Tíminn - 20.09.1989, Qupperneq 5

Tíminn - 20.09.1989, Qupperneq 5
Miðvikudagur 20. september 1989 Tíminn 5 Laun mun haerra hlutfall þjóöarframleiðslu hér en í nokkru aðildarríki OECD. Stendur valið um: Lækkun vaxta, launa eða fleiri gjaldþrot? Hlutfall launa í þjóðartekjum árin 1987-1989 er hærra (70-73%) heldur en í nokkru ríki OECD og hlutfall „hagnaðar“ þar af leiðandi minna, eða milli 27 og 30%, samanborið við 44% meðaltal í ríkjum OECD. Af minnkuð- um hagnaðarhluta þurfa fyrirtækin, m.a. að borga fjármagn- skostnað sem hækkaði stórlega þessi sömu ár. Afleiðingarnar eru hallarekstur fjölgun gjaldþrota og aukið atvinnuleysi. Þykir Ijóst að svo geti ekki gengið til lengdar. Hlutur einhverra - launanna eða fjármagnsins - í þjóðartekjunum verði að minnka. Hagnaðarhlutinn hér á landi fór hæst í um 41% árið 1983, þ.e. svipað hlutfall og i Bretlandi og Danmörku síðustu árin í fréttabréfi Verðbréfaviðskipta Samvinnubankans er fjallað um töl- ur frá OECD um skiptingu þjóðar- tekna milli launþega og hagnaðar fyrirtækja meðal aðildarríkjanna. Með hagnaði er þar átt við rekstr- arafgang sem fer til greiðslu á laun- um sjálfstæðra atvinnurekenda, afskriftum og vöxtum af lánsfé og afgangurinn, ef einhver verður, er síðan vextir á eigið fé eða hreinn hagnaður. Hagnaðarhlutfallið er sagt svipað hér á landi og í Noregi á árunum 1975-1986, að meðaltali um 34%, en um eða yfir 40% í öllum öðrum aðildarríkjum OECD þar sem það var 43% að meðaltali á þessu árabili og hefur síðan hækkað í um 44% undanfarin ár. í Noregi lækkaði þetta hlutfall heldur, niður í um 33% árin 1987-1989. Á íslandi lækkaði hagnaðarhlut- fallið hins vegar niður í 27-28% árin 1987 og 1988 og er áætlað um 30% á yfirstandandi ári. Þessi lækkun svarar í krónum talið til þess að hlutur fyrirtækjanna í þjóðartekjun- um hafi minnkað í kringum 12 milljarða kr. á ári síðustu þrjú árin. Hækkun raunvaxta skekkir síðan enn þá mynd sem hagnaðarhlutfallið gefur af stöðu atvinnulífsins. Meðal raunvextir allra útlána eru sagðir hafa hækkað úr 2-4% árið 1985 upp í 7-9% á árinu 1988. Heildarútlán innlends fjár voru um 220 milljarðar króna í árslok 1988 (um 80% af landsframleiðslu). Miðað við 7-9% raunvexti af þeirri upphæð næmu þeir samtals um 15-20 milljörðum króna. Hlutur fjár- magnseigenda og fjármálastofnana óx þannig um 11-12 milljarða króna umfram það sem verið hefði m.v. óbreytta raunvexti frá árinu 1985. Þar sem heimilin eiga mun meira sparifé heldur en þau skulda hefur hluti þessara auknu tekna af raun- vöxtum runnið til þeirra í formi ávöxtunar af sparifé. Greinarhöfundur í fréttabréfi VS kveðst ekki um það dæma hvort fjármagnseigendur og fjármála- stofnanir taki orðið til sín meira af þjóðartekjunum en þeim ber með réttu. „Á hinn bóginn verður ekki fram hjá því litið að hlutur einhverra í þjóðartekjunum verður að minnka tilsvarandi. Fram að þessu virðist aukinn hlutur fjárptagnseigenda hafa komið niður á fyrirtækjunum. Ljóst er að það getur ekki gengið til lendar". Af áðurgreindum forsendum segir greinarhöfundur að draga megi þá ályktun að óhjákvæmilegt verði að lækka hlutdeild launa í þjóðartekj- um og hækka hagnaðarhlutfallið. sem líklega þurfi í framtíðinni að vera 5-10% hærra en það er nú, eða á bilinu 35-40% að jafnaði. „í þessu felst að framundan er óhjákvæmi- lega töluverð lækkun kaupmáttar heildaratvinnutekna umfram minnk- un þjóðartekna“. Ólafur H. Torfason. Mannabreytingar hjá Þjóðviljanum Breytingar hafa orðið á rit- stjórn Þjóðviljans. Ólafur H. Torfason tekur við starfi ritstióra og mun hann starfa við hlið Árna Bergmann sem hefur verið eini ritstjóri Þjóðviljans um nokkurt skeið. Ólafur hefur verið for- stöðumaður Upplýsingaþjónustu bænda undanfarin þrjú ár. Jafnframt hefur Lúðvík Geirs- son fréttastjóri ákveðið að láta af störfum við blaðið. Hann hefur verið ráðinn í hálft starf til Blaða- mannafélags íslands en Lúðvík er formaður félagsins. - EÓ Stjarnan gjaldþrota Útvarpsstöðin Stjarnan hefur ver- ið úrskurðuð gjaldþrota. Stjarnan verður þó rekin áfram á ábyrgð aðaleiganda hennar Ólafs Laufdals. Ekki er vitað hvað skuldir útvarps- stöðvarinnar eru miklar en það er Ijóst að þær skipta tugum milljóna. Gjaldþrotið kemur í kjölfar riftunar á samningi um sameiningu Stjörn- unnar og