Tíminn - 15.08.1989, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 15. ágúst 1989
Tíminn 3
Undirbúningur íslenska landsliðsins fyrir A-keppnina í Tékkóslóvakíu að hefjast:
Undirbúningur og þátt-
taka kosta 20 milljónir
Áætlað er að undirbúningur og þátttaka íslenska landsliðs-
ins, í A-flokki í heimsmeistarakeppninni í handknattleik, sem
fer fram í Tékkóslóvakíu í febrúar og mars á næsta ári muni
kosta tæplega 20 milljónir króna.
Þær tekjur sem Handknattleiks-
samband íslands hefur af auglýsing-
um og sölu aðgöngumiða nægja ekki
fyrir þessum kostnaði og því verða
handboltamenn að leita fleiri leiða
til að leysa þetta fjárhagsdæmi ef
ísland á að vera áfram meðal átta
bestu handboltaþjóða í heimi eins
og stefnt er að.
Sú fjáröflun sem farið var af stað
með eftir B-keppnina í Frakklandi
tókst ekki nægilega vel. Um 4,5
milljónir söfnuðust frá um 12% allra
heimila í landinu. Eftir þann góða
árangur sem náðist í keppninni og
þann mikla áhuga sem var á henni
höfðu handboltamenn vonast eftir
meiri stuðningi. Ef sérhver íslend-
ingur leggur fram 100 krónur hefur
Handknattleikssambandið 25 millj-
ónir en það er sú upphæð sem
sambandið þarf á að halda. Hand-
knattleikssambandið er með fleiri
jám í eldinum en A-keppnina því
unglingalandsliðið stendur einnig í
keppnum og þarf á fjármunum að
halda.
„Við vonum að þjóðin viiji eiga
landslið á heimsmælikvarða sem taki
þátt í Ólumpíuleikum og heims-
meistarakeppnum og það gerist ekki
að sjálfu sér,“ sagði Jón Hjaltalín
Magnússon formaður Handknatt-
leikssambands íslands, í samtali við
Tímann. „Það verður að undirbúa
liðið eins og atvinnulið og það verður
að aðstoða leikmenn svo að þeir bíði
ekki fjárhagslegt tjón af. Þeir verða
að geta einbeitt sér að verkefninu.
Tii þess þurfum við fjármagn. Enn
sem komið er höfum við ekki fengið
neitt vilyrði frá Ólympíunefnd ís-
lands um fjármagn hvorki á þessu né
á næsta ári þó að þetta sé okkar eina
tækifæri til að vinna okkur þátttöku-
rétt á Ólympíuleikunum. Við vonum
þó að það verði nú á næstunni."
Jón sagði að þegar væri búið að
gera áætlun um landsleiki og æfingar
fyrir keppnina. Fyrstu leikirnir verða
við Austur-Þjóðverja á Akureyri 6.
september og í nýja íþróttahúsinu í
Garðabæ daginn eftir. Bandaríkja-
menn koma hingað í æfingaferð um
svipað leyti. Dagana 8.-9. október
tökum við þátt í fjögurra landa
keppni í Sviss þar sem ísland, Sviss,
Austur-Þýskaland og Sovétríkin
keppa. í desember verða landsleikir
en enn er ekki ákveðið hvaða þjóðir
verða þar á ferðinni nema hvað
Norðmenn koma milli jóia og nýárs.
í janúar verður keppt við Tékka og
í byrjun febrúar hefst lokaundirbún-
ingur undir A-keppnina en fyrsti
leikurinn er við Kúbu 28. febrúar.
Auk Kúbu og íslands eru Júgóslavía
og Spánn með okkur í riðli.
„Þessi riðill er erfiður eins og allir
riðlar í þessari keppni. Við höfum
leikið marga leiki við Spánverja og
Júgóslava og þetta eru leikreynd lið
og mjög sterk. Við höfum oft leikið
við þau áður og eigum jafna mögu-
leika á móti þeim. Kúbumenn eigum
við að geta unnið. í milliriðli gætum
við lent á móti Sovétríkjunum, Pól-
landi og Austur-Þýskalandi. Þar eig-
um við raunhæfa möguleika á móti
tveimur síðastnefndu þjóðunum en
Sovétmenn eru sterkari en við, enn
sem komið er.“ Jón Hjaltalín sagði
að allir þeir leikmenn sem keppt
hefðu fyrir íslands hönd í B-keppn-
inni í Frakklandi yrðu með í undir-
búningi fyrir A-keppnina en auk
þess myndu nýir menn verða með.
Fyrir þá sem vilja styrkja Hand-
knattleikssambandið er rétt að geta
þess að gírónúmer sambandsins er
305030. -EÓ
Frá undirritun samningsins í gær.
Tímamynd: Ámi Bjama
Félag íslenskra stórkaupmanna og Versl-
unarráö íslands sameina skrifstofur sínar:
í eina „sæng“
til hagræðis
Samningur um sameiningu á skrif-
stofum Félags íslenskra stórkaup-
manna og Verslunarráðs fslands frá
næstu áramótum hefur verið undir-
ritaður. Af sameiningunni vænta
menn hagræðingar, aukinnar þjón-
ustu og markvissari vinnubragða.
