Tíminn - 15.08.1989, Side 15
Þriðjudágur 15. ágúst 1989
Tíminn ib
1111111111111 ÍÞRÓTTIR ' ^ !l:i!
Atli Kinarsson Víkingur þakkar Sævari Jónssyni fyrir sjálfsmarkið. Einar Páll Tómasson varnarmaður Vals og Bjarni Sigurðsson markvörður eru ekki ýkja
hrifnir af framvindu mála. Tímamynd pjeiur.
Knattspyrna 1. deild:
Glæsimark hjá Micic
Víkingar unnu langþráðan og
glæsilegan sigur á Valsmönnum 2-1
í Vfldngsvellinum á sunnudags-
kvöld. Leikurinn var mjög fjörugur
og skemmtilegur, en heldur var
gæfan á bandi Vikínga, því hvert
áfallið rak annað hjá Valsmönnum í
leiknum.
Valsmenn áttu fyrsta færið í leikn-
um er Sigurjón Kristjánsson skaut
framhjá úr góðu færi á 9. mín. Stuttu
síðar fékk Atli Einarsson svipað færi
hinum megin á vellinum en hitti ekki
markið. Víkingar sóttu mjög þessar
fyrstu mín. leiksins og hvert færið
rak annað. Á 22. mín. gaf Goran
Micic fyrir frá hægri og Sævar Jóns-
son Valsmaður spyrnti knettinum
með tilþrifum í eigið mark. Sævar
hugðist spyrna framhjá, en að baki
honum var Víkingur í dauðafæri.
Næstu mín. héldu Víkingar áfram
að sækja, en þegar líða tók nær
leikhléinu færðust Valsmenn í auk-
ana. Sævar skaut í stöng 33. mín. og
eftir skalla Atla Eðvaldssonar í slá á
41. mín. fylgdi Sigurjón vel á eftir og
skallaði knöttinn í markið og jafnaði
1-1.
Ekki höfðu lifað nema 10 mín. af
síðari hálfleik þegar Valsmenn urðu
aftur fyrir áfalli. Guðmundur Bald-
ursson sparkaði einn leikmanna Vík-
ings niður og Magnús Jónatansson
dómari átti ekki annars úrkosti en að
sýna Guðmundi rauða spjaldið,
enda hefði hann áður litið það gula.
Einum færri börðust Valsmenn af
- krafti, en Víkingar náðu tökum á
leiknum. Ámundi Sigmundsson
skaut í stöng á 63. mín. og stuttu
síðar skaut Andri rétt framhjá. Vals-
menn fengu tvívegis þokkaleg færi
undir lok leiksins en þeir Baldur
Bragason og Þórður Bogason hittu
ekki markið.
Nokkrum mín. fyrir leikslok
gerðu Víkingar út um leikinn. Atli
Einarsson gaf hælsendingu á Goran
Micic sem þrumaði knettinum efst í
markhornið á Valsmarkinu, óverj-
andi fyrir Bjarna Sigurðsson. Vík-
ingar fögnuðu innilega í leikslok
enda höfðu þeir ástæðu til. Vals-
menn vilja áreiðanlega gleyma þess-
um leik sem fyrst, enda greinilega
ekki þeirra dagur á sunnudaginn.
Knattspyrna 1. deild:
Skuggalegt
á Akureýri!
Frá Jóhannesi Bjarnasyni, íþróttafréttarítara
Tímans á Akureyrí:
Ausandi rígning og þokuslæðing-
ur gerðu aðstæður erfiðar þegar Þór
og Keflavík mættust á föstudags-
kvöld í geysflega mikilvægum fall-
baráttuleik. í síðarí hálfleik var síðan
orðið rökkvað og erfitt að fylgjast
með hvað átti sér stað á vellinum.
En jafntefli varð niðurstaðan og það
voru sanngjörn úrslit.
Júlíus Tryggvason náði forystunni
fyrir Þór í fyrri hálfleik með marki
úr vítaspyrnu, en Keflvíkingar svör-
uðu tvívegis fyrir sig í fyrri hluta
síðari hálfleiks og þar voru að verki
Ingvar Guðmundsson og Freyr
Sverrisson. Árni Þór Árnason
tryggði Þór síðan jafntefli með fal-
legu marki 5 mín. eftir mark Freys.
Leikurinn var á köflum ágætlega
leikinn en lifir þó lengst í minning-
unni fyrir sakir undarlegrar dóm-
gæslu Guðmundar Ingvarssonar.
Hann gerði þó rétt þegar hann sýndi
Jóhanni Júlíussyni rauða spjaldið 15
sek. fyrir leikslok, en dæmdi í heild-
ina afleitlega. JB/BL
Enn tapar Fylkir
Fylkismenn voru óheppnir að tapa
fyrir Skagamönnum í Skipaskaga á
laugardag. En þeir nýttu ekki færíð
og Skagamenn sigruðu 1-0.
