Tíminn - 03.08.1989, Blaðsíða 11

Tíminn - 03.08.1989, Blaðsíða 11
Tíminn 11 10 Tíminn Fimmtudagur 3. ágúst 1989 Fimmtudagur 3. ágúst 1989 > ^ ' s. mmsm Mesta ferðahelgi ársins framundan: Verður ■ verður hopp verður hæ? Eftir Guðmund Steingrímsson 'HT' s x Á morgun gengur í garð mesta ferða- helgi ársins og má búast við því að nú sem endranær leggist þorri landsmanna í ferðalög og útilegur út um fjöll og firnindi. Flest bendir til góðrar verslun- armannahelgar og er ekki ástæða til annars en bjartsýni, t.d. með veður. Samkvæmt fyrstu spám Veðurstofunn- ar fyrir föstudag og laugardag verður hæg breytileg átt um allt land. Gert er ráð fyrir súld á annesjum á Norður- og Vesturlandi en bjartviðri inn til landsins. Hiti verður á bilinu 8-18 stig og þá að öllum líkindum heitast á Suðausturlandi. Þrátt fyrir ágætis veðurhorfur er um að gera að láta sér ekki verða kalt; í vikunni hefur verið óvenju mikil örtröð í gas- stöðvum sem fylla á gaskúta fyrir tjald- prímusa en þar verður líkast til mest að gera í dag og á morgun. Lögreglan verður á ferðinni Eins og aðrar verslunarmannahelgar verður lögreglan með viðbúnað svo að herlegheitin fari ekki úr böndunum. Á útihátíðum, sem og á öðrum stöðum, sér lögreglan á viðkomandi svæði um lög- gæslu en auk þess verður lögregla á ferðinni um landið og mun reyna að stjórna mikilli bílaumferð eins og best verður á kosið. „Við reynum að spila svolítið eftir hendinni og við bætum við eftir þörfum eins og við höfum mannafla til,“ sagði Sævar Gunnarsson, aðalvarðstjóri Um- ferðardeildar. Fjórir vegaeftirlitsbílar frá Lögregl- unni í Reykjavík verða á ferðinni um landið. Tveir verða á Suðvesturhorninu, einn í Húnavatnssýslum og einn á Norð- ur- og Austurlandi. Þá verða lögreglu- menn á hjólum og bílum á víð og dreif um höfuðborgarsvæðið og þyrlu Land- helgisgæslunnar mun verða flogið um landið með lögregluþjóna innanborðs. Upplýsingar um umferð verða gefnar reglulega á útvarpsstöðvum í gegnum upplýsingamiðstöð Umferðarráðs, sem verður í stöðugu sambandi við lögreglu. Ungt fólk í tjöldum um verslunarmannahelgi. Þarna var greinilega hoppað hóað og Sex skipulagðar hátíðir í ár verður boðið upp á sex útihátíðir, þ.e. Rokkhátíðina í Húnaveri, Bindindis- mótið í Galtalæk, Þjóðhátíðina í Vest- mannaeyjum, Fjölskylduhátíðina í Vík í Mýrdal, Suðurlandsskjálftann í Árnesi og Valaskjálfta ’89 á Egilsstöðum. Auk þess standa hestamenn fyrir hestamanna- móti á Vindheimamelum. Búast má við að múgur og margmenni safnist fyrir á hátíðunum, líkt og undanfarin ár. Þá er töluverður fjöldi fólks sem kýs að halda sig fjarri dægurlagahljómsveitum, spéfuglum og öðrum skemmtikröftum og vill njóta helgarinnar í sumarbústöðum eða misafskekktum stöðum út um landið. Raunin vill oft verða sú að margt fólk safnast saman á stöðum þar sem engar skipulagðar útihátíðir eru haldnar, t.d. í Þórsmörk, á Laugarvatni og Þingvöllum. Mest pantað í Þórsmörk - Samkvæmt upplýsingum frá BSÍ þarf að panta rútuferðir í Þórsmörk og Húna- ver en á aðra staði þarf þess ekki. Þó er æskilegt að menn kaupi miða á alla staðina, bæði á þá sem þarf að panta á og hina, mjög tímanlega, helst í dag, því annars er næsta víst að hlykkjóttar og langar biðraðir myndist á morgun. Sem komið er hefur mest verið pantað í Þórsmörk á BSÍ, en þess ber að geta að einnig eru seldar rútuferðir á öðrum stöðum á landinu. í Þórsmörk verða engin takmörk sett varðandi