vegum Sameinuöu
þjóöanna flaug til Libanons til
aö kanna tildrög þess að
bandaríski landgönguliöinn
William Higgins var tekinn af
lífi, en hann var einn 18 vest-
rænna gísla í Líbanon. Sendi-
nefndin hyggst einnig leita
leiða til aö frelsa þá gísla sem
eftir eru og fá öfgafulla músl-
íma til að taka ekki fleiri gísla
af Iffi. Þá hefur páfinn oröiö viö
bón George Bush um aö reyna
að fá lík Williams afhent.
JÓHANNESARBORG-
Hópur lækna sniðgengur nú
lög um aðskilnaö og hefur
byrjaö að annast svarta sjúkl-
inga á sjúkradeildum sem
hingað til hafa einungis verið
ætlaðar hvítum. Er þetta einn
liöur í kosningabaráttu fyrir
kosningar sem fram fara í
næsta mánuði.
MOSKVA - Leiötogi námu-
verkamanna sem fóru í verkfall
í síðasta mánuöi í vesturhluta
Síberíu hvatti til að stöfnuö
veröi óháö verkalýðssamtök í
staö þeirra ríkisreknu, sem
hann segir úr sambandi viö
hinn almenna verkamann.
NIKOSÍA - Ali Akbar Has-
hemi Rafsanjani mun verða
settur inn í embætti forseta í
íran í dag og verður hann fjóröi
forseti landsins. Rafsanjani
sem talinn er vera í raunsærri
kantinum af hinum öfgafullu
múslímum sem fara með
stjórnina í Iran, vill aö efnahag-
ur landsins verði endurreistur
hið fyrsta og samband írana
viö umheiminn verði bætt.
Hann vann stórsigur í forseta-
kosningunum á föstudag.
BAGDAD-írakar hafa farið
fram á sérstakan leiðtogafund
Arabaríkja og að segja að
leiðtoaarnir ættu að stöðva
yfirráoSýrlendinga í Líbanon.
TOKYO - Fyrrum mennta-
málaráðherra Japans Toshiki
Kaifu virðist nú vera búinn að
ná nokkru forskoti í baráttunni
fyrir að verða næsti forsætis-
ráðherra Japans. Stjórnmála-
skýrendur segja hins vegar að
enn eigi hann eftir að berjast
nokkra hríð, áður en Ijóst verð-
ur hvort hann nær takmarki
sínu.
BELGRAD - Hundruð
námumanna af albönsku bergi
brotnir lét bænir yfirvalda í
Kosovo um að þeir hefji störf
að nýju, sem vind um eyru
þjóta. Þeir ætla að halda áfram
verkfalli sínu.
ÚTLÖND
Bandaríkjamenn bregðast við
ástandinu í Líbanon:
vígstöðu
vegna
gíslamáls
Bandaríkjamenn hafa nú
fyrirskipað fjórtán herskipum
sínum að vera í viðbragðsstöðu
vegna þeirrar spennu sem skap-
ast hefur í kjölfar mannráns
ísraela á andlegum leiðtoga Hiz-
bollah samtakanna í Líbanon og
aftöku bandaríska landgöngu-
Iiðans Williams Higgins. Hótað
hefur veríð lífláti annars banda-
rísks gísls sem verið hefur í haldi
öfgafuUra múslíma í Líbanon.
Leiðtogar hinna öfgafullu Hizboll-
ah samtaka í Líbanon hafa brugðist
harkalega við þessari vígvæðingu
bandaríska flotans og hóta öllu illu
ef Bandaríkjamenn hyggjast beita
hermætti sínum í gísladeilunni.
- Bandaríkjamenn ættu að hugsa
sig milljón sinnum um áður en þeir
ana út í heimskulegar athafnir. Það
munu engin takmörk verða fyrir
hefndaraðgerðum okkar, sagði sjeik
Abbas Musawi æðsti leiðtogi Hiz-
bollah samtakanna í Líbanon eftir
að þar fréttist að hluti bandaríska
flotans væri kominn í vígstöðu.
- Hendur okkar geta seilst mjög
langt. Við munum beita alls konar
þrýstingi... Það sem við höfum gert
hingað til hefur verið mjög milt,
sagði Musawi einnig og bætti við að
vestrænum gíslum yrði ekki sleppt
fyrr en öllum Palestínumönnum og
líbönskum múslímum sem í haldi
eru í ísraelskum fangelsum yrði
sleppt.
Varnarmálaráðuneyti Bandaríkj-
anna hefur hvorki viljað neita eða
játa því hvort viðbragðsstaða her-
skipanna fjórtán, sem flest eru í
Miðjarðarhafsflota Bandaríkjanna,
sé vegna atburðanna í Líbanon.
Hins vegar bendir allt til þess, enda
hafa Bandaríkjamenn áður stefnt
flota sínum til Miðausturlanda þegar
órói og spenna hefur aukist þar.
Níu Bandaríkjamenn eru nú í
haldi öfgafullra múslíma í Líbanon
og að auki eru átta aðrir vestrænir
menn í gíslingu.
Arens vamarmálaráðherra ísraels
skýrði frá því í gær, að ríkisstjórnin
60 farast
i bílslysi
Rúmlega sextíu manns fórust og
tuttugu og níu slösuðust þegar lang-
ferðabíll ók út í á fram af fjallavegi
á suðurhluta Filippseyja í gær. Lík
tuttugu farþega hafa fundist en um
fjörutíu er enn saknað.
