Tíminn - 03.08.1989, Qupperneq 19
Fimmtbdagur3: ^gúát'1989
lllllllllllllllinillllllll ÍÞRÓTTIR
Alexander Högnason skoraöi fyrir Skagamenn í gær, en Andri Marteinsson t.v. jafnaöi fyrir Víkinga. Björn Bjartmarz t.h. fylgist með tilburðum
Alexanders. Tímamynd: Pjctur.
Knattspyrna 1. deild:
Skagamenn tveimur
mínútum frá sigri
gegn Víkingum
Víkingum tókst að jafna á næst
síðustu mín. leiksins gegn Skaga-
mönnum á Víkingsvellinum í
gærkvöld. Komið var fram yfír
venjulegan leiktíma, en Egill Már
Markússon dómari hafði bætt við
tímann vegna meiðsla í síðari hálf-
leiknum. Andrí Marteinsson átti
heiðurínn að jöfnunarmarkinu, fast
skot hans fór i varnarmann Skaga-
manna og þaðan í netið.
Leikmenn voru lengi að ná áttum
á sleipum Víkingsvellinum í
gærkvöld. Strekkingsvindur var og
rigning meðan á leiknum stóð og
leikmönnum gekk illa að hemja
knöttinn í nepjunni. Pegar líða tók
á hálfleikinn náðu Skagamenn öllu
betri tökum á leiknum. Á 30. mín.
dró til tíðinda. Aðalsteinn Víglunds-
son átti þá hörkuskalla rétt framhjá
marki Víkinga og í næstu sókn náðu
Skagamenn forystunni. Bjarki Pét-
ursson, sem átti ágætan leik í gær,
komst upp að endamörkum hægra
megin, gaf vel fyrir markið á Alex-
ander Högnason sem átti skalla í
bláhornið á Víkingsmarkinu, 1-0
fyrir ÍA.
Eftir markið lifnaði nokkuð yfir
Víkingum. Andri Marteinsson skaut
í stöng eftir óbeina aukaspyrna á
vítateig Skagamanna. Hinum megin
á vellinum átti Bjarki síðan gott skot
framhjá úr vel útfærðri sókn
Skagamanna.
Víkingar mættu mjög grimmir í
síðari hálfleikinn. Þegar á upphafs-
mínútunum áttu Víkingar 3 færi í
sömu sókninni, meðal annars þá
skaut Atli Einarsson í stöng. Skaga-
menn urðu fyrir blóðtöku skömmu
síðar. Guðbjörn Tryggvason varð
að fara af leikvelli vegna meiðsla
sem hann hlaut eftir að Goran Micic
braut á honum. Stefán Viðarsson
kom inná í stað Guðbjöms. Nokkuð
dró af Skagamönnum eftir að Guð-
bjöm fór af leikvelli og Ámundi
Sigmundsson, sem kom inná fyrir
Micic var tvívegis nálægt því að
skora um miðjan hálfleikinn.
Jöfnunarmark Víkinga lá í loftinu,
en það leit ekki dagsins ljós fyrr en
tæpar 2 mín. voru til leiksloka. Eins'
og áður segir var Andri Marteinsson
þar að verki.
Jafntefli verða að teljast sann-
gjörn úrslit í leiknum, en Skaga-
menn voru sorglega nálægt því að
sigra. Möguleikar þeirra á íslands-
meistaratitlinum eru nú nánast úr
sögunni, liðið hefur 17 stig og er 5
stigum á eftir FH og Fram. Víkingar
hafa 11 stig eins og Þór, en ÍBK og
Margt smátt
Róm. Bandaríski körfuknatt-
leiksmaðurinn Danny Ferry, sem
Los Angeles Clippers völdu í há-
skólavalinu fyrir skömmu, gerði í
gær öllum á óvart 1 árs samning við
ítalska liðið Messagero Roma.
Samningurinn markar tímamót, því
aldrei áður hefur jafn góður
Ieikmaður hafið atvinnumannaferil
sinn utan NBA-deildarinnar. Talið
er að kaupverðið á Ferry sé um 1
milljón dala, en það fékkst ekki
staðfest. Ferry var í vetur einn af
bestu leikmönnum háskólaboltans.
Kappinn er framherji 2,09 m á hæð
og lék með Duke háskólanum. Hann
var valinn númer tvö í fyrstu umferð
háskólavalsins.
Fylkir eru á botninum með 10 stig.
BL
Gelsenkirchen. Sovéski
landsliðsmaðurinn í knattspyrnu,
Alexander Borodyuk, er fyrstur
Sovétmanna til þess að leika á v-
þýsku „Bundesligunni". Hann leikur
með 2. deildarliðinu Schalke 04 og
mun leika með því liði næstu 3 árin.
Kappinn hefur leikið 19 landsleiki
fyrir Sovétríkin og er 26 ára gamall.
Tórínó. Allar líkur eru nú á því
að tveir sovéskir landsliðsmenn leiki
með liði Juventus á Ítalíu í vetur. Nú
er það hinn snjalli knattspyrnumað-
ur Sergei Aleinikov sem mun vera á
leiðinni til Tórínó-liðsins. Kaup-
verðið ku vera um 2,85 milljónir
dala og búist er við að Aleinikov geri
3 ára samning við liðið. Fyrir hjá
Juventus er sem kunnugt er lands-
liðsmaðurinn Alexander Zavarov.
t.i i.r ' i i
Tíminn
19
Knattspyrna 2. deild:
Eyjasigur
Vestmannaeyingar unnu ör-
uggan sigur á Selfyssingum í
Eyjum í gærkvöld 4-1. Ingi
Björn Albertsson náði foryst-
unni fyrir gestina í fyrri hálfleik
en Ólafur Árnason náði að
jafna fyrir hlé. í síðari hálfleik
gerðu Eyjamenn út um leikinn
með þremur mörkum á stuttum
tíma. Það voru þeir Leifur
Hafsteinsson, Hlynur Stefáns-
son og Sigurlás Þorleifsson sem
gerðu mörkin. BL
bh i a=)==|
LESJUNARÁfETLUN
Skip Sambandsins
munu ferma til íslands
á næstunni sem hér
segir:
Árhus:
Alla þriðjudaga
Svendborg:
Annan hvern þriðjudag
Kaupmannahöfn:
Alla miðvikudaga
Varberg:
Alla fimmtudaga
Moss:
Alla laugardaga
Hull:
Alla mánudaga
Antwerpen:
Alla þriðjudaga
Rotterdam:
Alla þriðjudaga
Hamborg:
Alla miðvikudaga
Helsinki:
Hvassafell........21/8
Gloucester/Boston:
Alla þriðjudaga
New York:
Alla föstudaga
Portsmouth/Norfolk:
Alla sunnudaga
Lestunarhafnir innanlands:
Reykjavík:
Alla miðvikudaga
Vestmannaeyjar:
Alla föstudaga
Húsavík:
Alla sunnudaga
Akureyri:
Alla mánudaga
ísafjörður:
Alla þriðjudaga
SKJPADE/LD
r^SAMBAND&NS
| Sambandshúsinu, Kirkjusandi '
105, Reykjavík, sími 698300
i, 1 A Á Á A A A .
!AKN IRAIJMRA 11: HNINC.A