fólksfjölda í Húsadal, svæði Austurleiða, en í Langa- dal og Básum, svæði Ferðafélags íslands, er fjöldi takmarkaður við 350 manns og er svo til upppantað þangað. Á morgun verða farnar þrjár ferðir í Þórsmörk frá BSÍ, klukkan 8:30, 13:00 og 20:00. Aðra daga verða ferðir klukkan 8:30 og alla helgina verða ferðir frá Þórsmörk klukkan 15:30. Þá verður bætt við ferðum og rútum ef þörf krefur. Rútufargjald er 2400 kr. báðar leiðir og verð á tj aldstæði yfir eina nótt er 250 kr. hæað, og ruslatunnurnar ekki langt undan. Þjóðhátíðin vinsæl Ekki þarf að panta neinar ferðir á Þjóðhátíðina í Eyjum og því er ekki hægt Margir í Húnaver Mjög margir hafa einnig pantað í Húnaver og er óhætt að búast við marg- menni þar. Hljómsveitin Stuðmenn stendur að hátíðinni en auk hennar munu Bubbi Morthens, Síðan skein sól, Langi seli og skuggarnir, Geiri Sæm. og hun- angstunglið, Sniglabandið, Strax, Ný- dönsk og Ex sjá um fjörið. Þá munu einnig þrjátíu hljómsveitir bítast um titilinn Hljómsveit ’89 í hljómsveita- keppni. Aðgangseyrir í Húnaver hljóðar upp á 3950 krónur en auk þess er verð á rútuferð Rvík/Hún/Rvík 2900 krónur. Á morgun verða farnar þrjár ferðir í Húna- ver frá B.S.Í., klukkan 8:00, 17:00 og 19:00 og á laugardaginn verða ferðir klukkan 8:00 og 13:00. Ferðir til baka verða alla daga klukkan 11:30 en auk þess klukkan sjö á morgun, sunnudag, mánudag og þriðjudag. Aukaferðir verða settar upp eftir flutningsþörf og sætaferð- ir eru víðs vegar af landinu. að áætla samkvæmt tölum hversu margir fari þangað. Mikið hefur þó verið spurt um ferðir til Eyja í B.S.Í og ljóst er að þangað fara margir. Þjóðhátíðin verður sett á hádegi í dag og boðið verður upp á fjölmörg skemmti- atriði í Herjólfsdal. Bítlavinafélagið, Sál- in hans Jóns míns, Eymenn og Hljóm- sveit Einars Sigurfinnssonar leika fyrir dansi og auk þess munu fjölmargir skemmtikraftar, t.d. þeir Halli og Laddi, Ómar Ragnarsson, Jóhannes Kristjáns- son, Valgeir Guðjónsson og Bjartmar Guðlaugsson, gantast og fara með gys. Ferðir til Þorlákshafnar verða sem hér segir: Frá Reykjavík Frá Þorlákshöfn Fi. 11.00,19:30 11:00,20:00 Fö. 7:30,16:30,00:30 8:30,16:30 La. 12:30 13;30 Su. 16:30 17:30 Má. 11:00,19:30 11:00,20:30,4:30 Tímamynd Pjetur Verð inn á svæðið er 6000 kr., fargjald báðar leiðir með Herjólfi kostar 2000 kr. og ferð til Þorlákshafnar 600 kr. báðar leiðir. Fólk fer aftur og aftur í Galtalæk Bindindismótið í Galtalækjarskógi hef- ur verið haldið í mörg ár og að sögn viðmælenda Tímaris er mikið um það að sama fólkið komi þar aftur og aftur og er þá mest um fjölskyldur að ræða. Má því búast við því að fjöldi fólks verði svipaður í Galtalæk og undanfarin ár. Verð inn á Bindindismótið er 4000 kr. og fargjald í rútu báðar leiðir er 1400 kr. 13—16 ára unglingar fá 500 kr. afslátt inn á svæðið og börn yngri en tólf ára fá að fara inn endurgjaldslaust. Ferðir í Galta- læk verða á morgun klukkan 8:30, 17:00 og 21:00 og laugardag klukkan 8:30 og 13:30, aðra daga verða ferðir frá Reykja- vík klukkan 8:30. Ferðir frá Galtalæk verða alla daga klukkan fjögur og einnig klukkan eitt á mánudag. Hljómsveit Birgis Gunnlaugssonar, Busarnir, Fjörkallar, Sérsveitin og Vímu- laus æska munu sjá fólki fyrir nauðsynleg- um tónlistarskammti og einnig munu aðrir skemmtikraftar bregða á leik. Þeirra á meðal eru Ómar Ragnarsson, Jón Páll, Linda Pétursdóttir, Hálft í hvoru, Raddbandið og eftirherman Guð- björn