Tíminn - 17.08.1989, Qupperneq 5

Tíminn - 17.08.1989, Qupperneq 5
Fimmtudagur 17. ágúst 1989 Tíminn 5 Magnús L. Sveinsson: Held að I ífeyrissjóðirnir hljóti að verða að endurskoða samningana við Húsnæðisstofnun: Oþolandi að fólk fái ekki þessa peninga „Ég held að lífeyrissjóðirnir hljóti að þurfa að endurskoða samninga sína um framlög til Húsnæðisstofnunar. Það var samið um þessi skuldabréfakaup, 55% af ráðstöfunarfé sjóðanna, í þeirri trú og vissu að peningarnir færu beint í Byggingarsjóð ríkisins og þaðan beint í Ián til húsbyggjenda. Síðan kemur í Ijós, að á sama tíma og talað er um nokkurra ára bið eftir lánum hefur Húsnæðisstofnun safnað hátt í öðrum milljarði króna á bók í Seðlabanka. Þetta er alveg forkastanlegt," sagði Magnús L. Sveinsson formað- ur Verslunarmannafélags Reykja- víkur, er Tíminn spurði hann álits á ráðstöfun Húsnæðisstofnunar á fjár- munum frá lífeyrissjóðunum. AllirLV. peningarnir á bók? Magnús situr jafnframt í stjóm annars stærsta lífeyrissjóðs landsins, Lífeyrissjóðs verslunarmanna. Þess má geta að sá sjóður hefur keypt hátt í fimmtung allra skuldabréfa Húsnæðisstofnunar. Má því gera ráð fyrir að hann kaupi skuldabréf af stofnuninni fyrir hátt í tvo milljarða króna á þessu ári - eða ekki langt frá þeirri upphæð sem stofnunin geymir nú á „bókinni" sinni góðu í Seðl- abankanum. „Fólkið sem er að byggja og kaupa íbúðir er félagar í lífeyrissjóð- unum og á því sjálft þessæ peninga sem Húsnæðisstofnun fær frá lífeyr- issjóðunum. Það er því vitanlega óþolandi að þetta fólk fái ekki peningana - sem þarna em til staðar - og þurfi þess í stað að vera að bjarga sér með mjög óhagstæðum bráðabirgðalánum. Þetta gerir hús- næði þess miklu dýrara vegna þess að þeirra eigin peningum er safnað á bók í Seðlabankanum. Þetta er hreinlega fyrir neðan allar hellur að mínu áliti. Þessir peningar sem Húsnæðisstofnun fær frá lífeyris- sjóðunum eiga að sjálfsögðu að fara beint í lánveitingar til fólksins," sagði Magnús. Ljóst að ekki liggur á bréfakaupum Hann benti á að lífeyrissjóðunum hafi m.a.s. verið legið á hálsi fyrir að láta peningana ekki renna nógu hratt til Húsnæðisstofnunár. „En það verða ekki lengur séð að nokkur rök hafi legið þar að baki úr því að stofnunin bara safnar peningunum inn á bók í Seðlabankanum. Liggi hundmð og jafnvel þúsundir millj- óna af fjármagni lífeyrissjóðanna þar inni á bókum þá liggur lífeyris- sjóðunum vitanlega ekkert á að kaupa bréf Húsnæðisstofnunar - það liggur alveg ljóst fyrir,“ sagði Magnús. Mörgum þeirra sem fylgjast með húsnæðismálum býður í gmn að sjóðnum safni Húsnæðisstofnun m.a. í þeim tilgangi að vera viðbúin að kaupa sín eigin húsbréf ef svo illa færi að markaður fyrir þau reyndist ekki eftir vonum „skapara“ húsbréfakerfisins. ... í kringum samningana? „Húsnæðisstofnun hefur ekki samið um neitt annað við Iífeyris- sjóðina en það að peningamir frá Magnús L. Sveinsson. þeim fæm beint í útlán frá Bygg- ingarsjóði ríkisins. Með annarri ráð- stöfun þeirra væri því verið að fara í kringum samningana við lífeyris- sjóðina. Komi sú staða upp þyrfti vitanlega að endurskoða alla samn- inga við Húsnæðisstofnun, því þá væri peningum lífeyrissjóðanna var- ið í allt annað lánakerfi heldur en samningar hljóðuðu upp á. Fjárfesti lífeyrissjóðimir í húsbréfum er að sjálfsögðu miklu eðlilegra að þeir kaupi bréfin beint á verðbréfamark- aði heldur en að þeir láni Húsnæðis- stofnun fé sem hún síðan notaði til kaupa á húsbréfum. Það er ekki inni í myndinni. ... alveg óþolandi Reyndar sýnist mér að lífeyris- sjóðimir þurfi nú þegar að endur- skoða samninga sína við Húsnæðis- stofnun úr því að peningarnir renna ekki til þeirra sem samið var um að þeir rynnu til - húsbyggjenda og íbúðarkaupenda. Fjöldi þeirra er í vandræðum vegna þess að þeir þurfa að bíða í 2-3 ár eftir láni á sama tíma og hátt í tveir milljarðar liggja inni á bók. Þetta er alveg óþolandi," segir Magnús L. Sveinsson. - HEI EgwnflMBHflHHaSi „Fjársjóðurinn“ sem tvær stúlkur grófu upp úr leiði í fyrradag. Afgangurinn af stoinu skartgripunum er ekki fundinn. Lögreglan hefur þó kannað hvort fleiri pokar af skarti væru grafnir í kirkjugarðinum, en svo var ekki. runamynd: pjctur Skartgripirnir í kirkjugarðinum: Aðeins lítill hluti þess sem stolið var Þorgrímur Jónsson, gullsmiður, staðfesti í gær við Rannsóknarlög- reglu ríkisins, að skartgripunum, sem fundust í kirkjugarðinum við Suðurgötu á þriðjudag, hefði verið stoUð úr gullsmíðastofu hans, að Laugavegi 20b, aðfaranótt 28. októ- bers 1988. Þorgrímur bar kennsl á alla gripina, nema gullarmband, sem h'klega er þá ættað annars staðar frá. Þrátt fyrir að verðmæti þýfisins skipti hundruðum þúsunda, eins og Tíminn greindi frá í gær, er Ijóst, að það er aðeins lítill hluti þess sem stolið var úr Gullsmíðastofu Þor- gríms þessa umræddu nótt. Talið er, að þá hafi horfið úr stofunni skart- gripir að verðmæti um þrjár milljónir íslenskra króna á útsöluverði, og er þá miðað við verðlag á þeim tíma. Þeir sem þarna voru að verki seildust aðallega eftir gripum í dýrari kantinum, þ.e. demantshringjum og demantsskreyttum hálsmenum. Inn- brotið mun hafa verið með þeim hætti, að einn eða margir þjófar fóru inn um glugga á bakhlið hússins og síðan inn í gullsmíðastofuna með því að brjóta leið í gegnum hurð. Hún hafði ekki verið notuð áður sem inngangur og því var þiljað fyrir hana að innanverðu. Þar á eftir munu þjófamir hafa flett bakinu af eldföstum peningaskáp, sem hafði að geyma ýmsa verðmætari hluti. Þaðan tóku þeir talsvert magn af gullhringjum með demantssteinum, einkum karlmannshringi, og mikið af hálsmenum, skreyttum demönt- um. Þá höfðu ræningjamir á brott með sér talsvert af smíðagulli og þrjú lítil glös af hættulegri sým, sem notuð er við gullsmíðar. Eins og áður segir er aðeins lítill partur af stolnu verðmætunum kom- inn í leitimar. Tíminn hefur fyrir því óstaðfestar heimildir, að tveir karlmenn, sem viðriðnir em innbrot- ið, hafi komist með megin hlutann af þýfinu úr landi. Skartgripimir, sem stúlkumar tvær grófu upp úr leiðinu, em nú eign þess tryggingafélags sem bætti tjónið. Þær reglur gilda hjá trygg- ingafélögum, að þegar stolnir hlutir finnast, sem áður er búið að bæta, skal krafist þess að viðkomandi aðili kaupi þá aftur til sín, eftir að sannað þykir að þeir tilheyri honum og séu ekki ónýtir. Skartgripimir vom flest- ir óskemmdir og því kaupir Þorgrím- ur þá að öllum líkindum til sfn aftur. GS Norræni fjárfestingarbankinn: Landsvirkjun fékk 40 millj. dollara að láni Landsvirkjun hefur tekið lán í Norræna fjárfestingarbankanum að fjárhæð 40 milljónir dollara eða um 2.400 milljónir íslenskra króna á núverandi gengi. Lánið er til 15 ára og endurgreiðist með jöfnum hálfs- árslegum afborgunum að liðnum fyrstu 5 ámm lánstímans. Vextirem breytilegir en verða til að byrja með 8,7% á ári. Þetta lán er það stærsta sem Norræni fjárfestingarbankinn hefur veitt ísienskum aðila frá upp- hafi. Lánsfénu verður að hálfu varið til að fjármagna framkvæmdir Landsvirkjunar við Blönduvirkjun og að hálfu til að greiða upp eldri lán með óhagstæðari kjörum. Norræni fjárfestingarbankinn hefur fjár- magnað allmargar framkvæmdir á íslandi. Stærstu upphæðirnar hafa farið til framkvæmda í orkumálum. Lánveitingar bankans til íslands á ámnum 1988-89 nema nú, að með- töldu þessu láni, samtals 11,5 míllj- örðum íslenskra króna á núverandi gengi. -EÓ GuðmundurFrímann skáld er látinn Látinn er á Akureyri Guðmund- urFrímann skáld. Guðmundurvar fæddur 29. júlí 1903 að Hvammi í Langadal í A-Húnavatnssýslu. Guðmundur lauk prófi frá Iðn- skóla Akureyrar, varð meistari í húsgagnasmíði og lauk sveinsprófi í bókbandi. Hann starfaði sem iðnaðarmaður á Akureyri 1930- 39, kennari í Reykholti 1939-41 og bókbindari á Akureyri 1941-51. Síðar var hann lengi kennari við Gagnfræðaskóla Akureyrar. Guð- mundur hlaut styrk úr Rithöfunda- sjóði Ríkisútvarpsins fyrstur manna. Eftir Guðmund liggur fjöldi bóka sem hafa að geyma ljóð, ljóðaþýðingar, smásögur og fleira.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.