Tíminn - 17.08.1989, Síða 20
—
RÍKISSKIP
NÚTIMA FLUTNINGAR
Holnorhúsinu v/Trvggvogötu,
S ,28822
Samvinnubanki íslands hf.
/4'Yw«w
Kr;
POSTFAX
TÍMAISIS
687691
Tímimi
FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 1989
Bátur frá Tálknafirði grunaður um að hafa stundað veiðar eftir að
hafa farið 40 tonn yfir kvóta og verið settur í bann:
Týndu þeir af lanum
leiðinni í land?
Báturinn Elesíus BA 328 frá Tálknafirði var í fyrrakvöld
stöðvaður af lögreglunni á Ólafsvík þar sem hann er talinn
hafa verið við veiðar í fjóra daga eftir að hafa verið settur
í bann af sjávarútvegsráðuneytinu. Enginn afli fannst um
borð, en Elesíus var þegar kominn 40 tonn fram yfir
leyfilegan afla og hafði fengið tilkynningu að stöðva veiðar.
Útgerðarfélagið sem rekur bátinn á tvo aðra og eru þeir
einnig í veiðibanni vegna þess að þeir hafa veitt umfram
úthlutaðan kvóta.
Útgeröarfclagið Auðna hf. á
Tálknafirði er eigandi bátanna
þriggja og eigendur þess hafa áður
lent í svipuðum málum, en það mál
sem komið er upp með bátinn
Elesíus, sem er um 50 tonna skip,
er litið mjög alvarlegum augum af
sjávarútvegsráðuneytinu. Verði
uppvíst að Elesíus hafi stundað
veiðar cftir að liann var settur í
bann, mun málið kært og fara fyrir
dómstóla.
Á fimmtudaginn fyrir viku var
útgerðinni sent skeyti þar sem
lilkynnt var að Elesíus væri sviptur
leyfi til veiða í íslenskri landhelgi
þar sem Ijóst var að hann hefði
ekki kvóta til frekari veiða. Aðal-
eigandi Auðnu hf. er jafnframt
skipstjóri á Elcsíusi. Þegar skeyti
ráðuneytisins barst var báturinn á
hafi úti, en talsmenn sjávarútvegs-
ráðuneytisins segjast hafa heimild-
ir fyrir því að orðsendingin hafi
borist skipstjóranum til eyrna dag-
inn eftir, á föstudag.
Veiðieftirlitsmaður var staddur
fyrir tilviljun á lögreglustöðinni á
Patreksfirði þegar skipstjórinn
hringdi þangað á föstudag. Ræddi
hann við skipstjórann og tilkynnti
honum að honum væru veiðar
óheimilar. Skipstjórinn svaraði því
til að það vissi hann vel, enda væri
hann bara þarna úti á sjó sér til
ánægju og yndisauka, en ekki til að
stunda veiðar.
Vegna þess að Elesíus er á
aflamarki var möguleiki fyrir eig-
endur þess að leysa málið með því
að kaupa kvóta og halda áfram
veiðum. Til þes^a ráðs hefur við-
komandi bátur gripið í tvígang
áður eftir að hafa fengið hótun frá
veiðieftirlitsmönnum. Nú er aftur
á móti mjög erfitt að fá kvóta
keyptan og þess vegna erfitt að
leika þann leik sem gert hefur
verið, að veiða fyrst og kaupa
síðan veiðiheimildir fy rir aflanum.
Starfsmaður Veiðieftirlits sjáv-
arútvegsráðuneytisins hefur haft
aðsetur á Tálknafirði í sumar og
fylgst hefur verið með Elesíusi sem
og öðrum dragnótabátum á þessu
svæði. Altalað er á Tálknafirði að
viðkomandi útgerðarfélag hafi
einnig farið framhjá lögum með
því að færa hluta af afla bátanna
þriggja yfir á smábáta sem ekki eru
bundnir við kvóta, heldur sóknar-
daga. Þá hafi þess einnig verið
freistað að flytja afla úr bátunum í
land í skjóli myrkurs og þá daga
sem veiðieftirlitsmaðurinn var ekki
í bænum. Þessar upplýsingar hafa
ekki fengist staðfestar. Hitt hefur
fengist staðfest að afli frá bátum
Auðnu hf. hefur verið seldur Hrað-
frystihúsi Tálknafjarðar í gegnum
fyrirtæki á vegum þriðja aðila.
