Tíminn - 15.08.1989, Blaðsíða 13
Þriðjudagur 15. ágúst 1989
Tíminn 13
GLETTUR
- Þaö hlýtur aö vera eitthvaö að
hjónabandi okkar, Jónatan. Allir
kunningjar okkar eru skildir, en við
höngum alltaf saman.
- Burt með þig. Viö höfum ekki
pantað neinn gluggaþvottamann.
- Jón ína. Getur þú ekki komið til
m í n aftur. Ég verð að viðurkenna
að skilnaðurinn hefur alveg farið
með mig, ég hef ekkert aðdrátt-
arafl lengur.
- Þetta er hús tengdamóður
minnar. Hún heyrir illa.
Ioc-róR
- Viðbrögð þín virðast vera í góðu
lagi.
Tvífari Michaels Jackson
er stúlka!
Það eru margir sem liafa
reynt að herma eftir hinum
heimsfræga Michael Jackson,
söngvara og dansara. Hér
sjáum við eina eftirhermuna,
en það er brasilísk stúlka,
Rosengela Praseres, 27 ára
dansari.
Rosengela skemmtir í næt-
urklúbb í París og er þar fullt
kvöld eftir kvöld og henni
klappað lof í lófa fyrir söng
og dans, þar sem hún stælir
Michael Jackson á mynd-
bandinu „Thriller".
Rosengela er ekki aðeins
góður dansari heldur hefur
hún náð gervi Michaels svo
vel að áhorfendur geta varla
trúað öðru en þeir séu að
horfa á hinn eina og sanna
Michael Jackson.
Hinn raunverulegi Michael
Jackson
Rosengela Praseres í gervi Michaels
750
punda
gælu-
dýr!
Á hamingjudögum Victoriu Herbertu með Jeffrey Jerome, sem þarna er 750 pund á þyngd
Gæludýr eru til af ýmsum
gerðum og stærðum, -en fáir
eiga líklega stærra gæludýr
en hún Victoria Herberta í
Houston í Texas. Það er stórt
svín, sem hún nefnir Jeffrey
Jerome, um 750 pund á
þyngd.
Victoria hefur nú orðið fyr-
ir þeirri sorg, að Jeffrey henn-
ar hefur verið gerður útlægur
úr borginni. Það var nýr nág-
ranni sem klagaði fyrir yfir-
völdunum, og „reglur eru
reglur," sagði lögmaður borg-
arinnar, þegar Victoria kvart-
aði við hann.
Tekinn með valdi
frá matmóður sinni
Victoria segir að Jeffrey
hafi verið tekinn með valdi
frá heimili sínu og fluttur á
bóndabýli um 200 km frá
Houston.
„Jeffrey bjó í húsinu með
mér, átti sína eigin litlu sund-
laug, og gekk örna sinna á
afviknum stað í garðinum, en
skotið hans var þrifið þrisvar
á dag. Hann borðaði manna-
mat, fékk pylsur, pizzur,
ávaxtasafa og brauð o.fl. en
byrjaði aldrei að matast fyrr
en ég hafði sagt honum að
gera svo vel,“
„Hagar sér sem mann-
eskja en ekki sem dýr,“
segir Victoria
um Jeffrey sinn
„Jeffrey veit ekki að hann
er svín. Hann varð dauð-
hræddur við spegilmynd sína,
svo ég tók alla stóra spegla úr
húsinu," segir eigandi
dýrsins. Hún segist vera viss
um að honum finnist hann
vera manneskja, því að hann
umgekkst aðeins menn en
ekki dýr.
„En úti á búgarðinum líður
Jeffrey hörmulega illa. Hann
er hræddur við aðrar
skepnur, og vill ekki matinn
sinn - og hann saknar mín,“
segir Victoria með klökkri
röddu. Hún bætir því við, að
Jeffrey hafi verið 750 pund
þegar hann var tekinn frá
henni, en hafi horast í útlcgð-
inni svo hann er kominn niður
í 600 pund.
Jeffrey kunni
margar kúnst-
ir og Victoria
lánaði hann til
að skemmta á
góðgerðasam-
komum í Ho-
uston, sem
voru haldnar
til ágóða fyrir
heimilisiaust
fólk. Hér bítur
Jeffrey í súkku-
laðistykki á
móti Victoriu