Tíminn - 20.09.1989, Síða 2

Tíminn - 20.09.1989, Síða 2
■MLðvjkudagur 2Q..september .1989 2 Tíminn Tillögur nefndar er endurskoöar almannatryggingalögin: Þak á greiðslur við 100 þúsund kr. mánaðarlaun? Samkvæmt heimildum Tím- ans er nú rætt um innan nefndar sem vinnur að endurskoðun á almannatryggingarlögunum, aö þeir aðilar sem hafa hundrað þúsund krónur í laun á mánuði eða meira, fái ekki greiðslur frá almannatryggingum. í stað þess verði greiðslur auknar til þeirra sem búa við sérstaklega erfið kjör, s.s. aðila er þurfa að hafa framfæri sitt af sjúkra- og slysa- dagpeningum. Finnur Ingólfsson aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra staðfesti er haft var samband við hann í gær að innan nefndarinnar væri verið að velta fyrir sér tekjutengdum ellilífeyri. Úm aðra efnisþætti frumvarpsins sem nú er í smíðum vildi Finnur ekkert segja annað en það að megin markmið með endurskoðun al- mannatryggingalaganna væri það að jafna rétt milli einstaklinga innan kerfisins, til greiðslu frá almanna- tryggingum. „Pað er alveg Ijóst, og það geta menn bara séð af tillögum og lagafrumvörpum sem flutt hafa verið á Alþingi á undanförnum árum, að útgjöld almannatrygging- anna munu aukast hröðum skrefum á næstu árum verði löggjöfin ekki endurskoðuð í heild sinni,“ sagði Finnur. Því til staðfestingar mætti benda á að tillögur um hækkun á sjúkradagpeningum, barnalífeyri og fleiru hefðu ítrekað komið fram, en ákvarðanatöku frestað vegna endur- skoðunar laganna. Innan nefndar- innar væri verið að vinna að tillögum er gerðu ráð fyrir tilfærslu fjármuna innan almannatryggingalöggjafar- innar. Markmiðið væri að auka ekki útgjöld innan kerfisins, heldur að jafna réttindi til greiðsla milli ein- staklinga. - En hvað með þá fullyrðingu í frétt í Alþýðublaðinu í gær að það sé hugmynd frumvarpssmiða í þing- mannanefnd að breyta stjórnkerfi Tryggingastofnunar m.a. með því að leggja niður pólitískt kjörið Tryggingaráð og setja á stofn óháða nefnd sem úrskurðaraðila? „Hér er í fyrsta lagi ekki um þingmannanefnd að ræða“, segir Finnur. „Að öðru leyti vil ég segja um þetta, að þessari breytingu hefur aldrei verið hreyft innan nefndarinn- ar. Hins vegar hafa menn verið að velta fyrir sér hvort rétt væri að breyta Tryggingaráðinu og koma á fót til hliðar við það óháðri nefnd sem úrskurðaraðila." Um þetta sagði Finnur engar ákvarðanir hafa verið teknar, en að óháð nefnd kæmi í staðinn fyrir Tryggingaráð væri fásinna og lýsti vanþekkingu á því sem verið væri að fjalla um. - AG Jafnréttisátak hjá menntamálaráöuneyti: Á leið upp úr hjólförunum? Gissur Páll Gissurarson, (t.v.) sem leikur Oliver og Ivar Örn Sverrisson, sem leikur Hrapp. Þjóöleikhúsiö sýnir vinsælan breskan söngleik í einn mánuð: Oliver sýndur á laugardaginn Söngleikurinn Oliver eftir Lionel Bart verður frumsýndur í Þjóðlekhúsinu á laugardaginn. Sýningar munu einungis standa yfir í einn mánuð vegna þess að skila þarf leikmyndum og búningum aftur til Bretlands fyrir 1. nóvember. Þetta er eina verkið sem sýnt verður á stóra sviðinu þennan tíma. Undanfarin tvö ár hefur verið starfandi á vegum menntamálaráðu- neytisins starfshópur sem á að finna leiðir til að stuðla að jafnri stöðu kynjanna.