Að sögn Björns Jónssonar veiði-
eftirlitsmanns hjá sjávarútvegs-
ráðuneytinu fylgjast þeir náið með
bátunum og stoppa þá um leið og
þeir fara yfir leyfileg aflamök og
tilkynna eigendunum að þeir verði
að útvega sér aukinn kvótá ætli
þeiraðhaldaáfram veiðum. -ÁG
Morris Van árgerð 1925 staddur á Grímsstöðum á Fjöllum s.l. mánudag, þá búinn að aka lungann af
hringveginum áfallalaust. Tímamynd; Sv.A.
Hringinn á Morris ’25
„Við komum með Norrönu til
íslands og erum að verða búin að
aka hringinn," sögðu bresk hjón
sem Sverrir Aðalsteinsson, frétta-
ritari Tímans hitti á Grímsstöðum
á Fjöllum s.l. mánudag.
Hjónin óku þessum tignarlega
gamla Morris Van árgerð 1925 og
voru þau þá búin að aka frá heimili
sínu í nágrenni London norður til
Aberdeen í Skotlandi, taka þaðan
ferju til Leirvíkur á Hjaltlandi þar
sem þau óku á skipsfjöl Norrönu
en af skipsfjöl hennar var gamla
Morrisinum ekið í land á Seyðis-
firði.
Ferðalagið hafði gengið mjög
vel og hafði hinn aldraði bíll ekki
bilað neitt á misjöfnum vegum
Islands, ekki hafði einu sinni
sprungiö dekk. -sá
Fyrstu niðurstöður úr rann-
sóknum danskra aðila:
PCB er við
Sundahðfn
Hollustuvernd ríkisins hefur feng-
ið staðfest frá dönskum aðilum að
PCB eru í nokkrum rafspennanna
sem eru á athafnasvæði endur-
vinnslufvrirtækisins Hringrásar hf.
við Sundahöfn. Enn liggja ekki fyrir
niðurstöður um magn efnisins, en
ráðgert er að upplýsingar berist um
það í næstu viku.
Hluti sýnanna var sendur til Dan-
merkur til nákvæmrar athugunar
vegna þess að klórsambönd bentu til
þess að spennarnir innihéldu PCB.
Ólafur Pétursson sagði í samtali við
Tímann að í næstu viku væri von á
upplýsingum um magn efnisins og í
framhaldi af því yrði tekin ákvörðun
varðandi þær ráðstafanir sem þyrfti
að gera. Sagði Ólafur að ef í ljós
kæmi að magn efnisins væri yfir
þeim mörkum sem leyfileg væru
þyrfti að flytja spennana erlendis til
eyðingar.
Spennarnir eru fengnir frá Raf-
magnsveitu Reykjavíkur og hafa
forsvarsmenn fyrirtækisins haldið
því fram að spennarnir innihaldi
ekki PCB. Kom fram skömmu eftir
að grunur um mengunina kom upp.
meðal annars í tilkynningu frá fyrir-
tækinu, að Rafmagnsveitunni hafi
ekki verið kunnugt um PCB í nein-
um af þeim spennum sem teknir
hafa verið niður og seldir hafa verið
til endurvinnslu hjá Hringrás hf. Par
segir einnig: „Allir spennar Raf-
magnsveitunnar, sem teknir hafa
verið niður, eru kældir með olíu sem
ekki er blönduð PCB.“
Líffræðilega séð er PCB mjög
virkt og hættulegt efni. Mengun af
völdum þess verður með þeim hætti
að efnið berst í fæðukeðjuna og
styrkur þess eykst eftir því sem ofar
dregur í keðjunni. Sem skýringu á
því af hverju PCB reynist vera í
spennunum þrátt fyrir orð Raf-
magnsveitunnar hefur verið bent á
að áður fyrr voru menn frekar óvark-
árir varðandi notkun á PCB, þar
sem það var ekki talið hættulegt. Til
dæmis voru notuð sömu áfyllingar-
tæki fyrir rafspenna, hvort sem á
þeim var PCB eða olía þannig að
hugsanlegt er að einhver PCB-meng-
un finnist í olíufylltum spennum þó
svo eigi ekki að vera. SSH