Tíminn - 15.08.1989, Síða 5
i v i' : *'• % * ■*. rrri t’Si'J
Þriöjudagur 15. ágúst 1989
Tíminn 5
Frá skrúðgöngu á íslendingadeginum 7.ágúst. Vigdís sat í skrúðvagni, dregnum af hestum, ásamt formanni hátíðarnefndar, Lornu Tergeson.
Tímamyndir: GE
Vigdís í Kanada
Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, lauk velheppn-
aðri heimsókn sinni til Kanada í síðustu viku. I ferðinni hitti
forsetinn m.a. að máli landsstjóra og forsætisráðherra
Kanada og heimsótti ýmsa markverða staði.
Vafalaust má segja að hápunktur eg og Gimli, þar sem hún var á
heimsóknarinnar hafi verið viðtaka
Vigdísar á heiðursdoktorsnafnbót
við Háskólann í Manitoba. Þá verð-
ur þátttaka hennar í hátíðarhöldum,
þegar íslendingadagurinn var hald-
inn í 100. skipti, lengi í minnum
höfð, sem og viðdvöl hennar á
slóðum Vestur-íslendinga í Winnip-
báðum stöðum gerð að heiðursborg-
ara.
Heimsóknin til Kanada stóð yfir í
tíu daga. Vigdís kom til Winnipeg
4.ágúst, en áður hafði hún víða
komið við og m.a. heimsótt hús
Stephans G. Stephanssonar, skálds.
Forsetinn heimsótti íslendinga bú-
setta í Silkirk, Arborg og fleiri
stöðum í grennd við Winnipeg á
þeim dögum, sem hún dvaldi þar.
Síðasta dag heimsóknarinnar,
mánudaginn 7.ágúst, var íslendinga-
dagurinn haldinn hátíðlegur og var
þá mikið um að vera. Fulltrúi
Tímans, Guðjón Einarsson, var á
staðnum og gefur hér að líta myndir
frá þessum stórviðburði og öðrum
atburðum í heimsókn Vigdísar til
Manitoba. GS
Þann 5.ágúst tók Vigdís Finnbogadóttir við heiðursdoktorsnafnbót við Háskólann í Manitoba. Hér sést forsetinn
við athöfnina.
Svavar Gestsson, menntamálaráðherra, slóst í för með Vigdísi í Manitoba. Hér má sjá Svavar ásamt konu sinni,
Jónínu Benediktsdóttur, í skrúðgöngunni.
Forsetinn í ræðustól á Íslendingadeginum.
Vigdís gróðursetur plöntur í Gimli.