í skólum. Var afrakstur starfsins kynntur á fréttamannafundi í gær. Hefur hópurinn unnið að undirbúningi ráðstefnu um þetta efni sem haldin verður næstkomandi laugardag en auk þess er kominn út bæklingur og myndband sem bera heitið „Upp úr hjólförunum". Ráðstefnan er sem fyrr segir um jafna stöðu kynjanna í skólum og er hún ætluð kennurum sem og öðrum uppalendum. Aðalræðumaður verð- ur Bente Schwats kennari og lista- kona frá Danmörku. Mun hún fjalla um hvað skólinn og foreldrar geta gert til að hafa áhrif á að nemendur Kvennasögu- safnið skráð í sumar hafa þrír bókasafns- fræðingar unnið að því að skrá Kvennasögusafnið og er með því ráðgert að safnið verði sem aðgengi- lcgast þegar því verður komið fyrir í Þjóðarbókhlöðunni. Kvennasögusafn íslands var stofn- að 1975 og hefur Anna Sigurðardótt- ir, frumkvöðull þess, verið forstöðu- maður frá upphafi. SSH af báðum kynjum njóti sín sem jafngildir einstaklingar. Þá mun Guðný Guðbjörnsdóttir flytja erindi sem heitir: „Menntun í Ijósi jafnrétt- is kynja.“ Á ráðstefnunni verður kynntur bæklingurinn „Upp úr hjólförunum" sem er hvatningarrit til kennara um að vera vakandi um mismunandi stöðu kynjanna og hefur einnig að geyma hugmyndir að verkefnum á þessu sviði. Fyrirhugað er að dreifa þessum bæklingi til allra grunn- og framhaldsskólakennara. Jafnframt verður kynnt myndband sem ber sama heiti og var unnið í samvinnu Fræðsluvarps, menntamálaráðu- neytis og jafnréttisráðs. Myndin hef- ur nú þegar verið sýnd í Sjónvarpinu en Námsgagnastofnun sér um að dreifa myndbandinu. Þessa dagana er að fara af stað þróunar- og endurmenntunarstarf í Reykjanesumdæmi sem starfshópur- inn hefur undirbúið. Tveir kennarar hafa verið ráðnir til þess að halda fræðslufundi og námskeið með kennurum og aðstoða þá við að flétta umfjöllun um stöðu kynjanna inn í kcnnslu sína. Starfshópurinn mun skila skýrslu um næstu áramót og mun þar gera tillögu að stefnumörkun ráðuneytis- ins hvað varðar stöðu kynjanna í menntakerfinu. Ákveðið hefur verið að þessu starfi verði haldið áfram og nýr starfshópur skipaður til tveggja ára. SSH Þessi söngleikur var fyrst frum- sýndur í London fyrir tæpum 30 árum og naut þá gífurlegra vinsælda. Leikmynd og búninga gerði Sean Kenny og hefur leikmyndin hlotið mörg verðlaun. Alls koma um 50 manns fram í söngleiknum, sem byggir á sögu Charles Dickens um Oliver Twist. Þórhallur Sigurðsson, Laddi, leikur Fagin, en þetta er í fyrsta sinn sem sá landsfrægi leikari leikur í Þjóð- leikhúsinu. í kynningu frá Þjóð- leikhúsinu ásöngleiknum segirm.a.: „Það var vandasamt að finna 16 drengi sem syngja eins og englar í hlutverk vasaþjófanna hans Fagins, en leitað var til kórstjóra á Reykja- víkursvæðinu, sem sendu 70 drengi til leiks og úr þeim hópi valið. Þar mæðir mest á Gissuri Páli Gissurar- syni (12 ára), sem leikur söguhetjuna Oliver Twist. ívar Sverrisson (12 ára) leikur félaga hans Hrapp sem kemur honum til Fagins." Kunnir leikarar koma einnig við sögu s.s. Ragnheiður Steindórsdóttir, sem leikur Nansí, Pálmi Gestsson, sem leikur Bill Sikes, Margrét Péturs- dóttir sem leikur Betu, Flosi Ólafs- son, sem leikur Bumble, Örn Árna- sop sem leikur Sowberry, Anna Kristín Arngrímsdóttir, sem leikur frú Sowberry, Þórdís Arnljótsdóttir sem leikur Karlottu, Ellert A. Ing- imundarson sem leikur Nóa, Baldvin Halldórsson sem leikur Grimwig, Þórunn Magnea Magnúsdóttir sem leikur frú Bedwin og Bryndís Péturs- dóttir sem leikur Sally. Flosi Olafsson þýddi verkið, leik- stjóri er Benedikt Árnason, tónlist- arstjórn er í höndum Agnesar Löve, Ingibjörg Björnsdóttir stjórnar dansi og hreyfingum og lýsingu annast Mark Flenderson. Borgaryfirvöid og iög- reglustjóri ræöa