Tíminn - 03.08.1989, Qupperneq 18
18 Tíminn
Fimmtudagur 3u-ágúst 1989
lllllllll IÞRÓTTIR IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIM^
Meistaramót íslands í frjálsum íþróttum:
sinn
aði 60,58 m í kringlukasti og það
dugði honum til sigurs. Eggert Boga-
son ÍR varð í öðru sæti með 54,84 m.
Súsanna Helgadóttir FH krækti í
sinn annan íslandsmeistaratitil er
hún sigraði í 100 m hlaupi kvenna.
Súsanna hljóp á 12,1 sek.
Þriðji titillinn féll Súsönnu í skaut
þegar keppt var í langstökki. í>ar
stökk hún kvenna lengst, 5,91 m.
Oddur Sigurðsson FH varð einnig
íslandsmeistari í 100 m hlaupi. Hann
hljóp á 11, 3 sek. en Einar í>.
Einarsson Ármanni varð í öðru sæti
á 11,4 sek.
Unnar Vilhjálmsson HSt> varð
íslandsmeistari í hástökki karla.
Unnar stökk 2,05 m. Gunnlaugur
Grettisson ÍR og Þorsteinn Þórsson
ÍR fóru báðir yfir 2 m.
f 400 m hlaupi kvenna vann
Oddný Árnadóttir ÍR yfirburðasig-
ur, kom langfyrst í mark á 56,3 sek.
Soffía Rósa Gestsdóttir HSK varð
fslandsmeistari í kringlukasti
kvenna. Hún kastaði 40,12 m.
Martha Emstdóttir ÍR vann sinn
annan sigur á mótinu er hún sigraði
í 1500 m hlaupi á 4:31,8 mín. Sigur
hennar í greininni var mjög öruggur.
Steinn Jóhannsson FH vann
nauman sigur í 1500 m hlaupi karla.
Steinn kom í mark á 3:58,3 mín. en
næstu tveir menn voru einnig FH-
ingar.
Landsliðið í frjálsum íþróttum
heyr nú um næstu helgi landskeppni
gegn írum í Dublin. BL
Friðrik Þór Óskarsson ÍR náði þeim merka
áfanga að sigra í 10. sinn í þrístökki á
meistaramóti íslands um síðustu helgi.
Dino Radja
samdi við
Boston Celtics
Gengið hefur verið frá samningi
milli Boston Celtics og júgóslavn-
eska landsliðsmannsins Dino Radja.
Radja gerði eins árs samning við
Boston og mun því leika með liðinu
í NBA-körfuknattleiksdeildinni í
vetur.
Radja sem er 2,08 m framherji var
einn besti leikmaður júgóslavneska
landsliðsins í nýlokinni Evrópu-
keppni, þar sem Júgóslavar urðu
Evrópumeistarar.
Ekki er enn ljóst hvort miðherjinn
Vlade Divac fær að leika með Los
Angeles Lakers í vetur, en Lakers
liðið valdi hann í háskólavalinu fyrir
skömmu. Divac er 2,13 m á hæð og
mjög fljótur miðað við hæð.
Þá hefur lið Atlanta Hawks gert
samning við sovéska landsliðsmann-
inn Alexander Volkov, sem er 2,06
m á hæð. Volkov gerði 3 ára samning
við Hawks og mun leika með liðinu
í vetur. Hawks völdu hann í 6.
umferð háskólavalsins 1986, en
Volkov varð Ólympíumeistari með
sovéska landsliðinu í Seoul á sfðasta
ári. BL
Guðmundur Sigurðsson
heimsmeistari öldunga
Um síðustu helgi fór fram í Dan-
mörku svokallað „World Masters
Games" mót, eða heimsmeistara-
keppni öldunga í íþróttum. Keppt
40-45 ára í 100 kg flokki
var í hinum ýmsu íþróttagreinum
svo sem lyftingum, frjálsum íþrótt-
um, sundi, júdó, siglingum og fleiri
greinum. Keppnin fór fram í borgun-
um Árósum, Álaborg og Herning.
Mun þetta vera í fyrsti sinn sem
haldið er heimsmeistaramót öldunga
í svo mörgum greinum samtímis.
Einn íslendingur, Guðmundur
Sigurðsson lyftingamaður, keppti á
leikunum. Guðmundur vann það
afrek að verða heimsmeistari í sínum
þyngdarflokki, 100 kg flokki, sem er
frábær árangur. Alls voru keppend-
ur í flokknum 40 talsins frá 22
löndum, þar á meðal Tékkinn Jaro-
slaw, sem er fyrrum Ólympíumeist-
ari.
Guðmundur lyfti 138,5 kg í
snörun, sem er heimsmet, hann
jafnhenti 165 kg og samtals eru þetta
300 kg. Guðmundur átti góðar til-
raunir við 175,5 kg í jafnhending-
unni sem hefði verið heimsmet, en
honum tókst ekki að lyfta þeirra
þyngd.
Sem' dæmi um umfang lyftinga-
keppninnar þá voru keppendur 180
talsins og stóð keppnin yfir í 7 daga.
Guðmundur hefur því bætt enn
einni rósinni í hnappagatið, en hann
á glæsilegan íþróttaferil að baki.
