Tíminn - 15.08.1989, Qupperneq 14
14 Tíminn
Þriðjudagur 15. ágúst 1989
FRÉTTAYFIRLIT
VARSJÁ — Czeslaw Kisz-
czak forsætisráðherra Pól-
lands sagðist ekki geta mynd-
að starfhæfa ríkisstjórn og hef-
ur formaður Sameinaða
bændaflokksins, Roman Mal-
inowski, fengið umboð til
stjórnarmyndunar. Sameinaði
bændaflokkurinn hefur unnið
náið með kommúnistum í fjóra
áratugi, en gefur nú Samstöðu
undir fótinn.
NIKOSÍA — Ali Khamenei
andlegur leiðtogi Irana réðst
mjög harkalega á Bandaríkja-
menn og sagði að viðræður við
þá um gíslamálið væri ekki á
döfinni á meðan Bandaríkja-
menn styddu ísraela.
BELFAST — Þjóðernissinn-
aðir óróaseggir rændu strætis-
vögnum og settu upp logandi
götuvígi til að minnast þess að
20 ár eru liðin frá því ao breskir
hermenn voru sendir til Norð-
ur-irlands.
STOKKHÓLMUR — Sov-
étmenn hafa boðið ættingjum
Raouls Wallenbergs til Moskvu
og virðast Sovétmenn nú loks
ætla að leggja fram sönn-
unargögn um það hver örlög
þessa sænska aðalsmanns
urðu. Wallenberg bjargaði að
minnsta kosti 20 þúsund ung-
verskum Gyðingum úr klóm
nasista í síðari heimstyrjöld.
Sovétmenn handtóku Wallen-
berg er þeir hertóku Ungverja-
land og hefur ekkert til hans
spurst eftir það.
KABUL — Utanríkisráðherra
Afganistan sagði að ríkis-
stjórnin í Kabúl væri að undir-
búa aljajóðlegan þrýsting á
Bandaríkjamenn og Pakistana
svo þessir aðilar hæfu að nýju
friðarviðræður um Afganistan.
HONG KONG - Yfirvöid í
Hong Kong hafa vísað á bug
ásökunum Sameinuðu þjóð-
anna um að hluti hinna 50
þúsund flóttamanna frá Víet-
nam lifi við aðstæður í Hong
Kong sem ekki séu hundum
bjóðandi.
MANILA — Corazon Aquino
forseti hafnaði tilboði skæru-
liða kommúnista um friðarvið-
ræður annað hvort í Genf eða
í París.
Illllllilllllllllllllll ÚTLÖND
Flóttamenn frá Beirút streyma tU suðurhluta Líbanon undir vemdarvæng ísraela. Ef fer sem horfir mun Beirút
verða rústir einar innan skamms.
Indland:
Mannfækkun
vegna kyn-
þáttaátaka
Nokkur mannfækkun hefur verið
undanfarna fjóra daga innan Bodo
og Assamesa kynþáttanna sem búa
á norðausturhluta Indlands. Ástæð-
an eru harkaleg kynþáttaátök, en að
minnsta kosti hálft annað hundrað
manna hafa fallið í bardögum ætt-
bálkanna undanfarna daga.
Bodo fólkið krefst aðskilnaðar frá
Assamhérði og vill stofna eigið
sjálfstjórnarhérað innan Indlands.
Segja skæruliðar Bodoa að Assam-
esar níðist á þeim.
Bardagarnir um helgina brutust út
eftir að skæruliðar Bodoa brenndu
inni einn stjómmálaleiðtoga hins
ráðandi stjórnmálaflokks í Assam-
héraði, ásamt fjölskyldu hans allri.
Eftir það logaði allt í átökum og var
herinn sendur á staðinn til að stöðva
átökin.
Beirút brátt
rústir einar
Mikið mannfall í árásum Sýrlendinga á yfirráðasvæði
kristinna manna í Líbanon:
Beirút verður brátt rústir einar ef ekki verður lát á
gegndarlausum sprengjuárásum Sýrlendinga og fylgismanna
þeirra á hverfi kristinna manna í borginni og hefndarskothríð
kristinna á hverfi múslíma. Bardagar helgarinnar hafa verið
gífurlega harðir og mannfall mikið.
Að venju eru það óbreyttir borg-
arar sem blæða fyrir hernaðarað-
gerðir herforingjanna, en þó mun
mannfall innan hersveita hafa verið
meira nú en endranær vegna þess að
sýrlenskar hersveitir gerðu áhlaup á
stöðvar kristinna manna í fjöllunum
við Beirút.
Örstutt hlé varð á stórskotahríð-
inni um miðjan dag í gær og gátu
íbúar Beirútborgar náð sér í vatn og
vistir jafnframt því að grafa nokkur
þeirra líka sem liggja eins og hráviði
um borgina. Er talið að hátt á annað
hundrað manns hafi fallið í Beirút
undanfarna þrjá sólarhringa. Stór-
skotahríðin hófst síðan aftur seinni
partinn og flúðu borgarbúar þá aftur
í sprengjubyrgin.
Undanfarna mánuði hafa átökin
fyrst og fremst verið stórskotaliðs-
árásir á báða vegu, en á sunnudaginn
gerðist það í fyrsta sinn í langan tíma
að hersveitum laust saman í bar-
daga. Þá gerðu Sýrlendingar árásir á
tvær hernaðarlega mikilvægar hæðir
sem kristnir menn hafa á valdi sínu
utan við Beirút. Búast menn nú við
því að slíkir bardagar muni brjótast
út að nýju og að Sýrlendingar freisti
þess að ná landsvæðum af hersveit-
um kristinna manna, þrátt fyrir að
nokkurt mannfall hafi orðið í liði
þeirra um helgina.