Lögreglan segir að bílstjóri lang-
ferðabílsins sem var að flytja verka-
menn pappírsfyrirtækis til vinnu
sinnar hafi misst stjórn á ökutækinu
er hann reyndi að aka fram úr öðrum
langferðabíl.
hafi gert ráð fyrir því að vestrænir
gíslar gætu verið myrtir ef ísraelar
rændu sjeik Abdel-Karim Obeid
andlegum leiðtoga Hizbollah sam-
takanna. En hann sagði ísraela hafa
orðið að ræna Obeid til að fá þrjá
ísraelska hermenn leysta úr haldi.
ísraelar hafa boðist til að sleppa
Obeid og 150öðrum shítamúslímum
sem teknir hafa verið höndum í
ísrael eða á svokölluðu öryggissvæði
ísraela í suðurhluta Líbanon, ef
ísraelunum þremur og hinum vest-
rænu gíslum verði sleppt . Hizboll-
ahsamtökin hafa vísað slíku á bug.
Hluti bandaríska flotans er nú í vígstöðu vegna gíslamálsins í Líbanon.
Orrustuskipið Iowa sem hér er á leið úr höfn er meðal þeirra skipa sem létu
úr höfn í Marseille miklu fyrr en áætlað var.
AFGANISTAN:
Innbyrðis bardagar
veikja skæruliða
Innbyrðis bardagar skæruliða í Afganistan veikja nú mjög
sameiginlega baráttu þeirra gegn ríkisstjórninni í Kabúl og
hinum vel vopnaða stjórnarher. Stefnir allt í að bráðabirgða-
ríkisstjórn skæruliða sé að gliðna í sundur vegna þessa.
Gulbuddin Hekmatyar leiðtogi
hinna öfgafullu skæruliða múslíma í
Hezb-i-Islami sagði í gær að fjórir af
liðsforingjum hans hafi verið drepnir
í árás skæruliða Jamiat-i-Islami
flokksins.
Herforingi Jamiat-i-Islami er
Ahmad Shah Masood sem er valda-
Smábændaflokknum í Póllandi snerist hugur:
Kiszczak kjörinn
forsætisráðherra
Þingflokki Smábændaflokksins í
Sejm, neðri deild pólska þingsins,
snerist hugur í afstöðu sinni til
hershöfðingjans Czeslaw Kiszczak
sem gegnt hefur innanríkisráð-
herraembætti alla tíð frá því herlög
voru sett í landinu árið 1981.
Sextíu þingmenn Smábænda-
flokksins höfðu lýst andstöðu sinni
við Kiszczak sem Jaruzelski forseti
hafði tilnefnt sem forsætisráð-
herraefni. En þrátt fyrir það var
Kiszczak kjörinn forsætisráðherra
með 237 atkvæðum gegn 173 at-
kvæðum Samstöðu.
Kiszczak sagði í gær að hann
myndi leggja ráðherralista sinn og
stefnuskrá fram til samþykktar
Sejm eftir tvær vikur. Má líklegt
vera að þingmenn Smábænda-
flokksins sem fylgt hefur Kommún-
istaflokknum að málum frá því
árið 1948 fái eitthvað fyrir sinn
snúð.
Áður en Kiszczak var kjörinn
forsætisráðherra hafði Sejm sam-
þykkt að koma á fót sérstakri
rannsóknarnefnd sem kanna skal
hvort ráðherrar í fráfarandi ríkis-
stjórn Mieczyslaw Rakowski hafi
framið embættisglöp.
Ástæðan fyrir andstöðu þing-
manna Smábændaflokksins og
Samstöðu er sú að Kiszczak er
talinn of nátengdur herlögunum og
banninu við starfsemi Samstöðu
árið 1981.
mesti skæruliðaforinginn á þessum
slóðum, en hann og flokkur hans er
lítið hófsamari en hinn öfgafulli
Hekmatyar og fylgjendur hans.
Talsmaður Jamiat-i-Islami í Pak-
istan vísaði ásökunum Hekmatyar á
bug og sagði þær einungis til þess
gerðar að draga athyglina frá fjölda-
morðum skæruliða Hezb-i-islami
flokksins á þrjátíu liðsmönnum Jam-
iat-i-Islami 9. júní síðastliðinn.
Einn helsti leiðtogi Jamiat, Bu-
rhanuddi Rabbani hefur krafist þess
að Hekmatyar verði vísað úr ríkis-
stjórn skæruliða þar til rannsóknar-
réttur hafi skorið úr um hvort hann
hafi átt þátt í að skipuleggja fjölda-
morðin á skæruliðum Jamiat. Þá
krefst hann þess að Sayeed Jamal,
skæruliðaforingi Hezb-i-Islami sem
talinn er hafa staðið fyrir fjölda-
morðunum verði framseldur til sér-
staks dómstóls skæruliðahreyfing-
anna, en dómstóliinn byggir á grund-
vallarlögum Kóransins.
Leiðtogar Hezb-i-Islami hafa full-
yrt að samtökin hafi ekkert með
fjöldamorðin að gera, heldur hafi
verið um að ræða deilur einstakra
hópa, óháð skæruliðahreyfingunum.
Hezb-i-Islami samtökin hafa ekki
einungis sakað liðsmenn Masoods
um morðin á liðsforingjunum
fjórum, heldur halda þau því stað-
fastlega fram að skæruliðar Jamiat-i-
Islami hafi í þrígang ráðist á Hezb
skæruliða í norðausturhluta Afgan-
istans undanfarna fjóra mánuði. Um
það hafi verið þagað til að stefna
ekki einingu í ríkisstjórn skæruliða í
hættu.