BL
Dino Radja treður knettinum í körfu Grikkja í Evrópukeppninni fyrr í
sumar. Radja mun leika með Boston Celtics í NBA-deildinni í vetur.
Öldungamót
á Hellu
Á mánudaginn kemur verður hið
árlega opna öldungamót Golfklúbbs
Hellu haldið á Strandarvelli og hefst
það kl. 8.00.
Leiknar verða 18 holur með og án
forgjafar í þremur flokkum, kvenna-
flokki 50-55 ára og karlaflokkum
50-55 ára og 55 ára og eldri.
Skráning fer fram í golfskálanum
á laugardag og sunnudag í síma
98-78208. BL
Friðrik Þór vann í 10.
Sigraði í þrístökki - stökk 14,01 m
Meistaramóti fslands í frjálsum
íþróttum lauk á Valbjamarvelli í
Laugardal á mánudagskvöld.
Keppnin hófst á laugardag þegar
meðal annars var keppt í spjótkasti
karla, en áður hefur verið sagt frá
sigri Einars Vilhjálmssonar í grein-
inni.
Spjótkastið var hápunktur
mótsins, en keppni í öðrum greinum
var einnig spennandi og árangur
góður. Á sunnudag bar keppni í
sleggjukasti hæst, en fyrirfram var
búist við íslandsmeti í greininni.
Það stóð heima því Guðmundur
Karlsson landsliðsþjálfari og
sleggjukastari úr FH stórbætti ís-
landsmet Erlendar Valdimarssonar.
Guðmundur kástaði 62,90 m. En
metið var ekki staðfest, þar sem
önnur sleggjan sem keppt var með
var of lítil. Vonandi fær Guðmundur
tækifæri til þess að ná viðlíka árangri
fljótlega, með löglegum áhöldum.
Önnur úrslit á mótinu voru sem
hér segir:
Egill Eiðsson UÍA varð íslands-
meistari í 400 m grindahlaupi, er
hann hljóp á 61,5 sek.
Gamla kempan Friðrik Þór Ósk-
arsson ÍR, sem er 36 ára gamall,
sigraði í þrístökki 10. árið í röð,
stökk nú 14,01 m. Ólafur Þór Þórar-
insson HSK var ekki langt undan,
því hann stökk 13,90 m.
f 400 m grindahlaupi kvenna varð
Helen Ómarsdóttir FH íslands-
meistari, hún hljóp á 64,8 sek.
Þóra Einarsdóttir UMSE varð ís-
landsmeistari í hástökki kvenna, er
hún lyfti sér yfir 1,75 m.
f kúluvarpi karla hafði Pétur
Guðmundsson mikla yfirburði. Pét-
ur var ekki langt frá 20 metrunum,
kastaði 19,26 m.
Birgitta Guðjónsdóttir HSK vann
öruggan sigur í spjótkasti kvenna,
kastaði 47,82 m. fris Grönfeldt
UMSB gat ekki keppt vegna
meiðsla.
Oddur Sigurðsson FH hljóp 200 m
á bestum tíma, 22,4 sek. og varð
íslandsmeistari.
í 200 m hlaupi kvenna reyndist
Súsanna Helgadóttir FH fótfráust,
en hún hljóp á 24,8 sek.
Martha Ernstdóttir ÍR varð fs-
landsmeistari í 3000 m hlaupi
kvenna. Martha hafði mikla yfir-
burði í hlaupinu og kom á mark á
rúmum 2 mínútum á undan næsta
keppanda. Martha fékk tímann
9:49,0 mín.
í stangarstökki karla sigraði Sig-
urður T. Sigurðsson FH enn eina
ferðina, stökk 4,50 m.
Ólafur Guðmundsson HSK stökk
manna lengst í langstökki og varð
fslandsmeistari. Hann stökk6,95 m.
Guðbjörg Gylfadóttir USAH sigr-
aði af öryggi í kúluvarpi kvenna,
kastaði 13,68 m.
Már Hermannsson UMSK náði
ágætum tíma í 5000 m hlaupi karla.
Már hljóp á 14:56,3 mín. en Kristján
Skúli Ásgeirsson ÍR varð í öðru sæti
á 15:05,1 mín.
FH vann þrefaldan sigur í 800 m
hlaupi karla. íslandsmeistari varð
Finnbogi Gylfason á 1;53,3 mín.
f 800 m hlaupi kvenna var mikil
keppni. Fríða R. Þórðardóttir
UMSK varð fslandsmeistari sjón-
armun á undan Margréti Brynjólfs-
dóttur UMSB. Þær fengu báðar
tímann 2:20,9 mín.
Jón Arnar Magnússon HSK varð
1/10 úr sek. á undan Stefáni Þ.
Stefánssyni ÍR í mark í 110 m
grindahlaupi karla. Jón hljóp á 14,8
sek. en Stefán kom í mark á 14,9 sek.
í 100 m grindahlaupi kvenna varð
Guðrún Amardóttir UMSK íslands-
meistari á 14,6 sek.
Vésteinn Hafsteinsson HSK kast-
Lyftingar:
Körfuknattleikur - NBA-deildin:
Golf: