Tíminn - 17.08.1989, Side 8
8 Tíminn
SUF-SIÐAN
Fimmtudagur 17. ágúst 1989
SAMBAND UNGRA FRAMSÓKNARMANNA
Þing NCF í Pemar í Finnlandi:
Umhverfismál mál málanna
Umhverfismál voru mál mál-
anna á árlegu sumarþingi NCF sem
haldið var í bænum Pemar sem er
rétt utan við borgina Ábo eða
Turku á vesturströnd Finnlands
síðustu vikuna í júlí. Samband
ungra framsóknarmanna sendi
fimm manns á þingið, þau Hall
Magnússon sem er varaformaður
NCF, Steingerði Önnu Gunnars-
dóttur, Kristján H. Kristjánsson,
Skúla Skúlason og Hrannar Magn-
ússon.
En hvað er nú NCF? Jú, NCF
stendur fyrir Nordiska Centerung-
domens Forbund, sem útleggst á
íslensku til dæmis Samband norr-
ænnar miðjuæsku. Svona til að
einfalda málið, þá eru þetta ung-
liðahreyfingar miðjuflokka á
Fulltrúar á aðalfundi NCF í Pemar í Finnlandi fylgjast í andakt með
Norðurlöndum, einskonar norræn-
ir framsóknarmenn.
Það voru sænskumælandi Finnar
sem sáu um sumarþingið að þessu
sinni. Samtök þeirra nefnast
Svensk Ungdom (SU) og hafa þau
náið samstarf við Nuoren Keskut-
an Liitto (NKL) sem eru ungliða-
samtök finnskumælandi miðju-
manna. Frá Svíþjóð kemur Cent-
ems Ungdomsförbund (CUF) og
frá Noregi Senterungdommens
Mengunin virðir
engin landamæri
pnrtnmvtinoii no oö Irnmn í vno áhersla á hina miklu óan sem stafa
Landsförbund (SUL). Hins vegar
eru engir Danir með í samtökun-
um, en NCF hefur átt samstarf
með ungliðasamtökum Venstre og
Radikal Venstre. Þá hafa samtökin
nýlega komist í samband við um-
hverfisvemdarsinna í Eystrasalts-
lýðveldum Sovétríkjanna og von-
ast til að eiga með þeim áhugavert
samstarf um umhverfismál á næstu
ámm.
Eins og kemur fram í yfirskrift
þessa pistils, þá em umhverfismál
eitt helsta baráttumál NCF. Að
auki hafa samtökin lagt áherslu á
valddreifingu, þróunarhjálp og
baráttu gegn kjamorku. Hefur
NCF meðal annars safnað fé til að
byggja bókasafn í Tansaníu og
framundan er fjársöfnun til gróð-
ursetningar trjáa í Zambíu og mun
NCF samhliða því verkefni senda
fólk sem kenna skal ungmennum í
Zambíu ýmiskonar handverk sem
á að nýtast þeim vel í lífsbarátt-
unni.
En nóg um það að þessu sinni,
við vorum að fjalla um sumarþing-
ið í Pemar. Þar var að sjálfsögðu
rætt um stjórnmálaástand á
Norðurlöndum og vinnuhópar
fjölluðu um umhverfismál, örygg-
ismál, mannréttindamál og fram-
tíðarsýn NCF. En hinir sænsku-
mælandi Finnar gerðu sitt til að
kynna þinggestum sögu og stöðu
sænskumælandi minnihlutans í
Finnlandi, en sænskumælandi
Finnar eru um 300 þúsund talsins.
Fjórir gestafyrirlesarar fræddu
þinggesti um ýmislegt er tengist
mannréttindamálum, öryggismál-
um og efnahagsmálum í Evrópu í
tengslum við þá breytingu sem
tilvist Evrópubandalagsins skapar.
Þá var haldið í námsför á gamalt
stórbýli sænskumælandi Finna og
þjóðgarður í skerjagarðinum
heimsóttur. Þar höfðu tveir eyja-
skeggjar framsögu um gildi og
afleiðingar þess að eyjarnar voru
gerðar að þjóðgarði. Greinilegt
var á þeirra málflutningi að eyja-
skeggjar eru ekki á einu máli um
ágæti hins nýja fyrirkomulags.
Við þessi fimm sem til Finnlands
fórum að þessu sinni getum ekki
verið annað en ánægð með gott og
árangursríkt þing. Næsta þing mun
verða haldið á íslandi og er stefnt
að því að halda það á Austurlandi.
Munu frændur okkar og skoðana-
systkin á hinum Norðurlöndunum
þá koma siglandi með Norrönu.
Hallur Magnússon
Hrannar Magnússon
Krístján H. Krístjánsson
Skúli Skúlason
Steingcrður Anna Gunnarsdóttir
Umhverfismál hafa frá upphafi
verið helsta baráttumál NCF. Sam-
tökin hófu að berjast fyrir mengun-
arvörnum og umhverfismálum
löngu áður en sú vakning náttúru-
vemdar sem áberandi hefur verið
undanfarin ár hófst. f dag em að
koma í Ijós afleiðingar þess aðgerð-
arleysis í mengunarvörnum sem
NCF varaði við fyrir fimmtán
ámm, en þá var talað fyrir daufum
eymm.
Á fundinum í Pemar var sam-
þykkt ný umhverfismálaáætlun
NCF, en að henni hefur verið
unnið í rúmt ár. Stór hluti áætlun-
arinnar framlag NCF á Norður-
landaþingi æskunnar sem haldið
var samhliða aukaþingi Norður-
landaráðs á Helsingjaeyri í nóvem-
ber. Það þing var haldið sérstak-
lega vegna þömngaplágunnar og
mengunarinnar í Eystrasalti og
Norðursjó. Var tillegg NCF uppi-
staðan í lokaályktun „Norður-
landaráðs æskunnar" sem fjöl-
margir þingmenn á þingi Norður-
landaráðs töldu að nær hefði verið
að samþykkja sem lokasamþykkt
þess.
Áætlun NCF leggur megin
áherslu á fyrirbyggjandi aðgerðir
nú þegar til að koma í veg fyrir enn
verri skakkaföll í náttúmnni en
þegar hafa orðið. Markmiðið er að
maðurinn lifi í sátt og samlyndi við
náttúmna.
NCF leggur mikla áherslu á
endumýtingu og að koma í veg
fyrir sóun. Einnig hvetur NCF til
þess að fólk noti ekki vörur sem
valdi náttúruspjöllum. NCF sýnir
þetta í verki með því að nota
eingöngu óbleiktan pappír og oft-
ast endurunninn.
Samtökin benda á að mengun
virði engin landamæri. Því séu
umhverfismál ekki einkamál ein-
stakra ríkja heldur heimsins alls.
Því fordæmir NCF þá tilhneigingu
sem iðnríkin hafa haft til að nota
þróunarlöndin sem mslakistu und-
ir óæskilegan úrgang.
Loftmengun sýnir einna skýrast
að mengun virðir engin landamæri.
Súrt regn hefur sýnt það og sannað
á Norðurlöndum með því að drepa
skóga og eyðileggja vötn Skandín-
avíu. Jafnframt hefur efnamengun
frá landbúnaði og iðnaði raskað
lífríki í vötnum og hafsvæðum. Því
hvetur NCF bændur til að nota
lífrænan áburð í stað tilbúins
áburðar sem skaðað hefur jafnvæg-
ið í náttúmnni. Þá krefst NCF þess
að hættulegt frárennsli og loft-
mengun frá iðnaði verði stöðvað. í
ljósi þess að iðnaður í ríkjum
Austur-Evrópu er mesti orsaka-
valdur loftmengunar í Norðurálfu
hvetur NCF ríkisstjómir Norður-
landa að beita öllum mögulegum
þrýstingi til að þessi ríki geri átak
í mengunarvömum.
Sem samnorræn samtök hefur
NCF mestar áhyggjur af dauða
Eystrasalts. Einnig var lögð rík
áhersla á hina miklu ógn sem stafar
af mikilli umferð kjamorkuknú-
inna farartækja um Norður-Atl-
antshaf. Fyrir tilstilli SUF var lögð
sérstök áhersla á kröfuna um fækk-
un kjarnorkuvopna og kjarnorku-
drifinna farartækja í Norðurhöfum
sem er alvarlegasta ógnun við líf-
ríki og lífsafkomu íslendinga,
Norðmanna, Færeyinga og Græn-
Iendinga. Þetta tengist kröfu NCF
um kjamorkuvopnalaus Norður-
lönd, sem nái yfir bæði landssvæði
og hafsvæði frá Grænlandi til Kóla-
skaga.
Samhliða kröfunni um kjarn-
orkuvopnalaus Norðurlönd er
krafa NCF um að kjarnorkuverum
þar verði lokað vegna þeirrar hættu
sem af þeim stafar, en NCF hefur
frá upphafi barist gegn byggingu
kjamorkuvera á Norðurlöndum.
Eyðing ósonlagsins er NCF mik-
ið áhyggjuefni. Því fara samtökin
fram á að algert bann verði sett við
notkun ósoneyðandi efna. Þá hvet-
ur NCF til þess að dregið verði úr
notkun bifreiða og flugvéla vegna
þeirrar hrikalegu mengunar sem
frá þeim stafar. Þess í stað verði
byggt upp öflugt lestarkerfi um
meginland Evrópu sem sinnt geti á
hagkvæman máta bæði fólksflutn-
ingum og vöruflutningum. Einnig
að almenningssamgöngum verði
gert hátt undir höfði á kostnað
einkabílsins sem spýr eldi og eim-
yrju yfir menn og málleysingja.
SS/HM
Hallur Magnússon varaformaður NCF skýrir norrænu „Framsóknarfólki“
frá refilstigum íslenskra stjórnmála. Fráfarandi formaður NCF, Timo
Toropainen fylgist með af athygli, en Timo er SUF-urum að góðu kunnur
frá 50 ára afmælisþinginu síðastliðið haust.
Berjumst fyrir
mannréttindum
Á þinginu var mikið fjallað um
mannréttindamál enda fjölluðu
tveir af fjórum gestafyrirlesurum
um þennan mikilvæga málaflokk.
Miklar umræður urðu í vinnuhóp
um mannréttindamál og bar þar á
góma mál eins og réttur flótta-
manna og réttur samkynhneigðs
fólks. Þingið samþykkti sérstaka
ályktun um mannréttindamál sem
fer hér á eftir. Þá var samþykkt að
NONU keppnin
Fastur liður aðalfundar NCF er
svokölluð NONU keppni. Fimm
manna lið frá hverjum aðildarsam-
tökunum taka þátt í NONU keppn-
inni og er mikil stemmning í kring-
um hana. Keppnin skiptist í tvennt,
annars vegar er það spuminga-
keppnin og hins vegar þrauta-
keppnin. Að þessu sinni varð
keppnislið SUF í neðsta sæti, en
CUF, sænsku samtökin báru sigur
úr býtum annað árið í röð.
Þó SUF hafi rekið lestina að
þessu sinni, þá sýndi lið ungra
framsóknarmanna snilldartakta í
þrautakeppninni. íslendingarnir
voru þeir einu sem náðu að kveikja
eld án þess að beita nútímaaðferð-
um eins og með eldspýtum eða
kveikjara.
Hjá hinum aðildarsamtökunum
er langur aðdragandi að þessari
keppni, því hörð undankeppni er
háð hjá þeim og sigurlið heima
fyrir er síðan sent í NONU á
aðalfundinum.
Þá er sérstök menningarvaka
fastur þáttur. Þá er meðal annars
keppt um titlana „Hræðilegasti
grettir Norðurlanda“ „Versti
söngvari Norðurlanda“ og „Besti
stjórnmálamaður Norðurlanda".
Að þessu sinni sigraði Hrannar
Magnússon í keppninni „Besti
stjómmálamaður Norðurlanda",
en í þeirri keppni má ekki segja eitt
aukatekið orð. Hann fetaði í fót-
spor Halls sem sigraði í keppninni
fyrir ári. Þess má geta að Gissur
Pétursson formaður SUF sigraði \
með miklum glæsibrag í keppninni
„Hræðilegasti grettir Norður-
landa“ fyrir þremur árum og er
frammistaða hans enn í fersku
minni á vettvangi NCF.
Sendinefnd SUF tekur lagið á menningarvöku NCF. Kristján Krist-
jánsson, Hallur Magnússon, Hrannar Magnússon, Steingerður Gunnars-
dóttir og Skúli Skúlason. Á menningarvökunni hlaut Hrannar titilinn'
„Besti stjórnmálamaður Norðurlanda“ eftir tilþrifamikinn látbragðsleik.
lögð verði sérstök úhersla á mann-
réttindamál í starfi NCF á næst-
unni.
Ályktun NCF um
mannréttindamál
Rúm 40 ár em liðin síðan mann-
réttindayfirlýsing Sameinuðu þjóð-
anna var samþykkt. Á Norður-
löndunum er henni framfylgt, hér
er fundafrelsi, tjáningar og prent-
frelsi og annað sem tengist sjálf-
sögðum mannréttindum. Á sama
tíma em aðrar þjóðir að berjast
fyrir félagslegum og efnahagsleg-
um réttindum, þar em mannrétt-
indi ekki í heiðri höfð heldur
brotin daglega.
Nú em stjórnmál í mörgum
löndum að opnast fyrir nýjum
lausnum, mikilvægt er að flokkar
og samtök sem ekki hafa sömu
þjóðfélagsskoðanir og stefnur og
þeir sem fara með stjóm fái svig-
rúm til þess að koma sínum
skoðunum á framfæri. Réttur til
þess að gagnrýna stjóm lands síns
frjáls og án hræðslu við refsingu er
sjálfsagður og hann má aldrei
óvirða.
Fyrir okkur í NCF er það óhugs-
andi að fara ekki eftir öllu í
mannréttindayfirlýsingu Samein-
uðu þjóðanna. Þess vegna mund-
um við vilja að Norðurlandaráð
beitti sér fyrir að henni væri fram-
fylgt á Norðurlöndum og um leið
að hvetja aðrar þjóðir og styðja
þær eins og kostur er til þess að
framfylgja yfirlýsingunni.