S. Ingimarsson. Minna á aðra staði Hjá BSÍ hefur minna verið spurst fyrir um aðra staði og vekur athygli að fáir hafa sýnt áhuga á ferðum á Laugarvatn, en þar var mikið fjölmenni um síðustu verslunarmannahelgi. Samt sem áður er búist við að margir leggi leið sína þangað og til Þingvalla, eins og undanfarin ár. Ekki verður takmarkað í tjaldstæði á Laugarvatni en gæsla verður hert til muna. Þá er búist við nokkrum fjölda á Valaskjálfta ’89, Suðurlandsskjálftanum og fjölskylduhátíðinni í Vík í Mýrdal. í Vík í Mýrdal mun hljómsveitin Lögmenn spila og gestum verður boðið upp á afþreyingu af ýmsu tagi. Tjaldstæði kost- ar 500 kr. fyrir einn mann yfir eina nótt og 800 kr. fyrir tvo eða fleiri. Þá kostar 1000 kr. fyrir þá sem gista í tjaldvögnum eða í hjólhýsi. Aðgangseyrir á dansleik er 1.200 kr. og rútufargjald 1.060 kr. Farið er klukkan 8:30 á morgnana frá Reykja- vík en aukaferð verður á morgun kl. 20:00. Ferðir til baka eru kl. 15:15. Á Valaskjálfta leika hljómsveitirnar Stjórnin, Langi seli og skuggarnir, Heitar pylsur, Enginn okkar hinna, Hálfur undir sæng og Pete Suffa and the Disaster fyrir dansi. Tjaldstæði kostar 125 kr. á mann og 125 kr. fyrir hvert tjald yfir nótt. Aðgangseyrir inn á alla dansleiki er 3600 kr. Leyfilegt er að tjalda í Atlavík og verða reglulegar rútuferðir þaðan til Egilsstaða. Ferð frá Reykjavík tekur tvo daga, þar sem skipta þarf um rútu á Akureyri eða á Höfn í Hornafirði. Frá Reykjavík og Akureyri verður farið dag- lega Íclukkan 8:30 og frá Höfn klukkan 9:00. Á Suðurlandsskjálfta munu hjómsveit- irnar Kátir piltar og Rokkabillyband Reykjavíkur leika og spila, sem og Val- geir Guðjónsson, John Collins og Hjörtur Howser píanóleikari. Þá verða ýmsar fleiri uppákomur yfir helgina. Tjaldstæði kostar 250 kr. yfir nótt og aðgangseyrir á dansleik er 1200 kr. Ferðir í Árnes verða farnar frá BSÍ klukkan 18:30 á morgun, 14:00 á laugardag og 21:00 á sunnudag. Þá verða ferðir til baka á sunnudag kl. 9:45 og á mánudag kl. 17:45. Auk þeirra hátíða sem hér eru nefndar verða fjölmargar hljómsveitir með tón- leika víða um land, t.d. spila Greifarnir í Borgarfirði og Skriðjöklar og Glaumar verða í Ýdölum í Aðaldal. Náttúran erviðkvæm Um þessa ferðahelgi er megn ástæða til að brýna fyrir ferðamönnum að ganga vel um náttúruna svo ekki hljótist af spjöll, sem erfitt er að bæta. „Það vill brenna við þegar fólk kemur saman í miklum fjölda að það komi fyrir slys,“ segir Sigurður Þráinsson hjá Nátt- úruverndarráði. „Ég vonast náttúrlega til að fólk sýni náttúrunni virðingu og gangi vel um.“ Að sögn Sigurðar má alltaf bæta um- gengni, þá sérstaklega í sambandi við rusl. Ruslafötur og gámar eru nú staðsett- ir á flestum ef ekki öllum útiverustöðum og er mikilvægt að fólk noti þau áhöld. Varðandi aðra umgengni varar Sigurð- ur sérstaklega við einnota grillum sem seld eru í búðum en á þeim eru engar lappir og því geta þau valdið talsverðum skaða. „Fólk setur þetta niður á gróna jörð, kveikir í og þegar að búið er að grilla er sviðin jörð undir,“ segir Sigurð- ur. „Það er nauðsynlegt að setja þetta á sand eða annars staðar þar sem ekki er gróður.“ Þá er bannað að keyra utan vega. „Ummerki eftir hjólför sjást mjög lengi. Á mörgum svæðum eru hjólför sem komu fyrir tuttugu árum,“ sagði Sigurð- ur. „í hugsunarleysi er fólk að marka spor í náttúruna sem sjást í marga tugi ára.“

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.