Bylgjunnar. Ólafur hefur líst yfir áhuga á að kaupa eignir þrotabúsins en hann mun vera í miklum persónulegum ábyrgðum fyrir Stjörnuna. - EÓ Þingflokkur Framsóknarflokksins: Þingf lokksf undur á Ísafirði um helgina Menntamálaráðuneytið: Þessir skrifa um list Tímanum hefur borist eftirfar- andi fréttatilkynning frá mennta- málaráðuneytinu: Nýlega sendi menntamálaráðu- neytið út fréttatilkynningu um út- gáfu kynningarrits um íslenskar bókmenntir. Þar kom fram að þetta væri fyrsta ritið í ritröð um íslenska list. Næstu rit verða: Myndlist og hönnun. í það skrifa Áðaísteinn Ingólfsson og Örn D. Jónsson. Tónlist. Umsjón með þeim kafla hafa þau Bergljót Jónsdóttir, fram- kvæmdastjóri Tónverkamiðstöðv- arinnar, Karólína Eiríksdóttir og Hjálmar Ragnarsson, en Þorkell Sigurbjörnsson mun verða aðal- höfundur. Húsagerðarlist. Um hana skrifar Guðrún Jónsdóttir. Leiklist. Um hana skrifar Sveinn Einarsson. Danslist. Höfundur Árni Ibsen. Kvikmyndagerðarlist. Um hana skrifar Kristín Jóhannesdóttir. Höfundum er í sjálfsvald sett um hvaða listamenn þeir fjalla í grein- um sínum. Á sama hátt velja höfundár sjálfir þær myndir sem birtast í köflum þeirra. Bera Nor- A R T S AND CÚLTURE IN ICELAND Literature dal forstöðumaður Listasafns ís- lands mun þó taka þátt í vali á myndum í myndlistarkaflann ásamt Aðalsteini Ingólfssyni. í samráði við höfunda var ákveðið að aðaláhersla yrði á umfjöllun um það helsta sem nú er að gerast í íslenskri list. Bókmenntaritið verður þar undantekning, þar sem ekki þótti fært að sleppa umfjöllun um okkar merka bókmenntaarf. Höfundar urðu sammála um að í riti sem ætlað er til kynningar á íslenskri list erlendis þá mætti ekki leggja aðaláherslu á upptalningu á nöfn- um listamanna heldur kæmu nöfn þeirra fram í yfirlitsskrá, eins og þeirri sem birtist í bókmennta- kynningarritinu. Þess má svo geta að kynningar- ritið hefur mælst mjög vel fyrir og er afar eftirsótt víðs vegar um heim. Það er von ráðuneytisins að jafn vel takist til með næstu rit. Þingflokkur Framsóknarflokksins heldur fund á ísafirði um næstkom- andi helgi. Að sögn Páls Péturssonar formanns þingflokksins er hér um að ræða opin þingflokksfund og kynnis- för í bland. „Okkur er það mikið í ntun að kynnast viðhorfum stuðn- ingsmanna flokksins á Vestfjörðum. Við viljum ekki einasta rækja tengsl við þéttbýli heldur einnig við dreif- býlið“, sagði Páll. Að sögn Páls verður flogið frá Reykjavík til ísafjarðar að morgni föstudagsins 22. september og farin þá um morguninn skoðunarferð um bæinn undir ieiðsögn Magnúsar Reynis Guðmundssonar bæjarrit- ara. Þá verða vinnustaðir á ísafirði Jóni Sigurðssyni viðskiptaráð- herra hefur borist bréf frá Þorsteini Pálssyni formanni Sjálfstæðisflokks- ins þess efnis að ráðherra birti skýrslu um fyrirhuguð kaup Lands- banka íslands á hlutabréfum Sam- bands íslenskra samvinnufélaga í Samvinnubankanum hf. Þorsteinn heimsóttir og mun Elías Oddsson formaður framsóknarfélagsins á staðnum sjá um leiðsögn. Seinni part föstudagsins hefst þingflokks- fundur og verður forystumönnum Framsóknarflokksins í kjördæminu og öðrum stuðningsmönnum boðið að sitja fundinn og taka þátt í störfum hans. Þingflokkur framsóknarmanna hefur áður haldið fundi út um land, s.s. í Keflavík og á Sauðárkróki og víðar, þó svo að skipulagðar funda- ferðir út fyrir höfuðborgarsvæðið séu ekki farnar reglulega á hverju ári. Á laugardag verður farið til Bol- ungarvíkur og farin kynnisferð um fer fram á, þar sem ríkir almanna- hagsmunir eru í húfi að viðskiptaráð- herra taki ekki ákvörðun samkvæmt ákvæðum laga frá 1985 um viðskipta- banka fyrr en Alþingi hefur gefist kostur á að ræða málin í heild og taka til þess afstöðu. -ABÓ kaupstaðinn undir leiðsögn Sveins Bernódusonar. Eftir hádegið mun þingflokkurinn ferðast áfram um kjördæmið og koma við á Suðureyri, Flateyri og Þingeyri, en þaðan verð- ur flogið aftur til Reykjavíkur um kvöldið. - ÁG Páll Pétursson formaður þingflokks framsóknarmanna. „Okkur er það mikil auðfúsa að kynnast viðhorfum framsóknar- manna á Vestfjörðum, til þess sem við erum að gera. Hlusta á þeirra ráðleggingar og greina þeim frá okkar viðhorfum.“ Þorsteinn Pálsson um bankakaup Landsbanka: Vill skýrslu frá Jóni

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.