T.d. munu þau fyrirtæki sem stutt
hafa bæði samtökin njóta lækkunar
félagsgjalda þar sem almennt félags-
gjald verður framvegis aðeins greitt
til eins aðila. Til viðbótar þurfa þeir
sem stunda inn- og útflutning að
greiða kjaramálagjald.
Um 450 fyrirtæki eru í VÍ og 320
í FÍS. Þar af eru 140 fyrirtæki í
báðum samtökunum. En gert er ráð
fyrir að aðrir félagar FÍS öðlist
félagsréttindi í VÍ og jafnframt að
félagar VÍ, í inn- og útflutningsversl-
un gerist félagar í FÍS, sem m.a. fer
með kjaramál fyrir hönd félags-
manna sinna. Formönnum FfS og
VÍ er ætlað að annast sameiginlega
yfirstjórn hinnar sameinuðu skrif-
stofu og skiptast á um forystu, sex
mánuði í senn.
Reynslutími samningsins er tvö ár
og stefnt að því að nýta þann tíma
til frekari þróunar á samstarfinu. í
því felst m.a. að öðrum samtökum
verslunarinnar verði boðin þátttaka
í samstarfinu.
Til sameiginlegu skrifstofunnar
eiga framvegis að renna allar tekjur
FIS og VÍ aðrar en tekjur af eignum
og Félagsheimilasjóði verslunarm-
anna. Skrifstofan skal hvorki yfir-
taka eignir né skuldir FÍS og/eða Vf
og fjárhag hennar skal halda aðskild-
um frá fjárhag þeirra félaga. -HEI
Selfoss:
Þríryfir140
Lögreglan á Selfossi stöðvaði
fimmtíu ökumenn fyrir of hraðan
akstur á Suðurlandsvegi um helgina,
þar af voru þrír sviptir ökuskírteini.
Á aðfaranótt laugardags og á laugar-
dag keyrðu sextán ökumenn yfir 110
km hraða, þar af var einn á 143 km
hraða og var hann sviptur ökurétt-
indum.
Á sunnudag gómaði lögreglan níu
ökumenn á ólöglegum hraða og var
einn glanninn á 145 km hraða og
hraði annars mældist 144 km. Þeir
voru báðir sviptir ökuskírteinum.
Þá voru fjórir teknir ölvaðir við
akstur á Selfossi um helgina. Einn
þeirra keyrði að auki of hratt. GS
Maður á ferð við fossinn Glym:
Féll 15 metra
Þyrla Landhelgisgæslunnar var
send til Hvalfjarðarbotns síðdegis á
sunnudag þar sem ferðamaður lá
slasaður eftir að hafa fallið um 15
metra niður í gil við fossinn Glym.
Maðurinn var þarna á ferð ásamt
hópi af fólki og mun hafa verið að
klifra upp gilið. Hann fótbrotnaði og
meiddist á baki. GS
Flugdreki hrapaði
Lítill vélknúinn svifdreki hrapaði við enda flugbrautarinnar. Flug-
við flugvöllinn í Aðaldal síðdegis í manninn sakaði ekki, en véldrekinn
gær. Svifdrekinn var rétt nýkominn er mikið skemmdur. GS
í loftið þegar hann steyptist niður
Próf laus unglingur
ölvaður við akstur
Tveir ökumenn voru gripnir ölv-
aðir við akstur á aðfaranótt sunnu-
dags á ísafirði. Annarökumannanna
var fjórtán ára gamall piltur og því
vitaskuld próflaus. Hinn var með
skírteini upp á vasann, en því miður
ölvaður og því hefur hann þar eflaust
veifað lítt verðmætum snepli. GS
Hreindýr á 240 þús.
ODIN AIR, flugfélag Helga Jóns-
sonar býður nú íslenskum veiði-
mönnum upp á fimm daga hrein-
dýraveiðiferð til Grænlands fyrir
tæplega 240 þúsund krónur. Innifal-
in er leiðsögn þriggja grænlenskra
veiðimanna, gisting í tjöldum og
matur.
Flogið er frá Reykjavík til Nuuk í
Grænlandi og þaðan farið í bátsferð
á veiðislóðir. Auk hreindýrs er heim-
ilt að veiða, fjóra refi og ótakmark-
aðan fjölda héra, fugla, laxa og sil-
unga. Veiðimenn þurfa ekki að eiga
byssur, eða fjárfesta í þeim að auki
fyrir túrinn, þær er hægt að fá
lánaðar. ÁG
mjóu slitlagi (einbreiöu)
þurfa báðir bílstjórarnir
aö hafa hægri hjól fyrir
utan slitlagiö viö
mætingar.
ÚUMFERÐAR
RÁÐ
Heildarupphæð vinninga
12.08. var 7.750.559,-.
5 höfðu 5 rétta og fær hver
kr. 904.991,-
Bónusvinninginn fengu 8
og fær hver kr. 59.813,-.
Fyrir 4 tölur réttar fær hver
5.002,- kr. og fyrir 3 réttar
tölur fær hver um sig 326,-
kr.
Sölustaðir loka 15 mínútum fyrir útdrátt í
Sjónvarpinu.