Haraldur Ingólfsson gerði sigur-
markið eftir um hálftíma leik. Fall-
barátta Fylkismanna fer nú að
harðna verulega eftir þennan ósigur
og margt sem bendir til þess að liðið
nái ekki að halda sæti sínu í deild-
inni. BL
Knattspyrna 2. deild:
ÚRSLIT
Selfoss-Stjarnan ...............1-3
Leiftur-ÍBV.....................0-2
Tindastóll-Breiðablik...........3-3
Einherji-Völsungur .............2-3
Staðan í
2. deild:
Víðir . 13 9 2 2 19-11 29
Stjarnan . . . . 12 9 1 2 28-12 28
Vestm.eyjar . . 11 8 0 3 26-16 21
Breiðablik . . . 13 5 4 4 28-22 19
Selfoss .... . 12 6 0 5 14-21 18
Leiftur .... . 12 3 4 5 10-13 13
ÍR . 12 3 3 6 14-18 12
Einherji .... . 11 3 2 6 17-29 11
Völsungur . . . 13 3 2 8 18-30 11
Tindastóll . . . 13 2 2 9 19-23 8
Knattspyrna 1. deild:
Sanngjarnt jafntefli
í leik toppliðanna
BL
Knattspyrna 1. deild:
Toppbaráttuslag Framara og FH-
inga í 1. deildinni í knattspyrnu lauk
með markalausu jafntefli á Laugar-
dalsvellinum í gærkvöld. Leikurinn
Knattspyrna 2. deild:
Víðir á
toppinn
Tveir leikir voru í 2. deildinni í
knattspyrnu á gærkvöld. Víðismenn
unnu Tindastól í Garðinum 1-0 og á
Kópavogsvelli unnu Breiðabliks-
menn 1-0 sigur á Völsungum. Víðis-
menn eru þar með komnir í efsta
sæti deildarínnar.
Leikjum Leiftursmanna og Sel-
fyssinga og Einherja og Stjörnunnar
sem vera áttu í gærkvöld var frestað
vegna þess að ekki viðraði til flugs.
BL
var fjörugur og spennandi og fjöl-
margir áhorfendur fylgdust með
leiknum.
Framarar fengu fyrsta færi leiksins
þegar á 1. mín. en Pétri Ormslev
mistókst að hitta markið. Þegar líða
tók á hálfleikinn náðu FH-ingar
tökum á leiknum og sóknarlotur
þeirra voru mun hættulegri en sóknir
Framara. Hörður Magnússon komst
tvívegis í góð færi undir lok hálfleiks-
ins, í fyrra skiptið skaut hann yfir úr
nokkuð þröngri stöðu, en í síðara
skiptið varði Birkir Kristinsson
meistaralega með úthlaupi eftir að
Hörður hafði komist einn í gegnum
vörn Fram. Uppúr hornspyrnunni
sem fylgdi í kjölfarið björguðu
Framarar á marklínu.
FH-ingar höfðu áfram góð tök í
leiknum í síðari hálfleik og Guð-
mundur Valur Sigurðsson átti
hörkuskot í varnarmann Fram og
framhjá á 53. mín. eftir stórsókn
FH-inga. Framarar voru ekki langt
frá því að jafna á 61. mín. er Ragnari
Margeirssyni tókst ekki að ná skoti
á mark FH, en Pétur Arnþórsson
náði knettinum og skaut framhjá.
Framarar náðu tökum á leiknum
þegar á leið og þungar sóknir þeirra
skullu á vörn FH. Á 67. mín.
björguðu FH-ingar naumlega í horn
eftir stórsókn Fram og 10 mín. síðar
bjargaði Ólafur Jóhannesson FH-
ingur á línu eftir hornspyrnu. Á
síðustu mín. leiksins voru FH-ingar
nálægt því að gera sjálfsmark, en
knötturinn fór framhjá stönginni.
Uppskeran varð því eitt stig til
beggja liðanna, en sigur í þessum
leik hefði komið sér mjög vel fyrir
bæði liðin. FH-ingar voru betri aðil-
inn í fyrri hálfleik, en Framarar í
þeim síðari. Jafntefli verður því að
teljast sanngjörn niðurstaða.
Liðin hafa nú bæði 23 stig á toppi
deildarinnar, KA og Valur hafa 21
stig, KR og IA hafa 20 stig, Víkingur
14, Þór og ÍBK12 stig og á botninum
sitja Fylkismenn með 10 stig. BL
Víti í súginn
KA-menn gerðu jafntefli við
KR-inga á KR-vellinum á laugar-
dag. Leikurinn var ekki mikið fyrir
augað, lítið um opin færí og strekk-
ings vindur setti mark sitt á leikinn.
KA-menn sóttu mun meira í
fyrri hálfleik og heimamenn áttu í
vök að verjast. Meðal annars
björguðu KR-ingar einu sinni á
marklínu.
En þremur mínútum fyrír leikhlé
dró heldur betur til tíðinda. Bjami
Jónsson komst inní sendingu
Gunnars Oddssonar aftur á Þor-
finn markvörð, Þorfinnur renndi
sér á knöttinn og felldi Bjama í
leiðinni. Engin hætta var á ferðum
þvi knötturínn var víðs fjærri mark-
inu. En brot er brot og brot innan
vítateigs þýðir vítaspyma. Þorvald-
ur Örlygsson skoraði úr vítinu, en
Eyjólfur Ólafsson dómarí lét
endurtaka vítið, þar sem Jón Grét-
ar Jónsson KA-maður fór of fljótt
inní teiginn. Þorvaldur tók víta-
spyrnuna öðra sinni, skaut í sama
liorn, en nú varði Þorfmnur mark-
vörður glæsilega.
Leikurinn var í jafnvægi í síðari
hálfleik lítið um færi og undir lokin
virtust bæði liðin sætta sig við
jafnteflið, þótt það þýddi í raun tap
fyrir bæði liðin.
Rúnar Kristinsson var langbest-
ur KR-inga ■ þessum leik, en hjá
KA stóð Bjami Jónsson sig mjög
vel. BL