Tíminn - 04.08.1989, Page 5
Föstudagur 4. ágúst 1989
Tíminn 5
Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir er orðin þreytt á árangurslausum óformlegum viðræðum við stjórnina og glefsi Alþyðubiaðsins:
Tökum þátt í stjórn nú,
annars ákveðna andstöðu
Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir þingmaður Borgaraflokksins
segir að annað hvort verði Borgaraflokkurinn að ganga inn í
stjórnina á næstu dögum, eða að flokkurinn verði í eindreg-
inni stjórnarandstöðu. „Það er ekki hægt að ætlast til þess að
við tökum ábyrgð á því hvað stjórnin gerir, án þess að vera
nokkrir þátttakendur í henni,“ segir Aðalheiður. „Við
munum ekki styðja stjórnina öðruvísi en að taka þátt í henni.“
Aðalheiður segir að þingflokkur-
inn hafi ekkert í höndunum til að
taka ákvörðun um. Að vísu hafi
farið fram óformlegar viðræður við
ríkisstjórnina, sem Júlíus Sólnes hafi
leitt fyrir hönd Borgaraflokksins, en
þar hafi ekki enn komið fram neitt
tilboð sem þingflokkur Borgara-
flokksins geti tekið afstöðu til.
Vissulega hafi stjórnin gert góða
hluti, tekið við á erfiðum tíma og
haft allt auðvaldið í landinu upp á
móti sér, en henni hafi veriðgefið líf
iengi og slíkt sé ekki hægt að gera
endalaust.
En skýtur það ekki skökku við að
ailir aðilar sem komið hafa nálægt
þessum þreifingum lýsa þvf yfir að
því fyrr sem að málin séu komin á
hreint þvf betra, en samt gengur
hvorki né rekur?
„Framsóknarmenn hafa lýst þvf
yfir að þeir séu tilbúnir að láta af
hendi eitt ráðuneyti, afstaða alþýðu-
bandalagsmanna er óljós, en ég hef
það á tilfinningunni að það standi
fyrst og fremst á krötum. Þeir vilja
ekkert af hendi láta. í sjálfu sér
skiptir það ekki máli fyrir okkur
hvaðan þau ráðuneyti koma sem
boðið verður upp á, verði á annað
borð af formlegum stjórnarmyndun-
arviðræðum. Hitt er annað mál að
þessi afstaða Alþýðuflokksins er
ekki heppileg gagnvart samstarfs-
flokkum hans í ríkisstjórn. Það er
engu líkara en einhverjum í stjórn-
inni sé ekki annt um að hún geti leitt
til lykta þau mál sem hún þarf að
koma að.“
Aðalheiður segir ýmislegt hafi
gerst sem hleypi illu blóði í sig og þar
á meðal það glefs sem þingmenn
Borgaraflokksins séu sífellt að fá á
sig. „Það er til dæmis talað mjög
digurbarkalega í okkár garð í Al-
þýðublaðinu,“ segir þingmaðurinn.
„Ég er ekki að segja að allir alþýðu-
flokksmenn láti svona, en áberandi
slæmur í þessum hópi er einn af
pennum Alþýðublaðsins, Guð-
mundur Einarsson, maður sem hefur
unnið það sér helst til frægðar í
stjórnmálum að urða sinn eigin flokk
áður en að hann gat gengið með
hann til kosninga. Þegar ég las nýleg
ummæli hans var ekki laust við að
mér dytti í hug það sem kona ein í
Borgarfirði sagði eitt sinn um
tengdason sinn: „Þú þykist vera heilt
húðarskinn, en ert bara hundskinns-
útnári." Þessir stráklingar sem eru
að skammast út í okkur á Alþýðu-
blaðinu tala mikið um hvað flokkur-
inn sé lítill. Þeir geta þó varla verið
svo blautir á bak við eyrun að þeir
muni ekki að Alþýðuflokkurinn var
eitt sinn rétt að segja fallinn út af
þingi. Hann lafði þó og fékk fimm
þingmenn, eða nákvæmlega jafn
marga og við erum með í dag.“
Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir segir að annað hvort verði að konia fram tilboð
frá stjórnarflokkunum, þar sem þeir lýsi því yfir hverju þeir vilji fórna til að
fá borgara í stjórn, eða viðræðum sé lokið og Borgaraflokkurinn fari í
ákveðna stjórnarandstöðu.