um fram- kvæmd nýrrar reglugerðar um sölu og veitingar áfengis: Samkomulag í sjónmáli Lögreglustjóri og borgaryfir- völd eiga nú í viðræðum um nýsetta reglugerð um sölu og veitingar áfengis og framkvæmd hennar. Þegar hefur verið hald- inn einn fundur og á næsta fundi er ætlunin að gera út um málin en reglugerðin á að taka gildi um næstu mánaðamót. Borgarráð skipaði borgarfull- trúana Bjarna P. Magnússon og Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson í nefnd til viðræðna við lögreglustjóra um nýsetta reglugerð og fram- kvæmd hennar. Nefndin átti fund með Böðvari Bragasyni lögreglu- stjóra og Signýju Sen fulltrúa lögreglustjóra síðastliðinn mánu- dag. Að sögn Bjarna P. Magnús- sonar ríkti góður andi á fundinum og taldi hann allar líkur á að menn myndu koma sér niður á skilgreiningu sem allflestir ættu eftir að sætta sig við. Viðræðuað- ilar ætla að koma saman að nýju næst komandi mánudag og þar verður væntanlega gengið frá hvernig eigi að túlka reglugerð- ina. Bjarni sagði brýnt að koma á samræmi í opnunartíma en undanfarið hálft ár hafa gilt nokk- uð breytilegar reglur um opnun- artíma öldurhúsa. í þessu efni þyrfti að taka tillit til óska knæpu- gesta en ekki mætti heldur gleyma því að mörg þessara húsa værustaðsettííbúðabyggð. -EÓ Flugvirkjar násamningum Kjarasamningur flugvirkja hjá Landhelgisgæslunni og viðsemj- endur þeirra skrifuðu undir nýjan kjarasamning um klukkan sex í gærmorgun, hjá sáttasemjara. Samningurinn var undirritaður með fyrirvara um samþykki fé- lagsfundar. Launaliðir samningsins eru í samræmi við aðalkjarasamning flugvirkja Flugleiða, frá því fyrr á árinu, auk nokkurra sérkrafna sem náðust fram. - ABÓ 75 ára Þórarinn Þórarinsson Afmæliskveðja frá Tímanum Þórarinn Þórarinsson, fyrrver- andi ritstjóri og alþingismaður, varð 75 ára í gær, 19. september. Hann fæddist í Ólafsvík 1914. Að loknu prófi frá Samvinnu- skólanum 1933 gerðist Þórarinn blaðamaður við Tímann og varð ritstjóri 1938. Því starfi gegndi hann samfellt þar til hann hætti sjötugur 1984. Er blaðamennsku og ritstjóraferill Þórarins lengri en nokkurs annars íslandings og óhætt mun að fullyrða að þótt farið sé um lönd og álfur mun leitun að manni sem sinnt hefur ritstjórastarfi eins lengi og Þórarinn Þórarinsson, sem hefur skírteini númer 1. í BÍ. Þórarinn sat á þingi í nærfellt tvo áratugi og sinnti ótalmörgum trún- aðarstörfum innan þings og utan og hann áfti ómældan þátt í að undirbúa farsæla lausn landhelgis- mála okkar í undirbúningsnefnd hafréttarráðstefnu SÞ og með þátt- töku í ráðstefnunni í mörg ár. Hér er aðeins stiklað á stóru á æviferli Þórarins, en samstarfs- menn hans á Tímanum minnast hans sem hins milda yfirboðara, sem ávallt var hægt að leita til og þiggja ráð og leiðbciningar hjá þegar á þurfti að halda. Alltaf var hægt að treysta stálminni Þórarins og hin mikla reynsla hans af blaða- mennsku og þjóðmálum brást aldrei þegar eftir var leitað og aðrir voru komnir í strand að finna samhengið í stjórnmálasögunni og átökum líðandi stundar. Þórarinn hélt áfram að skrifa í Tímann eftir að hann hætti í fullu starfi og vonandi á blaðið og les- endur þess eftir að njóta starfs- krafta hans enn urn sinn. Þórarinn dvelur nú erlendis ásamt eiginkonu sinni Ragnheiði Vigfúsdóttur Þormar. Tíminn sendir Þórarni innilegar hamingjuóskir á afmælisdaginn og óskar þeim hjónunt góðrar heim- komu og farsældar. T

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.