Kristnir menn hafa styrkt varnar-
línur sínar og segir Micel Aoun
forsætisráðherra þeirra og yfirmaður
hersveitanna að kristnir menn muni
ekki hætta bardögum fyrr en sýr-
lenskar hersveitir séu á brott frá
Líbanon. Aoun gaf lítið fyrirtilraun-
ir Frakka sem sent hafa sendifulltrúa
til höfuðborga Arabaríkja til að
freista þess að koma á friði í Líban-
on. Segir Aoun að stríðið í Líbanon
verði ekki útkljáð með samningum,
heldur afli.
Tugir þúsunda borgara hafa notað
þau hlé sem orðið hafa á stórskota-
liðsárásum til að flýja Beirút og
halda til suðurhluta Líbanon þar
sem ísraelar hafa lýst yfir sérstöku
öryggissvæði. Þar telur fólk sig
öruggt undir verndarvæng ísraelskra
hersveita og hersveita kristinna
bandamanna þeirra.
Um helgina ákváðu fsraelar að
skrá allar bifreiðar á öryggissvæðinu
og telja að með því verði hægara að
koma í veg fyrir sjálfsmorðsárásir
öfgafullra Shíta á ísraelskar her-
flutningalestir.
Súdan:
Hungraðir
fá lang-
þráðan mat
Lest hlaðin 1500 tonnum af
hjálpargögnum er nú á leið til
hungursvæðanna í suðurhluta
Súdan þar sem skæruliðar hafa
barist af mikilli hörku gegn
stjórnarhernum. Vonast starfs-
menn Hjálparstofnunar Samein-
uðu þjóðanna að skæruliðar muni
láta hjálparlestina í friði, en tvær
hjálparlestir hafa þegar verið
rændar á þessum slóðum.
Ríkisútvarpið í Súdan skýrði
frá því að það tæki lestina fimm
daga að komast til bæjarins Awiel
sem er á valdi stjórnarhersins.
Fimmtíu vagnar eru í lestinni og
eiga fimmtán þeirra að fara til
bæja sem eru á valdi skæruliða.
Frá því herstjórn sú er nú
ræður ríkjum í Súdan komst til
valda í byltingu í maí hefur
dregið úr bardögum, en stjórnin
hefur lofað skæruliðum sakar-
uppgjöf.
Talið er að um 250 þúsund
manns hafi látist úr hungri í
suðurhluta Súdan á síðasta ári og
keppast hjálparstofnanir nú við
að koma í veg fyrir slíka hungurs-
neyð á þessu ári.
Deilur um aðskilnaöarstefnuna í Suður-Afríku draga dilk á eftir sér:
Fjúkandi reiður
Botha segir af sér
Kynþáttamorð
í Azerbaijan
Enn svífur vofa dauðans vegna
kynþáttahaturs yfir Nagonro-
Karabakh. Þrátt fyrir að fjöldi
hermanna reyni að halda röð og
reglu í héraðinu og í Azerbaijan
öllu, þá berast fréttir af mannfalli
vegna kynþáttaátaka þar sem
Armenar og Azerar berjast með
heimatilbúnum vopnum og
sprengjum. Ekki er Ijóst hve
mikið mannfall varð í átökum um
helgina, en vitað er að dauðsföll
urðu.
Opinberlega hafa rúmlega
hundrað manns fallið á undan-
förnum átján mánuðum, en sumir
telja mannfall mun meira. Rúm-
lega 150 þúsund Azerar héldu í
mótmælagöngu í Baku höfuð-
borg Azerbaijan og kröfðust þeir
aukins aðskilnaðar frá Moskvu-
valdinu og full yfirráð yfir Nag-
orno- Karabakh.
P.W. Botha sagði af sér
embætti forseta Suður-Afr-
íku í miklu fússi í gær eftir að
ríkisstjórn Þjóðarflokksins
fór fram á að hann léti af
embætti „vegna heilsu-
brests“. Ástæðan er hins veg-
ar harkaleg viðbrögð Botha
við þeirri ákvörðun F.W. de
Klerks formanns hins ráð-
andi Þjóðarflokks að ræða
við Kenneth Kaunda forseta
Zambíu um aðskilnaðar-
stefnuna.
- Ég endurtók að ég mun ekki
segja af mér með lygar á vörunum
og ég hef samþykkt að segja af mér
forsetaembætti og mun afsögn mín
taka gildi 15.ágúst 1989, sagði Botha
eftir að hann hafði skýrt frá áskorun
ríkisstjórnarinnar til hans um að
hætta „af heilsufarsástæðum".
Botha lagði áherslu á að heilsufar
hefði ekkert með afsögn hans að
gera, heldur væri það óþolandi að
ráðherra í ríkisstjórn hans skuli
ræða við þjóðhöfðingja annarra
ríkja án þess að hann gefi slíkt leyfi.
De Klerk formaður Þjóðarflokks-
ins mun að líkindum taka við for-
setaembættinu þar til forsetakosn-
ingar hafa farið fram í september-
mánuði, en De Klerk er talinn
öruggur með að verða kjörinn forseti
þá. Bqtha hefur hatast við De Klerk
frá því hann tók við embætti for-
manns Þjóðarflokksins í byrjun árs-
ins og ekki skánaði hatrið þegar
Þjóðarflokkurinn valdi De Klerk
sem frambjóðanda sinn til komandi
forsetakosninga.
De Klerk hefur lofað að lina á
aðskilnaðarstefnunni í Suður-Afr-
íku nái hann kjöri sem forseti. Það
var á þeim forsetum sem Kenneth
Kaunda féllst á að ræða við svo
háttsettan embættismann frá Suður-
Afríku.