Hverjar eru ykkar kröfur fyrir
þátttöku í ríkisstjórninni?
„Auðvitað er alltaf samkomulags-
atriði hvað fallist verður á, í fyrsta
lagi verðum við að sjá hvað ríkis-
stjórnin er tilbúin að gefa eftir, við
höfum ennþá ekkert í höndunum
um það annað en yfirlýsingu þing-
flokks framsóknarmanna. Við höf-
um aldrei farið fram á að fá þrjá
ráðherra, en þrjú ráðuneyti. Finníst
þeim það mikið spyr ég á móti. Er
það mikið fyrir að bera ábyrgð á
einni ríkisstjórn? Annars hafa okkar
hugmyndir aðallega gengið út á að
lækka tilkostnað heimilanna, m.a.
með niðurfellingu matarskattsins.“
Aðalheiður segir að hún og Óli Þ.
Guðbjartsson hafi vissulega stutt
stjórnina á sínum tíma: Það hafi
verið með þeirra stuðningi að bráða-
birgðalögin hafi komist í gegn og
þau sjái hvorugt eftir þeirri ákvörð-
un. Vegna þess að bráðbirgðalögin
hafi komist í gegn hafi verið unnt að
úthluta fjármagni tíl byggðarlaga
sem hafi verið komin í þrot. Að
leggja þau fyrirtæki í auðn, sem
hjálpað var með aðstoð Atvinnu-
tryggingarsjóðs og Hlutafjársjóðs-
ins, hefði án efa skaðað hagsmuni
þjóðarbúsins í heild.
Þegar tekjuöflunarfrumvörp ríkis-
stjórnarinnar komu til atkvæða-
greiðslu, segir Aðalheiður að engar
aðrar tillögur til lausnar halla ríkis-
sjóðs hafi legið fyrir. Hvorki frá
Borgaraflokknum né öðrum flokk-
um. Þess vegna hafi valið staðið um
það að leggja til auknar lántökur
erlendis frá, eða styðja frumvörp
stjórnarinnar, hvort sem henni lík-
aði þau að öllu leyti eða ekki. Um
annað hafi ekki verið að velja.
-ÁG
VEIÐIHORNIÐ' llll!
Stjórn Byggðastofnunar fundar um
málefni fóðurstöðva:
Tuttugu milljónir
til fóðurstöðva
Elsti veiðimaðurinn
í Haukadalsá 84 ára
Upp úr Haukadalsá eru nú
komnir í kringum 320 laxar, sem er
um helmingi minni veiði en á sama
tíma í fyrra, en allt síðasta sumar
gaf áin 1300 laxa.
í síðustu viku gekk veiðin mjög
vel, 93 laxar veiddust í vikuholli
sem í voru útlendingar.
í vikuholli, sem hófst á laugar-
dag og hættir á morgun, hafa aftur
á móti ekki veiðst nema tólf laxar,
enda hafa þeir veiðimenn, sem nú
eru með ána, 60-84 ára gamlir
útlendingar, bara veitt á flugu og
eru ekki með neinn asa við veiðina.
Að sögn veiðivarðar eru hér
samt sem áður engir aukvisar á
ferð, „Þeir komu nú meira af
þrjóskunni við að vera með og
ánægjunni. En það aftrar þeim
ekkert frá að fara út í á, alveg sama
hvernig veður er.“
Sá elsti, 84 ára, fékk einn fisk
fyrsta daginn. Það var fallegur tíu
punda lax sem fékkst á flugu númer
sex.
Af efri ánni er það að frétta að
þrír laxar eru komnir á land og
aðeins þrjár til fjórar bleikjur, en
efri áin er aðallega bleikjuá.
Bleikjan heldur sig enn í ármótun-
um og virðist ekki ætla upp í ána.
1300 f iskar í Laxá í Kjós
„Veiðin er góð, sólin skín og
veiðimenn eru yfir sig ánægðir,“
sagði veiðivörður í Laxá í Kjós i
samtali við Veiðihornið. I byrjun
vikunnar var róleg veiði í ánni en
. nú virðist vera farið að glæðast.
Það eru nogar göngur og iaxinn
hefur dreift sér vel um alla á; „það
er fullt af fiski í hverjum pytti.“
Heildarveiðitalan í Kjósinni er nú
tæplega 1400 fiskar.
Góð síðsumarveiði
í Laxá í Dölum
Laxá í Dölum er nú komin upp
í tæplega 400 fiska. Seinni partur-
inn í síðustu viku var ágætur í ánni
og einn daginn komu 39 laxar á
land. Alla síðustu viku, í einu
holli, veiddust 103 fiskar. Með
meiri sól fór veiðin svo minnkandi
og útlendingaholl, sem byrjaði á
sunnudaginn og stendur í viku,
hefur ekki gengið jafn vel og þeir
sem voru á undan þeim.
Á sama tíma í fyrra var Laxá í
Dölum með um 600 fiska og allt
árið voru þeir 2400. Það má segja
að veiðin ætti að fara að byrja hvað
úr hverju því síðsumarveiðin er
yfirleitt mjög góð í ánni. Fyrstu tíu
dagana á eftir útlendingatímabilið
í fyrra, þegar ekki hafði verið veitt
á maðk í mánuð, veiddust um 600
laxar. Það er veitt alveg til 20.
september, en veiðin byrjaði 20.
júní, svo að tímabilið er rétt
hálfnað. GS
Á fundi stjórnar Byggðastofnunar
2. ágúst voru málefni loðdýraræktar
í landinu til umræðu. Þarsamþykkti
stjórnin m.a. að heimila greiðslu á
20 milljóna styrk til fóðurstöðva í
ágúst og september. Þá var einnig
samþykkt heimild til forstjóra til að
veita 5 m.kr. skammtímalán til nýrra
rekstraraðila gjaldþrota fóður-
stöðva.
Forstjóra Byggðastofnunar var
heimilað að greiða starfandi fóður-
stöðvum samtals tuttugu milljónir
króna í styrk vegna fóðurframleiðslu
á tímabilinu 20. ágúst 1989 til 31.
Stjórn Iðnlánasjóðs hefur ráðið
Braga Hannesson bankastjóra for-
stjóra Iðnlánasjóðs og mun hann
taka við því starfi síðar á þessu ári.
Iðnlánasjóður er sjálfstæð
stofnun. en Iðnaðarbankinn hefur
séð um daglegan rekstur hans. Bragi
hefur, annast framkvæmdastjórn
sjóðsins síðastliðin fimnt ár fyrir
októbér 1989. Miða skal við að
greiða stöðvunum styrk á hvert
framleitt og selt kíló þannig að
stöðvarnar geti selt bændum og lax-
eldisfyrirtækjum fóðrið á lægra
verði.
Þá verður einnig sérstaklega fylgst
með þeim fóðurstöðvum sem kunna
að lenda í verulegum rekstrarerfið-
leikum á þessu ári. Komi til gjald-
þrota fóðurstöðva er forstjóra heim-
iit að lána nýjum rekstraraðilum allt
að 5 milljónum króna í skammtíma-
lán til að tryggja afhendingu fóðurs
til bænda. -ÁG/SSH
nú með sameiningu Iðnaðarbankans
og Útvegs,- Verslunar- og Alþýðu-
banka. Margskonar starfsemi sem
Iðnaðarbankinn hefur séð um flyst
nú til sjóðsins.
Bragi Hannesson er lögfræðingur.
Að loknu námt 1958 starfaði hann
sem framkvæmdastjóri Landssairi-
bands iðnaðarmanna, en hefttr verið
bankastjóri Iðnaðarbanka ísiands
frá árinu 1963.
Á vatnasvæði Flókadalsár í Fljótum hefur veiðin verið góð á köflum. Nú
eru rúmlega 50 laxar komnir á land, en þess ber að geta að veiöin byrjaði
seint. Niels Hermannsson, sem er gamaU Fljótamaður, var við veiðar í
ánni á dögunum og sést hér árangur veiðimennskunnar yfir einn dag; sjö . |
iaxar og einn urriði.
Bragi til Iðnlánasjóðs